Morgunblaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2011
100/100
"THE YEAR'S MOST
THRILLING, FEELING
MAINSTREAM MOVIE."
- TIME
"SUPER 8 IS A THRILLING
RETURN TO MOVIE MAGIC OF
OLD, FILLED WITH WONDER,
HORROR AND CHILLS."
- JIMMYO, JOBLO.COM
HHHH
"SUPER 8 ER AUÐVELDLEGA
BESTA SUMARMYND ÁRSINS EF
EKKI BESTA SUMARMYND SEM
HEFUR KOMIÐ Í ÁRARAÐIR."
- ENTERTAINMENT WEEKLY
HHHHH
"SUPER 8 ER NÁNAST
FULLKOMIN"
- QUICKFLIX
HHHH HHHH
"SPENNANDI OG DULARFULL
ALLA LEIÐ... EIN AF ÓVÆNTARI
MYNDUM ÁRSINS."
- KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ & HEYRT
BEINT Á
TOPPIN
N
Í USA
"SPENNANDI OG DULARFULL ALLA
LEIÐ... EIN AF ÓVÆNTARI MYNDUM
ÁRSINS."
- KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ & HEYRT
HHHH
SU
KU
KU
TH
PI
SUPER 8 kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
THE HANGOVER 2 kl. 5:30 - 8 - 8:25 12
X-MEN: FIRST CLASS kl. 5:10 - 8 - 10:45 14
KUNG FU PANDA 2 3D ísl. tal kl. 5:30 L
PIRATES OF THE CARIBBEAN 3D kl. 8 - 11 10
/ ÁLFABAKKA / EGILSHÖLL
SUPER 8 kl. 5:40 - 8 - 10:20 - 11:30 12 KUNG FU PANDA 2 3D M/ísl. kl. 6 L
SUPER 8 kl. 5:40 - 8 - 10:20 VIP KUNG FU PANDA 2 M/ísl. tali kl. 6 L
THE HANGOVER 2 kl. 5:50 - 8 - 9 - 10:20 12 KUNG FU PANDA 2 M/ensku tali kl. 10:20 M.texta L
PIRATES OF THE CARIBBEAN 4 kl. 6 -8 -10:50 10
SOMETHING BORROWED kl. 8 L
EIN BESTA ÆVINTÝRA/SPENNUMYND ÁRSINS
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Breski tónlistarmaðurinn Puzzle
Muteson gaf á dögunum út frum-
raun sína, En Garde. Puzzle var tek-
inn í fóstur af íslenska útgáfufyr-
irtækinu Bedroom Community sem
Valgeir Sigurðsson stofnaði árið
2006 ásamt Nico Muhly og Ben
Frost. Hljómplatan einkennist af
ljúfum og nokkuð þægilegum tónum
ásamt ögn drungalegu gítarspili.
– Er þetta þín fyrsta plata?
„Ég myndi segja að þetta væri
mín fyrsta plötuútgáfa. Þegar ég
byrjaði fyrst að nota myspace-
síðuna setti ég inn á hana slatta af
hálfkláruðum lögum til niðurhals en
það var meira svona forvitni í mér að
sjá hvað myndi gerast“.
– Hvernig myndir þú sjálfur lýsa
tónlistinni þinni?
„Það eru nokkur orð sem koma
upp í huga mér. Ég myndi kannski
lýsa henni svona: heiðarleg, vafa-
söm, alvarleg og myndræn.“
– Hvernig kom það til að þú
ákvaðst að gefa út plötuna þína hjá
íslensku útgáfufyrirtæki?
„Ég var lokkaður í það og mér
gefnir sniglar að snæða í boði Nico
Muhly. Þetta var svolítið eins og
ákafari útgáfan af Pretty Woman.“
– Er Bedroom Community á
vörum fólks erlendis?
„Það virðist vera einhver hiti.
Fyrir fyrirtæki sem hefur átt svo
stuttan líftíma er það klárlega að
hasla sér völl. Strákarnir eru stans-
laust að troða upp úti um allt, þeir
hljóta því að vera að gera eitthvað
rétt.“
– Hvernig var að vinna með hópn-
um í Bedroom Community?
„Það var mjög þægilegt, þetta er
jarðbundinn og hógvær vinahópur“.
– Hlustar þú á íslenska tónlist?
„Já, Björk var hugsanlega fyrsti
íslenski tónlistarmaðurinn sem ég
hlustaði á þegar fyrsta plata hennar
sprengdi allan skala tónlistar
snemma á tíunda áratugnum. Síðan
tók Sigur Rós við og Múm þegar sú
hljómsveit var að byrja og svo Bang
Gang, en þessi listi er alls ekki tæm-
andi.“
– Ætlarðu að koma til Íslands aft-
ur og halda tónleika í kjölfar útgáfu
plötunnar?
„Já, vonandi einhvern tíma í júlí.
Ég er mjög spenntur að koma hing-
að aftur og troða upp.“
Slappað af með snigla að snæðingi
Puzzle Muteson gefur út hjá Bedroom Community
Heiðarleg en alvarleg tónlist með vafasömu ívafi
Spakur Puzzle Muteson. Drengurinn kemur frá Isle of Wight.
Kung Fu Panda 2 setti kung fu-
spark í fyrsta sæti yfir bíóaðsókn
helgarinnar. Pandan var í öðru
sæti í síðustu viku en skoppaði í
það fyrsta yfir hvítasunnuhelgi.
Pandan Pó er nú að upplifa draum
sinn sem snillingur í kung fu-
bardagalistum. Ásamt fimm
fræknu hjálpast þau við að verja
og vernda Friðardalinn. Ekki líður
á löngu þar til nýjum óvini bregð-
ur fyrir og þurfa Pó og félagar þá
að leggja sig alla fram við að
koma þessum nýja óvini fyrir katt-
arnef.
Bridesmaids, nýjasta stelpugr-
ínið, tók við öðru sætinu en mynd-
in var frumsýnd í síðustu viku.
Myndin hefur fengið góð viðbrögð
og er hún sögð toppa allar stelpu-
myndir en hún fjallar um Annie
sem tekur við hlutverki heið-
ursbrúðarmeyjar eftir að vinkona
hennar trúlofar sig. Annie á erfitt
uppdráttar í hlutverki sínu, eink-
um vegna þess að líf hennar virð-
ist vera ein stór klessa. Hangover
2 dettur í þriðja sæti og fylgir X-
Men: First Class þar fast á eftir í
fjórða.
Bíóaðsókn helgarinnar
Shang-hæjaði á toppinn
Bíólistinn 10. – 12. júní 2011
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
Kung Fu Panda 2
Bridesmaids
Hangover: Part 2
X-Men First Class
Pirates of the Caribbean: on Stranger Tides
Fast Five
Water for Elephants
Paul
Animals United
Gmomeó og Júlía 3D (Gnomeo & Juliet)
2
Ný
1
3
4
6
7
5
12
8
2
1
3
2
4
6
5
5
5
5
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Góð Kung Fu Panda 2 er vinsælasta mynd landsins.