Morgunblaðið - 16.06.2011, Side 1

Morgunblaðið - 16.06.2011, Side 1
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ekki liggur enn fyrir hvernig efnd verða stór fyrirheit um fjárfestingar o.fl. í tengslum við ný- gerða kjarasamninga. Mikil óvissa er uppi um framgang þeirra bæði í orku- og iðnaðarmálum og stórframkvæmdir í vegagerð. ASÍ og Samtök atvinnulífsins þurfa að ákveða í seinasta lagi næsta þriðjudag hvort allar forsendur eru fyrir hendi svo að nýju kjarasamningarnir gildi til næstu þriggja ára. Framkvæmdanefnd um framvindu samkomu- lagsins fundaði síðastliðinn mánudag. „Grundvöllurinn að þessu öllu er að við sjáum fjárfestingarnar fara í gang. Það er því miður ekkert í sjónmáli um að eitthvað sé að gerast í þeim mæli sem við gerðum okkur væntingar um,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri SA. Að mati SA hafa mál á Austurlandi og á norðausturhorni landsins farið í allt annan gír en reiknað hafi verið með. „Við höfðum ákveðnar væntingar um að það myndi nást saman á milli Landsvirkjunar og Al- coa um stækkun [álversins] á Reyðarfirði. En það er víst ekki að gerast,“ segir hann og vísar til viðræðna sem fram hafi farið á milli Alcoa og Landsvirkjunar. Starfshópur um fjármögnun stórframkvæmda í vegagerð á Suðvesturlandi átti að ljúka störfum fyrir lok maí. Hann hefur fundað einu sinni. Óvissa um fjárfestingar  Fyrirheit um fjárfestingar ekki uppfyllt  SA batt vonir við að Landsvirkjun og Alcoa næðu saman  Frestur til framlengingar kjarasamninga rennur út á þriðjudag Morgunblaðið/ÞÖK Reyðarfjörður Rætt hefur verið um stækkun ál- vers Alcoa-Fjarðaáls í Reyðarfirði. F I M M T U D A G U R 1 6. J Ú N Í 2 0 1 1  Stofnað 1913  139. tölublað  99. árgangur  –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG ALÞJÓÐLEG VIÐURKENNING MIKILVÆG HÆKKUN VAXTA Í LOFTINU BRÆÐUR BJUGGU TIL NÝJA HLJÓMINN HANS BUBBA VIÐSKIPTABLAÐ OG FINNUR.IS MENNIRNIR Í SKUGGANUM 27NÁTTÚRUSKÓLINN 10 Útlendingar flykkjast tugþúsundum saman í sérstakar lundaskoðunarferðir, m.a. út í Akurey á Faxaflóa. Þar hefur enginn lundi enn verpt, síðast þegar fréttist. Hrynji stofninn molnar undan ferðaþjónustunni. Gervi- lundarnir í versluninni Lundanum í Hafnarstræti eru ágætir fyrir sinn hatt en koma ekki í stað lifandi fugla. Morgunblaðið/Eggert Lundi er verðmætur ferðamannafugl Ástandið í kríuvörp- unum á Snæfells- nesi hefur aldrei verið eins slæmt. Krían þarf að fara af landi brott eftir tvo mánuði en það getur tekið um 50 daga frá því hún klekur eggi þar til ungar verða fleygir. Hún er því á síðasta snúningi. „Þetta er það versta sem ég hef séð á þeim árum sem ég hef ver- ið að mæla,“ segir Freydís Vigfús- dóttir, doktorsnemi í líffræði, sem hefur verið við rannsóknir frá 2008. Sömu sögu er að segja af lund- anum sunnanlands. Í Vest- mannaeyjum er lundavarp ekki byrjað en með réttu hefði það átt að vera langt komið. Verpa til að losna við eggið Í fyrradag settist mikið af fugli upp í Eyjum en þeir fóru aftur út á sjó í gær, að sögn Erps Snæs Han- sen líffræðings. Hann er afar svart- sýnn. Varpið, hefjist það á annað borð, hafi aldrei verið svona seint á ferðinni. „Þetta er orðið út í hött,“ segir hann. „Ef þeir verpa þá er það bara til þess að losna við eggið. Svo fara þeir bara.“ Það sé ekki útlit fyr- ir hrun í varpinu heldur muni fugl- inn beinlínis ekki leggja í að verpa. Í gær var greint frá því að lunda- veiðar yrðu bannaðar í Eyjum og er Erpur ánægður með það. Bannið sé þó fyrst og fremst táknrænt, veiði- menn hafi í raun verið hættir. »6 Aldrei séð það jafnsvart  Illa horfir fyrir varpi lunda og kríu  Búist er við mikilli umferð til Akureyrar um helgina vegna hinna árlegu Bíladaga. Um- ferðarstofa vill hvetja gesti Bíla- daga til að varpa ekki skugga á hátíðina með akstursmáta sem skapað getur hættu og óþægindi í umferðinni. „Í hita leiksins er hætt við að einstaka menn gleymi sér. Það hefur gerst að einstaklingar hafa komið óorði á annars ágæta keppni,“ segir Einar Magnús Magn- ússon, upplýsingafulltrúi Umferð- arstofu. Lögreglan á Akureyri sagði í gær að Bíladagar væru yf- irleitt annasöm helgi hjá lögreglu og er viðbúnaður hennar í sam- ræmi við það. kristel@mbl.is Búist við mikilli um- ferð um helgina vegna Bíladaga Frá Bíladögum á Akureyri.  Arnar Sigur- mundsson, for- maður Lands- samtaka lífeyrissjóða, segir að vilja- yfirlýsingin sem undirrituð var undir lok liðins árs um þátttöku sjóðanna í fjár- mögnun vaxta- niðurgreiðslna standi óbreytt. „Við reiknuðum alltaf með að reynt yrði að ná samkomulagi á milli lífeyrissjóðanna og fjár- málaráðuneytisins um með hvaða hætti lífeyrissjóðirnir myndu taka þátt í að fjármagna sinn hluta þess- ara aðgerða,“ segir Arnar og á von á að viðræður hefjist mjög fljótlega. Niðurstaða á að liggja fyrir ekki síðar en 1. september. »12 Fjármögnun ákveðin fyrir 1. september Arnar Sigur- mundsson M Í óvissu en klukkan tifar »12

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.