Morgunblaðið - 11.06.2011, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 11.06.2011, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 162. DAGUR ÁRSINS 2011 Janus Arn Guðmundsson janus@mbl.is Ómar Smári Ármannsson, aðstoð- aryfirlögregluþjónn hjá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu, út- skrifast í dag sem fornleifa- fræðingur frá Háskóla Íslands. Ómar hefur starfað sem lög- reglumaður mestallan sinn starfs- feril eða í um 35 ár, en segist hafa hugsað til framtíðar þegar hann sótti um nám í fornleifafræði. „Ég hef alltaf haft áhuga á fornleifum og einn daginn kom upp í huga mér hvað ég ætti að gera þegar ég myndi hætta sem lögreglumaður, þá var ég áður búinn að skoða gamlar minjar á Reykjanesskag- anum. Það kveikti í mér og kom lítið annað til greina en að skella sér í háskólann,“ segir Ómar stolt- ur, en þessi hugsun kom til vegna takmarkaðs starfstíma opinberra starfsmanna og teljast lögreglu- menn til þeirra. „Að margra mati er hann allt of langur miðað við stöðugt álag í langan tíma. Eft- irlaunaaldursmörkin hjá stéttinni hafa lækkað svolítið síðustu ár, en betur má ef duga skal. Þau þyrftu, þó ekki væri nema út frá mann- eskjulegu sjónarmiði, að vera mun lægri,“ segir hann. Gott að leiða hugann að náminu Ómar segir lögreglustarfið gefandi en um leið krefjandi. „Það að starfa sem lög- reglumaður getur oft verið ótrúlega þrúgandi og mikið álag. Að fá að stunda nám með vinnu er ólýsanlegt. Þegar ég starfaði ein- göngu sem lög- reglumaður átti mað- ur það til að taka vinnuna með sér heim, en þeg- ar ég hóf námið breyttist þessi til- finning. Þá fór maður af skrifstof- unni og leiddi hugann að náminu,“ segir hann og vill meina að þetta séu forréttindi sem lögreglumenn hafi. Nýtist í starfi Ómar vill meina að lögreglu- rannsóknir byrji í raun þar sem fornleifafræðinni lýkur þótt vissu- lega eigi hvort tveggja samleið um margt. „Fræðigreinin tekur á frumatriðum rökrænna rannsókna, þ.e. niðurstöðuna þarf að byggja á vísindalegum og sannanlegum rök- um. Í raun mætti segja að sérhver lögreglumaður ætti að byrja í fornleifafræði áður en hann fer í lögregluskólann,“ segir Ómar að lokum. Fornleifar fanga lögreglumann  Ómar Smári Ármannsson út- skrifast sem forn- leifafræðingur Morgunblaðið/Kristinn Á skaganum Ómar Smári Ármannsson hefur gengið Reykjanesskagann þveran og endilangan á umliðnum árum. Ómar Smári Ármannsson er einn upphafsmanna og um- sjónarmaður síðunnar ferlir.is. Í upphafi var félagið stofnað sem ferðahópur rann- sóknarlögregl- unnar í Reykjavík en í dag þjónar síðan þeim til- gangi að vera nokkurskonar upp- lýsingabanki fyrir fólk sem áhuga hefur á því að nýta sér minjar og náttúruna á Reykja- nesskaganum. „Megintilgangurinn er tvíþættur, annars vegar að op- inbera vitneskju á fárra vitorði og hins vegar að stuðla að varð- veislu,“ segir Ómar Smári. Hann vonast til þess að vefsvæðið nýtist flestum þeim sem hafa áhuga á útivist og umhverfi. Á Reykjanes- skaganum eru minjar sem end- urspegla búsetu og atvinnusögu landsmanna frá upphafi landnáms. Einskonar upplýsingabanki NETSÍÐA FYIR ÁHUGAMENN UM MINJAR Ómar Smári Morgunblaðið kemur næst út þriðju- daginn 14. júní. Fréttaþjónusta verður að venju á fréttavef Morgunblaðsins (mbl.is) um hvítasunnuna. Hægt er að koma ábendingum um fréttir á netfangið netfrett@mbl.is alla helgina. Þjónustuver áskriftardeildar (askrift@mbl.is og augl@mbl.is) er opið frá klukkan 07-13 í dag, laug- ardaginn 11. júní, en lokað á hvíta- sunnudag og annan í hvítasunnu. Sími þjónustuvers er 569 1122. Blaðberaþjónusta er opin frá kl. 05-11 í dag, laugardaginn 11. júní, en lokuð á hvítasunnudag og annan í hvítasunnu. Hægt er að bóka dánartilkynn- ingar á mbl.is og símanúmer Morg- unblaðsins er 569 1100. Fréttaþjónusta á mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. The Eagles á göngustígnum 2. „Snöggvondur, mjög reiður“ 3. Misnotuð kynferðislega ... 4. Myrtu ungling ...  Fjórar finnskar hljómsveitir leggja leið sínar hingað til lands í næstu viku, þær Es, Islaja, Jarse og Lau Nau. Þær tengjast allar plötufyrirtækinu Fonal Records frá Tampere í Finn- landi sem er fremsta jaðarútgáfa Finnlands og þykir bjóða aðeins upp á það besta í finnskri tónlist. Ákveð- inn samhljómur er meðal tónlistar- manna sem gefa út hjá Fonal og er þessi viðburður liður í tónleikaferð félagsins um Norðurlöndin. Hljóm- sveitirnar munu meðal annars halda tónleika á Bakkus laugardaginn 18. júní og verður frítt inn á tónleikana sem hefjast klukkan 22:00. Finnsk tónlistarveisla haldin á Bakkus FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Lægir og dálitlar skúrir sunnantil. Annars skýjað með köflum, en sums staðar þokuloft við norður- og austurströndina. Hiti 6 til 13 stig að deginum. Á sunnudag (hvítasunnudag) Norðaustlæg átt 5-10 m/s. Dálítil súld við norður- og austurströndina, en annars skýjað með köflum og þurrt að kalla. Hiti 5 til 15 stig. Á mánudag (annan í hvítasunnu) Norðaustan 5-10 m/s og rigning eða súld, en lengst af þurrt suðvestantil. Hiti 5 til 16 stig, hlýjast suðvestantil. Skagamenn náðu í gærkvöldi sex stiga forystu í 1. deild karla í fótbolta með því að sigra ÍR 3:1 á Akranesi. Selfyssingar komust í annað sætið með því að vinna Þrótt 3:0 í Laugar- dalnum og Fjölnir er í þriðja sæti eftir 4:1 sigur gegn KA á Akureyri. Grótta kom á óvart með því að leggja Hauka, 3:2, og er komin í efri hluta deild- arinnar. »2 Skagamenn komnir með sex stiga forystu Ævintýri íslensku 21 árs lands- liðsmannanna í fótbolta hefst í dag þegar þeir mæta Hvít-Rúss- um í fyrsta leik Evrópukeppninn- ar í Danmörku. Þar spila átta lið um Evrópumeistaratitilinn næstu tvær vikurnar. „Við höf- um engu að tapa en ætlum okk- ur að gera góða hluti,“ segir Gylfi Þór Sigurðsson í viðtali við Morg- unblaðið. »1 Ætlum okkur að gera góða hluti Ísland og Austurríki mætast á morg- un, hvítasunnudag, í hreinum úrslita- leik um sæti í lokakeppni Evrópu- mótsins í Serbíu. Leikur þjóðanna hefst í Laugardalshöllinni klukkan 16.30. Austurríki nægir jafntefli en íslenska liðið verður að vinna leikinn til að komast á enn eitt stórmótið. »4 Ísland verður að vinna Austurríki á morgun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.