Morgunblaðið - 15.06.2011, Síða 11
á ferðum mínum um fjörðinn
undanfarin tvö ár. Ég ferðaðist
með ýmsum hætti, fór ríðandi,
siglandi og á bíl. Í fyrrasumar
fór ég ein ríðandi frá Seyðisfirði
til Loðmundarfjarðar yfir heiði
sem heitir Hjálmárdalsheiði en
hún var alla tíð farin þegar við
áttum heima þarna. Þetta er
um 12 kílómetra löng leið og
ég hafði ekki farið hana í
fjörutíu ár og þetta var ynd-
islegt ferðalag með hundinum
mínum og hestunum mínum í
20 stiga hita og sumarblíðu.“
Loðmundur og Bjólfur
Anna segist hafa endur-
upplifað náttúruna á æskuslóðum
sínum á ferð sinni á reiðskjótunum.
„Því fylgir stórkostleg nálægð að
fara um þetta svæði á hestum, ríða
gömlu göturnar, fara yfir lækina
og sjá og finna fyrir öllu sem verð-
ur á vegi manns þarna. Ég fann
mikla snertingu bæði við ljós-
myndaverkefnið mitt og umhverfið
sjálft, þetta tengdist allt saman í
þessari ferð.“ Anna ákvað að
láta myndirnar einar ekki
duga heldur hafa líka texta
og sögur, og allt er það auð-
vitað tengt Loðmundarfirði.
„Í bókinni eru meðal annars
nokkrar sögur eftir frænku
mína, Evu Hjálmarsdóttur,
sem ólst líka upp í Stakkahlíð
eins og við systkinin, en hún
gaf út fjórar bækur á meðan
hún lifði og allar innihalda þær
efni tengt Loðmundarfirði. Ég
birti mjög fallegt ljóð sem Eva
orti um Gunnhildi, en það er að-
alfjallið í Loðmundarfirði. Ég
nota líka tvær smásögur aðrar
eftir hana en í textum hennar segir
meðal annars frá landnámsmann-
inum Loðmundi og Bjólfi bróður
hans. En svo eru líka ljóð eftir mig
og vinkonu mína þar sem talað er
frá mínu hjarta til fjarðarins,
hvernig ég upplifði að eiga heima
þar og hvernig ég upplifi hann síð-
ar á ævinni. Og svo eru sögur um
fjöllin, til dæmis um Herfellið, um
ástæðuna fyrir því af hverju það
heitir þessu nafni. Og það er líka
sagt frá Orrustukambi, þar sem
þeir börðust til forna, fjósamaður
Loðmundar og aðrir. Ég tíni til
ýmsar fornar sögur sem ekki hefur
verið mikið haldið á lofti.“
Nýtist vel ferðamönnum til
að átta sig á staðháttum
Ástæðan fyrir því að Anna
hafði bókina á fjórum tungumálum,
íslensku, ensku, sænsku og þýsku,
er sú að hún sá fyrir sér að bókin
gagnaðist vel þeim sem ferðast um
svæðið. „Þegar fólk kemur til
Borgarfjarðar eystri getur það
ferðast á fjórhjóladrifnum bílum til
Loðmundarfjarðar og þá getur ver-
ið gott að vera með bókina við
höndina, því hún nýtist vel ferða-
mönnum til að átta sig á stað-
háttum. Aftast í henni er landakort
með merkingum sem tengja ljós-
myndirnar, sveitabæina og textana
inn í landslagið. Þessi bók er í
raun ljósmyndaferðalag frá Borg-
arnesi sunnan í firðinum og inn
fjörðinn, út að norðan og endað við
Vígisklettinn og Skæling. Því mið-
ur er hver einasti bær farinn í eyði
en Smári bróðir minn var með
gistiheimili í Stakkahlíð lengi vel
en hætti með það fyrir nokkrum
árum,“ segir Anna og tekur fram
að ferðafélagsskáli sé á Klypps-
stað.
Hún segir bókina vera ein-
hverskonar uppgjör hennar við
hugann og sálina. „Bernskuminn-
ingarnar og ræturnar eiga svo
sterk ítök í mér. Við systkinin er-
um mjög tengd þessu svæði. Það
vill svo til að ég er sú eina í systk-
inahópnum sem er ekki með þenn-
an nýrnasjúkdóm og það er á ein-
hvern hátt erfitt. Mig langaði að
gera eitthvað sem létti einhverju af
mér og nýttist í leiðinni fólki sem
þarf að kljást við ólæknandi nýrna-
sjúkdóma, rétt eins og systkini
mín.“
HEIM
Ég stend á klettabrún
horfi yfir dalinn
sé hlíðarnar og gilin
árnar og lækina
kem út á leitið
sé bæinn og hraunið
öldurnar við sandinn
Sólin skín
fjöllin halda utan um mig
Mér líður vel
Bókin var aðeins gefin út í 500
eintökum og hún er saumuð í
harðspjaldakápu og prentuð hjá
Héraðsprenti. Anna selur bókina í
gegnum netfang sitt annahest-
ar@internet.is og síma 865-0286.
Með þrjá til reiðar Anna fór í fyrrasumar ríðandi ein með hundinn sinn frá Seyðisfirði til Loðmund-
arfjarðar yfir Hjálmárdalsheiði.
Loðmundarfjörður er fjörður norðarlega á Austfjörðum, á milli Seyð-
isfjarðar og Borgarfjarðar eystri.
Loðmundarfjörður er farinn í eyði, og er nú helst vettvangur ferða-
manna, hreindýra og búfjár á beit. Áður fyrr var Loðmundarfjörður sér-
stakt sveitarfélag, Loðmundarfjarðarhreppur, en var sameinaður Borg-
arfjarðarhreppi 1. janúar 1973.
Loðmundarfjörður er fremur stuttur og snýr sem næst í austur-vestur.
Hann er umgirtur fjöllum, sem torvelda samgöngur. Loðmundarskriður
eða Stakkahlíðarhraun, er í firðinum. Sæmilegur jeppavegur er frá Borg-
arfirði um Húsavíkurheiði og Nesháls til Loðmundarfjarðar. Fornir fjall-
vegir og gönguleiðir eru: Kækjuskörð til Borgarfjarðar, Tó að Gilsárteigi í
Eiðaþinghá, Árnastaðaskörð og Hjálmárdalsheiði til Seyðisfjarðar. (Af
Wikipedia)
Umgirtur fjöllum
LOÐMUNDARFJÖRÐUR
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2011
Litla bifhjólaprófið fylgir fyrstu 5 hjólunum, eða 30 þús. kr. afsláttur!
Ekta Vespa fæst
aðeins hjá Heklu!
www.vespur.is
Piaggio Vespa S 125, verð aðeins: 629.000 kr.
Piaggio Vespa LX 125, verð aðeins: 599.000 kr.
Piaggio Vespa LXV 125 - Afmælisútgáfa, verð: 689.000 kr.