Morgunblaðið - 15.06.2011, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2011
ÞRÍVÍDD EINS OG
HÚN GERIST BEST
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
HHHH
- BOX OFFICE
MAGAZINE90/100
VARIETY
90/100
THE HOLLYWOOD
REPORTER
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
RÓMANTÍSK GAMANMYND EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR.
ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND SEM ÞÚ MUNT ELSKA!
„MYNDIN ER FRÁBÆR:
KYNÞOKKAFULL
OG FYNDIN“
- P.H. BOXOFFICE MAGAZINE
HHHH
- IN TOUCH
HHHH
HHHH
„Djarfasta og best skrifaða
X-Men-myndin til þessa.”
-T.V., Kvikmyndir.is/Séð & Heyrt
HHHH
„Þetta er sannarlega fyrsta
flokks ofurhetjumynd!“
-Þ.Þ., Fréttatíminn
JACK SPARROW ER MÆTTUR Í STÆRSTU MYND SUMARSINS!
HHHH
“SJÓNRÆN VEISLA”
“STÓR SKAMMTUR AF HASAR”
- K.H.K. - MORGUNBLAÐIÐ
HHHH
“SANNKALLAÐUR GIMSTEINN! HIN
FULLKOMNA SUMARMYND Í ALLA STAÐI.
JACK SPARROW ER SANNARLEGA
KVIKMYNDAFJÁRSJÓÐUR”
- P.H. BOXOFFICE MAGAZINE
HHHH
"KUNG FU PANDA 2
ER SKOTHELD
SKEMMTUN."
- Þ.Þ. FRÉTTATÍMINN
HHHH
“IT ACTUALLY IMPROVES
ON THE JOKES”
- TIME OUT NEW YORK
HHHH
“EIGINLEGA NAUÐSYNLEGT
FYRIR MIG AÐ SJÁ
MYNDINA AFTUR...”
- R.M. - BÍÓFILMAN.IS
“BANGKOK ADVENTURE IS
NOT WITHOUT ITS SHOCKING,
LAUGH-OUT-LOUD MOMENTS.”
- HOLLYWOOD REPORTER
80/100
MIÐASALA Á SAMBIO.IS
UPER 8 kl. 5:50 - 8 - 10:20 12
UNG FU PANDA 2 3D M/ísl. tali kl. 6 L
UNG FU PANDA 2 3D M/ensku tali kl. 8 Ótextuð L
HE HANGOVER 2 kl. 5:50 - 8 - 10:20 12
IRATES OF THE CARIBBEAN 4 3D kl. 10 10
KUNG FU PANDA 2 3D ísl. tal kl. 6 L
SUPER 8 kl. 8 - 10:20 12
PIRATES OF THE CARIBBEAN kl. 5:20 10
THE HANGOVER 2 kl. 8 - 10:20 12
SUPER 8 kl. 8 - 10:20 12
BRIDESMAIDS kl. 8 - 10:30 12
/ KRINGLUNNI / AKUREYRI / KEFLAVÍK
SUPER 8 kl. 8 - 10:20 12
THE HANGOVER 2 kl. 8 12
X-MEN:FIRSTCLASS kl. 10:20 14
/ SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í EGILSHÖLL OG SELFOSSI
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Sævar Magnússon er 51 árs skrif-
stofumaður sem vinnur hjá Kaupási
og gaf út sína fyrstu plötu í vikunni
og nefnist hún Laugardagur í apríl.
Þegar blaðamaður Morgunblaðsins
hringir í hann og spyr hvort hann sé
nokkuð að trufla svarar Sævar:
„Nei, nei, þú ert ekkert að trufla, ég
er bara í vinnunni,“ og svo hlær
hann vinalega.
Aðspurður segir hann erfitt fyrir
sig að lýsa eigin tónlist en segir hana
blöndu af þjóðlögum, rokki og poppi.
„Ég held það bara,“ bætir hann við.
En hvernig kom það til að skrif-
stofumaðurinn tók upp gítarinn og
fór að semja popp? „Þetta er búið að
vera draumur hjá mér síðan ég var
unglingur. Elsta lagið á disknum er
Laminn í Panama en ég samdi það
þegar ég var 25 ára. Helgi Frið-
jónsson vinur minn samdi textann.
Þetta er fylleríssaga en á þeim tíma
sem ég samdi það voru eingöngu til
lög um sjómennskuna sem upphöfðu
hana og gerðu sjómannslífið róm-
antískt. Hafið lokkar og hafið laðar
og fleiri þessháttar lög. Við vildum
semja annarskonar lag um sjó-
mennskuna sem sýnir hana í öðru
ljósi. En síðan þá hafa mörg góð lög
komið á þeim nótum. Njáll Ragn-
arsson vinnufélagi minn spilar á
banjó og svo fékk ég vini og kunn-
ingja í stúdíóið til að hafa smá-partí-
stemmingu. Eitt lag á disknum hef-
ur reyndar komið út áður, en það er
lagið Heygðu mitt hjarta en það gaf
ég út í svona tíu eintökum fyrir
mörgum árum og var það spilað þó-
nokkuð á þeim tíma. En núna vanda
ég útgáfuna betur og hún Berglind
Björk Jónasdóttir, söngkona úr
Borgardætrum, syngur þetta með
mér. Ég er mjög ánægður með út-
komuna og Linda er frábær söng-
kona.“
Aðspurður hvort hann sé aðdá-
andi Þórarins Eldjárns þarsem ein
þrjú lög eru eftir ljóðum hans svarar
hann því til að svo sé. „Þórarinn er
snillingur. Ég er mikill aðdáandi
hans og hef dundað mér við að
semja lög við texta hans frá því að
ég las hann fyrst. Það er magnað
með sum ljóðin hans að það er eins-
og lögin komi náttúrulega fram við
það eitt að lesa þau. Ég samdi lagið
við ljóðið Spegill, þegar ég var í ferð
í Aðalvík á Ströndum og varð eftir á
meðan ferðahópurinn fór í göngu og
samdi það. Mér finnst mjög gott að
vera einn og maður er hvergi eins
einn og þegar maður er á Ströndum.
Þarna er líka lag við ljóð eftir hann
um Hrossagauk.
Silla sílikona
Við Íslendingar erum alltaf svolít-
ið svag fyrir fuglum. Í því lagi sem
nefnist Gaukur á Stöng, spilar meðal
annars hrossagaukur undir á stél.
Þarna er líka lag um Sillu sem fékk
sílikon í fermingargjöf, en það
fjallar um umhyggjusama foreldra
hennar Sillu sílikonu. Portkonan er
lag sem gæti eins verið um Berlus-
coni. Það kom þannig til að ég var
einu sinni á gangi úti í Maastricht,
þegar einhverjir draugfullir menn
gengu út um einar dyr og inn um
aðrar. Ég spurði félaga minn hvað
þetta væri og þá svaraði hann því til
að þetta væru menn sem væru að
koma af hóruhúsi og væru að fara til
að skrifta. Það varð kveikjan að
þessu lagi mínu. Lagið Í mesta bróð-
erni er samið undir áhrifum frá tón-
listinni úr myndinni Paris/Texas, og
Drekar&Draugar sem er eftir Sam-
úel Þórarinsson fjallar um þegar
fólk lifir sig um of inní framhalds-
þætti. Lagið Frú Soffía gaf ég Soffíu
frænku konu minnar í brúðkaups-
gjöf árið 1998. Ég lofaði brúðhjón-
unum því að gera lagið í betri gæð-
um síðar meir ef ég hefði tækifæri til
þess. Nú hef ég efnt það loforð.
Þarna er líka lag sem ég samdi í vet-
ur við ljóð kórfélaga míns Jóns H.
Karlssonar. Ég er annars ánægður
með árangurinn á þessum diski sem
tókst vonum framar af því að ég
fékk svo gott fólk með mér í verk-
efnið, þau Kjartan Guðnason sem
spilar meðal annars með Hjaltalín
og Sinfóníuhljómsveit Íslands, Jökul
Jörgensen bassaleikara (sem spilar
með Fimm Jim and the Cartovitz
sleppa) Sigurgeir Sigmundsson gít-
arleikara og Samúel Inga Þór-
arinsson sem gegnir mikilvægu hlut-
verki á þessari plötu. Nokkrir
félagar mínir úr Karlakór Reykja-
víkur syngja líka með mér. Svo má
ekki gleyma Hilmari Sverrissyni
sem þenur nikkuna af stakri snilld.
En Nikulás Róbertsson tók hana
upp af stakri snilld í Protimes-
stúdíóinu.
Aðspurður hvaðan nafnið er upp-
runnið en diskurinn nefnist Laug-
ardagur í apríl segir hann að Laug-
ardagar hjá honum séu tónlistar-
dagar. „Sennilega frá því að ég var
lítill strákur að óskalög sjúklinga
voru á laugardögum. Enn þann dag í
dag spila ég oft lög frá þeim tíma,
það er lög með Arethu Franklin,
Stan Getz og Stevie Wonder. Það er
ákveðið prógramm hjá mér á laug-
ardögum með þessum listamönnum.
Síðan er apríl sá mánuður þarsem
framundan er allt bjart. Þessvegna
er apríl afbragðsmánuður,“ segir
Sævar.
Aðdáandi Þórarins Eldjárns gefur út plötu
Nettur „Nei, nei, þú ert ekkert að trufla, ég er bara í vinnunni,“ og svo hlær
hann vinalega. Sævar Magnússon tók erindi blaðamanns fagnandi.
Sævar Magn-
ússon gefur út
plötuna Laug-
ardagur í apríl
WIFT-samtökin á Íslandi (Women
in Film and Television) standa fyrir
bíósýningu með myndum fé-
lagskvenna á kvenréttindadaginn
19. júní næstkomandi í Bíó Paradís
klukkan 20.00. Yfirskrift sýning-
arinnar er Stiklur eftir stúlkur og
verða sýnda fjórar stuttmyndir og
ein heimildarmynd en myndirnar
eru nýlegar og eiga það sameig-
inlegt að vera hvergi í sýningu á
landinu sem stendur.
Hrein Úr Clean eftir Ísold Uggadóttur.
Stiklur eftir stúlkur í
Bíó Paradís
Ophidian I skrifaði nýverið undir
plötusamning við SFC Records (So-
ul Flesh Collector) en hún hefur að-
eins leikið tvisvar sinnum op-
inberlega. Sveitin hefur m.a. á að
skipa meðlimum úr tveimur helstu
dauðarokksböndum Íslands í dag,
Severed Crotch og Beneath
SFC Records hefur gefið út bönd
eins og Sickening Horror, Kata-
lepsy, Cephalic Impurity ofl. og
mun gefa út breiðskífu með Ophidi-
an I í byrjun árs 2012.
Harðir Ophidian I
Íslenskt dauðarokk á
rússnesku merki