Morgunblaðið - 15.06.2011, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2011
1) Mål først om bredden på Deres rude er 39 cm eller derunder. Hvis det er tilfældet,
skal De fortsætte til punkt 2. Hvis ruden er mere end 39 cm bred, er den ikke omfattet.
2) Åbn vinduet og drej det rundt til pudsestilling (180 grader).
3) Find rudekoden på afstandsprofilet mellem de to glaslag og skriv den ned. Ruden er kun omfattet, hvis
rudekoden (mellem de to stjerner) indeholder tallet 59 eller 34 i kombination med tallet 8 eller bogstavet Y.
4) Gå ind på www.velux-pw.dk og indtast rudekoden. Så får De straks besked på,
om ruden er omfattet, og hvilke muligheder De i givet fald har.
Hvis De ikke har adgang til internet, beder vi Dem kontakte os på telefon
38 17 18 19 og oplyse rudekoden, så vejleder vi Dem telefonisk.
De kan se en video med vejledning på www.velux-pw.dk; hvis De har en smartphone,
kan De scanne denne kode ind og se vejledningen der.
Vi anbefaler, at vores kunder reagerer på denne advarsel.
Vi beklager ulejligheden.
Produktadvarsel
Risiko for spontant brud på ruder
VELUX Danmark A/S
Web: www.velux-pw.dk
email: pw@velux.dk
Telefon: 38 17 18 19
Vi har registreret lidt flere tilfælde af glasbrud end normalt i en bestemt type små ruder fremstillet
og solgt mellem 1997 og 2003. Især om vinteren er der under særlige forhold en lille risiko for, at
det inderste lag glas spontant går itu, og at glasstykker kan falde ned.
Vi prioriterer kvaliteten af vores produkter højt og har besluttet at informere vores kunder ved at
udstede en generel advarsel om denne risiko.
Nedenfor har vi beskrevet, hvordan De finder ud af, om De har en af disse 8-14 år gamle ruder i
deres ovenlysvindue:
3 Find og notér rudekoden
max
39 cm
1 Tjek rudens bredde 2 Rotér vinduet
* 59 B
1 8 209
9 * IP
L 102
Ólafur Bernódusson
Skagaströnd | Fjölmenni var við
opnun Kántrýseturs í Kántrýbæ á
laugardag og mikið um dýrðir. Á
Kántrýsetrinu er sýning þar sem
hægt er að finna mikinn fróðleik um
lífshlaup og feril Hallbjörns Hjart-
arsonar og kántrýtónlist á Íslandi.
Leikmynda- og sýningahönnuður-
inn Björn Björnsson setti upp sýn-
inguna í samstarfi við rekstraraðila
Kántrýbæjar, þau Svenný Hall-
björnsdóttur og Gunnar Hall-
dórsson. Björn sagði að söfnun efn-
is, hönnun og uppsetning
sýningarinnar hefði tekið um eitt ár
og er hann ánægður með útkomuna.
Framkvæmdastýra verksins var út-
varpskonan Margrét Blöndal og sá
hún um að safna saman efni og upp-
lýsingum og koma á sýningarhæft
form í samvinnu við Björn.
Á opnunarhátíðinni, þar sem fram
komu landsþekktir listamenn eins
og Magnús Kjartansson og Björgvin
Halldórsson ásamt fleirum, voru
setrinu færðar gjafir og styrkir. Í
þakkarávarpi sínu sagði Hallbjörn,
sem nýlega átti 76 ára afmæli, að sig
hefði ekki órað fyrir að hann ætti
eftir að upplifa þann draum sinn að
sjá safn eða sýningu sem þessa
verða að veruleika. Hann sagðist
vera snortinn og hræður yfir þeim
heiðri sem sem sér væri sýndur með
sýningunni og þakkaði öllu því góða
fólki sem gert hefði þetta mögulegt.
Jafnframt sagðist hann vona að sýn-
ingin á setrinu yrði fólki til ánægju
og gleði og ungum sem öldnum
hvatning til átaka á listasviðinu –
ekki síst í kántrýtónlistinni.
Að loknum ávörpum og stuttum
tónleikum, þar sem þau Björgvin
Halldórsson, Selma Björnsdóttir og
Heiða Ólafsdóttir fluttu uppáhalds-
lögin sín eftir Hallbjörn við undir-
leik hljómsveitar undir stjórn
Magnúsar Kjartanssonar, klippti
síðan Hallbjörn á borða og opnaði
þar með Kántrýsetrið formlega.
Um kvöldið þegar gestir höfðu
haft tækifæri til að skoða sýn-
inguna, sem er mjög umfangsmikil
og er á öllum veggjum Kántrýbæjar
á báðum hæðum, voru síðan tón-
leikar með fyrrgreindum listmönn-
um. Dagurinn endaði síðan með
dúndrandi kántrýballi í boði
Kántrýbæjar eins og aðrir viðburðir
dagsins.
Hallbjörn snortinn og hrærður
Kántrýsetur opnað að viðstöddu fjölmenni í Kántrýbæ
Lífshlaup og ferill Hallbjörns Hjartarsonar til sýnis
Fjör Hallbjörn Hjartarson og Margrét Blöndal gleðjast í tilefni dagsins.
Sagan Jafnvel hörðustu Iron Maiden aðdáendur hafa gaman af að skoða
sýninguna. Þar má sjá ýmsa gripi frá ferli Hallbjörns Hjartarsonar.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Kúreki norðursins Hallbjörn Hjartarson fagnar innilega opnun Kántríset-
ursins eftir að hafa klippt á borða og opnað sýninguna formlega.
Alþingi samþykkti ný lög um gisti-
náttaskatt 11. júní síðastliðinn sem
tekur gildi um næstu áramót.
Samkvæmt lögunum skal greiða
hundrað krónur af hverri gistinátta-
einingu.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa
ítrekað bent á að gististaðirnir í
landinu séu ekki í stakk búnir til að
taka á sig nýja skatta. Segjast sam-
tökin hafa gert margar athugasemd-
ir við frumvarpið sem þau segja illa
unnið. Þá segja samtökin að frum-
varpið hafi gert ráð fyrir mjög flóknu
fyrirkomulagi.
Í frétt frá Samtökum ferðaþjón-
ustunnar (SAF) kemur fram að sam-
tökin hafi m.a. lagt mikla áherslu á
að skatturinn rynni óskiptur til
Framkvæmdasjóðs ferðamanna-
staða. Eru þau því mjög ósátt við
niðurstöðu Alþingis.
Tekjum sem verða til með gisti-
náttaskattinum verður útdeilt á fjár-
lögum. 60% rennur til Fram-
kvæmdasjóðs ferðamannastaða en
40% til ráðstöfunar fyrir þjóðgarða
og friðlýst svæði.
Fellur undir tvö ráðuneyti sem
flækir málið duglega
Eðlilegra hefði verið, að mati
Samtakanna, að féð færi allt í sama
sjóðinn. Á það var ítrekað lögð
áhersla við efnahags- og skatta-
nefnd. Segja samtökin að á þau sjón-
armið hafi ekki verið hlustað. „Þessir
fjármunir munu falla undir tvö ráðu-
neyti og fara flókna leið og treysta
samtökin því ekki að þessir peningar
skili sér að fullu,“ segir í fréttatil-
kynningu frá SAF.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa
að undanförnu gert kannanir á gisti-
stöðum og kom í ljós að gríðarlegur
fjöldi gistirýma reyndist án allra
rekstrarleyfa og eftirlitið í molum.
„Þá er spurt hver ætli að innheimta
gistináttaskatt af slíkum fyrirtækj-
um?“ segir í tilkynningu samtak-
anna. sunna@mbl.is
Gistináttaskatt-
urinn of flókinn
SAF ósátt við útdeilingu fjármuna
Morgunblaðið/Eggert
Ferðamenn Gistináttagjald þarf að
greiða frá næstu áramótum.
Beint í ríkissjóð
» Í 3. grein laga um gistinátta-
gjald segir að greiða skuli í rík-
issjóð gistináttagjald af hverri
seldri gistinótt.
» Ein gistinótt telst vera seld-
ur sólarhringur í gistingu fyrir
hvern einstakling.
» Gistináttagjald skal nema
100 kr. fyrir hverja gistinótt á
hótelum en 50 kr. fyrir hverja
gistinótt á annars konar gisti-
stöðum.