Morgunblaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 5. J Ú N Í 2 0 1 1  Stofnað 1913  138. tölublað  99. árgangur  KÚREKI NORÐURSINS SNORTINN AUST- URRÍSKA LEIÐIN SJÖTTA SÓLÓPLATA LINDSAY BUCKINGHAM Í FLEETWOOD MAC TEKIÐ Á OFBELDI 18 GÍTARLEIKARINN 31LÍFSHLAUP HALLBJÖRNS 15 Morgunblaðið/Ásdís  HIV-veiran breiðist nú hratt út meðal sprautufíkla. Yfir tíu tilfelli hafa fundist á síðustu fimm mán- uðum þessa árs. Þetta kemur m.a. fram í grein Þórarins Tyrfings- sonar, yfirlæknis SÁÁ, í Morgun- blaðinu í dag. Eru sprautufíklar í vaxandi mæli að sprauta sig með metýlfenídati í æð og HIV-sýkingar meðal þeirra þannig að breiðast út. „Auðvitað höfum við heilbrigðis- starfsmennirnir beðið eftir þessum tíðindum með kvíða, en smitsjúk- dómalæknar segja okkur nú að hætta sé á eins konar HIV-sprengju í þjóðfélaginu, sem byrjar með hraðri aukningu smita meðal fíkla en berst þaðan sem kynsjúkdómur út í þjóð- félagið almennt,“ segir Þórarinn m.a. en um sextíu sprautufíklar eru nú í meðferð hjá SÁÁ. Þeim hefur fjölgað eftir hrun. »19 Hætta talin á HIV-sprengju í þjóðfélaginu Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Fari svo að verðlag hækki með haustinu eins og rætt er um þýðir það að nýsamþykktar hækkanir á ör- orkubótum hafa ekkert að segja. Ef verðlag hækkar um 5% er búið að éta upp hækkun bóta. Kaupmátturinn virðist ætla að rýrna stöðugt og það er auðvitað skelfilegt,“ segir Guð- mundur Magnússon, formaður Ör- yrkjabandalags Íslands, um áhrif fyrirhugaðra verðhækkana á hag efnaminnstu umbjóðenda hans. Meira þarf að koma til Alþingi samþykkti fyrir þinglok að hækka örorkubætur um 8,1% og segir Guðmundur það ekki duga til. „Samkvæmt okkar útreikningum eiga öryrkjar inni 25 til 30% hækkun síðan bætur voru aftengdar við þró- un verðvísitölu í janúar 2009. Ein- greiðsla upp á 50.000 kr. kemur okk- ur vel. Því er ekki að neita. Hún kemur sér vel í einn mánuð og á góð- um tíma fyrir sumarið. Hitt er annað mál að greiðslan er skattskyld.“ Innt eftir því hversu stór hópurinn sé sem geti ekki mætt verðlags- hækkunum að óbreyttu svarar Guð- rún Hannesdóttir félagsfr. því til að ætla megi að miða megi við um þriðj- ung þeirra sem eru á örorkulífeyri, þ.e. um 5.000 bótaþega af um 15.000. Viðmiðin endurskoðuð Jón Þór Sturluson hagfræðingur kom að gerð svonefndra neysluvið- miða. Hann segir ljóst að aukin verð- bólga kalli á endurskoðun þeirra. Nýjar tölur Fjölskylduhjálpar Ís- lands sýna að neyðin fer vaxandi. Myndi „éta upp hækkun bóta“  Formaður ÖBÍ óttast verðbólguskot  Úrelt neysluviðmið MVerðhækkanir vega að »4 Býflugnabændur, 37 að tölu, tóku á móti bý- flugnakössunum sínum í Elliðahvammi í gær en 30 þeirra eru nýliðar í faginu. Helmingur nýju bændanna er konur og margir stunda tóm- stundabúskap. Fimm býflugnabændur fóru til Álandseyja í Finnlandi og komu í gær með 64 bý- flugnakassa. Í hverjum kassa eru um 15.000 flugur og ein drottning. Egill Rafn Sigur- geirsson hefur verið í býflugnarækt síðan 1988, fyrst í Svíþjóð en á Íslandi frá 1998. Nýju bý- flugnabændurnir hafa flestir sótt byrjenda- námskeið í býflugnarækt hjá Agli en verkleg kennsla verður um helgar fram á haust. Flugurnar frá Álandseyjum segir Egill vera ótrúlega gæfar og ekki þurfi að nota hanska eða býflugnaslæðu þó að byrjendur kjósi gjarnan að nota það í fyrstu. Býflugnarækt er stór búgrein erlendis og hentar vel með annarri dýrarækt. Ís- lenska veðráttan hefur gert býflugnabændum erfitt fyrir og þá sérstaklega rokið en betur hef- ur hentað að hafa búin inni í húsum yfir vetrar- tímann. Á myndinni tekur Bryndís Hulda Guð- mundsdóttir spennt við sínum býflugnakassa í gær. mep@mbl.is Nýir bændur fengu býflugur frá Álandseyjum Morgunblaðið/Ernir  Hátt eldsneyt- isverð dregur úr ferðum Íslend- inga innanlands, en umferð fyrstu helgina í júní var 14% minni en sömu helgi í fyrra. „Ferða- þjónustufyrir- tæki kvíða því að ferðalög Íslend- inga verði minni í ár,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Jafnframt gætir mikillar óánægju innan ferðaþjónustunnar með nýjan gistináttaskatt stjórn- valda. Er skatturinn sagður flókinn í framkvæmd og gististaðir ekki undirbúnir fyrir hann. »6 og 15 Samdráttur í ferðaþjónustunni 3.757 kennitölur hafa verið skráðar hjá Fjölskylduhjálp Íslands síðastliðna tíu mánuði 9000+ er áætlaður fjöldi einstaklinga sem tengjast þessum umsóknum ‹ BRÝN ÞÖRF FYRIR MAT › » Fornleifauppgröftur er hafinn í ver- búðahólum við Gufuskálavör á Snæ- fellsnesi og er unnið í kappi við eyði- leggingarmátt náttúruaflanna, en verbúðaminjar hérlendis hafa lítið verið rannsakaðar. Minjar blása víða upp og sjórinn tekur sinn toll árlega. Sjórinn hefur til dæmis brotið um hálfan annan metra af hól sem var mældur 2008. „Þetta er einn af þeim stöðum sem við megum ekki missa,“ segir Lilja Björk Pálsdóttir, fornleifafræðingur hjá Fornleifastofnun Íslands, og vís- ar til þess að upplýsingarnar glatist þegar sjórinn eða vindurinn komast að minjunum. »14 Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Halda ekki í við náttúruna Hlaupararnirfjórir sem hlaupa hringinn í kring- um landið til styrktar krabba- meinssjúkum börnum munu hlaupa 80 km í dag frá Bifröst til Botns en það er næstsíðasti áfangastaðurinn áður en þeir koma til Reykjavíkur á morgun, 16. júní. Í gær voru hlaupnir 88 km frá Hvammstanga að Bifröst. Þeir sem vilja styrkja þetta góða málefni geta nálgast allar upplýsingar um það á vefsíðu hlauparanna, www.mfbm.is. mep@mbl.is 80 km í næstsíð- asta áfangastað Hlaupið gengur vel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.