Morgunblaðið - 15.06.2011, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Hjörtur J. Guðmundsson
Baldur Arnarson
Ásakanir um kynferðisbrot innan
þjóðkirkjunnar voru efst á baugi á
kirkjuþingi í Reykjavík í gær og
var harmað að viðbrögð og starfs-
hættir kirkjunnar vegna þeirra
hefðu ekki alltaf verið sem skyldi.
Kirkjuþingið fór fram í Grensás-
kirkju, aðeins nokkrum dögum eft-
ir útkomu rannsóknarskýrslu
kirkjunnar síðastliðinn föstudag.
Var þar sem kunnugt er fundið að
ýmsu í viðbrögðum kirkjunnar við
ásökunum nokkurra kvenna um
kynferðisbrot Ólafs Skúlasonar,
fyrrverandi biskups.
Samþykkt samhljóða
Kirkjuþingið fylgdi skýrslunni
eftir í gær með því að kjósa fimm
manna nefnd úr hópi fulltrúa sinna
til að bregðast frekar við niðurstöð-
um hennar. Var tillaga þess efnis
samþykkt mótatkvæðalaust en í
henni var ekki lagt til að neinn
segði af sér vegna ásakana á hend-
ur Ólafi Skúlasyni, fyrrverandi
biskupi.
Forsætisnefnd kirkjuþings flutti
tillöguna. Lagði hún til að fimm
yrðu skipaðir í nefndina og var það
samþykkt samhljóða. Verður
Magnús E. Kristjánsson formaður
hennar en þar eiga einnig sæti þau
Birna G. Konráðsdóttir, Elínborg
Gísladóttir, Margrét Jónsdóttir og
Svavar Stefánsson.
Beðnar fyrirgefningar
Bað kirkjuþing þolendur kyn-
ferðisbrota sem hefðu verið órétti
beittir í samskiptum við þjóna
kirkjunnar og lykilstofnanir henn-
ar fyrirgefningar. Þá var samstaða
um það á þinginu að á málum sem
vörðuðu ofbeldi skyldi ávallt tekið
af fullri virðingu, sanngirni og
skilningi. Var hvatt til að leitað yrði
samstarfs við málsaðila og fagfólk
sem hefði þekkingu á hvernig ætti
að vinna úr kynferðisbrotamálum.
Fjölmargir tóku til máls á
þinginu og var inntakið í ræðunum
að þjóðkirkjan hefði glatað trausti
vegna málsins sem nauðsynlegt
væri að endurheimta. Bregðast
yrði við með sannfærandi hætti og
faglega.
Fram kom að þörf væri á að ósk
um fyrirgefningu til handa þeim
konum sem ásakað hefðu Ólaf um
kynferðisbrot, vegna þess hvernig
tekið var á málum þeirra innan
kirkjunnar, kæmi fram með skýrari
og afdráttarlausari hætti. Ekki
væri nóg að biðja þær aðeins fyrir-
gefningar heldur yrði að koma
skýrt fram á hverju.
Kunningjasamfélag til trafala
Þá var kallað eftir úrbótum á
ýmsu í skipulagi kirkjunnar og m.a.
vikið að eins konar kunningjasam-
félagi sem komið hefði í veg fyrir að
tekið væri á málum á gagnrýninn
hátt. Að lokum var konunum ítrek-
að þakkað fyrir að hafa vakið at-
hygli á málinu á sínum tíma og
haldið því síðan til streitu.
Morgunblaðið/Kristinn
Á Kirkjuþingi Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra var sessunautur Karls Sigurbjörnssonar biskups á þinginu í Grensáskirkju í gær.
Harma viðbrögð kirkju
Kirkjuþing kýs nefnd til að fara yfir niðurstöður rannsóknarnefndar kirkj-
unnar Þolendur kynferðisbrota verði beðnir fyrirgefningar á skýran hátt
„Innan kirkj-
unnar fer nú fram
mjög mikilvæg
umræða. Það er
virðingarvert að
hún skuli vera að
taka á þessum
málum og er von-
andi fordæmi
öðrum trúfélög-
um, stofnunum
og félagasam-
tökum,“ segir Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra, spurður út í af-
stöðu sína til skýrslu rannsóknar-
nefndar kirkjuþings.
Innra mál kirkjunnar
En telur Ögmundur nóg að gert á
vettvangi kirkjuþings?
„Kirkjuþing er einfaldlega að
fjalla um málið sjálft og ég vil ekkert
um það segja á meðan svo er. Þetta
er málefni sem snýr inn á við hjá
kirkjunni fyrst og fremst,“ sagði Ög-
mundur í símaviðtali þaðan sem
hann var staddur erlendis en mál-
efni kirkjunnar eru á verksviði hans.
Þetta væri það sem hann vildi segja
um málið að sinni. baldura@mbl.is
„Virðingar-
vert“ starf
kirkjunnar
Innanríkisráðherra
fagnar rannsókninni
Ögmundur
Jónasson
Sigríður Guð-
marsdóttir, sókn-
arprestur í
Grafarholts-
prestakalli, segir
að biskup Íslands
þurfi að segja af
sér í kjölfar nið-
urstaðna skýrslu
rannsóknar-
nefndar kirkju-
þings. Hún segir í
yfirlýsingu að biskup eigi þannig að
undirstrika umhyggju fyrir kirkju
þeirri sem hann þjóni, kirkju sem sé
biðjandi, boðandi og þjónandi.
„Biskup Íslands þarf að kannast við
það, að kirkjunni kemur betur að
annar taki við lyklavaldi hans. Eftir
því sem hann situr lengur í embætti
verður skaði kirkjunnar meiri og
sárari og tiltrú fólksins á kirkjunni
dvínar [...] Biskup Íslands brást í
biskupsmálinu og brot hans eru á
sviði sálgæslu, þess sviðs sem mynd-
ar grunn vígðrar þjónustu og trú-
verðugleika þeirrar þjónustu.“
jonpetur@mbl.is
Biskup láti
af embætti
Sigríður
Guðmarsdóttir
Vinnudagurinn í gær var langur
hjá leikurunum í Morranum á Ísa-
firði þegar þeir tóku á móti gest-
um af stóru þýsku skemmti-
ferðaskipi við byggðasafnið í
Neðstakaupstað. Það komu rútur
allan daginn og þýsku gestirnir
áttu erfitt með að slíta sig frá
dansandi og syngjandi Íslend-
ingum fyrri tíma.
Dagurinn var einnig erfiður
vegna þess hversu kalt er þessa
dagana. Þeir sem höfðu búið sig
undir daginn með því að klæða sig
í hlýjan fatnað undir íslenska bún-
ingnum nutu þess en brosið var
orðið frosið á sumum eftir daginn.
„Við dönsum okkur bara til
hita,“ sagði ein stúlkan úr hópnum.
Morrinn er atvinnuleikhús ungs
fólks á Ísafirði. Það er núna á sínu
13. starfsári og hið elsta sinnar
tegundar á landinu. Alltaf er mikill
áhugi hjá krökkunum í unglinga-
vinnunni að taka þátt í þessu
starfi. Valið er í hópinn eftir
áheyrnarprufur og það þekkist
annars ekki í unglingavinnu.
Samvinnan við byggðasafnið er
aðeins hluti af verkefnum hópsins.
Æft er alla daga og sýnt við ýmis
tækifæri. Þannig er oft spuni á
Silfurtorgi á föstudögum og Morr-
inn tekur þátt í hátíðahöldunum á
þjóðhátíðardaginn og fleiri athöfn-
um. helgi@mbl.is
„Dönsum
okkur til hita“
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Morrinn á Ísafirði önnum kafinn
Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís-
lands, sagðist á kirkjuþinginu
aldrei hafa ætlað að valda neinum
skaða eða þagga nokkuð niður í
tengslum við ásakanir á hendur
Ólafi Skúlasyni, forvera hans á
biskupsstóli, um kynferðisbrot.
Sagði hann þjóðkirkjuna hafa ver-
ið vanbúna að taka á slíkum mál-
um þegar það kom upp árið 1996.
Gerðar eru ýmsar athugasemd-
ir við framgöngu Karls í skýrslu
rannsóknarnefndar kirkjuþings.
Karl sagðist ekki ætla að ræða
á kirkjuþingi um einstakar at-
hugasemdir sem gerðar væru við
framgöngu hans í skýrslunni og
ræddi málið þess í stað á almenn-
um forsendum. Tók hann þó fram
að hann harmaði framgöngu sína í
málinu. Þá hefði hann beðið þær
konur sem ásakað hefðu Ólaf
Skúlason afsökunar persónulega
og fyrir hönd þjóðkirkjunnar.
Ekki ætlunin að beita þöggun
KARL SIGURBJÖRNSSON BISKUP
Sjá viðtal við Karl
Sigurbjörnsson,
biskup Íslands