Morgunblaðið - 16.06.2011, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2011
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
„Þetta lítur vægast sagt mjög illa út.
Þetta er það
versta sem ég hef
séð á þeim árum
sem ég hef verið
að mæla,“ segir
Freydís Vigfús-
dóttir, doktors-
nemi í líffræði,
sem hefur síðustu
daga kannað
kríuvörp á
Reykjanesi, Snæ-
fellsnesi og á
Melrakkasléttu.
Freydís hefur frá árinu 2008
rannsakað kríuvörp á Snæfellsnesi.
Í sumar mun hún einnig rannsaka
kríuvörp á Melrakkasléttu en talið
hefur verið að þar hafi kríunni vegn-
að betur. Það hefur þó ekki verið
staðfest með rannsóknum en Frey-
dís segir að til að leggja mat á af-
rakstur varpa verði að fylgjast með
ungunum allan varptímann. „Það
getur verið mikið líf á ákveðnum
tímapunkti og ungar jafnvel orðið
fleygir en síðan drepist,“ segir hún.
Fyrstu kríueggin fundust við
Núpskötlu á Melrakkasléttu 5. júní
en Freydís hefur það eftir bóndan-
um á Núpskötlu að varpið þar hafi
byrjað seint og sé þar að auki gisið.
Sitja bara og gera ekki neitt
„Við sáum eina kríu með síli á
Melrakkasléttu. Þarna ættu að vera
þúsundir fugla í mökunardansi. Við
skráðum niður örfáar makanir.
Fuglarnir eru ekki einu sinni í hreið-
urgerð. Þeir sem eru orpnir fyrir
norðan, ja, maður veit ekki alveg
hvaða bjartsýnisfuglar það eru.“
Kríuvarp var hvorki hafið á Reykja-
nesi þegar hún var þar í fyrradag né
á Snæfellsnesi þegar hún var þar sl.
föstudag. Miðað við sl. þrjú ár hefði
það átt að hefjast fyrir um einni
viku. Freydís kveðst aldrei hafa séð
það jafn svart og heimamenn hafi
svipaða sögu að segja: þetta sé með-
al þess versta sem þeir hafi séð.
Kríur þurfa að leggja af stað frá
landinu upp úr miðjum ágúst, þ.e.
eftir tvo mánuði. Þær eru á síðasta
snúningi með að hefja varp. Eftir að
þær klekja eggjum liggja þær á
þeim í 20-25 daga og við eðlilegar
aðstæður líða 20-25 dagar frá því
ungarnir klekjast út þar til þeir
verða fleygir. „Ef allt í einu kæmi
bullandi gangur í lífríkið og fæða
væri næg fyrir ungana þegar þeir
klekjast, ættu þær að ná þessu. En
það er ekkert sem bendir til að það
gerist.“
Kríur eru háðar því að fæða fyrir
ungana, þ.e. sandsíli, sé í miklu
magni við vörpin enda þurfa þær að
bera mörg síli í hvern unga á hverj-
um degi. Freydís segir að miðað við
atferli fuglana virðist sem ekki sé
nægileg fæða við vörpin. Afar lítið
sé um mökunaratferli, hvað þá
hreiðurgerð. „Þær sitja bara í
vörpunum og gera ekki
neitt,“ segir hún.
Á ferð sinni í kríuvörpin
hafa Freydís og samstarfs-
menn hennar einnig komið
við í fuglabjörgum. Í
Svörtuloftum á Snæfells-
nesi var mjög lítið af svart-
fugli. Ritan var sest upp en lítið
sást af eggjum. „Það var dauflegt
yfir öllum fuglabjörgum,“ segir
Freydís.
Versta ástand í vörpunum
Freydís Vigfúsdóttir segir kríuna vera á síðasta snúningi með að hefja varp
„Þetta er það versta sem ég hef séð á þeim árum sem ég hef verið að mæla“
Hafnarfjarð-
arbær ætlar að
leita til lífeyr-
issjóðanna eftir
láni svo hægt sé
að greiða upp
4,2 milljarða
króna sem
gjaldfallnir eru
auk 5,1 millj-
arðs sem til greiðslu er 30. janúar
nk. Þetta kemur fram í Fjarð-
arpóstinum sem kemur út í dag.
Einnig kemur fram að bærinn sé
með þrjú lán hjá Depfa Bank sem er
í slitameðferð þýskra yfirvalda og
hefur fengið skýr svör um það að
endurfjármögnun þeirra sé ekki
möguleg. Í Fjarðarpóstinum segir
að Hafnarfjarðarbær leiti leiða til
að taka 13 milljarða króna lán hér á
landi til að greiða lánin hjá Depfa,
en auk fyrrgreindra upphæða er
annað tveggja milljarða króna lán á
gjalddaga árið 2018. Saga fjárfest-
ingabanki er ráðgjafi bæjarins.
Hafnfirðingar leita
til lífeyrissjóðanna
Bónus hefur í
samráði við Heil-
brigðiseftirlit
Reykjavíkur
ákveðið að inn-
kalla Bónus-
Bragðarefsís.
Sælgæti í ísnum
inniheldur soja-
lesitín sem er
ekki getið í innihaldslýsingu. Soja-
afurðir eru á lista yfir ofnæmis- og
óþolsvalda og ber þar af leiðandi að
tilgreina það í innihaldslýsingu.
Efnin eru skaðlaus þeim sem ekki
eru viðkvæmir fyrir sojaafurðum.
Bónus innkallar
bragðarefinn
Opið verður í
sumar hjá Fjöl-
skylduhjálp Ís-
lands. Bág-
staddir geta sem
fyrr leitað þang-
að til að fá mat-
araðstoð. Opið
verður á mið-
vikudögum en þó
ekki fyrsta miðvikudag í mánuði.
Ásgerður Jóna Flosadóttir, stjórn-
arformaður Fjölskylduhjálpar, seg-
ir greinilegt að þörfin eftir aðstoð
sé ekkert að minnka og því nauð-
synlegt að veita aðstoð yfir sum-
armánuðina. Síðustu tíu mánuði
hafa að hennar sögn um 9.000
manns notið beinnar og óbeinnar
aðstoðar Fjölskylduhjálparinnar.
sunna@mbl.is
Opið í sumar hjá
Fjölskylduhjálpinni
Erpur Snær Hansen líffræðingur
og þrír sjálfboðaliðar frá Bretlandi
eru nú í miðjum „lundahring“, þ.e.
rannsóknarferð um lundavörp víða
um land. Í Akurey á Faxaflóa kom í
ljós að ekki hafði verið verpt í einni
einustu lundaholu sem skoðuð var.
Varpið, sem átti að vera löngu haf-
ið, var ekki einu sinni á byrjunar-
reit. Hópurinn gat lítið rannsakað
á Vesturlandi og Vestfjörðum
vegna veðurs og færði sig yfir til
Grímseyjar. Þangað komu þau í
gær en höfðu haft lítil tækifæri til
rannsókna. „Þetta virðist þó allt
vera í springandi blóma hér,“
sagði Erpur. Lundanum hafi
vegnað betur fyrir norðan,
þar sem hann komist í
loðnu, en fyrir sunnan
þar sem hann reiðir sig
á sandsíli.
Lundinn lítur vel út í Grímsey
ENGIN EGG Í LUNDAHOLUM Í AKUREY Á FAXAFLÓA
Kristel Finnbogadóttir
kristel@mbl.is
„Þetta hefur gengið vel en við erum
öll orðin svolítið þreytt og líkaminn
er farinn að kvarta. Hvíldin verður
kærkomin eftir morgundaginn,“
segir Signý Gunnarsdóttir, einn af
hlaupurum átaksins Meðan fæt-
urnir bera mig. Síðustu tvær vikur
hafa tvenn hjón hlaupið hringinn í
kringum Ísland til styrktar krabba-
meinssjúkum börnum og fjöl-
skyldum þeirra. Í dag hlaupa þau
síðasta hluta leiðarinnar, frá Botni í
Hvalfirði til Reykjavíkur þar sem á
móti þeim verður tekið við Vals-
heimilið. „Við vonumst til að sjá
sem flestar af hetjunum okkar,“
segir Signý um móttökurnar í bæn-
um en búist er við fjölda fólks á
Hlíðarenda og hefur sérstakt kort
verið útbúið fyrir þá sem vilja
hlaupa með hópnum í bæinn.
Aðspurð um viðbrögð við átakinu
segir Signý þau hafa verið jákvæð.
„Alls staðar sem við komum er vel
tekið á móti okkur og mikil velvild í
öllum bæjarfélögum,“ segir hún.
Að sögn Signýjar var ferðin í kring-
um landið öðruvísi en hlaupararnir
bjuggust við. „Við héldum að þetta
yrði erfitt fyrir austan en þrátt fyr-
ir mótvind og óveður þar vorum við
í góðum gír. Síðustu dagar hafa
hins vegar verið erfiðir vegna
þreytu þótt stutt sé eftir. Við hökt-
um þetta áfram,“ segir Signý en
meiðsli eru farin að gera vart við
sig hjá hópnum eftir mikið álag.
Heildarfjárhæð söfnunarátaksins
er nú að nálgast níu milljónir króna
en ágóði af henni rennur beint til
Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna. Upplýsingar um hvernig
hægt er að heita á verkefnið er að
finna á vefsíðunni mfbm.is. „Söfn-
unin er löngu farin fram úr okkar
björtustu vonum,“ segir Signý um
átakið.
Lokasprettur hlaupsins Esjurætur
kl. 12.15
Ca. 24 km
Mosfellsbær
Koma kl. 12.45
Brottför kl. 13.00
Ca. 18 km
Plan við
skógrækt
kl. 13.20
Ca. 15 km
Grafarvogskirkja
kl. 13.50
Ca. 10 km
Valsheimilið
kl. 15.00
Hringnum lokað
Nauthólsvík
kl.14.45
Ca. 1,6 km
Börn sérstak-
lega velkomin
Fossvogur Elliðadalur
Víkingsheimilið
kl. 14.20
Ca. 5 km
Elliðaár-
vogur
Viðey
Grafarvogur
Leiruvogur
Fossvogsdalur
H
ri
ng
ve
gu
r (
1)
Hlaupa síðasta sprettinn í dag
Tekið verður á móti hlaupurum átaksins Meðan fæturnir bera mig hjá Valsheimilinu á Hlíðarenda
Hlauparar hlakka til kærkominnar hvíldar Heildarsöfnun átaksins nálgast níu milljónir króna
Ljósmynd/Guðmundur Guðnason
Átak Hlauparar átaksins leggja af
stað frá Hellu fyrr í mánuðinum.
Morgunblaðið/Ómar
Brestur „Þær sitja bara í vörpunum og gera ekki neitt,“ segir Freydís Vigfúsdóttir um kríuna. Krían þarf að verpa fljótlega, ætli hún yfirleitt að reyna að koma upp ungum.
Freydís
Vigfúsdóttir