Morgunblaðið - 16.06.2011, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2011
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
N
áttúruskóla Reykjavík-
ur var á þriðjudaginn
afhentur Grænfáninn
í Grasagarðinum við
hátíðlega athöfn. Fán-
inn er alþjóðlegt umhverfismerki
sem Landvernd hefur umsjón með.
Helena Óladóttir, verkefn-
isstjóri Náttúruskólans, segir Græn-
fánann hafa miklu þýðingu fyrir skól-
ann. „Náttúruskólanum er ætlað að
vera fyrirmynd annarra því við erum
að leiðbeina kennurum á leik- og
grunnskólastigi um umhverfismál og
útikennslu. Svo það skiptir gríð-
arlegu miklu máli að vera trú fyr-
irmynd. Að hafa farið í gegnum sömu
skref og hinir skólarnir þurfa að gera
til að fá Grænfánann eykur svo mikið
trúnað á hvað við erum að segja,“
segir Helena.
Ríflega 38 þúsund skólar í 50
löndum taka þátt í Grænfánaverkefn-
inu með 10 milljónir nemenda. Tæp-
lega 200 íslenskir skólar á öllum
skólastigum vinna að því að fá Græn-
fánann eða eru þegar komnir með
hann.
Dýpkar skilning á umhverfinu
Náttúruskólinn var stofnaður
árið 2005 og er Helena eini starfs-
maður hans. Skólinn er samstarfs-
verkefni umhverfis- og samgöngu-
sviðs Reykjavíkur, menntasviðs
Reykjavíkur, leikskólasviðs Reykja-
víkur, Skógræktarfélags Reykjavík-
ur og Landverndar. „Markmið skól-
ans er að styðja við kennara á grunn-
og leikskólastigi í því að innleiða úti-
kennslu og umhverfismennt. Svo það
sem ég geri er að mennta kennara í
Innleiða útikennslu
og umhverfismennt
Náttúruskóli Reykjavíkur hefur það að markmiði að efla útikennslu í grunn- og
leikskólum og að skapa vettvang fyrir heilsteypt umhverfisstarf í skólum í anda
umhverfisstefnu borgarinnar. Skólinn fékk alþjóðlega umhverfismerkið Grænfán-
ann afhentan í vikunni og hefur það mikla þýðingu fyrir þennan litla skóla.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Grænfáninn Helena Ólafsdóttir verkefnisstjóri Náttúruskólans tekur við
fánanum sem Guðmundur H. Guðmundsson formaður Landverndar afhenti.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Sumarsöngur Börn úr leikskólanum Hálsakoti sungu lag við athöfnina.
Mataruppskriftir á veraldarvefnum
eru óteljandi og það er gaman að
sækja sér þangað eitthvað nýtt til að
prófa. Erla Kristín Birgisdóttir heldur
úti góðum uppskriftavef á slóðinni
uppskriftir.seia.is en þar er að finna
allar hennar 1.630 uppskriftir. Hún
segist hafa samið fæstar þeirra sjálf,
heldur hefur hún safnað þeim. Erla
Kristín vill deila uppskriftum og leyfa
öðrum að njóta og hún hvetur fólk til
að láta vita af áhugaverðum í safnið.
Síðan er mjög aðgengileg og einföld,
uppskriftirnar eru flokkaðar eftir því
hvort þær eru kjötréttir, fiskréttir,
grænmetisréttir, kjúklingaréttir, súp-
ur, sósur, salat, forréttir, eftirréttir,
kökur, brauð, pasta, pitsur já og líka
óflokkað og drykkir. Allir ættu að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi,
hvort sem þeir leita að freistandi og
framandi réttum eða jarðbundnum
og hversdagslegum máltíðum.
Vefsíðan www.uppskriftir.seia.is
Morgunblaðið/Sverrir
Sumarlegt Girnileg salöt er gaman að reiða fram á sólríkum dögum.
Matur er mannsins megin
Á morgun, 17. júní, verður boðið til
málþings á Þórbergssetrinu í Suður-
sveit. Málþingið hefst kl. 13 en að því
loknu verður farið inn í Papbýli og
skoðaðar fornar rústir. Málþingið er
haldið með erlendum fræðimönnum
og sæfarendum, sem siglt hafa um
papaslóðir á N-Atlantshafi á írsku
skútunni ,,Ár Seachrán“, Ferðalangi.
Írski sagnfræðingurinn og sægarpur-
inn Paddy Barrý stýrir skútunni og
mun lýsa för Ferðalangs. Dr. Jona-
than Wooding mun fjalla um Papa.
Írskur tónlistarmaður er með í för og
mun leika keltneska tónlist.
Endilega …
… fræðist um
Papana
Ljósmynd/Ólafur K. Magnússon
Kúnstugur Þórbergur Þórðarson.
Nánar á: thorbergur.is
Flestir hafa gaman af því að hlusta á
aðra segja sögur og svo eru þeir sem
hafa unun af því að segja sögur.
Sagnaþulir eru skemmtikraftar,
kennarar, leiðsögumenn, græðarar,
foreldrar, ömmur og afar og allur al-
menningur. Í næsta mánuði verður
Þing norrænna sagnaþula haldið á
Núpi í Dýrafirði dagana 24.-30. júlí.
Þar verður m.a. hægt að læra að
segja sögur. Í boði eru fimm nám-
skeið með leiðbeinendum frá Noregi,
Svíþjóð, Danmörku, Íslandi og Eng-
landi. Námskeiðin standa í fjóra daga
og farið verður í skemmtiferð á sögu-
slóðir Gísla Súrssonar. Leiðbeinendur
eru Vigga Bro, leikkona og sagna-
þula, Kristin Lyhmann, sagnaþula og
leikhúsfræðingur, Freya Hvaste, goð-
sagnafræðingur og sagnaþula, Einar
Kárason rithöfundur, Ulf Ärnström,
kennari, sálfræðingur og sagnaþulur,
og Sue Hollingsworth, kennari við
International School of Storytelling.
Kennt er á dönsku, norsku, sænsku,
íslensku og ensku. Námskeiðin eru
öllum opin en umsókn og greiðsla (í
gegnum heimasíðu) þarf að hafa bor-
ist fyrir 24. júní.
Þing norrænna sagnaþula
Hin forna list að segja sögu
Leikrænir tilburðir Jamie Crawford segir sögu. Hann verður þó ekki á þinginu.
Nánari upplýsingar:
sagnating.123.is og á netfanginu:
sagnating2011@gmail.com
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Fjarðarkaup
Gildir 18.-16. júní verð nú áður mælie. verð
Svínalundir úr kjötborði .............. 1.498 2.098 1.498 kr. kg
Svínahnakki úrb. úr kjötborði ...... 998 1.398 998 kr. kg
Lúxus svínakótelettur, orange...... 1.498 1.898 1.498 kr. kg
KF einiberjakryddað lambalæri ... 1.398 1.698 1.398 kr. kg
Frosnir hamborgarar, 10x80 g..... 1.084 1.355 108 kr. stk.
Fk grill lambalærissneiðar........... 1.745 2.245 1.745 kr. kg
KF Herragarðs svínakótelettur ..... 1298 1800 1298 kr. kg
Hversdagsís, 1 l......................... 298 409 298 kr. kg
Coke, 6x2 l................................ 798 998 67 kr. kg
Hagkaup
Gildir 16.-19. júní verð nú áður mælie. verð
Holta kjúklingabringur ................ 1.959 2.798 1.959 kr. kg
BBQ kjúklingavængir, 800 g ....... 449 699 449 kr. pk.
Buffaló kjúklingavængir, 800 g ... 449 699 449 kr. pk.
Bláberjalegin helgarsteik frp. ...... 2.039 2.718 2.039 kr. kg
Íslandsgrís, kryddl. vöðvi ............ 1.124 1.498 1.124 kr. kg
Íslandsnaut, kryddl. vöðvi ........... 1.949 2.598 1.949 kr. kg
Svali app./eplaklakar, 10 stk...... 359 459 359 kr. pk.
CT deep pan Miami Meaty pitsa .. 554 739 554 kr. stk.
Baguette, 400 g ........................ 199 339 199 kr. stk.
Krónan
Gildir 16.-19. júní verð nú áður mælie. verð
Ungnauta Ribeye erlent .............. 2.799 3.998 2.799 kr. kg
Lambalærissneiðar, New York ..... 1.399 1.998 1.399 kr. kg
Lambasirloinsn., krydd./ókrydd. . 1.198 1.498 1.198 kr. kg
Lambainnralæri, krydd./ókrydd... 2.698 3.398 2.698 kr. kg
Grísakótelettur........................... 899 1.498 899 kr. kg
Grísakótelettur, New York............ 959 1.598 959 kr. kg
Grísahnakki í ítal. marineringu .... 1.169 1.798 1.169 kr. kg
Grísahnakki á spjóti, New York .... 1.198 1.498 1.198 kr. kg
Krónu pylsur .............................. 398 498 398 kr. pk.
Nettó
Gildir 16.-19. júní verð nú áður mælie. verð
Ferskt lambalæri, þurrkryddað .... 1.199 1.599 1.199 kr. kg
Ferskir nautahamb., 4x80 g........ 395 598 395 kr. pk.
Ferskt lamba ribeye hvítl.& rósm. 3.198 3.998 3.198 kr. kg
Ferskar lambalærissneiðar ......... 1.698 1.998 1.698 kr. kg
Ferskir lambagrillleggir ............... 979 1.398 979 kr. kg
Kjötsel, grillpylsur, 10 stk., 480 g 295 369 295 kr. pk.
Kjötsel, grillsirloinsneiðar, krydd. . 1.499 1.698 1.499 kr. kg
Kjötsel, grilllambalæri, hvítlauks . 1.199 1.598 1.199 kr. kg
Jarðarber, 250 g ........................ 179 358 179 kr. pk.
Nóatún
Gildir 16.-19. júní verð nú áður mælie. verð
Grísakótelettur........................... 1.049 1.498 1.049 kr. kg
Grísakótelettur, mangó, chili ....... 1.049 1.498 1.049 kr. kg
Grísagrillpinni m. kúrbít/m. maís. 1.598 1.898 1.598 kr. kg
Nauta mínútugrillsteik ................ 3.598 3.998 3.598 kr. kg
Langa m. estragon & fennel........ 1.399 1.698 1.399 kr. kg
Ungnauta ribeye ........................ 3.999 4.498 3.999 kr. kg
Ostakaka m. hindb./bláberjum... 898 960 898 kr. stk.
Holta indverskar lundir á spjóti.... 2.598 2.895 2.598 kr. kg
Holta ítalskar lundir á spjóti ........ 2.598 2.895 2.598 kr. kg
Samkaup/Úrval
Gildir 16.-19. júní verð nú áður mælie. verð
Kjötborð/pakkað svínaskankar ... 198 439 198 kr. kg
Kjötborð/pakkað svínalundir ...... 1.429 2.198 1.429 kr. kg
Kjötborð/pakkað svínahakk........ 569 749 569 kr. kg
Kjötborð/pakkað svínalæri úrb.... 999 1.598 999 kr. kg
Grísakótelettur rauðvínskrydd...... 1.198 1.498 1.198 kr. kg
Grísahnakki rauðvínskryddaður ... 1.499 1.698 1.499 kr. kg
Bökunarkartöflur kg ................... 99 198 99 kr. kg
Coop chilihnetur, 175 g.............. 199 289 199 kr. stk.
Coop hunangsrist. hnetur, 200 g. 269 359 269 kr. stk.
Þín verslun
Gildir 16.-19. júní verð nú áður mælie. verð
Lambalæri úr kjötborði ............... 1.298 1.798 1.298 kr. kg
Lambalærissneiðar úr kjötborði... 1.898 2.249 1.898 kr. kg
Svínahnakki úrb. úr kjötborði ...... 1.198 1.854 1.198 kr. kg
Egils kristall plús 1 ltr. ................ 199 269 199 kr. ltr
Svali appelsínu, 3 pk. ................ 179 210 179 kr. pk.
Toffypops, 120 g........................ 149 185 1.241 kr. kg
Ryvita hrökkbrauð Sesame, 250
g ..............................................
179 210 716 kr. kg
Billy’s Pan Pizza Hawaii, 170 g.... 298 398 1.753 kr. kg
Hatting Veggen speltbrauð, 7 stk. 598 815 85 kr. stk.
Pfanner ACE blandaður safi, 1 l... 289 339 289 kr. ltr
Helgartilboðin