Morgunblaðið - 11.06.2011, Page 32

Morgunblaðið - 11.06.2011, Page 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011 Framsóknarmaður skrifar: Það var í frétt- unum nýlega að Hvalur hf. ætlar ekki að veiða hval í sumar. Samt voru þeir búnir að gera allt klárt uppi í Hvalfirði til að taka á móti veiddum hvölum, verka þá og skera. Margir missa sumarvinnu sína sem annars hefðu haft góð störf við hvalskurð í sumar 2011. Talað er um 150 manns. Sú skýring er gefin á þessu, að ástand sé slæmt í Japan vegna sjávarflóða af völdum jarðskjálfta og svo hafi mót- taka fyrir hvalaafurðir frá Íslandi orðið fyrir tjóni í jarðskjálftanum sjálfum. Allt hjálpast því að með það að við getum ekki selt hvalaafurðir til Japans í bili, eða árið 2011. Nú er tækifæri fyrir ríkissjóð til að taka yfir Hval hf. gegn hæfilegri leigu sem ríkissjóður fengi upp á krít í bili. Hvalur hf. hefur fengið margt frá rík- inu. Ef þetta gengi ekki með góðu þá tæki ríkissjóður Hval hf. leigunámi í sumar 2011. Það réttlætir slíkt leig- unám fyllilega að þjóðin hefur ekki efni á því miðað við núverandi kreppu og atvinnuleysi að láta þessa auðlind þjóðarinnar sjálfrar sem hvalveiðar okkar eru vissulega vera ónotaða og fara til spillis sumarið 2011. Við skul- um ekki gleyma því að þjóðin sjálf á allan réttinn til hvalveiðanna á stóru hvölunum en ekki Hvalur hf. Þeir þurfa leyfi Alþingis til veiða sinna. Sækja um veiðileyfi til Alþingis. Með ríkisveiðum 2011 á stórhval tæki hvalborgarinn við af hamborg- aranum að vali kaupenda. Svo fengju öll veitingahús landsins ódýrt hval- kjöt til að setja á matseðilinn og selja ferðamönnum með miklum gjaldeyr- istekjum. Gæti verið gróðalind. Allir tekjulitlir ættu kost á ódýrum hval- borgurum og hvalkjöti í steik á pönn- una. Allir borði hvalborgara 2011. LÚÐVÍK GIZURARSON hæstaréttarlögmaður. Hvalborgarar handa öllum Frá Lúðvík Gizurarsyni Lúðvík Gizurarson BRÉF TIL BLAÐSINS AKUREYRARKIRKJA | Fermingarmessa í dag, laugardag kl. 10.30. Fermingarmessa á hvítasunnudag kl. 10.30. Í báðum athfönum þjóna sr. Svavar Alfreð Jónsson og sr. Hildur Eir Bolladóttir og félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja og organisti er Eyþór Ingi Jónsson. ÁRBÆJARKIRKJA | Helgistund kl. 11. Mar- grét Ólöf djákni og sr. Sigrún leiða stundina. Ritningarlestrar, hugleiðing, söngur og bæn. Sóknarnefndarfólk býður upp á grillaðar pylsur eftir stundina. ÁSKIRKJA | Messa og ferming kl. 11. Sr. Sig- urður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjón- ar fyrir altari ásamt Ásdísi Pétursdóttur Blöndal djákna. Kór Áskirkju syngur, organisti er Magn- ús Ragnarsson. Guðsþjónusta á hjúkr- unarheimilinu Skjóli kl. 13 í umsjá sr. Sigurðar Jónssonar sóknarprests. Organisti er Magnús Ragnarsson, forsöngvari er Tinna Sigurð- ardóttir. Vandamenn heimilisfólks velkomnir. Sjá www.askirkja.is. ÁSKIRKJA í Fellum | Messa og ferming kl. 14. Organisti er Drífa Sigurðardóttir, sókn- arpresturinn Lára G. Oddsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. ÁSTJARNARKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20. Helga Þórdís Guðmundsdóttir leiðir tónlistina, sr. Kjartan Jónsson hugleiðir boðskap hvíta- sunnunnar. Kaffi á eftir. BESSASTAÐAKIRKJA | Sameiginleg messa Garða- og Bessastaðasóknar í Garðakirkju kl. 20. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar og þjónar fyrir altari, félagar úr Kór Vídalínskirkju leiða safn- aðarsönginn, organisti er Jóhann Baldvinsson. Rúta fer frá Vídalínskirkju kl. 19.30, frá Jóns- húsi kl. 19.40 og frá Hleinum kl. 19.45. BORGARPRESTAKALL | Hátíðarguðsþjón- usta í Borgarneskirkju kl. 11. Hátíðarguðsþjón- usta í Borgarkirkju kl. 14. Hátíðarguðsþjónusta í Álftártungukirkju annan hvítasunnudag kl. 14. Guðsþjónusta verður á Dvalarheimili aldraðra kl. 16.30. BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi | Hátíð- arguðsþjónusta kl. 11. Gunnar Kristjánsson sóknarprestur. BREIÐHOLTSKIRKJA | Hátíðarmessa kl. 11. Prestur sr. Gísli Jónasson, kór Breiðholtskirkju syngur, organisti er Örn Magnússon. BÚSTAÐAKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta kl. 11. Kór Bústaðakirkju syngur undir stjórn kant- ors Jónasar Þóris, prestur er sr. Pálmi Matthías- son. Messuþjónar aðstoða. Kaffi á eftir. DIGRANESKIRKJA | Sameiginleg hátíðar- guðsþjónusta Digranes- og Hjallasöfnuða verð- ur í Hjallakirkju kl. 11. Mótorhjólamessa verður annan hvítasunnudag kl. 20. Messan verður með tónlist U2 sem íslenskir tónlistarmenn munu annast ásamt kór Ástjarnarkirkju sem syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmunds- dóttur. Vöfflukaffi á staðnum. Allur ágóði rennur til hjálparstarfs kirkjunnar. Leður og goretex er „viðeigandi“ klæðnaður. Sjá nánar á www.digra- neskirkja.is DÓMKIRKJAN | Ferming kl. 11. Prestar eru sr. Anna Sigríður Pálsdóttir og sr. Hjálmar Jóns- son. Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þor- mar. Messa annan hvítasunnduag kl. 11. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar. Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar. EGILSSTAÐAKIRKJA | Hátíðarmessa og ferming kl. 11. Prestur er sr. Jóhanna I. Sig- marsdóttir, organisti er Torvald Gjerde og kór Egilsstaðakirkju syngur. EIÐAKIRKJA | Hátíðarmessa annan hvíta- sunnudag kl. 13, við upphaf héraðsfundar Múlaprófastsdæmis. Sr. Jón A. Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum, þjónar fyrir altari, sr. Þor- geir Arason predikar. EMMANÚELS BAPTISTAKIRKJAN | Messa og sunnudagaskóli (Mass & Sundayschool) kl. 12 í Stærðfræðistofu 202 í Fjölbrautaskól- anum í Garðabæ. Veitingar á eftir. Prestur er sr. Robert Andrew Hansen. Guðsþjónusta á ensku og íslensku (in English & Icelandic). Þurfi að sækja má hringja í síma 847-0081. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er dr. Einar Sigurbjörnsson. Kór Fella- og Hólakirkju syngur og leiðir almennan safn- aðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Meðhjálpari og kirkjuvörður er Kristín Ingólfsdóttir. FRÍKIRKJAN Kefas | Grill og samvera verður annan hvítasunnudag kl. 17. Allir velkomnir en gott væri ef fólk léti vita af komu sinni með því að senda tölvupóst á kefas@kefas.is. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Hvítasunnuhátíð og ferming kl. 14. Prestur er sr. Bryndís Valbjarnar- dóttir, kór Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir tónlist ásamt Aðalheiði Þorsteinsdóttur orgelleikara. GARÐAKIRKJA | Messa kl. 20. Sameiginleg messa Garða- og Bessastaðasóknar. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar og þjónar fyrir altari, félagar úr Kór Vídalínskirkju leiða safnaðarsönginn, organisti Jóhann Baldvinsson. Rúta fer frá Ví- dalínskirkju kl. 19.30, frá Jónshúsi kl. 19.40 og frá Hleinum kl. 19.45. GLERÁRKIRKJA | Hátíðarmessa og ferming kl. 11. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar og kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Välja- ots. GRAFARVOGSKIRKJA | Hátíðarguðsþjón- usta kl. 11. Sr. Vigfús Þór Árnason prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur, einsöngvari er Hlín Pétursdóttir og organisti er Hákon Leifsson. Guðsþjónusta á Hjúkr- unarheimilinu Eir annan hvítasunnduag kl. 15.30. Sr. Vigfús Þór Árnason prédikar og þjón- ar fyrir altari. Þorvaldur Halldórsson söngvari leikur á hljómborð og syngur. Þorvaldur spilar frá kl. 15. GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10 og bænastund kl. 10.15. Messa kl. 11. Alt- arisganga og samskot til Sambands íslenskra kristniboðsfélaga. Messuhópur. Kirkjukór Grensáskirkju syngur og organisti er Ásta Har- aldsdóttir, prestur er sr. Guðný Hallgrímsdóttir. Molasopi á eftir. GRINDAVÍKURKIRKJA | Messa kl. 11. Kór Grindavíkurkirkju leiðir sönginn undir stjórn Helgu Bryndísar Magnúsdóttur organista. Messa í Víðihlíð kl. 14. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Hátíð- arguðsþjónusta kl. 14. Sr. Auður Inga Ein- arsdóttir heimilisprestur messar. Feðginin Heiðrún Guðvarðardóttir og Guðvarður Jónsson syngja. Organisti er Kristín Waage. GUÐRÍÐARKIRKJA Grafarholti | Guðsþjón- usta og ferming kl. 11. Prestur er sr. Sigríður Guðmarsdóttir, kór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn Hrannar Helgadóttur organista. Með- hjálparar Aðalsteinn Dalman Októsson og Sig- urður Óskarsson. Kirkjuvörður er Lovísa Guð- mundsdóttir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Ferming- armessa kl. 11. Prestar sr. Þórhallur Heim- isson og sr. Þórhildur Ólafs. Barbörukórinn syngur og kantor er Guðmundur Sigurðsson. HALLGRÍMSKIRKJA | Hátíðarmessa kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar, ásamt rev. Leonard Ashford. Sögustund fyrir börnin. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja, organisti er Hörður Áskelsson. Messa annan hvítasunnudag kl. 11. Sr. María Ágústs- dóttir prédikar og þjónar, ásamt sr. Bjarna Þór Bjarnasyni. Messuþjónar aðstoða og félagar úr Mótettukór syngja. Drengjakór frá N-Ameríku syngur í messuni og býður til tónleika að lokinni messu. Organisti er Kári Allansson. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Organisti er Douglas A. Brotchie og prestur er María Ágústs- dóttir. HÓLADÓMKIRKJA | Hátíðarmessa og ferm- ing kl. 14. Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vígslubiskup messar. Hátíðarsöngur sr. Bjarna sunginn. Kór Hóladómkirkju syngur, organisti og kórstjóri er Jóhann Bjarnason. Hallfríður Ólafsdóttir og Ármann Helgason leika á flautu og klarinett. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma annan hvítasunnudag kl. 20. Fagnað verður úthellingu heilags anda yfir kirkju Krists. Ragnar Schram prédikar. Kaffi á eftir. www.kristskirkjan.is. KAÞÓLSKA kirkjan: | Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og laugardag kl. 18. Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl. 11 og 19. Virka daga er messa kl. 18. Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema föstudaga). Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8. Orð dagsins: Hver sem elskar mig. (Jóh. 14) Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Vallaneskirkja, Suður-Múlasýslu. Hún Eyja frænka er hundrað ára á annan í hvítasunnu, 13. júní 2011. Hvílíkt afmælisbarn. Frá barnæsku hefur heim- sókn til Eyju í Dal verið yndislegt tilhlökkunar- efni og er enn. Minningar mínar um þessar heim- sóknir í mörgum ferðum sem barn með pabba og mömmu vestur í Djúp eru svo minnisstæðar að undrum sætir. Eftir skrölt á misjöfn- um vegum fyrir Hvalfjörð, upp Borg- arfjörð og niður í Borgarnes var ungri Ragney Eggertsdóttir stelpu það kærkomið að koma í Dal og hlaupa í fang á frænku sinni. Það sem merkilegast er þó að nú rúmri háfri öld síðar er Eyja frænka alveg eins. Sama ljúfa frænka mín, ávallt brosandi, alltaf já- kvæð og hefur aldrei neitt neikvætt að segja um nokkurn mann. Hlýlegt viðmótið, gestrisnin og ekki síst þessi dásamlega hlýja og nærvera. Ég verð líka jafn- undrandi í hvert skipti sem ég heim- sæki þessa góðu konu hversu minnug hún er enn og hve mikil skil hún kann á ætt sinni allri og það í margar kyn- slóðir og rekur án hiks ævi og störf ættingja sinna. Manni mínum og dætr- um tók hún með sama hætti og mér og varð án nokkurrar fyrirhafnar ástrík frænka þeirra, sem er auðvitað ekkert annað en enn ein staðfesting mann- kosta og fagurs hugarfars. Nú á þessum stórmerku tímamótum sendi ég þér Eyja mín, uppáhalds- frænku minni eins og svo margra ann- arra, mínar allra bestu kveðjur og hamingjuóskir á hundraðasta afmæl- isdaginn þinn. Ásta Benný Hjaltadóttir. Afmæli Eftir að hafa lesið fréttir af nýrri sam- þykkt Mannréttinda- ráðs Reykjavík- urborgar og fylgst með umræðunni þar að lút- andi hef ég velt því fyr- ir mér hvaða áhrif hún hefur á nemendur í skólum landsins. Án þess að telja mig í stöðu til að meta innihald samþykktarinnar þar sem hún hefur ekki verið birt al- menningi þegar þetta er skrifað, vil ég leyfa mér að leggja orð í belg, okk- ur öllum til umhugsunar. Ég leyfi mér að setja spurningarmerki við ígrundun hvers kyns ákvarðana á þessum vettvangi því ég tel að rann- sóknir skorti tilfinnanlega. Því miður er mér ekki kunnugt um hvaða fræði- menn voru ráðgjafar ráðsins í þessu máli. Evrópsk samfélög eru á einn eða annan hátt mótuð af fjölbreytni og margbreytileika hvað trúarbrögð, gildi og menningu varðar. Sá marg- breytileiki sem er hvað sýnilegastur er tilkominn vegna fólksflutninga eins og í Bretlandi. Þangað hefur til dæmis flutt fólk frá Suður-Asíu og Austur-Afríku og haldið sinni trú. Annað dæmi er sérstaða innfæddra minnihlutahópa eins og í tilfelli Sama í Noregi. Þrátt fyrir fjölmenning- arlegar rannsóknir af ýmsu tagi í gegnum árin og rannsóknir á sviði trúaruppeldisfræðinnar virðist hin trúarlega vídd fjölmenningarinnar ekki hafa fengið rými innan fé- lagsvísindarannsókna að neinu veru- legu marki. Segja má að með hryðju- verkaárásinni á tvíburaturnana 11. september 2001 hafi fræðasamfélagið þó tekið aðeins við sér. Á Íslandi hafa verið framkvæmdar einstaka rannsóknir og nokkrar kannanir á viðhorfi í garð íslam verið gerðar þegar fengist hefur verið við viðhorf í garð útlendinga. En fjöl- trúarleg viðhorf hafa lítið verið rann- sökuð á Íslandi. Svo virðist sem þessi skortur á rannsóknum eigi einnig við þegar kemur að kennslu í skólum. Þrátt fyr- ir stóraukinn áhuga á fjölmenningarlegri kennslu á síðustu árum virðist sem áhugi, rann- sóknir og efnisgerð taki aðeins að takmörkuðu leyti tillit til hins trúar- lega bakgrunns nem- andans. Dr. Heinz Streib, pró- fessor við Háskólann í Bielefeld, Þýskalandi, hefur bent á mikilvægi þess að rannsóknir bein- ist að skilningi nem- enda, samtali þeirra og upplifun. Ein af rannsóknum hans, „Strangeness in Inter-Religious Classroom Communication: Rese- arch on the Gift-to-the-Child materi- al,“ fjallar um árangur fjölmenning- arlegrar trúarbragðakennslu út frá sjónarhóli nemandans. Streib telur að beina verði sjónum að nemendunum í þeim aðstæðum sem þeir eru staddir í og spyrja hvort / hversu mikið þeir hafi þá tilfinningu að efnið eða það / þeir sem rætt er um séu þeim fram- andi. Og hann bætir við að honum þætti illa farið með menntun ef hlut- verk hennar væri orðið að gera lítið úr eða breiða yfir þá tilfinningu nem- andans að honum sé eitthvað fram- andi. Miklu fremur eigi að nýta sér tækifærin og kraftinn sem fer af stað þegar nemandinn uppgötvar eitthvað sem honum er framandi. Hull, Grimmit og fleiri við háskól- ann í Birmingham hafa þróað þá að- ferð sem rannsókn Streibs hefur beinst að. Hér er um aðferð að ræða sem nýtist til fjölmenningarlegrar trúarbragðakennslu. Með frásagna- kenndri nálgun og einföldu en um leið fjölbreyttu námsefni er nemandanum gefinn kostur á að kynnast fyr- irbærum trúarbragðanna skref fyrir skref í gegnum leik. Aðferðin á að gera nemandanum kleift að fóta sig út fyrir hinn þekkta bakgrunn sem hann hefur í þessum efnum skref fyr- ir skref þegar hann telur sig und- irbúinn. Líkja má þessari nálgun við þjálfun í því að vera opinn gagnvart „landa- mæraupplifunum“, þ.e. því að upplifa hið óvænta, framandi sem ekki er hægt að samsama sig við. Þessi nálg- un á rætur sínar í heimspeki fyr- irbærafræðanna þar sem hið fram- andi er skilgreint sem upplifun sem kitlar forvitnina en er áskorun um leið sökum þeirrar mótstöðu og hindrana sem einstaklingurinn upp- lifir. Rannsókn Streibs sýndi að það hvaða mynd hið framandi í eigin trú og trúarbrögðum annarra eða hið kunnuglega í eigin trú eða trúar- brögðum annarra fékk á sig í hópnum þegar tekist var á við umfjöllunar- efnið hafði lykiláhrif á hópferlið. Það væri að mínu viti óskandi ef við sem samfélag fólks bærum gæfu til að taka höndum saman um að þróa samskipti og upplýsingaflæði um trú, lífssýn og heimsmyndir í sátt og sam- lyndi út frá þörf barnanna sem sækja skóla landsins með markmið og hlut- verk skóla í huga. Ef það hefur ekki þegar gerst, þá tel ég að við eigum á hættu að lenda á sama stað og sum samfélög í Þýskalandi. En það kemur fram í SHELL-ungmennarannsókn- inni frá árinu 2006 að flokka megi ungmenni í Þýskalandi í tvo nokkuð jafnstóra hópa, annars vegar þá sem standa trú sinni nærri og hins vegar þá sem standa hvers konar skil- greindri trú eða trúarbrögðum fjarri og að ungmenni hafi tilhneigingu til flokkadrátta í þessum hópum. Höf- undar benda á að stofnanir sam- félagsins, veraldlegar og trúarlegar, hafi enn ekki brugðist við eða áttað sig á þessum veruleika. Ef ekkert verði gert eigi samfélagið á hættu að fylkingarnar harðni í afstöðu sinni hver gegn annarri eins og þegar sé tilfellið í stöku samfélagi í austurhluta Þýskalands. Koma þurfi á og skapa tækifæri til gagnkvæmrar samræðu og skilnings. Fyrirmyndir, trú og skóli Eftir Pétur Björg- vin Þorsteinsson » Trúarlega víddin í fjölmenningunni hefur fengið lítið rými innan félagsvísinda- rannsókna. Því er erfitt að taka ígrundaðar ákvarðanir um trú og skóla. Pétur Björgvin Þorsteinsson Höfundur er djákni í Glerárkirkju og formaður AkureyrarAkademíunnar MESSUR UM HVÍTASUNNU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.