Morgunblaðið - 11.06.2011, Page 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011
Það getur verið erfitt að sitjakyrr heila tónleika í fín-asta tónleikasal landsinsog hlusta á mesta stuð-
bolta landsins flytja sín bestu lög
við undirleik bestu hljómsveitar
landsins. Sumir létu það samt ekki
stoppa sig og dönsuðu þegar löng-
unin greip þá.
Páll Óskar Hjálmtýsson hélt
ferna tónleika í vikunni, þeir síðustu
eru í kvöld, með Sinfóníuhljómsveit
Íslands undir stjórn Bernharðs
Wilkinsons í Eldborg, stærsta sal
tónleikahússins Hörpu. Ég fór á
aðra tónleikana, á fimmtudags-
kvöldið.
Páll Óskar fyllti stærsta sal
Hörpu fjórum sinnum, en löngu
uppselt var á alla tónleikana, og þar
áður fyllti hann Háskólabíó nokkr-
um sinnum í haust þegar hann kom
fyrst fram með Sinfóníuhljómsveit-
inni með sömu dagskrá og í Hörpu.
saman diskósyrpa úr „TF-Stuð“ og
fleiri lögum og Páll Óskar kom inn á
sviðið eins flugmanna-guð. Gaf það
forsmekkinn að búningasýningu
kvöldsins. Páll Óskar tók svo sín
helstu stuðlög, til dæmis; „Betra
líf“, „Söngur um lífið“, „Þú komst
við hjartað í mér“, „Stanslaust
stuð“, „Allt fyrir ástina“, „Ljúfa líf“
og endaði auðvitað á „Gordjöss“. Þá
trompaðist salurinn, stóð allur upp,
klappaði og dansaði í brjáluðu stuði.
Ég sá hóp af ungum stelpum dansa
skælbrosandi á svölunum fyrir ofan
mig og eldri hjón dilla sér við hlið-
ina á mér. Páll Óskar nær til allra,
töfrar hans eru miklir og nánast
áþreifanlegir. Einn töfrasporti hans
er sviðsframkoman og sviðsklæðn-
aðurinn. Hann skipti um búninga
nokkrum sinnum þetta kvöld og
voru þeir hver öðrum glæsilegri,
glansandi og glitrandi. Ég átti erfitt
með að horfa á sviðið á tímabili því
Palli glitraði svo mikið að ég fékk
illt í augun. Hann var eins og diskó-
kúla, eða stjarnan Bjartsýni sem
hafði fallið af himnum ofan til að
bjarga okkur Íslendingum frá böl-
sýni. Páll Óskar ræddi við áhorf-
endur á milli laga, einlægur eins og
alltaf og á eintali við hvern og einn.
„Takk fyrir að fara ekki á Eagles“
var meðal ógleymanlegra setninga
kvöldsins.
Já, Páli Óskari er allt til lista lagt
þegar tónlist og skemmtun er ann-
ars vegar. Þetta voru frábærir tón-
leikar, skemmtun frá byrjun til
enda, og ég væri ekki hissa þótt
tónleikagestir herðu dansað heim í
rúmið.
Stjarnan sem færði
okkur betra líf
Geislandi „Ég átti erfitt með að horfa á sviðið á tímabili því Palli glitraði svo mikið að ég fékk illt í augun.“
Harpa
Páll Óskar og Sinfó
bbbbm
Eldborg, Hörpu. Fimmtudagskvöldið 9.
júní 2011 kl. 20.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
TÓNLIST
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Cynthia Ann Stephanie Lauper
syngur í Hörpu annað kvöld.
Cynthia er betur þekkt sem Cyndi
Lauper sem söng hér forðum daga
skærri röddu um að stelpur vildu
bara skemmta sér. Lauper hefur
alltaf langað að koma til Íslands,
elskar Björk og fær aldrei leiða á
tónlist. Blaðamaður spjallaði við
„eighties“-söngdívuna um daginn
og veginn.
Gæti ekki hugsað sér annað
Lauper skaust á toppinn um
miðjan níunda áratuginn, á „eig-
hties“-tímabilinu, þegar hún gaf út
sína fyrstu plötu, She’s So Unu-
sual. Hún var fyrst allra kvenna til
að fá fjögur lög af einni plötu á
topp fimm vinsældalista. Lauper
hefur síðan þá gefið út tíu plötur,
yfir 40 lög og frá 2008 selt yfir 30
milljónir eintaka á heimsvísu og nú
er hún komin til Íslands. En hvers
vegna ákvað hún að koma hingað?
Var þetta hennar ákvörðun eða var
hún beðin að koma?
„Ég hugsa að það sé svolítið af
hvoru tveggja. Mig hefur alltaf
langað að koma hingað til Íslands
og spila hérna. Ísland er eitt af
fáum löndum sem ég hef ekki hald-
ið tónleika í. Aðdáendur mínir hafa
oft beðið mig að koma hingað svo
að hér er ég!“
Nú hefur þú verið í tónlistar-
bransanum af fullum krafti í næst-
um 30 ár, hvernig ferðu að þessu?
Færðu aldrei leiða á tónlistinni?
„Tónlist er alltaf að breytast, svo
það er lítill möguleiki á því að ég
verði þreytt á henni. Ég elska að
gera það sem ég geri. Ég gæti ekki
ímyndað mér að gera neitt annað.“
Hefur tónlistin þín þróast í ein-
hverja sérstaka átt yfir árin?
„Ég myndi segja að ég elti bara
sönggyðjuna mína, hvert sem hún
ber mig. Ég er ekki hrifin af því að
einskorða tónlistina mína við ein-
hverja ákveðna tegund eða
stefnu.“
Fílar Björk og Sykurmolana
Cyndi Lauper hlustar á íslenska
tónlist og segir Björk vera í miklu
uppáhaldi. „Algjörlega, einn af
mínum uppáhaldstónlistarmönnum
er Björk og ég dýrkaði Sykurmol-
ana,“ segir Lauper. „Ég er mjög
hrifin af elektrónískri tónlist og
það kemur fullt af virkilega góðri
elektróník frá Íslandi.“
En nú hafa tímarnir í tónlistar-
heiminum breyst töluvert frá því
að þú slóst í gegn. Sérðu einhvern
mun á þér á þeim tíma og á ungum
stúlkum í dag sem eru að taka sín
fyrstu skref í heimi frægðarinnar?
„Tónlistariðnaðurinn virðist vera
mun opnari konum í dag en var á
þeim tíma. Hins vegar þarf að hafa
einhverja hæfileika og þessa þrá til
að ná langt.“
Semur eigin tónlist og enginn
vafi á fleiri plötum
„Já, að sjálfsögðu sem ég mína
eigin tónlist,“ segir Lauper. „En
mér finnst líka mjög gaman að
tækla tökulög frá tónlistarmönnum
sem ég hef miklar mætur á, eins
og lögin sem ég valdi á nýjustu
plötu mína, Memphis Blues.“
Nú hefur þú gefið út samtals 11
plötur, heldurðu að þú munir gefa
út fleiri plötur á lífsleiðinni?
„Já, án alls efa mun ég gera það.
En í bili ætla ég að njóta nýju plöt-
unnar og helga öðrum verkefnum
tíma minn. Ég mun einnig gefa út
DVD frá tónleikum sem kemur út í
september og svona jólastuttskífu
yfir hátíðirnar.“
Þá er aðeins eitt að lokum, vilja
stelpur bara skemmta sér?
„Algerlega! En við viljum líka fá
virðingu og lifa við jöfnuð.“
Cyndi sækir í
sönggyðjuna
Saklaus Cyndi Lauper gerði garðinn frægan með lögum á borð við Time After Time og Girl Just Want To Have
Fun af plötunni She’s So Unusual og miðað við fataval hennar gæti verið að titill plötunnar hafi átt við hana sjálfa.
Krúttlega röddin komin til landsins
Það dylst líka engum að Páll Ósk-
ar er stjarna og hann sýndi það og
sannaði enn og aftur á þessum tón-
leikum. Páll Óskar var eins og kon-
ungur í ríki sínu í Eldborg á
fimmtudaginn. Hann átti salinn og
át hann með húð og hári. Maðurinn
hefur mikla orku og ótrúlegt úthald,
flutti sextán lög auk tveggja upp-
klappslaga á mikilli keyrslu, dansaði
og djöflaðist, og blés ekki úr nös.
Lögin hans komu líka vel út í sin-
fónískri útsetningu þótt ég hefði
viljað heyra sum stuðlögin, sér-
staklega fyrir hlé, betur útsett að
eiginleikum Sinfóníunnar. Rólegu
lögin voru best. „Ó, hvílíkt frelsi“
sem hann flutti með Moniku Abend-
roth var gæsahúð, „Góða nótt“ sem
hann söng með Kristjönu Stef-
ánsdóttur var yndislegt og „Ást við
fyrstu sýn“ einnig. Í þessum lögum
naut Sinfónían sín best og hreinn
unaður að hlusta á spilamennsku
hennar í þessum sal. Það lag sem
kom mér þó mest á óvart og var
frábærlega útsett fyrir Sinfóníuna
var Evróvisjónlagið „Minn hinsti
dans“, kom mjög vel út og ég væri
til í að heyra það aftur í þessari út-
setningu.
Stuðlögin hans Palla þekkja flest-
ir og kannski erfitt að gera eitthvað
annað við þau en að halda stuðinu
áfram. Tónleikarnir byrjuðu á
óborganlegu atriði þar sem sett var
Ljósmynd/Heida HB
Það vita flestir hver Cyndi Lau-
per er, drottning níunda áratug-
arins. Þeir sem kannast ekki við
nafnið kveikja eflaust á perunni
þegar lagið Girls Just Want To
Have Fun er spilað. Þessi söng-
kona, lagahöfundur og leikkona
er enn að og nýjasta plata henn-
ar, Memphis Blues, kom út í
fyrra. Nú er hún á tónleika-
ferðalagi og spilar á Íslandi ann-
að kvöld.
Cyndi reyndi lengi fyrir sér
sem söngkona og gaf meðal
annars út plötu með hljómsveit-
inni Blue Angel. Platan seldist
illa og í kjölfarið flosnaði sveitin
upp. Umboðsmenn höfðu haft
áhuga á Cyndi sjálfri og ein-
stakri rödd hennar en hún hafði
ekki viljað gera neitt án hljóm-
sveitarinnar. Eftir þessa mis-
heppnuðu tilraun fór Cyndi að
vinna fyrir sér sem búðarkona
og söng þess á milli á hverfis-
pöbbum í New York-borg. Eitt
slíkt kvöld hitti hún mann að
nafni David Wolff sem varð um-
boðsmaður hennar og kom
henni í samband við útgáfufyr-
irtæki. Þarna fór frægðin að
taka völd.
Enn á fullu
EINSTAKA RÖDDIN
Skvísan Cyndi er komin á sextugsaldurinn og lítur mjög vel út.