Morgunblaðið - 16.06.2011, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2011
Jón Magnússon, fv. alþing-ismaður, skrifar um að í bí-
gerð sé átak gegn „svartri at-
vinnustarfsemi“ og „… fjöldi
nýtísku lögreglumanna eigi að
mæta á vinnustaði og grípa til við-
eigandi lögreglu-
aðgerða.
Óneitanlega erþað nokkuð
sérstakt í lýðfrjálsu
landi að við skulum
vera komin með
stærstu rannsókn-
arlögreglu sem við höfum nokkru
sinni haft, eingöngu til að rann-
saka efnahagsbrot.
Á sama tíma tilkynnir innanrík-isráðherra að auka verði
heimildir lögreglu til rannsókna
jafnvel þó að einstaklingar liggi
ekki undir grun.
Starfsfólki eftirlitsstofnana
fjölgar gríðarlega jafnvel þó að
umsvifin í þjóðfélaginu hafi snar-
minnkað og minna sé til að hafa
eftirlit með og minna tilefni.
Í Seðlabankanum sitja menn viðað yfirfara allar erlendar kred-
itkortafærslur fólks.
Það er sérstakt að Samtök at-vinnulífsins og ASÍ skuli nú
lýsa yfir mikilli gleði með enn víð-
tækari lögregluaðgerðir og telja
það vera virkustu leiðina til að
vinna gegn svartri atvinnu-
starfsemi. Hafa menn gleymt hug-
myndafræði frelsisins og frjálsrar
markaðsstarfsemi?
Gæti verið að minni skattheimtaog betra rekstrarumhverfi
smáfyrirtækja mundi skila meiri
árangri í baráttu gegn „svartri at-
vinnustarfsemi“ en lögreglu-
aðgerðir?
Hvað kemur næst? Lögregla líf-
eyrissjóðanna?“
Jón Magnússon,
fv. alþingismaður
Ný löggæslusvið
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 15.6., kl. 18.00
Reykjavík 13 skýjað
Bolungarvík 5 skýjað
Akureyri 6 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 8 alskýjað
Vestmannaeyjar 7 alskýjað
Nuuk 7 léttskýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 17 skýjað
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 17 léttskýjað
Helsinki 13 skýjað
Lúxemborg 22 skýjað
Brussel 22 skýjað
Dublin 17 skýjað
Glasgow 17 skýjað
London 17 skýjað
París 22 léttskýjað
Amsterdam 20 léttskýjað
Hamborg 22 skýjað
Berlín 22 heiðskírt
Vín 25 léttskýjað
Moskva 20 heiðskírt
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 32 léttskýjað
Barcelona 25 heiðskírt
Mallorca 26 heiðskírt
Róm 26 léttskýjað
Aþena 25 skýjað
Winnipeg 17 skúrir
Montreal 22 heiðskírt
New York 23 heiðskírt
Chicago 17 alskýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
16. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:57 24:01
ÍSAFJÖRÐUR 1:34 25:34
SIGLUFJÖRÐUR 1:17 25:17
DJÚPIVOGUR 2:12 23:45
Sti l l ing hf. | Sími 520 8000
www.sti l l ing.is | sti l l ing@sti l l ing.is
Sjá nánar á: www.stilling.is/ferdabox
NÚMER HEITI LÍTRAR LITIR VERÐ ÁÐUR TILBOÐ ÞÚ SPARAR
631100 Pacific 100 370 grátt 59.900 49.900 10.000
631200 Pacific 200 460 grátt/svart 79.900 65.900 14.000
631500 Pacific 500 330 grátt/svart 69.900 55.900 14.000
631600 Pacific 600 340 grátt/svart 89.900 79.900 10.000
631700 Pacific 700 460 grátt/svart 97.900 85.900 12.000
Knútur Jeppesen arkitekt lést í
gær á Landakotsspítala í Reykja-
vík. Knútur fæddist í Vejen í Dan-
mörku 10. desember árið 1930.
Hann lauk námi í arkitektúr við
Kunstakademiets Arkitektskole í
Kaupmannahöfn árið 1964. Með
námi og fyrsta árið eftir að hann
lauk því starfaði hann á teiknistof-
um í Kaupmannahöfn og kenndi
jafnframt við Kunstakademiets
Arkitektskole, en hann vann nánast
alla sína starfsævi á Íslandi.
Árið 1966 kom hann til liðs við
teiknistofuna Höfða, sem þá var
undir forystu Stefáns Jónssonar og
Reynis Vilhjálmssonar, og gekk inn
í rekstur hennar ásamt Guðrúnu
Jónsdóttur árið eftir. Rak hann
Höfða ásamt Guðrúnu og Stefáni til
ársloka 1979. Árið 1980 hóf hann
rekstur eigin teiknistofu í Reykja-
vík.
Meðal helstu verka Knúts eru
endurbygging Bernhöftstorfu;
Lækjarbrekka og veitingahúsið
Torfan, ásamt útitaflinu við Lækj-
argötu; St. Jósefskirkja í Hafnar-
firði og viðbygging við Landakots-
skóla. Í verkum Knúts má glöggt
sjá næma tilfinningu hans fyrir
þeim arkitektúr, sem fyrir er.
Knútur vann einnig til fjölda
verðlauna fyrir tillögur sínar í sam-
keppni af ýmsum toga, einkum í
skipulagsmálum.
Knútur lætur eftir sig eiginkonu,
Ragnhildi Blöndal, og sjö uppkomin
börn.
Andlát
Knútur
Jeppesen
Í nýlegri könnun Brautarinnar,
bindindisfélags ökumanna, á stöðu
öryggisbúnaðar á nýjum reiðhjólum
í verslunum sést að langflest reiðhjól
sem til sölu eru í verslunum á höf-
uðborgarsvæðinu uppfylla ekki
reglugerð um gerð og búnað reið-
hjóla eða nærri 98%.
Það sem oftast vantar er bjalla og
lás. Ef lás er undanskilinn í könn-
uninni hækkar talan upp í 24% reið-
hjóla sem eru með annan löglegan
búnað, segir í tilkynningu frá Braut-
inni. Engir opinberir aðilar, eins og
lögregla, Umferðarstofa eða Neyt-
endastofa, eru sagðir hafa það hlut-
verk að kanna hvort verslanir selji
lögleg reiðhjól. Það sé áhyggjuefni
að jafn sjálfsagðan búnað og
bremsur skuli vanta á tæp 9% nýrra
reiðhjóla. Reglugerðin segir til um
að þær skuli vera bæði á aftur- og
framhjóli. Brautin segir að það sem
skekki þessa mynd um lögleg reið-
hjól sé mikið til keppnisreiðhjól og
hjól í jaðarsporti. Brýn þörf sé á að
endurskoða reglugerðir um gerð og
búnað reiðhjóla. bjb@mbl.is
98% nýrra hjóla ólögleg?
Reiðhjól Er búnaður þeirra lögleg-
ur? Nei, samkvæmt könnuninni.