Morgunblaðið - 14.06.2011, Page 24
24 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ÆTTI AÐ VITA
BETUR EN AÐ BORÐA 5
PIZZUR FYRIR SVEFNINN
EF ÞÚ KREMUR
MIG ÞÁ VERÐ ÉG
FRÆGUR!
MÍN MUN VERA MINNST UM
ALLAN HEIM Á HVERJU ÁRI,
FEITI DURTURINN ÞINN
VEIT EITTHVERT YKKAR AF
HVERJU VIÐ HÖLDUM UPP Á
„DAG HEIMSKUNNAR” ÁRLEGA?
HELGA,
HVAÐ ERTU
AÐ GERA Í
ELDHÚSINU?
ÉG ER
AÐ ELDA
KVÖLDMAT
LÆKNIRINN SAGÐI HRÓLFI AÐ ÉG VÆRI
MEÐ FLENSU OG ÆTTI AÐ HALDA MIG Í RÚMINU
EKKI
HAFA
ÁHYGGJUR AF
HONUM,
ÞETTA ER
BARA GERVI
SEM HANN
NOTAR TIL AÐ
SNÍKJA MAT
ÉG VAR AÐ LJÚKA VIÐ
AÐ LITA SJÁLF Á MÉR HÁRIÐ
ÞAÐ
LÍTUR
VIRKILEGA
VEL ÚT
ER
ÞAÐ SAMT
EKKI TÖLUVERT
ÖÐRUVÍSI EN
ÞEGAR ÉG LÆT
LITA ÞAÐ Á
STOFUNNI?
NEI,
ÞAÐ ER
ALVEG EINS
NEMA BARA SVOLÍTIÐ
APPELSÍNUGULT
AF HVERJU ÆTLI
SANDMAN HAFI SNÚIÐ
SÉR AFTUR AÐ GLÆPUM?
ÉG
ÆTLA AÐ
HEILSA UPP Á
GAMLA VINNU-
VEITANDANN
HANS
HANN
VAR BESTI
KOKKUR SEM
ÉG HEF
HAFT
EN HANN
SAGÐI SKYNDI-
LEGA UPP
EITTHVAÐ VIRÐIST HAFA
KOMIÐ UPP Á, EN HVAÐ?
Jón Sigurðsson og
óstjórnin
Ritstjóri nokkur í
Kaupmannahöfn, Carl
Bille, ásakaði Jón Sig-
urðsson um að hafa í
áraraðir ráðist á Dan-
mörku og Dani á óbil-
gjarnan hátt og reynt
að vekja hatur og
óánægju Íslendinga
gegn því landi sem
þeir tilheyrðu. Að
gefnu því tilefni skil-
greindi Jón stjórn-
málastarf sitt svo:
„Ég hef aldrei haft
neitt á móti Dan-
mörku eða Dönum almennt og enn
síður ráðist á þá. Aftur á móti hef ég
af eigin rammleik reynt að varpa
ljósi á samband Íslands og Dan-
merkur og stuðla að því að taka megi
enda sú óstjórn, sem óneitanlega
hefur viðgengist og ríkir enn á Ís-
landi, og allir hafa viðurkennt sem
hafa tjáð sig um íslensk málefni í
mörg hundruð ár. Að ég sé kominn í
andstöðu við núverandi stefnu
danskra stjórnvalda í íslenskum
málum er rétt, en andstaða mín hefir
alltaf verið grundvölluð á nákvæm-
um rannsóknum og rökum.“ (Guðjón
Friðriksson: Jón Sigurðsson, seinna
bindi, bls. 426). Segja má að hér sé í
hnotskurn lykillinn að skilningi á
þjóðmálaþátttöku Jóns Sigurðs-
sonar. Ekkert minna.
Íslendingar bjuggu lengi við
Rentukammer. Þar var stjórnsýslan
og óstjórnin sem Jón
Sigurðsson gagnrýndi
á hispurslausan en
kurteisan hátt. Þar
voru mál í athugun ár-
um, áratugum og jafn-
vel öldum saman. En
hlustuðu Danir á Jón?
Flest bendir til að
svo hafi verið. Þeir
báru mikla virðingu
fyrir honum, þó upp-
reisnarmaður væri í
augum margra þeirra.
Kom þar margt til,
einkum þó hversu
maðurinn var glæsi-
legur, starfsamur og
geðþekkur fulltrúi
þjóðar, sem ekki var almennt hátt
skrifuð þar ytra. Hann var viðræðu-
góður og glaður maður. Það hefur
fallið vel í kramið hjá Dönum.
En hvað ætli Jón okkar forseti
hefði sagt um íslensku stjórnsýsluna
í dag, væri hann á meðal vor? Um
það er auðvitað ekki hægt að full-
yrða, en ætli hann mundi ekki kann-
ast við stílinn: Málið er í athugun.
Við erum að skoða málið. Málið er í
rannsókn.
Og meðal annarra orða: Hvað ætli
hann segði um leyndarhyggjuna,
sem er eitt allra alvarlegasta vanda-
mál sem okkar litla og sundurþykka
þjóð glímir við?
Hallgrímur Sveinsson.
Ást er…
… að falla fyrir ein-
hverjum af sál og líkama.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Smíði og útskurður kl. 9,
botsía kl. 9.45, handavinna kl. 13. Opinn
púttvöllur.
Bólstaðarhlíð 43 | Handavinna, kaffi og
matur.
Dalbraut 18-20 | Handavinna kl. 9, fé-
lagsvist kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8-16.
Eftirlaunadeild símamanna | Sum-
arferðin verður 13.-17. ágúst. Sprengi-
sandur, Mývatnssveit, gist á Stöng. -
Dettifoss, Hljóðaklettar, Ásbyrgi, Ak-
ureyri (2 n.). - Eyjafjarðarsveit. - Svarf-
aðardalur, Héðinsfjörður, Síldar-
minjasafnið á Siglufirði, Bakkaflöt (gist).
-- Upplýsingar gefur Ragnhildur í síma
551-1137 eða 898-4437.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, jóga kl. 10.50, matur.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Opið í Jónshúsi kl. 9.30-16. Bónusrúta
kl. 14.45.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Molasopi og spjall kl. 10.30,
jóga kl. 11 á Skólabraut.
Félagsstarf Gerðubergi | Opið kl. 9 -
16.30, m.a. perlusaumur og stafganga
kl. 10.30. Fyrirhugað ferðalag á morgun
um ,,ævintýralandið“ fellur niður. Uppl. á
staðnum og í síma 575-7720.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9,
botsía kl 10.30, Bónusbíll kl. 12.15.
Hvassaleiti 56-58 | Félagsmiðstöðin er
opin kl. 8-16. Matur og kaffi. Böðun fyrir
hádegi, fótaaðgerðir, hársnyrting.
Íþróttafélagið Glóð | Púttnámskeið
hefst 16. júní. Uppl. í síma 554-2780 og
á www.glod.is.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun kl. 13
er opið hús á Korpúlfsstöðum. Ýmis
vinna í gangi.
Skemmtifélag eldri borgara | Óvissu-
ferð verður 15. júní. Farið frá Hraunbæ
kl. 13, Mjódd kl. 13.05, Aflagranda kl.
13.20, Vesturgötu kl. 13.25, Lækjartorgi
13,30. Uppl. í síma 775-1340.
Vesturgata 7 | Aðstoð v/böðun, handa-
vinna kl. 9.15. Spurt og spjallað/
leshópur/spil kl. 13. Sumarferð Vestur-
götu og Vitatorgs verður fimmtud. 16.
júní kl. 13.30. Farið um Heiðmörk að
Hafravatni, um Mosfellsheiði að Meðal-
fellsvatni og fyrir Hvalfjörð. Veitingar á
Hlöðum. Harmonikku- og gítarleikari
með í för. Leiðsögumaður Helga Jörg-
ensen, skráning í síma 535-2740.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Sumarferð
verður farin frá Vitatorgi fimtudaginn 16.
júní kl. 13.30. Farið um Heiðmörk að
Hafravatni, Mosfellsheiði að Meðalfells-
vatni og Hvalfjörð að Hlöðum. Matur og
dans. Fararstjóri er Helga Jörgensen.
Uppl. í síma 411-9450.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Félagsvist kl.
14. Hárgreiðslu- og fótaaðgerðastofur
opnar.
Höskuldur Búi Jónsson skrifarfróðlega kveðju: „Á þessu ári
eru 135 ár síðan ættmóðir Bæj-
arættarinnar fæddist, langa-
langamma mín, hún Ragnheiður
Halldórsdóttir frá Bæ á Selströnd.
Maður hennar og langalangafi
minn var Guðmundur Guðmunds-
son og kynntust þau í Tungusveit-
inni við Steingrímsfjörð. En bjuggu
síðan víða, meðal annars í Árnes-
hreppi, Drangsnesi, Bæ á Selströnd
(sem ættin er kennd við) og á
Hólmavík.
Ragnheiður var hagyrt eins og
margir í Bæjarættinni og rakst ég á
lítið ljóð eftir hana í Alþýðublaðinu
frá 2. febrúar 1961 (sjá timarit.is).
Eg lít í lágan kofa
í ljúfri aftan ró.
Þar blundar bóndi lúinn
er björg að landi dró.
Þar kona er á kreiki
svo kvik á fæti og ung.
Hún ber inn vatn í bæinn
en býsna er fatan þung.
Og augu hvarfla um koddann
hins kæra og þreytta manns.
Já, mér ber ekki að mögla
því minni er hvíldin hans.
Veit einhver um vísur eftir Loft
Bjarnason (1883-1956) frá Asp-
arvík, er síðar bjó á Hólmavík?“
Þórhildur Sveinsdóttir frá Hóli í
Svartárdal orti um Jóhannes Jóns-
son frá Asparvík:
Ljóðagerð er söm við sig.
Siglir háreist gnoðin.
Yrkir fyrir aftan mig
Asparvíkurgoðinn.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Asparvík
og langalangömmu