Morgunblaðið - 16.06.2011, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Kristel Finnbogadóttir
kristel@mbl.is
Fagráð þjóðkirkjunnar um meðferð kynferð-
isbrota sendi Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur bréf í
gær. Fyrir hönd fagráðsins bað Gunnar Rúnar
Matthíasson, formaður þess, Guðrúnu Ebbu
afsökunar á að hafa brugðist henni með því að
styðja hana ekki og leiðbeina henni ekki sem
skyldi á árunum 2008-2010. „Við horfðum of
þröngt á óljóst gildissvið reglna okkar. Við
festum okkur í því mati okkar að úr því að við
hefðum ekki farveg til inngripa í mál þitt þá
gætum við ekki sinnt því,“ er meðal þess sem
Gunnar skrifar í bréfinu en það var birt í gær á
vef þjóðkirkjunnar, kirkjan.is.
Ætla að breyta vinnulagi fagráðsins
Í bréfinu segir að fagráð þjóðkirkjunnar um
meðferð kynferðisbrota taki við réttmætum
ábendingum skýrslu rannsóknarnefndar
kirkjuþings sem fann að því að fagráð hefði
ekki átt frumkvæði að því að styðja Guðrúnu
Ebbu er hún var að koma fram með mál sitt og
óska áheyrnar hjá kirkjuþingi. Vegna þeirra
mistaka sem gerð voru varðandi mál Guðrúnar
Ebbu hafa nú verið gerðar breytingar á starfs-
háttum fagráðsins. „Við höfum nú breytt
vinnulagi okkar svo við heyrum nú öll mál sem
til okkar berast, göngum inn í glímu þjáningar
þeirrar sem okkur er trúað fyrir og reynum að
taka okkur stöðu þar við hlið þeirra sem brotið
hefur verið á. Það er ekki auðvelt en það er
verkefni okkar,“ segir í bréfinu. Ásamt því að
biðja Guðrúnu Ebbu afsökunar vill Gunnar
koma á framfæri þökkum til hennar og þeirra
kvenna, sem borið hafa hitann og þungann af
þeim málum sem rannsóknarnefnd kirkju-
þings hefur haft til meðferðar, fyrir staðfestu
þeirra og heiðarleika. Kemur fram að það sé að
miklu leyti Guðrúnu Ebbu að þakka að breyt-
ingar hafi orðið á starfi fagráðsins, þótt hún
hafi ekki fengið að njóta þeirra. Það sé ekki síst
vegna hennar máls að vinnulag fagráðsins var
endurskoðað og breytt.
Munu eiga í samstarfi í haust
Í lok bréfsins segir Gunnar að hann hlakki til
að eiga samstarf við Guðrúnu Ebbu í haust
varðandi komu Marie M. Fortune hingað til
lands. Er Guðrúnu jafnframt þakkað fyrir að
hafa haft frumkvæði að heimsókn hennar og
segir Gunnar að það verði spennandi að fá að
njóta hennar á ráðstefnum og fundum. Marie
M. Fortune er bandarískur prestur. Hún hefur
meðal annars skrifað bækur um ofbeldi innan
kirkjunnar, kynferðisbrot og heimilisofbeldi.
Fagráð breytir vinnulagi sínu
Fagráð þjóðkirkjunnar um meðferð kynferðisbrota biður Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur afsökunar á að
hafa brugðist henni Taka við réttmætum ábendingum skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings
Morgunblaðið/ Sigurgeir S.
Sannleiksskýrsla Karl Sigurbjörnsson bisk-
up flytur erindi á kirkjuþingi í vikunni.
Börnin á Kvistaborg í Fossvogi héldu upp á síðbúna sumarkomuna í gær.
Þau byrjuðu á að fylkja liði í skrúðgöngu um hverfið, skemmtu sér síðan
hið besta yfir æsilegum kúnstum Sirkuss Íslands og gæddu sér loks á pyls-
um og íspinnum. Dagarnir verða varla betri en þetta.
Morgunblaðið/Eggert
Horfðu á sirkusatriði á sumarhátíð
Janus Arn Guðmundsson
janus@mbl.is
Arion banki ætlar sér að endur-
útreikna gengistryggð lán sem falla
undir nýfallinn dóm Hæstaréttar í
svokölluðu Mótormax-máli. Þrátt
fyrir að ekki hafi fallið dómar í
Hæstarétti um lánasamninga Ar-
ions banka telur bankinn að nýlegir
dómar hafi fordæmisgildi um hluta
lánasafnanna. Stefnt er að því að
ljúka endurútreikningi lánasafna
bankans í október nk.
Óvissa ríkir um 200-300 lán
Enn ríkir þó óvissa um lögmæti
200-300 lána, þar sem orðalag lána-
samninganna og framkvæmd lán-
veitinga er með öðrum hætti. Iða
Brá Benediktsdóttir, forstöðumaður
samskiptasviðs Arions banka, segir
að bankinn muni beita sér fyrir því
að eyða óvissu varðandi lögmæti
þeirra lána og leggja sitt af mörkum
til að hraða málum í gegnum dóms-
kerfið.
Lánin eru um 2.000 talsins
Iða Brá segir lánin sem falla und-
ir dóminn um 2.000 talsins og eigin-
fjárhlutfall bankans 19,7%. „Ljóst
er að fjárhagsleg áhrif á bankann
eru umtalsverð, en eiginfjárhlutfall
hans verður engu að síður vel yfir
16% kröfu Fjármálaeftirlitsins,“
segir Iða Brá. Enn fremur segir hún
að ef vafi hefur leikið á gjaldfærni
og lífvænleika fyrirtækja sem tekið
hafi lán hjá Arion þá hafi bankinn
ekki óskað eftir gjaldþrotaskiptum.
„Í þeim tilvikum sem Arion banki
hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum
félaga hefur bankinn leitast við að
leggja mat á ógjaldfærni með hlið-
sjón af óvissu sem ríkt hefur um lög-
mæti erlendra lána allt frá því að sú
óvissa varð ljós í kjölfar fallinna
dóma,“ sagði Iða en bætti við: „Öll
þau lán sem dómarnir taka til verða
endurútreiknuð hvort sem um ræðir
þrotabú eða aðra.“
Íslandsbanki skoðar lánasöfnin
Guðný Helga Herbertsdóttir,
upplýsingafulltrúi Íslandsbanka,
segir að bankinn sé að yfirfara öll
lánasöfnin aftur, með tilliti til rök-
stuðnings í dómnum. „Við erum að
skoða þessi mál með tilliti til hvort
það séu einhver lán hjá Íslands-
banka sem falli undir dóminn. Við
erum að vonast til þess að fá nið-
urstöðu í málið í næstu viku,“ segir
Guðný og bætir við: „Við höfum ekki
áhyggjur af eiginfjárstöðunni, sama
hvernig fer.“
Enn ríkir óvissa um lögmæti
Arion banki telur að nýlegir dómar hafi fordæmisgildi um hluta lánasafnanna
Íslandsbanki á enn eftir að fá botn í hvort lánasafn hans falli undir dóminn
Endurskipulagning
» Í mjög mörgum tilfellum
hefur fjárhagsleg endur-
skipulagning komið betur út
fyrir lántakann en endurút-
reikningur. 950 fyrirtæki hafa
nýtt sér þann kost hjá Arion
banka.
„Ég er að slá,“ sagði Ólafur Egg-
ertsson, bóndi á Þorvaldseyri, þegar
blaðamaður sló á þráðinn til hans í
gærkvöldi. Að sögn Ólafs er komið
fínt gras á Þorvaldseyri sem er
óvenjulegt vegna kuldanna sem ver-
ið hafa en hann slapp þó að mestu
við frostnætur. „Það hefur verið
þokkaleg spretta síðustu daga og
það rigndi vel í fyrradag. Grasið tók
góðan kipp og það var ekki eftir
neinu að bíða með að byrja,“ segir
Ólafur. Fyrir ári leit sprettan ekki
jafnvel út hjá Ólafi vegna eldgossins
í Eyjafjallajökli. Svo virðist hins
vegar sem askan úr eldgosinu hafi
haft góð áhrif á jarðveginn og gras-
sprettuna. „Grasið vex vel í öskunni
og ekki annað að sjá en að það sé bú-
ið að skríða upp úr öskulaginu. Það
virðist ná næringu úr öskunni, sem
virkar eins og aukaáburður,“ segir
Ólafur. Hann segir eldfjallið enn
öskusvart þótt túnin séu græn. Ólaf-
ur telur að gott útlit sé fyrir gras-
sprettu undir Eyjafjöllum.
kristel@mbl.is
Fyrsti
slátturinn á
Þorvaldseyri
Ljósmynd/Sigríður Ólafsdóttir
Þorvaldseyri Iðgræn túnin voru
slegin af miklum móð í gær.
Haukur Ingibergsson, forstjóri þjóðskrár,
segir að úrsögnum úr þjóðkirkjunni hafi
fjölgað umtalsvert síðustu tvo daga. Á
þriðjudag fór fram kirkjuþing þar sem
fjallað var um niðurstöðu rannsóknar-
nefndar kirkjuþings á kynferðisbrotum
Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi biskups. Að
sögn Hauks verða væntanlega birtar nýjar
tölur um fjölda þeirra sem hafa sagt sig úr
þjóðkirkjunni í byrjun júlí nk.
Hinn 1. janúar sl. voru sóknarbörn í
þjóðkirkjunni, 18 ára og eldri, 183.697 eða
77,2% mannfjöldans. Fyrir ári var hlut-
fallið tæp 79%. guna@mbl.is
Úrsögnum hefur
fjölgað mikið
ÞJÓÐSKRÁ UM ÞJÓÐKIRKJUNA
Björgunarsveitir á höfuðborgar-
svæðinu voru kallaðar út í gær-
kvöldi til að sækja slasaða konu á
Svínaskarðsleið, milli Móskarðs-
hnjúka og Skálafells.
Konan var í reiðtúr ásamt ann-
arri konu þegar hesturinn hrasaði
og féll ofan á hana svo hún meiddist
á hendi og ökkla. Um 30 björg-
unarsveitarmenn fóru á vettvang
og þurfti að bera konuna allt að
eins kílómetra leið, þangað sem
björgunarsveitarbíll beið á veg-
slóða. Þaðan var hún flutt niður á
Meðalfellsveg og til aðhlynningar á
Landspítalanum. bjb@mbl.is
Hestur féll á konu
á Svínaskarðsleið