Morgunblaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 25
mikla umhyggju og hugsaðir allt-
af fyrst og fremst um aðra áður
en þú hugsaðir um sjálfa þig. Við
áttum ófáar gæðastundir fyrir
framan sjónvarpið og oftar en
ekki var fótbolti á skjánum. Alltaf
spurðir þú okkur hvernig við
þekktum alla þessa leikmenn og
hverrar þjóðar þeir væru. Best
þótti þér að vera heima og dunda
þér við spilin og hlusta á Rás 2 í
leiðinni. Það varst þú sem kennd-
ir okkur að spila hin ýmsu spil.
Við höfum aldrei þekkt neina
manneskju eins hógværa og góð-
hjartaða og þú varst. Þú talaðir
aldrei illa um neinn og sást alltaf
björtu hliðarnar á hverju máli. Þú
varst þrautseig og gerðir allt sem
þú ætlaðir þér þótt oft á tíðum
hljótt færi. Við héldum að þú vær-
ir ódrepandi, enda ekki að
ástæðulausu sem við kölluðum
þig Ömmu ódrepandi.
Nú er líf þitt á enda komið, við
elskum þig og munum aldrei
gleyma þér. Þín verður sárt sakn-
að og minningin um þig mun vara
að eilífu.
Þín barnabörn,
Kristín Ása og Árni.
Nú kveð ég þig elsku amma
mín af þessari jörðu, þú sem varst
svo sterk og frábær kona, dug-
legri konu held ég að erfitt sé að
finna. Þú ólst upp þennan hóp af
börnum, tíu stykki, og gerðir með
sóma, svo komum við barnabörn-
in á eftir, svo lánsöm vorum við að
eiga þig sem ömmu, alltaf settirðu
okkur í fyrsta sæti. Þegar ég var
lítil var ég svo mikið hjá þér, svaf
á milli þín og afa, sú minning lifir
og mun ég aldrei gleyma. Þú
varst svona alvöruamma. Við
komum til þín í Laufbrekkuna og
alltaf varstu heima með svuntuna,
tilbúin til þess að taka á móti okk-
ur krökkunum með nýbökuðum
pönnsum eða brúnköku, passaðir
alltaf upp á að enginn væri svang-
ur og allir hefðu nóg. Ég tel mig
mjög lánsama að hafa kynnst þér
og fengið öll þessi ár með þér. En
nú er kominn sá tími að ég þurfi
að kveðja þig af þessari jörðu,
mikill söknuður fylgir, en svona
sterk kona eins og þú amma mín,
sem ert búin að ljúka þínu hlut-
verki á þessari jörðu, þú varst svo
tilbúin að fara. En það er alltaf
erfitt að sætta sig við dauðann og
ég hlýja mér við það að nú ertu
komin á betri stað og þér líður
miklu betur, ég veit að nú ertu
komin til afa sem þú saknaðir eins
og við hin sem þekktum hann.
Elsku amma mín, hvíldu í friði,
minning um yndislega og sterka
konu lifir með mér alla ævi, ég
elska þig og ég sakna þín.
Birna Rán.
Ég vil með fáum orðum minn-
ast Áslaugar, en hún var tengda-
móðir sonar míns, Guðna Þórs.
Við hjónin kynntumst Áslaugu
fyrst þegar hún, orðin ekkja, kom
í heimsókn til okkar snemma árs
1997, með yngstu dóttur sinni
Guðlaugu, sem sonur okkar var
búinn að koma heim með nokkuð
oft og greinilegt var að þar bjó
eitthvað meira undir. Okkur varð
þá strax ljóst að þarna var komin
traust, kraftmikil og dugleg
kona, sem heilsaði okkur með
sterku handtaki. Kynni okkar ná
því ekki lengra aftur en rúm 14
ár, en þó nógu mörg til að ég
hafði tækifæri til að kynnast
konu sem hafði fætt 10 börn á 14
árum og alið þau upp með ráð-
deild, dugnaði og eljusemi. Ás-
laug var líka sérlega myndarleg í
verkum sínum. Flestum þætti nú
nóg að gera að sjá um jafnstórt
heimili og hennar var, en hún
prjónaði og saumaði líka föt á öll
þessi börn, jafnvel fram á fullorð-
insár.
Af heilsufarsástæðum hef ég
þurft að vera í meðferð hjá
sjúkraþjálfara í mörg ár og svo
kom að því að Áslaug þurfti á
sömu þjónustu að halda, eftir lið-
skiptaaðgerð, og hittumst við þá
á sjúkraþjálfunarstöðinni, þar
sem við vorum í meðferð á sama
tíma og þá var alveg upplagt að
við yrðum samferða í og úr með-
ferðinni. Á þessum tíma kynntist
ég Áslaugu betur en hefði ella
orðið og voru þessar ferðir okkar
mér mikils virði og ýmislegt var
talað um.
Eitt sinn vorum við að tala um
þau háu laun sem sumir í þjóð-
félaginu höfðu. Þá sagði Áslaug:
„Ég hef nú ekki fjárfest í hluta-
bréfum, heldur í börnum og það
er mikil eign að eiga 10 börn og
að allt sé þetta nýtilegt fólk.“
Þessari setningu held ég að ég
muni aldrei gleyma, því í henni
felst svo mikill sannleikur. Elsku
Gulla mín og þið öll hin, börn,
tengdabörn, barnabörn, barna-
barnabörn og aðrir aðstandend-
ur, Guð veri með ykkur um ókom-
in ár.
Ég kveð þig, hugann heillar minn-
ing blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Sigrún Gissurardóttir.
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2011
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Merktu gæludýrið
Fyrir gæludýr. Merki með hlekk,
nafni dýrsins og símanúmeri eiganda.
Verð 2000 kr. Fannar, Smiðjuvegi 6,
Kóp. Rauð gata. Sími 551-6488.
fannar@fannar.is
Gisting
Hótel Sandafell Þingeyri
Býður gistingu og orlofsíbúðir.
Sími 456 1600.
Atvinnuhúsnæði
SKRIFSTOFURHÚSNÆÐI
til leigu að Súðarvogi 7 á annari hæð,
18 fm.skrifsota með tölvi og
símatengi. í sameign er aðgangur að
fundarherbergi. uppl. í S: 824-3040
og 862-6679
Sumarhús
Eignarlóðir
undir sumarhús til sölu
Í landi Kílhrauns á Skeiðum. 50 mín.
akstur frá Reykjavík. Landið er einkar
hentugt til skógræktar og útivistar.
Falleg fjallasýn. Upplýsingar í símum
824 3040 og 893 4609
Festu þér þinn sælureit í dag.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Golf
Rafmagnsgolfhjól
Eigum á lager rafmagnsgolfhjól á
góðu verði. 250.000 kr.
H-Berg ehf.
Sími 565 6500 .
Til sölu
Ódýr gæðablekhylki og tonerar
í prentarann þinn. Öll blekhylki
framleidd af ORINK.
Blekhylki.is Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517 0150
Óska eftir
Kaupi gamla mynt og seðla
Kaupi gömul mynt og seðlasöfn, geri
tilboð á staðnum. Gull- og silfurpen-
ingar. Sími 825 1016, Sigurður.
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897-9809.
Laga ryðbletti á þökum.
Hreinsa þakrennur og tek
að mér ýmis smærri verk.
Upplýsingar í síma 847 8704
eða manninn@hotmail.com.
Málarar
Íslandsmálarar ehf.
Þakmálun - Þakmálun!!
Húsfélög - Húseigendur
Þarf að huga að viðhaldi á þakinu?
Við sérhæfum okkur í málun og
viðgerðum á þökum.
Gerum tilboð ykkur að kostnaðar-
lausu.
Löggiltur málarameistari.
Grétar, s. 899 2008.
islandsmalarar@gmail.com
Íslandsmálarar ehf.
Húsfélög - Húseigendur
Þarf að huga að viðhaldi á húsinu?
Er kominn tími á að mála?
Við tökum að okkur málun,
múrviðgerðir, flotun og flísalagnir.
Gerum tilboð ykkur að kostnaðar-
lausu.
Elías Raben
múrarameistari,
s. 770 3686.
eliasraben@gmail.com
Bílar
Árg. '07, ek. 54.000 km
Til sölu Volvo XC 90, árg. 2007/8,
7 manna, ssk., 8 cyl., eins og nýr.
Bónusverð. Uppl. í síma 897 1458.
Pallbíll
Pall-lok á ameríska pickupa
Eigum til á lager pall-lok frá
www.undercoverinfo.com - þetta eru
sterk og létt lok sem gefa pallbílnum
aukið notagildi og minnkar eyðslu.
Uppl. Frank 844 5222.
Bílaþjónusta
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu. Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is – s. 551-6488.
Aðalfundur BR
Boðað er til aðalfundar Bridsfélags
Reykjavíkur í dag, 15. júní 2011.
Fundurinn verður haldinn í Síðu-
múla 37 kl. 18. Dagskrá fundarins er
eftirfarandi:
Aðalfundarstörf skv. 5. gr. laga
Bridsfélags Reykjavíkur.
Eftirfarandi tillögur um lagabreyt-
ingar hafa komið fram og verða af-
greiddar á fundinum.
Tillaga um fækkun stjórnarmanna
úr fimm í þrjá.
Tillaga um að breyta boðun aðal-
fundar.
Félag eldri
borgara Rvík.
Spilað var í Stangarhyl 4, sal Fé-
lags eldri borgara í Reykjavík 9. júní.
Úrslit í N/S
Björn Árnas. – Auðunn Guðmundss. 263
Rafn Kristjánss. – Júlíus Guðmundss. 256
Ólafur B. Theodórs – Björn E. Péturss. 227
A/V
Sigurjón Helgason – Helgi Samúelss. 297
Magnús Jónsson – Gunnar Jónsson 248
Friðrik Jónss. – Tómas Sigurjónss. 242
Bikarkeppnin/
Önnur umferð
Nokkrir leikir hafa verið spilaðir í
annarri umferð bikarkeppninnar og
þessi eru úrslitin:
Bernódus Kristinss. – Sveitin svala 90-85
VÍS 140 – Úlfurinn 140-42
6. Nammi – Kristján B. Snorrason 77-71
Óskar Elíasson – Sparisj. Siglufjarðar 40-123
Pétur og úlfarnir – Suðurtún 62-83
Tölvustoð ehf. – Skákfjelagið 125-85
Umferðinni á að vera lokið 3. júlí.
Félag eldri borgara í Hafn-
arfirði
Föstudaginn 10. júní var spilað á 14
borðum í Hraunseli með eftirfarandi
úrslitum í N/S:
Örn Einarsson – Óskar Ólafsson 360
Rafn Kristjánss. – Magnús Halldórss. 358
Sæmundur Björnss. – Knútur Björnss. 343
Bjarnar Ingimarss. – Bragi Björnsson 330
Óli Gíslason – Sverrir Jónsson 328
AV:
Sveinn Jensson – Jóna Kristinsd. 387
Lilja Helgadóttir – Hildur Jónsd. 375
Friðrik Hermannss. – Ásgeir Sölvas. 372
Jón Ólafur Bjarnas. – Stefán Ólafsson 339
Jóhannes Guðmundss. – Friðrik Jónss. 334
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
✝ Ingibjörg Stef-anía Þorvalds-
dóttir fæddist
hinn 9. júní 1913 í
Hjaltastaðakoti
(nú Grænumýri) í
Blönduhlíð í
Skagafirði. Hún
lést 29. maí 2011.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Þorvaldur Jóns-
son, f. 31.12 1884,
d. 23.9. 1989, og Helga Jó-
hannsdóttir, f. 26.8. 1893, d.
11.6 1944. Systkini hennar,
bæði látin, voru Jóhann Jón, f.
1915, og Oddný Kristín, f.
1919. Sonur Ingibjargar er
Helgi Þorvalds Gunnarsson, f.
1950, og kona hans Þorbjörg
Ásgrímsdóttir, f. 1949. Börn
Helga og Þorbjargar eru Eg-
ill, f. 1970, Ásgrímur Haukur,
f. 1972, Ingibjörg
Helga, f. 1974, og
Guðrún, f. 1980.
Árið 1973 giftist
hún Ólafi Jóns-
syni vélstjóra, d.
1985.
Ingibjörg ólst
upp í Hjalta-
staðakoti og á Íb-
ishóli í Skaga-
firði. Upp úr
fermingu var hún
í vist á ýmsum bæjum í sveit-
inni. Fjölskyldan flutti á
Sauðárkrók árið 1928 en um
það leyti flytur Ingibjörg til
Akureyrar. Þar bjó hún til
ársins 1985 að hún flutti til
Reykjavíkur. Hún starfaði
lengst af við saumaskap.
Útför Ingibjargar fór fram
í kyrrþey á 98. afmælisdegi
hennar 9. júní sl.
Tengdamóðir mín Ingibjörg
var Skagfirðingur og var stolt af
því. Hún fæddist og ólst upp í
torfkofa. Hún sagði okkur sög-
una af því þegar hún lítil stúlka,
vormorgun einn í maí, vaknaði
við að eitthvað blautt og volgt lá
við fætur hennar. Þegar að var
gáð kom í ljós að þar lá nýfætt
líflítið lamb. Pabbi hennar sagði
að lambið yrði hennar ef það
héldi lífi. Það gekk eftir. Gleði
og hamingja barnsins var ósvik-
in.
Á kveðjustundu þökkum við
öll fyrir takmarkalausa um-
hyggju sem hún bar fyrir af-
komendum sínum sem og fjöl-
skyldu sinni allri. Hvíl í friði.
Þorbjörg.
Þá hefur hún Ingibjörg
amma okkar kvatt þennan heim
nær 98 ára að aldri. Með sanni
má segja að amma hafi lifað
tímana tvenna og hefur okkur
alla tíð þótt hún sem tengiliður
okkar við löngu horfna tíma. Al-
in upp í torfbæ, við verklag og
hugsunarhátt, sem tíðkast hafði
öldum saman á Íslandi. Menn-
ingu og aðstæður sem voru við
það að taka stórstígum breyt-
ingum.
Æskuárin átti amma í Hjalta-
staðakoti og síðar að Íbishóli við
Varmahlíð er fjölskyldan flutti
þangað búferlum árið 1921.
Ýmsum minningum sínum um
veruna að Íbishóli, sagði hún
okkur frá. Minnisstæð er sagan
af því þegar bæjarfólki að Íb-
ishóli bárust til eyrna fréttir af
bifreið, sem notuð var við vega-
gerð í allnokkurri fjarlægð frá
bænum. Slíkt fyrirbæri höfðu
þau aldrei fyrr séð og gerðu sér
sérstaka ferð til að skoða. Saga
af því hversu lengi hún og Jón
bróðir hennar höfðu beðið
spennt eftir að fá að fara með
föður sínum á Sauðárkrók og fá
að sjá sjóinn sýnir hversu fólk á
þessum tíma var bundið heima-
högunum og ferðalög tímafrek-
ur munaður. Vegalengdin milli
Íbishóls og Sauðárkróks er um
30 kílómetrar og aksturstími í
dag varla nema 20 mínútur. Á
uppvaxtarárum ömmu var þetta
hinsvegar margra klukkutíma
ferðalag. Upp úr fermingu var
amma í vist á ýmsum bæjum í
Skagafirði, en árið 1928, er fjöl-
skyldan tók sig upp og flutti inn
á Sauðárkrók, flutti amma ein
norður á Akureyri. Á Akureyri
vann hún ýmis störf við mis-
jafnar aðstæður. Fáum árum
eftir komu sína til Akureyrar
lærði hún karlmannafatasaum
hjá Laxdal og vann þar um hríð
áður en hún hóf störf á sauma-
stofu Gefjunar. Saumaskapur
varð ævistarf ömmu og var hún
eftirsótt saumakona, enda rösk
til verka og handbragð hennar
fallegt.
Eftir að hún eignaðist föður
okkar, Helga Þorvalds Gunnars-
son, árið 1950 sinnti hún sauma-
störfum heima við. Er við systk-
inin vorum á barnsaldri saumaði
amma reglulega föt á okkur.
Eftir að við komumst á ung-
lingsaldur varð það sjaldnar en
fyrir kom að hún saumaði á
okkur hin fínustu spariföt, sem
sum eru jafnvel enn til í dag. Á
efri árum tók amma til við að
prjóna lopapeysur, sem að
mestu voru seldar í ferða-
mannaverslunum og þóttu vand-
aðar.
Við systkinin nutum þess að
heimsækja ömmu Ingibjörgu og
Óla afa á sumrin á Akureyri. Í
huganum lifa minningar um
bæjarferðir með ömmu, heim-
sóknir til Óla afa í Ketilhúsið,
drullukökubakstur á hamrinum
ofan við húsið, hjálp við vökvun
sumarblóma og ilminn af reyni-
viðnum í garðinum.
Árið 1985 lést Óli afi og
amma fluttist í Gaukshóla í
Reykjavík til að vera nær okk-
ur, pabba og mömmu. Alla tíð
lét hún sér annt um afkomendur
sína og bar hag þeirra fyrir
brjósti. Við systkinin og fjöl-
skyldur okkar kveðjum nú
ömmu Ingibjörgu og erum
þakklát fyrir þann langa tíma
sem við höfum átt með henni og
allt það sem hún hefur gert fyr-
ir okkur.
Egill, Ásgrímur, Ingibjörg
og Guðrún.
Ingibjörg Stefanía
Þorvaldsdóttir