Morgunblaðið - 14.06.2011, Qupperneq 28
tekin fram og notuð í keppnina einu
sinni á ári. Núna vann keppnina
Steinunn Ketilsdóttir, listdansari.
Eftir það dönsuðu allir konga sem
er einnig árlegur viðburður á hátíð-
inni.
Hátíðin þótti tak-
ast vel í ár, en
um 300 manns
sóttu hana,
svipaður fjöldi
og í fyrra.
Ekki tókust
þó allar við-
skipta-
Á SKJALDBORG
Eftir Börk Gunnarsson
borkur@mbl.is
H
átíð heimildarmynda á
Patreksfirði fór fram
um helgina. Hátíðin
var opnuð með pompi
og prakt á föstudags-
kvöldinu með myndinni Jón og séra
Jón eftir Steinþór Birgisson. Sú
mynd átti síðar eftir að hreppa verð-
laun hátíðarinnar, svokölluð áhorf-
endaverðlaun, Einarinn. Steinþór
Birgisson gerði myndina og tók það
hann sjö ár að vinna hana. „Ég
horfði á dóttur mína vaxa úr grasi,
læra að lesa og hefja skólagöngu á
meðan gerð þessarar myndar stóð.
Myndin og hún eru jafn gamlar, þær
eru sjö ára,“ sagði Steinþór í samtali
við Morgunblaðið.
Myndin fjallar um hina sér-
kennilegu persónu Jóns sem er ein-
mana bóndi og prestur á Vest-
fjörðum með sókn sem telur 47
manns. Sóknarbörnunum líkar illa
við prest sinn og ekki alltaf að
ósekju, þarsem hann er sérlund-
aður. Þau bola honum á brott og að
mati Jóns og séra Jóns er það vegna
girndar í hlunnindin sem jörðinni
hans fylgja. Af myndinni að ráða
virðist það samt ekki vera eina
ástæðan.
Ómar heiðraður
Á laugardaginn vakti sérstaka at-
hygli myndin Paradox, sem fjallar
um unga kvikmyndahöfunda sem
koma að ókláruðu þrjátíu ára gömlu
verki. Höfundar þessarar stutt-
myndar, Paradox, sem tekin var upp
fyrir áratugum en aldrei kláruð,
hleypa efnilegum kvikmyndahöfum
samtímans að verki sínu og árekstr-
arnir verða stórskemmtilegir fyrir
áhorfandann.
Um kvöldið var síðan tveggja
klukkustunda dagskrá með Ómari
Ragnarssyni, heiðursgesti hátíð-
arinnar þarsem farið var yfir fjöru-
tíu ára feril hans við heim-
ildamyndagerð. Sýnd voru brot úr
mörgum þátta hans og skemmti
Ómar áhorfendum með skrautlegum
sögum af ferli sínum.
Á sunnudagsmorgun voru sýndar
myndir einsog Oddi, Mótvægi,
Earth to Earth og Krossgötur.
Earth to Earth verður að teljast
með slappari myndum á hátíðinni en
Mótvægi kom á óvart þar sem
fjallað er um Bryndísi Pétursdóttur
sem gerir hugsjón sína að starfi sínu
og vinnur við að rannsaka jarð-
fræðilega streitu, rafsegulbylgjur og
áhrif þessara ósýnilegu fyrirbæra á
líðan fólks. Fyrst var maður gapandi
af undrun yfir dellunni sem hún var
að hella sér út í, en þegar á líður
myndina verður hún frekar sæt.
Í eftirmiðdaginn var síðan Bakka-
Baldur sýnd eftir Þorfinn Guðnason
og að mati flestra þótti hún ásamt
verðlaunamyndinni standa uppúr á
hátíðinni. Þetta er óvenjuleg mynd
frá Þorfinni sem sýnir samfélagið í
Svarfaðardalnum í fallegu ljósi, hlý
og yndisleg mynd.
Um kvöldið var síðan Land míns
föður eftir Poppola sýnd og þótti
líka vel heppnuð mynd, um þrjár
kynslóðir bænda í Dölunum.
Limbókeppni í lokin
Lokakvöldið eldaði svo Atli Otte-
sen steinbít og þorsk ofan í gesti há-
tíðarinnar í Sjóræningjahúsinu á
Patreksfirði. Verðlaunaafhending
fór síðan fram í félagsheimilinu og
þar var hátíðinni slúttað með dansi-
balli þarsem hin árlega limbókeppni
fór fram. En Færeyingar gáfu hátíð-
inni limbóstöng fyrir nokkrum árum
sem er í glerkassa í bíóhúsinu en er
hugmyndir hátíðarinnar, til dæmis
var framleiddur sérstakur frisbíd-
iskur með merki hátíðarinnar en síð-
ast þegar fréttist höfðu þrír frisbíd-
iskar verið seldir, frekar minna en
búist hafði verið við.
Skjaldborgartíminn
Þá var tekinn upp sumartími á há-
tíðinni og þurftu allir hátíðargestir
að færa klukkuna fram um eina
klukkustund. Þetta olli miklum rugl-
ingi þarsem meira að segja aðstand-
endur hátíðarinnar tilkynntu við-
burði ýmist á íslenskum tíma eða
skjaldborgartíma. Þá mættu gestir í
plokkfiskinn á skjaldborgartíma en
þeir sem útbjuggu matinn fylgdu ís-
lenskum tíma þannig að hundrað
hungraðir gestir þurftu að bíða í
klukkustund eftir matnum. Enginn
ruglingur var samt svo mikill að fólk
hefði ekki gaman af.
Hátíðin var haldin í fimmta sinn í
ár og hefur náð að festa sig í sessi á
meðal kvikmyndagerðarmanna. Er
ástæða til að lofa vinnu þeirra
heimamanna og sunnanmanna sem
hafa staðið að þessari skemmtilegu
hátíð.
Skjaldborgarhátíðinni lokið
Um 300 manns mættu á hátíðina þar sem yfir 20 íslenskar heimildarmyndir voru frumsýndar Nokkrar
afbragðsmyndir voru sýndar á hátíðinni Hátíðin búin að festa sig í sessi á meðal kvikmyndagerðarmanna
Ljósmynd/Björn Ómar Guðmundsson
Fiskur á Patró Atli Ottesen eldaði steinbít og þorsk ofan í hátíðargesti á lokakvöldinu.
Bakka-Baldur Mynd Þorfinns Guðnason
þótti einstaklega falleg og hlý.
Afslöppun Á lokakvöldinu var slappað af við Sjóræningjahúsið áður en
haldið var í félagsheimilið þar sem verðlaunaafhendingin fór fram.
Sigurmyndin Mynd Steinþórs Birgissonar, Jón og Séra Jón, vann áhorf-
endaverðlaunin á Skjaldborg.
Verðlaunahafinn Hér
tekur Steinþór Birg-
isson við verðlaunum
hátíðarinnar.
Áhorfendur Vel var mætt á hátíðina á Patreksfirði um helgina og yfirleitt
fullur salur þegar myndirnar voru sýndar.
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2011