Morgunblaðið - 15.06.2011, Qupperneq 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2011
Sudoku
Frumstig
9 5 4
3 1 5 7
8 6 1
7 5
5 3 9
7 4 5 1 8
8 1 3 7
4 3
9 5 7 4 6
3 2
8 5
4 3
2 9
4 5 2
3 4
5 6 3 8
7 5 6
4 1 6
8 3 5
3 4 9 5 1
2
9 2
9 4
2 5 8
9 8 4 6
5 1
7 4 6 3 2 9 1 8 5
9 5 3 4 1 8 2 6 7
1 2 8 7 5 6 3 4 9
4 8 9 2 7 3 6 5 1
6 3 7 1 8 5 4 9 2
5 1 2 9 6 4 7 3 8
2 6 4 5 9 7 8 1 3
8 7 5 6 3 1 9 2 4
3 9 1 8 4 2 5 7 6
2 7 6 9 4 8 3 1 5
9 1 4 5 3 6 2 7 8
5 3 8 1 2 7 4 9 6
6 2 7 8 1 3 5 4 9
8 4 5 2 7 9 6 3 1
1 9 3 4 6 5 7 8 2
4 8 9 7 5 2 1 6 3
3 5 1 6 9 4 8 2 7
7 6 2 3 8 1 9 5 4
1 9 8 5 4 7 3 6 2
4 2 3 1 8 6 7 5 9
6 5 7 2 3 9 8 1 4
8 7 5 9 2 3 1 4 6
2 4 9 8 6 1 5 3 7
3 1 6 4 7 5 2 9 8
9 6 2 3 1 8 4 7 5
7 3 4 6 5 2 9 8 1
5 8 1 7 9 4 6 2 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 15. júní,
166. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi,
hvaða dag Drottinn yðar kemur.
(Matth. 24, 42.)
ÁÍslandi er samkeppni öll bjöguðog skekkt. Ekki virðist vera
sérstakt keppikefli að hlúa að heil-
brigðum fyrirtækjum, en sjúk fyr-
irtæki eru mörg komin í rekstur hjá
bönkum og eru þar í súrefnistjaldi.
Páll Gunnar Pálsson, formaður Sam-
keppniseftirlitsins, kynnti nýja
skýrslu þess fyrir helgi og sagði: „Al-
þjóðleg samstaða ríkir um að bankar
séu ekki vel til þess fallnir að reka
fyrirtæki. Það er vegna þess að fjár-
málaþjónusta fyrir fyrirtæki og eign-
arhald á þeim fer ekki vel saman.“
Víkverji hefur iðulega velt sér hvern-
ig fyrirgreiðslu fyrirtæki í tilteknum
rekstri fær hjá banka, sem hefur yf-
irtekið fyrirtæki í sama rekstri. Í
fyrsta lagi getur bankinn farið fram á
upplýsingar, sem fyrirtækið myndi
fyrir enga muni vilja að bærust til
keppinautarins. Í öðru lagi má velta
fyrir sér hversu miklir hagsmunir
eru hjá banka að veita fyrirtæki fyr-
irgreiðslu, sem er í beinni samkeppni
við fyrirtæki, sem hann er með í súr-
efnistjaldinu. Í þriðja lagi eiga óheil-
brigðu fyrirtækin einfaldlega
greiðari aðgang að peningum en þau
heilbrigðu vegna náins banka-
sambands þeirra.
x x x
Víkverji hefur einnig velt því fyrirsér hvers vegna ekki sé auð-
veldara að fá upplýsingar um það
hvaða fyrirtæki bankarnir reka.
Hann gladdist því þegar Páll Gunnar
vakti máls á þessu. Eins og kom fram
í fréttaskýringu Önnu Lilju Þór-
isdóttur í Morgunblaðinu á föstudag
sagði hann að Samkeppniseftirlitið
hygðist draga upp á yfirborðið tilvik,
þar sem bankar færu með yfirráð í
fyrirtækjum, án þess að hafa tilkynnt
það til eftirlitsins. „Tryggja þarf að
raunveruleg yfirráð banka yfir fyr-
irtækjum séu uppi á borðum,“ sagði
Páll. Víkverji veltir fyrir sér hvort
ekki sé ástæða til að ganga skrefi
lengra. Þannig mætti til dæmis
skikka fyrirtæki undir yfirráðum
banka til að taka það fram í auglýs-
ingum þannig að neytendur, sem
kynnu að vilja eiga frekar viðskipti
við þau fyrirtæki, sem enn halda velli
í ójöfnum leik, ættu auðveldara með
að gera það. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 eftirlátt, 8 lag-
hent, 9 depill, 10 synjun, 11
gabba, 13 sefaði, 15 týndist,
18 steggur, 21 fugls, 22
vagga, 23 hæð, 24 liðleskju.
Lóðrétt | 2 ótti, 3 deila, 4
endalok, 5 giftast ekki, 6 fífl,
7 grasflötur, 12 horaður, 14
reykja, 15 gleðikona, 16
skynfærin, 17 slétt, 18 borg-
uðu, 19 al, 20 dugleg.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 vansi, 4 bælin, 7 leita, 8 ragar, 9 náð, 11 náin, 13 ærna,
14 eyrað, 15 þarm, 17 afar, 20 áma, 22 gefur, 23 gætin, 24 rím-
an, 25 auðga.
Lóðrétt: 1 valan, 2 neiti, 3 iðan, 4 borð, 5 logar, 6 narta, 10
áfram, 12 nem, 13 æða, 15 þegir, 16 rófum, 18 fátíð, 19 runna,
20 áran, 21 agga.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Vaknaðu nú, makker minn.
Norður
♠6
♥K92
♦ÁDG1094
♣984
Vestur Austur
♠G98743 ♠ÁK10
♥1054 ♥873
♦3 ♦865
♣ÁKG ♣7632
Suður
♠D52
♥ÁDG6
♦K72
♣D105
Suður spilar 3G.
Grandfyrirstaðan ♠Dxx á móti ein-
spili er ekki eins fárveik og ætla
mætti, því drottningin valdar litinn
ef sami mótherji er með tvo efstu –
og líkur á því eru 48%. Með hliðsjón
af því er ekki alvitlaust hjá N-S að
reyna 3G. Veikleikinn er hins vegar
ekki bara í spaða og hér dugir það
vörninni ef austur skiptir yfir í lauf í
öðrum eða þriðja slag. En því skyldi
hann gera það?
Byrjum á byrjuninni: Suður opnar
á 1G og norður stekkur í þrjú. Vestur
spilar út ♠7, fjórða hæsta, austur
tekur á ♠K, leggur niður ♠Á og …
þarf nú að spila laufi. Þá vörn finnur
austur alls ekki ef vestur fylgir með
smáspaða. Hér verður vestur að vísa
veginn með því að henda ♠G undir
ásinn, sem eins konar „vekj-
araklukkukall“.
15. júní 1926
Kristján tíundi Danakonungur
og Alexandrína drottning
lögðu hornstein að Landspít-
alabyggingunni, sem konur
beittu sér fyrir í tilefni af
kosningarétti sínum. Spítalinn
var tekinn í notkun fjórum ár-
um síðar.
15. júní 1947
Millilandaflugvél, sú fyrsta
sem Íslendingar eignuðust,
kom til landsins. Hún var
nefnd Hekla, var af Skymas-
ter-gerð og í eigu Loftleiða hf.
Tveimur dögum síðar fór hún
í fyrstu ferðina til Kaup-
mannahafnar. Flugið tók sjö
klukkustundir.
15. júní 2001
Um sex þúsund manns hlýddu
á tónleika þýsku hljómsveit-
arinnar Rammstein í Laug-
ardalshöll. „Önnur eins sýning
hefur ekki sést á Íslandi,“
sagði í Fréttablaðinu.
15. júní 2006
Ríkisstjórn Geirs H. Haarde
tók við völdum. Hún starfaði í
nær tuttugu mánuði.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Ég mun gera eitthvað óvænt, jafnvel fara út að
borða, en mig langar mest til þess að eyða deg-
inum með börnunum mínum og manninum,“ segir
Svava Gestsdóttir sjúkraliði, en hún fagnar 65 ára
afmæli sínu dag. Svava útskrifaðist sem sjúkraliði
frá St. Jósefsspítala árið 1968 en hún hefur starfað
í heilbrigðisgeiranum í um 40 ár og unir sér þar
vel. „Þetta er mitt hugarfóstur,“ segir Svava með
miklum tilburðum.
Svava er giflt Ægi Jónssyni skipstjóra og saman
eiga þau þrjú uppkomin börn og sex barnabörn.
Aðspurð hvort Svava ætli sér að ferðast erlendis í
sumar segist hún nýkomin úr langri siglingu með Goðafossi, þar sem
eiginmaður Svövu er skipstjóri. „Ég fór til Hollands, Danmerkur,
Noregs og Svíþjóðar og fékk renniblíðu alla ferðina. Nú er sá tími
kominn að ég ætla að eyða sumrinu í sumarbústaðnum mínum, sem er
á Flúðum. Ég fæ 60 daga í sumarfrí og hugsa að ég verði þar í þá tvo
mánuði sem ég hef. Þar langar mig að dútla í garðinum, en það veitir
víst ekki af því að gera eitthvað fyrir garðinn í allt sumar,“ segir
Svava og bætir því við að garðurinn sé tilbúinn að taka á móti sumr-
inu. janus@mbl.is
Svava Gestsdóttir sjúkraliði 65 ára
Nýkomin úr langri siglingu
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
15. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.41 3,6 11.52 0,4 18.09 4,0 2.57 24.00
Ísafjörður 1.48 0,3 7.37 2,0 13.54 0,3 20.06 2,4 1.34 25.34
Siglufjörður 3.45 0,1 10.17 1,2 16.05 0,3 22.19 1,3 1.17 25.17
Djúpivogur 2.43 2,0 8.49 0,4 15.17 2,4 21.35 0,5 2.13 23.44
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er ekki allt gull sem glóir og
margt reynist eftirsókn eftir vindi. Hvaða nýj-
ungar leggur þú til?
(20. apríl - 20. maí)
Naut Nú er mikið að gera á heimilinu, sem
hugsanlega veldur spennu milli fjölskyldu-
meðlima. Gerðu þig kláran til að kynna þeim
hugmyndir þínar.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Gæði fremur en magn eru sig-
urmantra dagsins. Allt hefur sinn tíma og það
á líka við um mál tilfinninganna.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú hefur þörf fyrir meiri hvíld og af-
slöppun en ella á heimilinu um þessar mund-
ir. Reyndu að koma erfða-, fasteigna- og
tryggingamálunum á hreint.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ef þú ert alltaf að búast við vandræðum,
leita þau þig uppi. Láttu því þínar eigin þarfir
hafa forgang.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Fólk stækkar við hrós þitt og verður
betri útgáfa af sjálfu sér. Verkefnin þín þróast
í þá átt sem þú vonaðist eftir.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það sem þú ert að velta þér upp úr getur
ekki beðið lengur. En þegar þú sérð baknag-
arana hvíslast á úti í horni, þá vorkennir þú
þeim svo mikið að þér verður alveg sama.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Horfurnar virðast yfirþyrmandi,
en þú ert í fullkominni aðstöðu til að takast á
við það sem koma mun. Ertu viss um það það
borgi sig að hætta góðri samvinnu vegna
þessa?
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það getur stundum verið erfitt að
spá í fyrirætlanir annarra. Breyttu út af van-
anum með því að fara aðra leið heim úr
vinnu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Gættu þín að láta engan misnota
tilfinningar þínar hvort heldur um er að ræða
vini og vandamenn eða aðra aðila.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú heillar alla þá sem verða á vegi
þínum í dag án þess þó að leggja nokkuð á
þig til þess. Stundum er best að gera ekkert.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er erfitt að standa undir þeirri
ábyrgð sem fylgir því að vera maður. Ef þú
einbeitir þér að þeim sem treysta á þig vex
orðstír þinn.
Stjörnuspá
Lilja Jónsdóttir
er sextug í dag,
15. júní, af því til-
efni munu hún og
eiginmaður
hennar, Snorri
Guðmundsson,
taka á móti ætt-
ingjum og vinum
kl. 18-20 í Oddfellowhúsinu, Von-
arstræti 10 í Reykjavík. Vonast þau
til að sjá sem flesta.
60 ára
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Ba6
5. b3 c6 6. Bg2 d5 7. 0-0 Rbd7 8. Dc2
Be7 9. a4 0-0 10. Ra3 Hc8 11. Hd1
He8 12. Bd2 Bxa3 13. Hxa3 c5 14.
Be3 dxc4 15. bxc4 cxd4 16. Hxd4 e5
17. Hh4 De7 18. Hc3 Rf8 19. Bh3 Hc7
20. Bf5 Rg6 21. Bxg6 hxg6 22. Rg5
Hec8 23. Dc1 Rd5 24. Df1 f6
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Kaupmanna-
höfn. Íslenski stórmeistarinn, Henrik
Danielsen (2.545), hafði hvítt gegn
Martin Matthiesen (2.242). 25. Hh8+!
og svartur gafst upp enda yrði hann
mát eftir 25. … Kxh8 26. Dh3+ Kg8
27. Dh7+ Kf8 28. Dh8#. Henrik fékk
6½ vinning á mótinu af níu mögu-
legum og lenti í 2.-5. sæti af 79 kepp-
endum.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.