Morgunblaðið - 14.06.2011, Qupperneq 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2011
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Landsbankinn
lækkar skuldir
yfir 30 þúsund
viðskiptavina
Kynntu þér nýja skuldalækkun Landsbankans. Við lækkum
skuldir einstaklinga og munu yfir 30 þúsund viðskiptavinir
njóta góðs af. Þetta gerum við í samræmi við þá stefnu okkar
að styðja við endurreisn heimila og atvinnulífs. Við ætlum
að vera Landsbankinn þinn.
2 Við lækkumfasteignaskuldir 3
Við lækkum
aðrar skuldir1
Við endurgreiðum
20% af vöxtum
Þær aðgerðir sem nú eru kynntar koma til framkvæmda fyrir 1. október 2011.
Skilmála og nánari upplýsingar um skuldalækkun Landsbankans má finna á heimasíðu
okkar, landsbankinn.is, eða í næsta útibúi Landsbankans.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
426 kandídatar brautskráðust síð-
asta laugardag frá Háskólanum á
Akureyri, á 24. starfsári skólans.
Konur voru í miklum meirihluta
en aðeins fjórðungur kandítata var
karlar. Flestir útskrifuðust úr hug-
og félagsvísindadeild eða 271, 83 af
viðskipta- og raunvísindasviði og 72
af heilbrigðisvísindasviði. Rektor
sagði í brautskráningarræðu sinni
að við stofnun Háskólans 1987 hefði
skólinn lagt mikla áherslu á að
þjóna þeim sem byggju og störfuðu
á landsbyggðinni en um 70% þeirra
sem hefðu útskrifast úr skólanum
störfuðu á landsbyggðinni. „Í mín-
um huga myndi það þýða dauða-
dóm fyrir Háskólann á Akureyri ef
hann yrði gerður að útibúi frá há-
skólastofnun á höfuðborgarsvæð-
inu,“ sagði rektor í ræðu sinni og að
nauðsynlegt væri að auka fjárveit-
ingar til háskólanna sem og sam-
starfið á milli þeirra. Flestir út-
skrifaðra voru lotunemar eða 194,
staðarnemar voru 171 og fjar-
nemar 61. Fjarnám hefur verið í
örri þróun í skólanum sem og til-
raunaverkefni virkjað til að kanna
kosti staðarnáms og fjarnáms.
mep@mbl.is
426 út-
skrifuðust
úr HA
Fjórðungur út-
skrifaðra karlar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Brautskráning Um 1500 nemendur
stunduðu nám á 3 fræðasviðum.
Metfjöldi kandídata brautskráðist
frá Háskóla Íslands síðasta laugar-
dag, á aldarafmælisári Háskóla Ís-
lands, en brautskráningin fór fram í
Laugardalshöll. 1.138 útskrifuðust
úr grunnnámi og 678 úr framhalds-
námi. Kristín Ingólfsdóttir rektor
sagði í ræðu sinni að fjölgun dokt-
orsnema í launuðum vísindarann-
sóknum hefði gert skólann að raun-
verulegum alþjóðlegum rannsókna-
háskóla en nú stunduðu 450
nemendur doktorsnám við skólann.
Starfsfólk háskólans hefði á síðustu
fimm árum fengið samþykkt 24 ný
einkaleyfi á uppgötvunum á sviði eðl-
isfræði, lyfjafræði, reikniverkfræði,
sameindalíffræði, rafmagns- og
tölvuverkfræði, læknisfræði, efna-
fræði, tannlæknisfræði og tölvunar-
fræði. Á fimmta tug sprotafyrir-
tækja hefði byggst á rannsóknum
kennara og nemenda við skólann
Kristín Ingólfsdóttir minntist einnig
þeirra fjölmörgu sem stóðu að stofn-
un Háskóla Íslands á Alþingi hinn
17. júní 1911, á aldarafmæli Jóns
Sigurðssonar. Nú væru 14.000
manns við nám í skólanum en fyrsta
námsárið hefðu þeir verið 45. Í upp-
hafi hefðu þrettán starfað við skól-
ann en í dag væru tæplega 1.400
manns í fullu starfi ásamt 2.000
stundakennurum. Deildum skólans
hefði fjölgað frá fjórum í 25.
mep@mbl.is
Metfjöldi útskrifast úr HÍ
Hátíð Kandídatar voru hvattir til að klæðast þjóðbúningi á aldarafmæli HÍ.
Háskóli Íslands orðinn alþjóðlegur rannsóknarskóli Fjöldi
sprotafyrirtækja byggður á rannsóknum nemenda og kennara
Hinn ungi og
efnilegi skák-
maður Hjörvar
Steinn Grét-
arsson náði um
helgina sínum
fyrsta áfanga að
alþjóðlegum
meistaratitli á al-
þjóðlegu skák-
móti í Búdapest í
Ungverjalandi.
Hjörvar hafði þá náð fimm vinn-
ingum í sjö skákum en í áfangann
þarf fimm vinninga í níu skákum.
Hjörvar á möguleika á að krækja
sér í stórmeistaraáfanga en til þess
þarf hann að vinna báðar skákirnar
sem eftir eru gegn tveimur sterk-
um stórmeisturum.
Áfangi að al-
þjóðlegum
meistaratitli
Hjörvar Steinn
Grétarsson