Morgunblaðið - 16.06.2011, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2011
Raðauglýsingar 569 1100
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins, Aðalstræti 12,
Bolungarvík, á neðangreindri eign í Bolungarvík, miðviku-
daginn 22. júní 2011 kl. 15:00.
Aðalstræti 9, fastanr. 212-1113, þingl. eig Arnarhlíð ehf.,
gerðarbeiðendur Vátryggingafélag Íslands hf. og sýslumaðurinn í
Bolungarvík.
Sýslumaðurinn í Bolungarvík,
15. júní 2011.
Uppboð
www.naudungarsolur.is
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Grettisgata 46, 200-7963, Reykjavík, þingl. eig. Einar Guðjónsson,
gerðarbeiðendur Grettisgata 46, húsfélag ogTollstjóri, mánudaginn
20. júní 2011 kl. 11:30.
Njálsgata 81, 200-8333, Reykjavík, þingl. eig. S33 ehf., gerðarbeiðandi
Tryggingamiðstöðin hf., mánudaginn 20. júní 2011 kl. 15:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
15. júní 2011.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Vaðlabyggð 1, einb. 01-0101, bílsk. 01-0102, (228-9416) Svalbarðs-
strandarhreppi, þingl. eig. Icefox á Íslandi ehf., gerðarbeiðandi Frjálsi
fjárfestingarbankinn hf., miðvikudaginn 22. júní 2011 kl. 10:30.
Vaðlabyggð B 204843, lóð - Annað land, Svalbarðsstrandarhreppi,
þingl. eig. Icefox á Íslandi ehf., gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingar-
bankinn hf., miðvikudaginn 22. júní 2011 kl. 10:30.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
15. júní 2011.
Halla Einarsdóttir, ftr.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Greniteigur 8, fnr. 208-7752, Keflavík, þingl. eig. db. Guðrúnar E.
Ólafsdóttur, gerðarbeiðandiTómas Hrafn Sveinsson skiptastjóri,
fimmtudaginn 23. júní 2011 kl. 09:35.
Hafnargata 6, fnr. 208-7965, Keflavík, þingl. eig. Spjaldhagi ehf.,
gerðarbeiðendur Byggðastofnun og Reykjanesbær, fimmtudaginn
23. júní 2011 kl. 09:40.
Heiðardalur 1, fnr. 228-2612, Vogar, þingl. eig. db. Jóhanns Más
Jóhannssonar og Ragnhildur B. Svavarsdóttir, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 23. júní 2011 kl. 10:30.
Pósthússtræti 1, fnr. 227-2490, Keflavík, þingl. eig. db. Sigurðar
Þorgeirssonar, gerðarbeiðandiTómas Hrafn Sveinsson skiptastjóri,
fimmtudaginn 23. júní 2011 kl. 09:55.
Tjarnargata 8, fnr. 209-5139, Sandgerði, þingl. eig. db. Gunnars Berg
Guðnasonar, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 23. júní
2011 kl. 09:10.
Víkurbraut 3, fnr. 209-4717, Sandgerði, þingl. eig. db. Gunnars Berg
Guðnasonar, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 23. júní
2011 kl. 09:00.
Sýslumaðurinn í Keflavík,
14. júní 2011,
Ásgeir Eiríksson, sýslumannsfulltrúi.
Uppboð
www.naudungarsolur.is
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Dugguvogur 9-11, 202-3235, Reykjavík, þingl. eig. Hobby ehf., gerðar
beiðendur NBI hf. ogTryggingamiðstöðin hf., þriðjudaginn 21. júní
2011 kl. 14:00.
Esjugrund 40, 208-5636, Reykjavík, þingl. eig. Rakel Salóme Eydal og
Einar Helgi Kjartansson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðju-
daginn 21. júní 2011 kl. 10:00.
Súðarvogur 32, 202-3231, Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Jónasdóttir,
gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Íslandsbanki hf., útibú 0511,
þriðjudaginn 21. júní 2011 kl. 13:30.
Vindás 3, 205-3521, Reykjavík, þingl. eig. Daníel Hjaltason, gerðar-
beiðandi Sparisjóður Reykjavíkur/nágr. hf., þriðjudaginn 21. júní 2011
kl. 11:30.
Þjóðhildarstígur 2-6, 225-7705, Reykjavík, þingl. eig. GH2 ehf., gerða
beiðendur Reykjavíkurborg og Sparisjóður Reykjavíkur/nágr. hf.,
þriðjudaginn 21. júní 2011 kl. 11:00.
Þjóðhildarstígur 2-6, 225-7706, Reykjavík, þingl. eig. GH2 ehf., gerða
beiðendur Reykjavíkurborg og Sparisjóður Reykjavíkur/nágr. hf.,
þriðjudaginn 21. júní 2011 kl. 11:00.
Þjóðhildarstígur 2-6, 225-7707, Reykjavík, þingl. eig. GH2 ehf., gerðar
beiðendur Reykjavíkurborg og Sparisjóður Reykjavíkur/nágr. hf.,
þriðjudaginn 21. júní 2011 kl. 11:00.
Þjóðhildarstígur 2-6, 225-7708, Reykjavík, þingl. eig. GH2 ehf., gerða
beiðendur Reykjavíkurborg og Sparisjóður Reykjavíkur/nágr. hf.,
þriðjudaginn 21. júní 2011 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
15. júní 2011.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Akurgerði 3-5, Grímsnes- og Grafningshr., fnr. 221-9376, þingl. eig.
4us ehf., gerðarbeiðendur Arion banki hf., Sjóvá-Almennar tryggingar
hf. og Sparisjóður Reykjavíkur/nágr. hf., miðvikudaginn 22. júní 2011
kl. 13:30.
Auðsholt 2, Hrunamannahreppi, fnr. 166717, þingl. eig. Grímur
Sigurðsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 22. júní
2011 kl. 14:45.
Álftarimi 9, Svf. Árborg, fnr. 218-5285, þingl. eig. Ari Sveinsson,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Íslandsbanki hf., miðvikudaginn
22. júní 2011 kl. 09:20.
Birkihólar 14, Svf. Árborg, fnr. 231-1118, þingl. eig. Magnús Kjartan
Eyjólfsson, gerðarbeiðendur Sveitarfélagið Árborg og Sýslumaðurinn
á Selfossi, miðvikudaginn 22. júní 2011 kl. 09:40.
Egilsbraut 20, Ölfusi, fnr. 221-2173, þingl. eig. Birgir Brynjólfsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 22. júní 2011
kl. 11:30.
Eyrargata 16D, Svf. Árborg, fnr. 220-0286, þingl. eig. Guðrún Alda
Helgadóttir, gerðarbeiðandi Byggingarfélagið Vöxtur ehf., miðviku-
daginn 22. júní 2011 kl. 11:55.
Kjarrheiði 11, Hveragerði, fnr. 226-6074, þingl. eig. Gunnar Finnsson
og Helga Svanlaug Bjarnadóttir, gerðarbeiðandi NBI hf., miðviku-
daginn 22. júní 2011 kl. 11:00.
Langamýri 17, Svf. Árborg, fnr. 225-8902, þingl. eig. Sturla Bergsson,
gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf.,
miðvikudaginn 22. júní 2011 kl. 09:00.
Reykjamörk 5, Hveragerði, fnr. 221-0793, þingl. eig. Elías Ágúst
Högnason og Sigurdís Halldóra Erlendsdóttir, gerðarbeiðendur
Hveragerðisbær, Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, Sýslumaðurinn á
Selfossi ogTryggingamiðstöðin hf., miðvikudaginn 22. júní 2011
kl. 10:45.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
15. júní 2011.
Ólafur Helgi Kjartansson
sýslumaður.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
...þú leitar og finnur
Ég get ekki sagt að það hafi
beinlínis komið mér á óvart
símtalið sem fékk síðdegis hinn
30. maí sl. um að amma mín
væri látin. Það duldist mér ekki
að síðasta hálfa árið höfðu ein-
hver veikindi verið að hrjá hana
og ég vissi innra með mér að
fljótlega kæmi að kveðjustund.
Síðustu mánuði reyndi ég að
undirbúa mig andlega fyrir það
að vera sátt við að kveðja hana,
því ég vissi að hún var sátt við
allt og alla og tilbúin fyrir vista-
skiptin. Ég veit ekki hvort and-
legur undirbúningur fyrir end-
anlega kveðjustund við
manneskju sem hefur allt mitt
líf verið til staðar skilaði ein-
hverju, því erfiður þykir mér sá
veruleiki að amma sé farin,
manneskjan sem alltaf var til
staðar á sínum stað, hvernig
sem heimurinn og tilveran
velktist, þá var hún fasti punkt-
urinn í tilveru minni. Kærleik-
urinn, hlýja faðmlagið og koss
og strok yfir vangann í hvert
skipti sem ég hitti hana. Spjall,
stundum um allt og ekkert,
stundum grín og glens og
stundum um alvarlegri málefni.
Amma var næm á mína líðan
og var alltaf umhugað um að ég
Jónína Alexandra
Kristjánsdóttir
✝ Jónína Alex-andra Kristjáns-
dóttir, Fossvegi 6,
800 Selfossi, fæddist
á Blönduósi 25. nóv-
ember 1925. Hún
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
30. maí 2011.
Útför Jónínu var
gerð í kyrrþey frá
Selfosskirkju 4. júní
2011.
hefði það sem
best. Eftir að
pabbi féll frá,
gleymdi hún aldr-
ei að hringja til
mín á afmælisdag-
inn minn, henni
var umhugað um
að ég héldi áfram
að fá afmælis-
kveðju úr sama
ranni. Ég er svo
þakklát henni fyr-
ir alla hugulsemina, fyrir skjól
hjá henni á erfiðum unglings-
árum í litlu íbúðinni hennar, þar
sem alltaf var pláss fyrir mig á
stofusófanum og stundum sótti
hún mig, bjó um mig í sófanum
sínum og ég sofnaði við tifið frá
stofuklukkunni.
Minningar um ömmu og afa:
afi að mana mig í að smakka
hræring, sem hann sagði að
væri ofboðslega góður og ég
píndi í mig hálfan disk og afi
kímdi yfir svipnum á mér.
Minningar um ömmu og
mömmu niðri í kjallara í sam-
eigninni í Fossheiði að búa til
hrossabjúgu, sem mér fundust
vond, en minningin um þau í
dag svo góð. Minningin um
jarðaberjaís hjá ömmu, amma
skar handa mér væna sneið og
alltaf bauð amma mér meira, ís
fannst mér bestur í heimi og
finnst enn og ég kláraði 1 lítra
af pakkaís eins og ekkert væri
og ömmu þótti þá nóg komið af
ís handa stelpunni.
Að eiga bara fjöldann allan af
góðum minningum um þessa
yndislegu konu er fjársjóður
sem ég mun búa að alla mína
ævi. Ég er bara einn af fjölda-
mörgum afkomendum hennar
og hún gaf af sér ást og kær-
leika til þeirra alla. Þegar af-
komendum fjölgar, þá er ekki
rétta aðferðin að deila ástinni
niður á hópinn, heldur marg-
falda hana og það kunni amma
mín manna best.
Elsku amma mín, Guð geymi
þig og hafðu það gott í nýjum
heimkynnum í faðmi afa. Takk
fyrir allt og allt.
Þín sonardóttir,
Jónína Þrastardóttir.
Elsku fallega amman okkar,
við kveðjum þig með trega
enda alls ekki undir það búin
að þú kveddir okkur svona
fljótt. Eðlilega varstu aðeins
farin að láta á sjá eftir árin
rúmlega 85 en það var bara
eitthvað svo fastur partur af
tilverunni að þú værir þarna til
staðar í blokkinni í kaffi og
spjall enda svo mikið hörkutól
og stuðbolti alltaf. Ein elsta
minningin mín af þér er þegar
ég var krakki og fékk ein-
hverntímann að gista hjá þér á
Fossheiðinni, við horfðum á
spennandi bíómynd á ríkissjón-
varpinu saman. Ég gleymi
aldrei hvað ég hló mikið þegar
þú fórst að tala við persónurn-
ar í myndinni, þá hafði kviknað
eldur í myndinni og þú sast
fremst í stólnum þínum og
gargaðir „hlauptu, hlauptu út
maður, það er kviknað í. Þú ert
nú meiri vitleysingurinn, sérðu
ekki eldinn, maður?“ Þetta
kvöld, ásamt mörgum fleirum,
er mér mjög dýrmætt.
Við þökkum svo mikið fyrir
það í dag hvað við vorum dug-
leg alltaf að heimsækja þig og
hvað strákarnir nutu mikils
tíma með þér, við metum þetta
mikils nú eins og alla tíð. Það
er okkur efst í huga hvað þú
áttir mikið í Svavari Steini og
við munum alltaf minnast þín í
gegnum hann enda kom hann
eftir pöntun hjá þér án þess að
þú vissir hvað á undan var
gengið og mér finnst svo gott
hvað þú fékkst að umgangast
hann mikið þó hann sé ekki
eldri en 5 mánaða. Þú vildir
aldrei skipta þér of mikið af en
alltaf boðin og búin að hjálpa til
og ráðleggja ef svo bar undir.
Við gátum alltaf leitað til þín og
treyst á þinn stuðning í einu og
öllu enda náðum við öll svo vel
saman.
Fyrsta skiptið sem við kom-
um á Selfoss eftir að þú kvaddir
okkur kom sorgarsvipur á
strákana okkar þegar þeir töl-
uðu um að nú gætum við ekki
heimsótt ömmu Jónínu þar sem
hún væri komin til afa Bjarna
og ég veit að þeir eru, eins og
við, enn að átta sig á þessu enda
aldrei komið á Selfoss án þess
að heimsækja ömmu. Þeir
sögðu líka þegar við vorum að
ræða við þá eftir fráfall þitt að
þú værir alltaf svo góð og alltaf
að gefa þeim eitthvað gott,
þessir tveir elskuðu og dýrkuðu
ömmuna sína og sakna hennar
mikið eins og við öll. Það er
höggið mjög stórt skarð í líf
okkar allra enda mikil ættmóðir
sem fylgdist vel með hjörðinni
sinni. Maður gat alltaf treyst á
að heyra allt það nýjasta alls-
staðar að úr fjölskyldunni þegar
maður kom í heimsókn og alltaf
spurðir þú út í hlutina sem við
ræddum síðast, svo vel fylgdist
þú með öllu þínu fólki.
Takk fyrir allar frábæru
stundirnar og minningarnar
sem þú gafst okkur og ekki síst
þökkum við fyrir gullmolann
sem þú pantaðir fyrir okkur.
Knúsaðu afa frá okkur, við
vitum að þér líður vel núna
enda ólýsanlega falleg og frið-
sæl að sjá þegar við litum í
kistuna þína. Við elskum þig
ótrúlega mikið, elsku amma, og
vitum að við munum á endanum
faðma þig aftur.
Jóna Guðrún, Guðjón,
Kristinn Snær, Jón Grétar
og Svavar Steinn.
✝ Guðrún Re-bekka Jak-
obsdóttir fæddist
að Kvíum í Jökul-
fjörðum 28. mars
1925. Hún lést 8.
júní 2011. For-
eldrar hennar voru
Jakob Falsson og
Guðbjörg Jóns-
dóttir. Guðrún átti
fimm systkini og
eru þau öll á lífi.
Hinn 10. ágúst 1947 giftist
Guðrún Kristni Ásgeirssyni frá
Baulhúsum við Arnarfjörð, f. 5.
apríl 1922, d. 31. júlí 2002. Börn
Kristins og Guðrúnar voru sjö:
1) Ásgeir Matthías, f. 5. desem-
ber 1947, maki Guðjóna Krist-
jánsdóttir. 2) Guðbjörg Kristín,
f. 20. febrúar 1949. 3) Jakob
Kristinsson, f. 9. febrúar 1950,
d. 23. janúar 2010,
fv. maki Birna H.
Kristinsdóttir. 4)
Jóna Elín, f. 19.
desember 1954,
maki Guðbjartur Á.
Ólafsson. 5) Guð-
mundur, f. 4. apríl
1959, maki Guð-
björg Benjamíns-
dóttir. 6) Kristján
Hörður, f. 25. sept-
ember 1960, maki
Valdís Valdimarsdóttir. 7)
Helga, f. 3. febrúar 1962, maki
Þórarinn Viðar Hjaltason.
Ömmu- og langömmubörn eru
32, þar af er eitt ömmubarn lát-
ið.
Útför Guðrúnar Jakobsdóttur
fer fram frá Fossvogskirkju í
dag, 16. júní 2011, og hefst at-
höfnin kl. 13.
Hvenær andlát er tímabært og
hvenær ekki er erfitt að svara, en í
mínum huga þá voru síðustu árin
ekki auðveld hjá mömmu. Það eitt
er víst í þessu lífi að dauðinn kem-
ur og hann aðskilur okkur um
stund, en skilnaðurinn varir eitt
augnablik í eilífðinni, því öll göng-
um við sömu leið. Þegar ég læt
hugann reika og horfi til baka, þá
flæða fram ótal minningar sem
ekki verða festar á blað. Báðir
synir mínir, þeir Kristinn og Matt-
hías Geir, fengu að dvelja nokkur
sumur hjá afa og ömmu á Bíldudal
og fyrir sumardvöl þeirra og um-
hyggju fyrir þeim og fyrir okkur
Jónu ber að þakka.
Foreldara mínir tóku þá
ákvörðun að flytja árið 1997 frá
Bíldudal á Dvalarheimilið Ás í
Hveragerði, en var þá heilsu
pabba farið að hraka. Mamma
veiktist fyrir nokkrum árum og
eftir það hætti hún allri handa-
vinnu og tómstundum. Síðustu ár-
in dvaldi hún á hjúkrunarheim-
ilinu Ási og naut þar góðrar
umönnunar og reynt var að gera
henni lífið sem bærilegast. Í nokk-
ur ár ræddum við mamma saman í
síma á hverjum degi og stundum
oft á dag. Við Jóna vorum svo
heppin að geta verið hjá mömmu
síðasta daginn sem hún dvaldi á
hjúkrunarheimilinu Ási.
Þinn sonur,
Ásgeir M.
Guðrún
Jakobsdóttir
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar