Morgunblaðið - 15.06.2011, Page 10
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Mig langaði svo til aðgera eitthvað til minn-ingar um hann bróðurminn, Sigurð Reyni
Magnússon, sem féll frá fyrir aldur
fram fyrir tveimur árum, en hann
var með ættgengan ólæknandi
nýrnasjúkdóm. Mig langaði líka til
að leggja eitthvað af mörkum fyrir
fólk sem þarf að kljást við nýrna-
bilun og þess vegna rennur allur
ágóði af bókinni til styrktar nýrna-
sjúklingum,“ segir Anna Kristín
Magnúsdóttir sem nýlega gaf út
ljósmyndabók um Loðmundarfjörð.
Anna býr á Eiðum en hún og
systkini hennar fæddust og ólust
upp í Stakkahlíð í Loðmundarfirði.
„Myndirnar tók ég flestar sjálf
Æskuminningar og
uppgjör við sálina
Hún fæddist og ólst upp í Stakkahlíð í Loðmundarfirði og gaf nýlega út bók á
fjórum tungumálum sem hefur að geyma fjölda glæsilegra ljósmynda sem hún
tók í Loðmundarfirði ásamt ljóðum, þjóðsögum og textum sem tengjast firð-
inum. Allur ágóði rennur til styrktar fólki með nýrnabilun.
Eyðibýli Bærinn Klyppsstaður er löngu farin í eyði en þar stendur enn falleg kirkja og ferðaskáli.
Friður Anna við tjörn rétt neðan við Stakkahlíð þar sem hún ólst upp.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2011
Það hafa eflaust margir heyrt auglýs-
ingaslagorðið „Hættu að hanga,
ganga.is“ í útvarpinu undanfarið. Ef
farið er inn á vefsíðuna Ganga.is má
lesa allt um þetta hreyfingarátak
Ungmennafélags Íslands.
Hættu að hanga! Komdu að hjóla,
synda eða ganga! er verkefni sem
hófst 5. júní og stendur til 15. sept-
ember 2011. Verkefni fór fyrst af stað
á síðasta ári og voru undirtektir góð-
ar. Megintilgangur verkefnisins er að
hvetja einstaklinga, fyrirtæki, fjöl-
skyldur og hópa til að hreyfa sig og
stunda heilbrigða lifnaðarhætti.
Þátttakendur skrá þá hreyfingu sem
þeir stunda inn á vefinn og geta unn-
ið sér inn bronsmerki, silfurmerki
eða gullmerki. Öllum er heimil þátt-
taka óháð aldri en hægt er að velja
milli þátttöku í einstaklingskeppni,
hópakeppni eða fyrirtækjakeppni.
Hreyfið ykkur með UMFÍ.
Vefsíðan www.ganga.is
Morgunblaðið/Kristinn
Hreyfing Það er fátt meira hressandi en góð gönguferð.
Hættu að hanga, farðu að ganga
Prjónafólki er margt til lista lagt
og lagið við að skapa skemmti-
lega viðburði. Á morgun, fimmtu-
daginn 16. júní, ætla prjónakonur
og -karlar að hittast á Austurvelli
í Reykjavík og prjóna saman.
Prjónastundin stendur frá
klukkan 15 til 19 og þótt veð-
urspáin sé góð er mælt með að
taka með sér teppi og kaffi eða
kakó á brúsa.
Þá er bara að draga fram
prjónanna, koma sér vel fyrir á
Austurvelli og prjóna í takt við
aðra sem þar verða. Svo má allt-
af sýna sína handavinnu, deila
visku sinni og hugmyndaauðgi
og skoða hjá öðrum.
Endilega …
Morgunblaðið/Frikki
Prjónadagur Prjónað verður saman á
Austurvelli á morgun, fimmtudag.
… prjónið saman á Austurvelli
Uppáhaldsbindið mitt errautt bindi með óreglu-legu mynstri. Það erfrá því um 1990 og ég
notaði það talsvert mikið. Ég átti
þá grá föt og þetta bindi fór ein-
staklega vel við þau,“ segir Hákon
Sigurgrímsson fyrrverandi skrif-
stofustjóri.
Á sveitahátíðinni Fjör í Flóa
sem var haldin í Flóahreppi fyrir
skömmu sýndi Hákon bindi í sinni
eigu. „Ég sýndi bindi sem ég hef
notað síðastliðin fimmtíu ár, sex-
tíu bindi frá tímabilinu 1957 til
2011. Ég vann alltaf skrif-
stofustörf og þá tilheyrði það að
vera í jakkafötum og með bindi,“
segir Hákon.
Spurður hvort eitthvað hafi
komið honum á óvart þegar hann
fór yfir bindasafnið sitt segir Há-
kon það hafa verið litina. „Það
kom mér skemmtilega á óvart
hvað litirnir hafa glaðnað eftir því
sem liðið hefur á árin. Þetta var
frekar drungalegt í gamla daga.
Nú eru litirnir orðnir bjartari og
kom það með silkibindunum. Eftir
1990 hafa þau haldið nokkur veg-
inn sama laginu en litirnir og
mynstrin hafa breyst mikið.“
Hákon raðaði bindunum upp í
tímaröð á sýningunni sem fékk
mikla athygli. „Margir urðu hissa
en fannst þetta áhugavert og
skoðuðu bindin af athygli. Svo
þegar menn áttuðu sig á því að
þetta var hluti af klæðnaði mínum
í 50 ár fannst þeim þetta safn
ekkert óvenjulegt. En það er von
að þetta stingi svolítið í augu
þeirra sem fara bara í jakkaföt
örfáum sinnum á ári,“ segir Há-
kon. Hann kveðst vera mikill
bindismaður.
„Hálsbindið er í raun það eina
sem karlmaðurinn getur skreytt
sig með ef svo má segja. Það er
eina tilbreytingin sem við getum
gert í klæðnaði okkar. Ég hef allt-
af reynt að eiga falleg bindi sem
eru í stíl við fötin sem ég er í.“
ingveldur@mbl.is
Uppáhaldsbindi Hákons Sigurgrímssonar
Alltaf reynt að
eiga falleg háls-
bindi í stíl við fötin
Sýningin Hákon Sigurgrímsson sýndi bindin sín í félagsheimilinu Félagslundi í Flóahreppi á sveitahátíðinni Fjöri í
Flóa. Safnið vakti mikla athygli enda um að ræða sextíu hálsbindi frá löngu tímabili, eða rúmlega 50 árum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.