Morgunblaðið - 15.06.2011, Síða 13
Góð aðstaða og veitingar á hátíðarsvæðinu.
Kjörorð sumarsins er NÚNA FER ÉG VESTUR!
Dagskrá
10:00 Hátíðarsvæðið opnað, sölubásar og veitingatjöld.
11:00 Útskriftarathöfn Háskólaseturs Vestfjarða.
11:30 Hópsigling smábáta frá Bíldudal, lending kl. 12:30.
13:00 Hátíðarmessa í Minningarkapellu Jóns Sigurðssonar að Hrafnseyri. Séra Agnes M.
Sigurðardóttir sóknarprestur í Bolungarvík og prófastur í Vestfjarðaprófastsdæmi prédikar.
Séra Guðrún Edda Gunnarsdóttir sóknarprestur Hrafnseyrarkirkju þjónar fyrir altari. Kirkjukór
Þingeyrar syngur. Organisti: Margrét Gunnarsdóttir. Meðhjálpari: Davíð H. Kristjánsson.
14:00 Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar.
Stjórnandi: Dagný Arnalds.
14:30 Hátíðardagskrá á útisviði
- Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, leggur blómsveig að Minningarsteini
Jóns Sigurðssonar.
- Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, setur hátíðina.
- Hátíðarræða: Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson.
- Kveðja frá Vestur-Íslendingum: David Gislason.
- Fjallkona Vestfjarða.
- Elfar Logi Hannesson: Brot úr einleik um Jón Sigurðsson.
- Ávarp: Sólveig Pétursdóttir, formaður afmælisnefndar.
- Tónlistardagskrá: Sigrún Hjálmtýsdóttir, Björgvin Halldórsson,
Karlakórinn Ernir, Karlakórinn Vestri, Eyþór Gunnarsson og Þórir Baldursson.
Stjórnandi: Guðni Franzson.
Brimlending - Lag: Áskell Jónsson, ljóð: Davíð Stefánsson.
Nú sefur jörðin - Lag: Þorvaldur Blöndal, ljóð: Davíð Stefánsson.
Sjá dagar koma - Lag: Sigurður Þórðarson, ljóð: Davíð Stefánsson.
Ég bið að heilsa! - Lag: Ingi T. Lárusson, ljóð: Jónas Hallgrímsson.
Íslandslag - Lag: Björgvin Guðmundsson, ljóð: Grímur Thomsen.
Rósin - Lag: Friðrik Jónsson, ljóð: Guðmundur G. Halldórsson.
Lofsöngur, Ó guð vors lands, með þátttöku hátíðargesta.
Lag: Sveinbjörn Sveinbjörnsson, ljóð: Matthías Jochumsson.
- Ávarp: Eiríkur Finnur Greipsson, formaður Hrafnseyrarnefndar.
- Sýningin “Líf í þágu þjóðar - Jón Sigurðsson 1811-1879” opnuð.
Formlegri hátíðardagskrá lýkur.
Kynnir er Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð.
17:00 Elfar Logi Hannesson frumflytur einleik sinn um Jón Sigurðsson í fullri
lengd í Minningarkapellunni.
Glímumenn frá Glímufélaginu Herði á Ísafirði sýna íslenska glímu. Verðlaunagripurinn
Vestfjarðabeltið verður til sýnis.
Í burstabænum verða sýndar teikningar af Jóni Sigurðssyni eftir nemendur 6. bekkjar
grunnskólanna á Vestfjörðum.
Hrafnseyrarhátíð 17. júní 2011
Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar og Hrafnseyrarnefnd bjóða til þjóðhátíðar
á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. júní n.k. í tilefni af opnun sýningarinnar
„Líf í þágu þjóðar“ í Safni Jóns Sigurðssonar og þess, að tvöhundruð ár verða
þá liðin frá fæðingu hans.
Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar og Hrafnseyrarnefnd
Sjá nánar: www.jonsigurdsson.is
Aðgangur að hinni nýju sýningu á Hrafnseyri er ókeypis í allt sumar!
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2011
Hæstiréttur stað-
festi í gær úr-
skurð Héraðs-
dóms Reykja-
víkur sem
hafnaði að fella
niður mál Kaup-
þingsbanka á
hendur Sigurði
Einarssyni, fyrr-
verandi stjórn-
arformanni bankans. Sigurður
kærði úrskurð héraðsdóms þar sem
hafnað var kröfu hans um að mál
Kaupþings hf. á hendur honum yrði
fellt niður. Við uppkvaðningu úr-
skurðar í héraðsdómi um frávís-
unarkröfuna var sótt þing af hálfu
Sigurðar en ekki Kaupþings hf.
Krafðist Sigurður þá að málið yrði
fellt niður og honum úrskurðaður
málskostnaður. Fyrir Hæstarétti
hélt lögmaður Kaupþings hf. því
fram að eftir munnlegan flutning
málsins um frávísunarkröfu Sig-
urðar hefði dómari skýrt frá því að
hann hygðist kveða upp úrskurð til-
tekinn dag á tilteknum tíma. Tíma-
setningunni hefði síðar verið breytt
án þess að hann hefði haft um það
upplýsingar. Að þessu gættu en að
öðru leyti með vísan til forsendna
hins kærða úrskurðar var hann
staðfestur. andri@mbl.is
Mál Kaupþings gegn
Sigurði Einarssyni
ekki fellt niður
Sigurður Einarsson
Samkoma verður í gömlum stíl á
Þingvöllum á þjóðhátíðardaginn
17. júní milli kl. 12.30 og 14.
Hljómskálakvintettinn leikur,
Karlakór Kjalnesinga syngur, ís-
lensk glíma verður sýnd og Lýð-
veldisbörn hittast, fjöldasöngur og
loks er messa í Þingvallakirkju.
Hljómskálakvintettinn leikur
nokkur lög við fræðslumiðstöðina á
Almannagjárbarmi (Hakinu) og
gengur síðan kl. 12.30 í skrúðgöngu
niður Almannagjá og að Lögbergi.
Þar í Almannagjá leikur kvintett-
inn og Karlakór Kjalnesinga syng-
ur. Einnig verður fjöldasöngur
samkomugesta. Ungir og vaskir
menn sýna íslenska glímu og kenna
börnum undirstöðuatriði í glímu.
Er fólk hvatt til að taka með sér
nesti og teppi til að sitja á í brekk-
unni. Samkomunni við Almannagjá
lýkur um kl. 14 og þá hefst messan í
Þingvallakirkju.
Samkoma í gömlum
stíl á Þingvöllum
Morgunblaðið/Sverrir
Þingvellir Mikið um dýrðir 17. júní.
Íslenska tölvu-
leikjafyrirtækið
Locatify gaf ný-
lega út í sam-
vinnu við þýska
útgáfufyrirtækið
AudioBits nýja
snjallleiðsögn um
hina sögufrægu
borg Trier í
Þýskalandi. Leiðsögnin er til sölu í
Apple Store og eru tvær ferðir í
boði: önnur stutt sem fæst án end-
urgjalds og önnur lengri sem er
töluvert viðameiri og gefur hún
skýra mynd af sögu borgarinnar
allt frá tíma Rómaveldis.
Samstarf við Audiobits komst á í
gegnum tengslanet sem Nýsköp-
unarmiðstöð Íslands er hluti af. Um
er að ræða alþjóðlegt tengslanet
sem hefur það að markmiði að að-
stoða fyrirtæki og stofnanir við að
efla samkeppnishæfni á alþjóða-
markaði, segir í tilkynningu.
Íslensk snjallleið-
sögn um Trier