Morgunblaðið - 11.06.2011, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 11.06.2011, Qupperneq 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011 www.sinfonia.is » Miðasala í anddyri Hörpu » Sími: 528 5050 » Opið 12-18 alla daga Sala nýrra áskrifta á tónleikaraðir starfsársins 2011/12 er hafin í miðasölu Hörpu og í síma 528 5050. Kynntu þér dagskrána á www.sinfonia.is. Sala Regnbogakorta hefst 16. ágúst. gula röðin rauða röðin græna röðin litli tónsprotinn Díana Rós A. Rivera diana@mbl.is Ragnheiður Lilja Óladóttir, sópr- ansöngkona og nemi við Tónlistar- skólann í Reykjavík, mun í lok júní taka þátt í Hans Gabor Belvedere óperukeppninni í Vínarborg. Hún heldur styrktartónleika í Seltjarn- arneskirkju á þriðjudag til að fjár- magna þátttökuna í keppninni. Að sögn Ragnheiðar Lilju sá hún keppnina auglýsta og ákvað að sækja um en áheyrnarprufur fóru fram í Íslensku óperunni, umboðs- aðila keppninnar hér á landi. „Ég fór og söng tvær aríur og var hleypt í gegn,“ segir Ragnheiður Lilja. Búin að æfa söng í fjögur ár Fyrir keppnina á hún að velja og æfa fimm aríur úr mismunandi óp- erum. „Ég er búin að æfa söng í fjögur ár svo ég átti eitthvað í handraðanum,“ segir hún og bætir við að hún hafi æft stíft fyrir keppn- ina. „Ég er búin að vera fjórum sinnum í viku í vetur og þessa dag- ana er ég á hverjum degi að æfa með mínum söngkennara og undir- leikara.“ Hún segir að keppt sé í tveimur hollum, í því fyrsta eru 140 keppendur frá 50 löndum en svo er skorið niður um helming og í úrslit- unum berjast 20 alls um sigurinn. Ragnheiður Lilja telur mjög mik- ilvægt fyrir íslenska söngvara að koma sér á framfæri í útlöndum þar sem meira sé um að vera þar. „Rosalega margir af okkar bestu söngvurum starfa mestan hluta árs- ins í útlöndum, það er mikið stærri markaður og fleiri áhorfendur.“ Hún heldur jafnframt að þátttakan í keppninni muni gera hana reynsl- unni ríkari. „Keppnin mun örugg- lega gefa mér bæði reynslu og víð- sýni og þarna gefst mér tækifæri til að skapa tengsl við fólk á mínu reki með sömu áhugamál. Það er alveg frábært.“ Ragnheiður Lilja verður með styrktartónleika í Seltjarnarnes- kirkju næstkomandi þriðjudag, 14. júní, kl. 20:00 þar sem hún mun meðal annars syngja sömu aríur og í óperukeppninni. Lára Rafnsdóttir leikur undir. Auk þess koma fram söngvararnir Elfa Dröfn Stef- ánsdóttir og Bjarni Guðmundsson fram. Þá mun Júlía Óladóttir leika tvö verk á píanó. Á leið í söngkeppni í Vín Morgunblaðið/Ernir Keppni Ragnheiður Lilja og Alina Dubik, söngkennari hennar.  Ragnheiður Lilja Óladóttir tekur þátt í óperukeppni í Vínarborg  Verður meðal 140 keppenda frá 50 löndum Aðrir tónleikar í Sumartónleika- röð Gljúfrasteins verða haldnir á sunnudag, hvíta- sunnudag, kl. 16:00, en þá flytja Ingveldur Ýr Jónsdóttir og Gerrit Schuil leikhúslög eftir Kurt Weill, Leon- ard Bernstein, George Gershwin, Atla Heimi Sveinsson og Jón Nor- dal. Ingveldur Ýr hóf söngnám við Söngskólann í Reykjavík 15 ára gömul og fór síðan utan til náms í söng og leiklist við Tónlistarskóla Vínarborgar. Hún lauk masters- gráðu frá Manhattan School of Mu- sic í New York 1991. Hún gaf ný- lega út einsöngsplötuna Portrett með úrvali af lögum frá ferli sínum. Gerrit Schuil fæddist í Vlaar- dingen í Hol- landi. Níu ára gamall vann hann til fyrstu verðlauna í keppni ungra tónlistarmanna. Hann hóf reglu- legt nám við Tónlistarháskól- ann í Rotterdam árið 1968. Hann hefur komið fram á tónleikum víða um Evrópu, í Bandaríkjunum og Asíu og stjórnað hljómsveitum. Eft- ir tónleikaför til Íslands árið 1992 settist Gerrit hér að og býr nú í Reykjavík. Samstarf þeirra Ingveldar Ýrar og Gerrits nær aftur til ársins 1998 þegar þau fóru hringferð um landið með leikhústónleika. arnim@mbl.is Leikhúslög með á Gljúfrasteini  Ingveldur Ýr og Gerrit Schuil flytja leikhúslög í Sumartónleikaröðinni Ingveldur Ýr Jónsdóttir Gerrit Schuil Útgáfufélagið Eyja hefur gefið út bók- ina Undir rós sem er yfirlit um verk listakonunnar Kristínar Gunnlaugs- dóttur. Að sögn Kristínar voru það þeir Gunnlaugur Sigfússon hjá útgáf- unni og Páll Valsson ritstjóri sem ákváðu í sameiningu að gefa út bók með verkum eftir hana og þar sem yf- irlitssýning á verkum hennar var væntanleg var ákveðið að sameina verkefnin. Sýningin var opnuð í Lista- safni Akureyrar 7. maí og kom bókin út á sama tíma. Kristín segist hafa unnið grimmt í bókinni í heilt ár og þau Gunnlaugur og Páll samið texta fyrir hana í sam- einingu. Í bókinni er viðtal Páls við Kristínu um ævi hennar og störf auk greinar eftir Ásdísi Ólafsdóttur list- fræðing. Myndir af verkum hennar eru 130 í heildina og eru frá upphafi ferils Kristínar og fram til dagsins í dag. Aðspurð hvort bókin sé hún í máli og myndum játar hún því. „Mér finnst það. Og þetta er ekki eins slæmt og ég hélt,“ segir hún og hlær. Ámundi Sig- urðarson, grafískur hönnuður, setti bókina upp í samstarfi við Kristínu og er hún að eigin sögn ánægð með út- komuna. „Það tókst vel hjá mér og Ámunda að raða verkunum saman þannig að þetta er ekki bara í beinni tímaröð, það er líka nauðsynlegt að sýna innri tengingar á milli verka og tímabila vegna þess að það er talsverð breidd sem kemur fram á þessum ferli og er það örugglega sá þáttur sem kemur fólki hvað mest á óvart þegar það skoðar verkin mín,“ segir Kristín. Hún segir feril sinn spanna allt frá málverkum, eggtemperum og íkonum yfir í teikningarnar og veggteppin í dag. Maðurinn og guðdómurinn Kristín segist vera á fullu að skapa og ferill hennar heldur því áfram að bókinni lokinni. „Það er eins og ég hafi komið að krossgötum og verið neydd til að staldra við og líta til allra átta. Ég er búin að fara einhvern veginn yf- ir ferilinn og skoða vel og velja úr og gera þetta innra hreinsunarstarf sem er öllum listamönnum nauðsynlegt,“ segir Kristín. Hún bætir við að það hafi verið ákveðin forréttindi að þurfa í raun að vinna bæði verkin, sýninguna og bók- ina. „Þetta er ekkert auðvelt. Það þarf að horfast í augu við takmarkanir sín- ar. Skoða það sem var gert og fram- kvæmt sem val og skoða kosti og galla sem lífið færði manni og hvernig var unnið úr hlutunum, það sést svolítið svart á hvítu. Það kemur líka skemmtilega á óvart að styrkleikar mínir eru þeir sem ég hélt að væru veikleikar áður – og öfugt.“ Kristín segist ánægð þegar hún lít- ur yfir feril sinn og sér hveru mikil breidd er í honum og sérstaklega í myndmálinu. Hún fari pólanna á milli í verkum sínum en á sama tíma séu þau tengd. „Þetta tengist allt, því þetta eru allt mismunandi hliðar á sama dem- antinum sem er auðvitað bara mað- urinn og tengsl hans við guðdóminn og sjálfan sig,“ segir Kristín að lokum. diana@mbl.is Listakona í máli og myndum Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Forréttindi listakonan Kristín Gunnlaugsdóttir við verkið sem prýðir kápur bókarinnar Undir rós.  Bókin Undir rós um listakonuna Kristínu Gunnlaugsdóttur komin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.