Morgunblaðið - 11.06.2011, Side 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011
Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
Robert Gates, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, gagnrýndi önnur
aðildarríki að Atlantshafsbandalag-
inu (NATO) í gær fyrir að treysta
um of á hernaðarlegan mátt Banda-
ríkjanna. Hann varaði við því að ef
starfsemi bandalagsins yrði of háð
Bandaríkjunum gæti það sett verk-
efni þess í Líbíu sem og önnur
framtíðarverkefni í hættu.
Pólitískan vilja skortir
„Í allri hreinskilni þá halda
margar af bandalagsþjóðum okkar
sig á hliðarlínunni, ekki af því að
þær vilji ekki taka þátt, heldur
vegna þess að þær geta það ekki.
Hernaðarlega getan er einfaldlega
ekki til staðar,“ sagði Gates á fundi
hjá sérfræðiráði í öryggis- og varn-
armálum í Brussel.
Hann bætti við að hersveitir
NATO hefðu til þessa náð mik-
ilvægum áföngum í stríðinu í Afg-
anistan en hins vegar hefði í veru
bandalagsins þar – og jafnframt í
Líbíu – í gegnum tíðina kristallast
of lítil fjárfesting í starfsemi þess
og skortur á pólitískum stuðningi
og vilja.
„Það veldur áhyggjum að í Afg-
anistan þurfi bandalagið, sem hefur
tvær milljónir hermanna á sínum
snærum, að berjast við að viðhalda
um 25–45 þúsund hermönnum þar
og þurfi auk þess að glíma við
skort á þyrlum, ýmsum farkostum
og eftirlitsflugvélum.“ Gates bætti
við að sömu annmarkar blöstu við
bandalaginu í Líbíu sem „sársauka-
fullt“ væri að horfa upp á.
Reiða sig á Bandaríkin
„Máttugasta hernaðarbandalag
sögunnar hefur nú í ellefu vikur
staðið í baráttu gegn illa vopnuðu
herliði í fámennu landi en engu að
síður er nú skortur á vopnabirgð-
um hjá mörgum bandalagsþjóðum
og í kjölfarið reiðir bandalagið sig,
enn og aftur, á að Bandaríkin ríði
baggamuninn,“ sagði Gates.
Einungis átta af tuttugu og átta
bandalagsþjóðum NATO sjá um að
halda uppi loftárásum á Líbíu til að
þrýsta Gaddafi forseta frá völdum.
Bandaríkjamenn fjármagna um
75% af starfsemi NATO og Gates
áréttaði að það yrði þeim erfiðleik-
um bundið að halda uppi slíkum
fjárhagslegum stuðningi þegar
efnahagsútlit væri dökkt heima fyr-
ir. Hann sagðist óttast að banda-
lagið myndi þróast í þá átt að verða
„tveggja-laga bandalag“ þar sem
ákveðnar þjóðir einskorðuðu sig við
mannúðaraðstoð en létu önnur ríki
um erfið verkefni sem krefðust
hernaðar.
„Og þetta eru ekki bara áhyggj-
ur af einhverju sem gæti gerst.
Þetta blasir við í dag. Og það er óá-
sættanlegt.“ Að lokum sagði Gates
að mögulegt væri að mikilvægi
NATO yrði minna í augum yngri
kynslóða stjórnmálamanna í
Bandaríkjunum.
Hernaðarlega get-
an ekki til staðar
Robert Gates segir NATO treysta um of á Bandaríkin
í öllum aðgerðum sínum og jafnframt skorti pólitískan vilja
Reuters
Í ræðustól Robert Gates í Brussel í gær. Við hlið hans situr Jaap de Hoop
Scheffer, fyrrverandi framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins.
Mexíkóska ljóðskáldið Javier Sicilia stóð fyrir
mótmælagöngu í heimalandi sínu í gær í minn-
ingu kvenna sem hafa verið myrtar í blóðugu eit-
urlyfjastríði sem geisað hefur í landinu í mörg
ár. Við upphaf göngunnar voru ljós tendruð á
kertum við krossa í landamæraborginni Ciudad
Juarez. Hundruð Mexíkóa söfnuðust saman í
borginni, en mótmælin fólu m.a. í sér ferðalag
mótmælenda um Mexíkó, sem hefur staðið í heila
viku. Málefnið stendur Sicilia nærri því sonur
hans var myrtur í tengslum við eiturlyfjastríðið.
Hvergi hafa fleiri fallið í stríðinu en í Ciudad
Juarez sem stendur við bandarísku landamærin.
Krossarnir eru við gröf átta kvenna sem voru
myrtar í stríðinu fyrir átján árum. sunna@mbl.is
Reuters
Ljós tendruð á kertum við krossa
„Það eru
baunaspír-
urnar,“ sagði
Reinhard Bur-
ger, yfirmaður
sýklavarna í
Þýskalandi, í
gær en nýjar
rannsóknir eru
taldar stað-
festa að þýskar
baunaspírur
eigi sök á kólí-
gerlafaraldri sem dregið hefur 29
manns til dauða. Áður höfðu spænsk-
ar gúrkur verið taldar hafa valdið far-
aldrinum en baunaspírurnar komu
sterklega til greina í kjölfarið. Rúss-
land hefur nú aflétt innflutningsbanni
á fersku grænmeti frá Evrópusam-
bandsríkjum. Bannið hefur haft mikil
áhrif á grænmetisframleiðslu í Evr-
ópu og spænskir gúrkubændur höfðu
sérstaklega orðið illa úti.
Óhætt að borða gúrkurnar
Rannsóknarsýni af baunaspír-
unum hafa þó ekki verið menguð af
kólígerlum en engu að síður telja sér-
fræðingar að með því að rýna í hvar
og hvernig faraldurinn braust út
megi rekja upprunann til spíranna.
Sýklavarnir Þýskalands segja nú
óhætt að borða gúrkur, tómata og kál
en vara fólk enn við því að borða
baunaspírur.
Yfir 3.000 manns hafa veikst vegna
kólígerilssmitsins sem er af áður
óþekktum toga. Margir hafa veikst
alvarlega.
Spírurnar
skað-
valdurinn
Austurgata 23, Keflavík
OPIÐ HÚS
Austurgötu 23, Keflavík
mánudaginn 13. júní
milli kl. 16 og 18.
Eigendur sýna.
Einbýlishús á tveimur
hæðum til sölu, laust strax.
Nýtt glæsilegt sumarhús í landi
Vatnsenda Skorradal til sölu
Húsið er 77 m2 ásamt 5 m2 geymslu/gestahúsi og
stendur í birkivöxnu landi, skjólgóðum sælureit en
býður samt upp á mjög gott útsýni. Til hússins er
vandað í alla staði m.a. stendur það á
steinsteyptum sökkulveggjum. Húsið er tilbúið til
afhendingar. Traustur aðili, ekkert áhvílandi.
Hákon
s: 8989396