Morgunblaðið - 15.06.2011, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2011
BAKSVIÐ
Kristel Finnbogadóttir
kristel@mbl.is
Hvítasunnan birtist seint á dagatal-
inu í ár og stóðu vonir til að önnur
helgi júnímánaðar yrði mikil ferða-
helgi. Talningar Vegagerðarinnar
höfðu sýnt að samanlögð umferð
fyrstu helgina í júní minnkaði um
14% miðað við árið 2010. Um helgina
virðist hins vegar hafa verið meiri
umferð en um sömu helgi í fyrra en á
sama tíma var hún minni en hvíta-
sunnuhelgi síðasta árs sem þá var
23.-24. maí. Þó er talningin með fyr-
irvara vegna bilunar í einum teljara.
„Almennt hefur dregið úr umferð og
því reiknum við með að það muni líka
eiga við um helgarnar í sumar. Það
er hins vegar ekkert öruggt,“ segir
G. Pétur Matthíasson, upplýsinga-
fulltrúi Vegagerðarinnar, um sumar-
ið sem framundan er. Hann segir að
umferð hafi farið minnkandi frá
hruni: „Það kom toppur árið 2009 en
þá mátum við það svo að minna var
um ferðir Íslendinga erlendis það
sumar.“
Ferðir Íslendinga valda kvíða
„Umferð er minni um allt land
vegna þess hve hátt eldsneytisverðið
er. Af því hafa menn miklar áhyggj-
ur fyrir sumarið. Ferðaþjónustufyr-
irtæki kvíða því að ferðalög Íslend-
inga verði minni í ár,“ segir Erna
Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar. Búist
er við að Íslendingar fari styttri ferð-
ir um landið en fyrri ár og það sé
áhyggjuefni fyrir ferðaþjónustufyr-
irtæki í lengri fjarlægð frá höfuð-
borgarsvæðinu. „Auðvitað spilar
veðrið líka inn í enda ferðast Íslend-
ingar mikið eftir því,“ segir Erna og
bendir á að heldur kalt sé víða um
land.
Tryggvi Guðmundsson, forstöðu-
maður landsbyggðarhótela hjá Flug-
leiðahótelum, sér um Edduhótelin
sem opin eru yfir sumartímann.
Hann hefur einnig áhyggjur af elds-
neytisverði í tengslum við ferðalög
Íslendinga. „Við reiknuðum með því
að fólk myndi fara af stað vegna frí-
daganna en það hefur ekki skilað
sér.“
Að sögn Sævars Skaptasonar,
framkvæmdastjóra Ferðaþjónustu
bænda, eru það helst erlendir ferða-
menn sem nýta þjónustu bænda á
þessum tíma árs. Þó er ljóst að færri
Íslendingar eru á ferðinni en áður.
„Mér er sagt að rólegra sé hjá þeim
sem skipuleggja ættarmót fyrir Ís-
lendinga en síðustu ár. Við höfum
áhyggjur af því að fólk muni spara
við sig bensíndropann,“ segir Sævar
en bætir við að ef veður verður betra
gæti það haft áhrif. Hann telur að
eldsneytisverð muni ekki hafa jafn
takmarkandi áhrif á ferðir erlendra
ferðamanna um landið og ferðir Ís-
lendinga.
Sjá minna af eigin landi
Útlit er fyrir samdrátt í ferðaþjónustu innanlands við Íslendinga í sumar
Hátt eldsneytisverð veldur áhyggjum en batnandi veðurfar getur haft áhrif
Umferð um landið
» Samkvæmt Vegagerðinni er
fyrsta helgi júnímánaðar í ár sú
umferðarminnsta frá því að
birting talninganna hófst, árið
2008.
» Meiri umferð var um nýliðna
helgi en sömu helgi árið 2010.
Það skýrist líklega af því að um
hvítasunnuhelgi var að ræða.
Umferðin var þó minni en um-
ferð hvítasunnuhelgar síðasta
árs.
» Búist er við meiri umferð
næstu helgi, borið saman við
sömu helgi árið 2010, þar sem
17. júní ber upp á föstudag í ár.
Morgunblaðið/Skapti
Tjaldstæði Heldur tómlegt var um að litast á tjaldstæðinu á Hömrum á Akureyri í gær og fáir ferðalangar voru þar á ferli. Ferðaþjónustufyrirtæki hafa
áhyggjur af ferðalögum Íslendinga innanlands í sumar og telja að fólk muni fara styttri ferðir frá höfuðborgarsvæðinu, aðallega vegna eldsneytisverðs.
Umferð misjöfn milli ára
Heimild: Vegagerðin – tveir talningarstaðir af sex
Ingólfsfjall við Selfoss Hvalfjarðargöng
Fyrsta helgin í júní
Vikudagur 2010 2011 %
Föstudagur 10.178 9.723 -4,5%
Laugardagur 9.185 8.247 -10,2%
Sunnudagur 10.223 9.525 -6,8%
Samtals 29.586 27.495 -7,1%
Önnur helgin í júní
Vikudagur 2010 2011 %
Föstudagur 10.879 11.010 +1,2%
Laugardagur 9.296 10.803 +16,2%
Sunnudagur 10.678 11.446 +7,2%
Samtals 30.853 33.259 +7,8%
Fyrsta helgin í júní
Vikudagur 2010 2011 %
Föstudagur 8.811 7.002 -20,5%
Laugardagur 6.850 5.480 -20,0%
Sunnudagur 8.178 7.289 -10,9%
Samtals 23.839 19.771 -17,1%
Önnur helgin í júní
Vikudagur 2010 2011 %
Föstudagur 8.534 9.371 +9,8%
Laugardagur 6.151 6.744 +9,6%
Sunnudagur 7.728 7.088 -8,3%
Samtals 22.413 23.203 +3,5%
„Það gekk vel um helgina en um-
ferðin af fólki byrjar töluvert
seinna en venjulega,“ segir Alex-
andra Berg Rúnarsdóttir, starfs-
maður ferðaþjónustunnar Snjófells
á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Ferða-
þjónustan býður meðal annars upp
á gistingu, tjaldstæði og jöklaferðir
auk þess sem hún rekur veitinga-
staðinn Arnarbæ. Alexandra segir
að yfirleitt sé meira af útlendingum
en Íslendingum á svæðinu. „Mér
finnst samt eins og það sé enn
minna af Íslendingum núna. Við töl-
um ensku í vinnunni allan daginn
og erum hissa ef það koma Íslend-
ingar,“ segir Alexandra en bætir
við að Íslendingar séu yfirleitt fleiri
í júlí en júní þar sem margir virðast
vera í sumarfríi þá. Um helgina hafi
fólk víðs vegar af Snæfellsnesi
komið við en ekki var mikið um fólk
af höfuðborgarsvæðinu.
Tala ensku allan
daginn í vinnunni
Arnarstapi Ferðamenn njóta sólar og
góðs veðurs á Arnarstapa á Snæfellsnesi.
„Hjá mér var ekki mikil umferð um
helgina,“ segir Þuríður Helgadótt-
ir, eigandi Voga, ferðaþjónustu,
sem er í Vogahrauni við Mývatn.
Vogar ferðaþjónusta býður upp á
gistingu og tjaldstæði fyrir ferða-
menn auk þess að vera með pítsu-
stað. „Mér fannst lítil umferð miðað
við svona langa helgi. Ég held að
umferðin liggi meira í námunda við
höfuðborgarsvæðið og að fólk sé að
fara styttra. Ég hef engar áhyggjur
fyrir sumarið ef veðrið verður okk-
ur hliðhollt,“ segir Þuríður um
ferðir Íslendinga, sem gjarnan elta
veður á ferðalagi.
Lítil umferð miðað
við langa helgi
Mývatn Margir ferðamenn skoða Mývatn
og aðrar náttúruperlur Norðurlands.
Ljósmynd/ Jón Viðar Sigurðsson
Fossar Framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs mun hafa samband við
Landmælingar við fyrsta tækifæri og biðja um mælingu á fossinum.
beltinu, en Jón hafði orðið var við
þá áður og grunaði hann sterk-
lega að þarna væri um að ræða
hæstu fossa landsins.Við mæl-
inguna kom í ljós að einn fossinn
er um 228 m á hæð, en Glymur
sem áður hafði verið talinn hæst-
ur fossa hér á landi er einungis
198 metrar.
Ef rétt reynist mun Vatnajök-
ulsþjóðgarður ekki einungis
skarta stærsta jökli landsins og
hæsta tindi landsins heldur einnig
hæsta fossi landsins.
Verklag Landmælinga
Í samtali við Eydísi Líndal, for-
stöðumann sviðsmiðlunar og
grunngerðar hjá Landmælingum,
kom fram að þegar um nýjar stað-
reyndir sem þessar væri að ræða
væri málið kannað. „Í framhaldi
af frétt Morgunblaðsins munum
við heyra í forsvarsmönnum
Janus Arn Guðmundsson
janus@mbl.is fréttaskýring
Við óformlegar mælingar á foss-
um síðastliðinn sunnudag kom ljós
að Glymur, sem löngum hefur ver-
ið talinn hæsti foss landsins, sé
sennilega að missa stöðu sína sem
slíkur. Er talið að fossinn sem
mældur var við Morsárjökul sé
ívið hærri en talið er að munurinn
sé um 30 metrar.
Eins og Morgunblaðið greindi
frá á forsíðu í gær, fóru Jón Viðar
Sigurðsson jarðfræðingur, Guð-
mundur Ögmundsson, aðstoðar-
maður þjóðgarðsvarðar í Skafta-
felli, og Unnur Jónsdóttir,
landvörður á Lónsöræfum, til
reglubundinna mælinga á skriðu-
hlaupi í Morsárjökli síðasta sunnu-
dag. Í kjölfarið ákvað Jón Viðar
að gera einfalda hornamælingu á
hæð fossanna sem sáust í kletta-
Vatnajökulsþjóðgarðs og munum
líklega mæla fossinn í samstarfi
við þá,“ segir hún. Að hennar
sögn mun mælingin fara fram
með nákvæmum hornamælingum
sem munu þá leiða það í ljós hvort
hér sé um að ræða hæsta foss
landsins. „Ef svo er þá þarf að
skoða hvort fossinn verði skil-
greindur sem slíkur og sögulegum
staðreyndum þá breytt í kennslu-
bókum,“segir Eydís. Yrði hér um
samvinnuverkefni Landmælinga
og Vatnajökulsþjóðgarðs að ræða.
Sýnilegur frá 2007
Að sögn Jóns Viðars jarðfræð-
ings, sem átti kveikjuna að því að
fossinn yrði mældur, hefur fossinn
verið sýnilegur frá árinu 2007.
„Jöklar fara hopandi við hlýnun
jarðar. Ef litið er nokkra áratugi
aftur í tímann sést það bersýni-
lega. Þetta skapast við þynningu
jöklanna, fossinn kemur af fjalls-
brún jökulsins,“ segir Jón, með
von um að mælingin verði fram-
kvæmd sem fyrst.
Að sögn Þórðar H. Ólafssonar,
framkvæmdastjóra Vatnajökuls-
þjóðgarðs, mun hann hafa sam-
band við Landmælingar við fyrsta
tækifæri og biðja um mælingu á
fossinum.
Flyst hæsti foss landsins búferlum?
Grunur leikur á að hæsti foss landsins missi sennilega stöðu sína sem slíkur Jöklar fara hopandi
við hlýnun og við það myndast nýir fossar Vatnajökulsþjóðgarður bætir líklega við sig gersemi