Morgunblaðið - 14.06.2011, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2011
Það er hægt að misnota eða farailla með reglur sem jafnvel eru
góðar ef menn hafa einbeittan vilja
í þá veru,“ sagði einn af þeim fáu
þingmönnum sem sl. laugardag
tóku þátt í umræðum um frumvarp
um breytingu á þingsköpum Al-
þingis.
Frumvarpiðvar sam-
þykkt en þessi
varnaðarorð áttu vel við og segja
sína sögu um þær væntingar sem
gerðar eru til þess hluta breyting-
anna sem snýr að eftirlitshlutverki
Alþingis með framkvæmdavaldinu.
Eitt af því sem ætlunin er að náfram með lagabreytingunni er
að auðvelda þingmönnum að veita
ráðherrum aðhald og óhætt er að
taka undir mikilvægi þess aðhalds
miðað við hvernig ýmsir ráðherrar
núverandi ríkisstjórnar hafa starf-
að.
Þó hlýtur einhverjum að stökkvabros á vör við að lesa eftirfar-
andi setningu í nefndaráliti: „Lagt
er til að frestur til að svara fyr-
irspurnum skriflega sé lengdur úr
10 virkum dögum í 15 virka daga
og eins að ráðherrar geri þinginu
grein fyrir því þegar það dregst að
svara fyrirspurn af hvaða ástæðum
það stafar og hvenær vænta megi
svars.“
Ráðherrar ríkisstjórnarinnarhafa ekkert gert með þann
frest sem þingsköp hafa sett þeim
til að svara. Hið sama á við um ann-
að sem snýr að upplýsingagjöf, sér-
staklega hvaða upplýsingar eru
veittar.
Ríkisstjórnin er fyrir löngu orð-in alræmd fyrir leynimakk og
pukur og litlar líkur eru á að hún
fari frekar að nýjum þingsköpum
en gömlum að þessu leyti.
Einbeittur vilji
til misnotkunar
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 13.6., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 6 skýjað
Akureyri 7 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 10 alskýjað
Vestmannaeyjar 9 alskýjað
Nuuk 7 léttskýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 heiðskírt
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Helsinki 11 skúrir
Lúxemborg 17 skýjað
Brussel 20 skýjað
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 15 léttskýjað
London 21 léttskýjað
París 22 skýjað
Amsterdam 20 léttskýjað
Hamborg 22 skýjað
Berlín 23 heiðskírt
Vín 24 léttskýjað
Moskva 23 heiðskírt
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 28 léttskýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 25 léttskýjað
Róm 25 léttskýjað
Aþena 23 léttskýjað
Winnipeg 15 alskýjað
Montreal 13 alskýjað
New York 21 léttskýjað
Chicago 18 léttskýjað
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
14. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:58 23:59
ÍSAFJÖRÐUR 1:33 25:33
SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16
DJÚPIVOGUR 2:14 23:42
Sólskálar
Smi›sbú› 10 | 210 Gar›abær
Sími: 554 4300 | www.solskalar.is
hf
-sælureitur innan seilingar!
Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík
Sími 590 2100 · askja.is
Eigum nokkur eintök af vel með
förnum Kia Sorento, frá 1.850.000
- 3.690.000 kr. - bensín eða dísil.
Verð frá kr. 1.850.000
Opið virka daga
frá kl. 9-18
VW Passat EcoFuel/metan
árg. 2010, ekinn 8 þús. km
1400cc, metan/bensín, beinsk.
Verð: kr. 4.390.000
notaðra bíla
ÚRVAL
Allt að 70%
fjármögnun
Góð
kaup
!
KIA S
OREN
TO
Mikið
úrva
l!
upp að landi í þjóðgarðinum þegar
brumið springi út, sem oftast er í lok
maí, en nú fyrst er það að gerast á
þessu kalda sumri, þannig að veiðin
ætti að glæðast.
Laxveiðitímabilið byrjaði vel hjá
Kjartani Þorbjörnssyni í Norðurá í
gær. Þau Júlía Þorvaldsdóttir eigin-
kona hans hófu veiðar á Eyrinni og
fjörutíu mínútum síðar hafði Kjartan
landaði fyrsta laxi sínum í sumar, 62
cm hæng. Smálaxinn er því mættur í
Norðurá en fram að þessu hafa eink-
um verið að veiðast þar laxar sem eru
74 til 84 cm langir. 44 laxar höfðu verið
færðir til bókar í gær.
„Hann tók litla svarta Snældu, mjög
neðarlega við Eyrina,“ sagði Kjartan.
Annars var frekar rólegt yfir veið-
inni við Norðurá. Lax hafði aðeins
sýnt sig í Konungsstreng og tyllt var í
annan í Klingenberg en sá slapp.
Laxveiðiárnar verða opnaðar hver
af annarri á næstu dögum: Þverá og
Kjarrá í dag og á morgun, og 20. og 22.
júní hefst veiði í þeim mörgum. Laxar
hafa víða sést, til að mynda sá blaða-
maður tvo stóra í Kvíslarfossi í Laxá í
Kjós í gær.
Bleikjan mætt í þjóðgarðinn
Morgunblaðið/Einar Falur
Bleikjan að taka Halldór Gunnarsson með fjögurra punda bleikju sem
hann veiddi við Vatnskot í Þingvallavatni á hvítasunnudagsmorgni.
Veiðimenn að fá eina og eina fallega bleikju í Þingvallavatni Smálax tekinn
að veiðast í Norðurá Fjörutíu og fjórir höfðu verið færðir til bókar í gær
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Fjöldi veiðimanna sótti þjóðgarðinn á
Þingvöllum heim um hvítasunnu-
helgina, enda viðraði vel til stang-
veiða, og ekki var verra að þeir voru
að ná einum og einum fiski. Á hvíta-
sunnudagsmorgni voru átta veiði-
menn samtímis á Pallinum við Vatns-
kot og þar hitti blaðamaður Halldór
Gunnarsson sem hafði fengið bleikju
sem var á að giska fjögur pund,
stuttu eftir að hann byrjaði að kasta.
Síðan hafði verið rólegt.
„Ég hef komið nokkrum sinnum í
vor og stundum fengið fallegar
bleikjur, fiska sem hafa verið tvö til
þrjú pund,“ sagði hann.
Oft hefur verið vitnað í „gömlu“
mennina sem segja að bleikjan komi