Morgunblaðið - 11.06.2011, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 11.06.2011, Qupperneq 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011 Páll Óskar fyllti stærsta sal Hörpu fjórum sinnum, en löngu upp- selt var á alla tónleikana46 » Árni Matthíasson arnim@mbl.is Gítarleikarinn Kristinn Árnason heldur tónleika í Neskirkju á morgun, sunnudag, og hyggst þá leika gítartónlist frá ýmsum tímum. Kristinn lauk burtfararprófi frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar árið 1983 og stundaði síðan framhaldsnám í Eng- landi, á Spáni og í New York þar sem hann lauk prófi frá Man- hattan School of Music árið 1987. Hann hefur hlotið íslensku tón- listarverðlaunin og verðlaun úr minningarsjóði Kristjáns Eldjárns auk tilnefningar til menningarverðlauna DV. Fimm geisladiskar hafa komið út með gítarleik Kristins, hann hefur leikið víða hérlendis sem erlendis og komið fram í útvarpi og sjónvarpi. Kristinn hyggst hefja tónleikana á 16. aldar tónlist, „verki eftir spænska endurreisnartónskáldið Alonso Mudarra, sem var prestur og víhuelaleikari í Sevilla. Hann spilaði á víhuela sem er mjög líkt gítar en dó út í lok 16 aldar. Verkið spilast nánast eins á gítar og hljóðfærið sem það var samið fyrir, enda voru stillingar mjög líkar og á nútímagítar, en tónsviðið þó aðeins hærra. Ég færi mig svo aðeins fjær í tíma og spila tvö verk eftir John Dowland, tvo galliard-þætti. Annar þeirra er tileinkaður El- ísabetu fyrstu Englandsdrottningu og sjóræningjanum Digorie Piper, en sá herjaði aðallega á spænsk kaupskip og dönsk, kannski voru einhver Íslandsskip þar á meðal. Hann gerði þetta með velþóknun drottningar vegna þess að Spánverjar voru óvinir Englendinga á þessum tíma, en það má geta þess að Dowland var lútuleikari við dönsku hirðina um tíma.“ Kristinn leikur verkin á gítar þó hann segist gjarnan vilja spreyta sig á lútunni einhverntímann, en líkt og með verkið eftir Mudarra er stilling hljóðfærisins mjög svipuð og á nútíma-gítar, þó hann grípi til klemmukapó til að halda réttu tónsviði, en einnig voru ívið fleiri strengir á endurreisnarlútunni. Frá sextándu öld stekkur Kristinn til þeirrar átjándu og leikur þrjá þætti eftir J.S. Bach úr partítu í E-dúr, BWV 1006a. „Partít- an var upphaflega samin fyrir einleiksfiðlu, en Bach umritaði hanan síðan fyrir barrokklútu og bætti þá aðeins við bassanótum. Barrokklútan var aðeins dýpri en endurreisnarlútan og verkið er í sömu tóntegund, e-dúr, fyrir fiðlu og lútu og gítarinn líka, svo ég þarf ekki að gera neinar tilfæringar.“ Frá barrokktímanum stekkur Kristinn inn svo í nútímann eða réttara sagt inn í tuttugustu öldina, með verkum eftir Spánverj- ana Manuel de Falla, Isaac Albéniz og Enrique Granados. „Ég spila verk eftir Manuel de Falla sem hann samdi til minningar um Claude Debussy, Homenaje pour ’Le tombeau de Claude De- bussy’ og svo tvo þætti úr ballettinum El sombrero de tres picos sem ég útsetti fyrir gítar. Að lokum leik ég svo spænskan dans nr. 4 eftir Granados sem saminn var fyrir píanó en hljómar mjög vel í gítarútsetningu, dansandi fjörugur.“ Tónleikar Kristins í Neskirkju á sunnudag hefjast kl. 16.00. Fjögurhundruð ára ferðalag um gítarsöguna  Kristinn Árnason heldur tónleika í Neskirkju á sunnudag Morgunblaðið/Eggert Tónleikar Kristinn Árnason fer víða um gítarstigu á sunnudag. Bandaríski rithöfundurinn Téa Obreht hlaut í vikunni bresku Or- ange-verðlaunin, helstu bók- menntaverðlaun kvenna, fyrir bók sína The Tiger’s Wife sem er fyrsta bók hennar. Ekki hefur svo ungur höfundur hlotið verðlaunin fram að þessu, en Téa Obreht er á 26. ári. Hún fæddist í Belgrad í Júgóslavíu 1985 og hét þá Téa Bajraktarevic. Hún fluttist með foreldrum sínum til Kýpur, þaðan til Egyptalands og síðan til Bandaríkjanna 1997 og hefur búið þar síðan. Obreht stundaði nám við Há- skóla Suður-Kaliforníu í Los Ang- eles og lauk mastersgráðu frá Cornell-háskóla, en hún byrjaði einmitt að skrifa í því námi. The Tiger’s Wife segir frá ung- um lækni, Nataliu, og minningum hennar um afa sinn. Landið sem hún býr í er ekki tilgreint, en er greinilega á Balkanskaga á þeim tíma þegar Júgóslavía lesystist upp með mannvígum og átökum. Verðlaunuð Bandaríski rithöfund- urinn Téa Obreht. Yngst verð- launahafa Téa Obreht hlaut Or- ange-verðlaunin Nú stendur yfir á Listasafni Árnesinga í Hveragerði sýning sem nefnist Myndin af Þing- völlum, sem er tilraun til þess að veita yfirsýn yfir þær fjöl- breyttu birtingarmyndir sem Þingvellir hafa í íslenskri myndlist sem og hönnun, kortagerð, ljósmyndun, ferða- bókum og fjölmiðlun samtím- ans. Sýningarstjóri er mynd- listarmaðurinn Einar Garibaldi Eiríksson, en hann hefur sett saman sýningu úr verkum meira en fimmtíu listamanna. Í dag kl. 14:00 gengur Einar Garibaldi um sýn- inguna og ræðir við gesti. Myndlist Rætt um Mynd- ina af Þingvöllum Einar Garibaldi Eiríksson Nú stendur í Galleríi Ágúst sýning Magnúsar Helgasonar sem hann kýs að kalla Guð birtist mér. Í dag kl. 14:00 til 16:00 tekur Magnús á móti gestum og gangandi og leiðir um sýn- inguna. Magnús útskrifaðist frá AKI listaakademíunni í Hollandi ár- ið 2001 og hefur síðan helgað krafta sína listmálun, ljós- myndun og kvikmyndagerð. Verk hans einkenn- ast af frjálsri tjáningu og sterkum litum og eru sköpuð af fagurfræðilegri nálgun með pólitískum undirtón. Myndlist Óformleg leið- sögn í boði Úr einu verki Magnúsar. Í dag kl. 15:00 verður opnuð myndlistarsýning Rúnu Þor- kelsdóttur í Gallerý Klúku á Hótel Laugarhóli í Bjarnarfirði á Ströndum. Rúna nefnir sýn- inguna Vetrarnótt/sumarnótt, en á henni eru meðal annars blómamyndir sem unnar eru með akrýl á pappír, auk sér- stakrar innsetningar þar sem vetur mætir sumri. Rúna Þorkelsdóttir hefur verið starfandi myndlistarmaður í Amsterdam síðustu 35 árin. Sýningin verður opin alla daga frá kl. 10:00 til kl. 22:00 fram eftir sumri. Myndlist Vetrarnótt/sum- arnótt í Klúku Blómamynd eftir Rúnu. Díana Rós A. Rivera diana@mbl.is Á mánudagskvöldið verður Óp- erukórinn í Reykjavík og Bærum- sinfóníuhljómsveitin í Noregi með tónleika í Eldborg, Hörpu. Garðar Cortes, stjórnandi tón- leikanna, segir Óperukórinn hafa unnið með sinfóníuhljómsveitnni í Bærum árið 2003 og þegar leið að því að hljómsveitin næði 60 ára aldri hefði hana langað til gera eitthvað óvanalegt. Minnug góðs samstarfs við kórinn falaðist sin- fónían eftir því að hljómsveitin fengi að koma til Íslands og haldn- ir yrðu sameiginlegir tónleikar sem Garðar stjórnaði. Á efniskránni er eingöngu nor- ræn tónlist, m.a. verk eftir norska tónskáldið Edvard Grieg, verð- launaverkið Hjalar-ljod eftir Ei- vind Groven, sem samið var í til- efni 900 ára afmælis Óslóborgar, og Svíta nr. 1 úr Hundrað Har- dingtónum eftir Geirr Tveitt sem byggir á þjóðlögum frá Harðangri. Stærsta verk tónleikanna er kór- verkið Völuspá eftir David Monrad Johansen sem samdi verkið við þýðingu Ivars Mortensson á ný- norsku. Völuspá er Eddukvæði af óþekktum uppruna sem geymdist framan af í munnlegri geymd en talið er að það sé ort á Íslandi eða í Noregi. Þrír einsöngvarar, kór og hljómsveit flytja Völuspá og er sungið á nýnorsku. Að sögn Garðars liggja miklar æfingar að baki. Garðar hefur far- ið út til Noregs og æft með hljóm- sveitinni en einnig hefur kórinn þurft að leggja sig fram við að syngja á norsku. „Það er búið að vera ansi strangt hjá okkur að ná þessu fram. Við höfum fengið alls- konar hjálp við það og tökum þetta mjög alvarlega,“ segir Garð- ar. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00 og auk kórs og hljómsveitar koma einsöngvararnir Þóra Ein- arsdóttir, Sesselja Kristjánsdóttir og Jóhann Smári Sævarsson fram. Völuspá sungin á nýnorsku  Óperukórinn syngur í Hörpu með Bærum-sinf- óníuhljómsveitinni Morgunblaðið/Kristinn Strangt Á æfingu Óperukórsins fyrir tónleika með Bærum-sinfóníuhljómsveitinni í Eldborg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.