Morgunblaðið - 16.06.2011, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2011
Hinn 23. maí sl. fékk Arnór Sig-
urjónsson sendifulltrúi afhenta
heiðursorðu (Royal Order of Merit)
af „Kommandör“ gráðu fyrir fram-
lag sitt við að efla samstarf Noregs
og Íslands á sviði öryggis- og
varnamála. Það var norski fasta-
fulltrúinn hjá NATO, Hr. Vegard
Ellefsen sendiherra sem afhenti
orðuna.
Fékk heiðursorðu
Hinn 19. júní nk. verða liðin 96 ár
frá því að íslenskar konur 40 ára og
eldri fengu kosningarétt og kjör-
gengi til Alþingis. Í tilefni dagsins
verður farið í kvennasögugöngu
um innbæinn á Akureyri. Gengið
verður frá Minjasafninu kl. 10.30
og mun Sigrún B. Ólafsdóttir leiða
gönguna. Á leiðinni um innbæinn
munu svo gestir vitja ýmissa
kvenna sem bjuggu og störfuðu
þar. Að göngu lokinni verður svo
boðið upp á kaffi og kleinur við
samkomuhúsið. Þá býður Kvenrétt-
indafélag Ísland, ásamt Kven-
félagasambandi Íslands og Banda-
lagi kvenna í Reykjavík, upp á
dagskrá sunnudaginn 19. júní í
samkomusal Hallveigarstaða kl. 15-
17.
Kvennasöguganga
og samkoma 19. júní
Í tilefni af alþjóðlegu ári skóga árið
2011 hafa Skógræktarfélag Íslands
og Arion banki gefið út kortið
,,Rjóður í kynnum“ en í því er að
finna upplýsingar um 50 útivist-
arskóga um land allt. Skógarnir
eru af öllum stærðum og gerðum,
langflestir í alfaraleið.
Á kortinu má sjá staðsetningu
reitanna og einnig er stutt lýsing á
hverjum og einum reit ásamt upp-
lýsingum um aðstöðu/þjónustu á
staðnum og GPS-hnit sem auðveld-
ar fólki að finna þá.
Kortinu verður dreift endur-
gjaldslaust í útibúum Arion banka,
upplýsingamiðstöðvum ferðamála,
garðplöntusölum og víðar.
Skógakortið „Rjóður
í kynnum“ komið út
Í dag, fimmtudag, kl. 18 stendur
Landvernd fyrir gönguferð um
Grændal sem er jarðhitasvæði inn
af Hveragerði. Sérfróðir leið-
sögumenn verða með í för en það
eru þeir Björn Pálsson, fyrrum
skjalavörður í Hveragerði, og Sig-
urður H. Magnússon, sérfræðingur
á Náttúrufræðistofnun Íslands.
Gangan hefst á bílastæði á Jóku-
tanga þaðan sem gengið er inn í
Grændal yfir brú á Hengladalsá.
Gangan hefst kl. 18 og er ráðgert
að koma til baka um kl. 21. Ferða-
langar þurfa að vera vel skóaðir og
er upplagt að taka með sér nesti.
Gengið um Grændal
í Hveragerði
STUTT
Hinn 22. júní nk. leggur Ísfirðing-
urinn Hávarður Tryggvason upp í
hjólreiðaferð um Vestfirði til styrkt-
ar Grensásdeild. Lagt verður af stað
frá Ísafirði og hjólaðir vesturfirðirn-
ir og komið við í flestum þorpum á
leiðinni. Síðan er haldið yfir á Barða-
strönd og allir suðurfirðir þræddir
allt að Gilsfirði en þar er farið yfir
hálsinn á Vestfjörðum yfir Steina-
dalsheiði ofan í Kollafjörð. Þá er
haldið til Hólmavíkur og yfir Stein-
grímsfjarðarheiði niður í Ísafjarðar-
djúp og sem leið liggur til baka til
Ísafjarðar. Alls er leiðin um 700 km.
Ferðina fer Hávarður til að fagna
50 ára afmæli sínu og til að vekja at-
hygli á átakinu „Á rás fyrir Grensás“
sem er söfnunarátak sem Hollvina-
samtök Grensásadeildar standa að.
Markmiðið er að safna 500 milljón-
um til nýrrar 1.500 fermetra við-
byggingar við Grensásdeild sem
hýsa mun sjúkra- og iðjuþjálfun o.fl.
Hjólar til styrktar
Grensásdeild
Fimmtugur Hávarður Tryggvason ætlar að hjóla um Vestfirði í tilefni
fimmtugsafmælisins og safna áheitum í leiðinni fyrir Grensásdeild.
Fer Vestfjarðahringinn á 7-10 dögum
FA
B
R
IK
A
N
OSTAVEISLA FRÁ MS
Gullostur
Hvítmygluostur.Hvítmyglanereinnig
inni í ostinum. Áhugaverður ostur
með mildu bragði sem gott er að
njóta í lok góðrar máltíðar. Þessi
ostur er einn af flaggskipunum í
ostafjölskylduni frá MS.
Heilbakaður Gullostur
með timjan og hvítlauk
Vefjið smjörpappír utan um ostinn, pikkið átta göt ofan í
ostinn og stingið ögn af timjan ásamt þunnum sneiðum
af hvítlauk ofan í götin. Dreypið örlítilli ólífuolíu yfir.
Pakkið ostinum aftur inn í bréfið sem var utan um hann
og bakið hann í 30 mínútur við 160°C. Berið ostinn
fram með grilluðu hvítlauksbrauði.
Osta er hægt að bera fram með ýmsum hætti, það
má t.d. borða Gullostinn með góðu ávaxtamauki, eða
með hnetum og hella síðan góðu hunangi yfir eða setja
í hann fyllingu úr þurrkuðum ávöxtum s.s. apríkósum
og fíkjum og skreyta hann að ofan með þurrkuðum
trönuberjum og hlynsírópi. Búa til litlar og fallegar
ostasamlokur eða ostasnittur.
Kynntu þér fleiri góðar hugmyndir og
uppskriftir á heimasíðunni: www.ostur.is
Ostabakki
- antipasti
Grillaðar paprikur, sól- eða ofn-
þurrkaðir tómatar, grillað eggaldin,
hráskinka og þurrkaðar pylsur.
Gullostur, gráðaostur með ferskri
peru, blár Kastali.
Steyptur villisveppaostur skorinn
út í litla hringi. Maribóostur með
kúmeni. Kryddað apríkósumauk.
Baguette-brauð.
Uppskriftina að kryddaða apríkósu-
maukinu má finna á vefnum www.ostur.is