Morgunblaðið - 16.06.2011, Qupperneq 24
24 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞAÐ ER KOMINN
TÍMI TIL AÐ KREMJA!
ER
ÞAÐ?
ÚRIÐ MITT
HLÝTUR AÐ HAFA
SEINKAÐ SÉR
ÞETTA
ER VIRKILEGA
VEL GERT
HJÁ ÞÉR
ÉG GERÐI ÞAÐ SEM ÉG GAT
MEÐ ÞVÍ SEM ÉG HAFÐI
ÚR AÐ MOÐA
HVAÐ NOTAÐ-
IRÐU Í DÚKINN?
TEPPIÐ MITT
EINN GÓÐAN
VEÐURDAG VERÐA ÞESSI
KVIKINDI EFLAUST
ÚTDAUÐ
FREKAR
SLÆM TÍMA-
SETNING
HEFURÐU TEKIÐ
EFTIR ÞVÍ HVAÐ
ÞJÓNUSTAN HÉRNA ER
HÆG? ÞAÐ MÆTTI HALDA
AÐ ÞJÓNUSTUSTÚLKAN
OKKAR VÆRI DAUÐ ÚR
ÖLLUM ÆÐUM
MATURINN...
VERÐUR TIL...
EFTIR
NOKKRA...
KLUKKUTÍMA
KANNSKI
ER HÚN BARA
BÚIN AÐ VINNA
HÉRNA OF
LENGI
ÞETTA
TÓKST
ÁGÆTLEGA
ÞARNA SPARAÐI ÉG MÉR
FJÖGUR ÞÚSUND KRÓNUR ÁN
NOKKURA VANDRÆÐA
ÞANNIG AÐ ÞÚ HELDUR AÐ EKKI
EINU SINNI SANDMAN GÆTI BROTIST
INN Í ÞENNAN BRYNVARÐA BÍL
SVO ER HANN EKKI
KEYRÐUR AF MANNI HELDUR ER
HANN FJARSTÝRÐUR
HANN ER
GJÖRSAMLEGA
LOFTÞÉTTUR
EKKI
EINU SINNI
SANDKORN GÆTI
KOMIST INN Í
HANN
VIÐ ÆTLUM AÐ
RÆNA ÞENNAN!
Giftingarhring-
ur tapaðist
Karlmannsgifting-
arhringur tapaðist,
líklega í miðbænum,
12. júní sl. Inni í
hringnum stendur
Guðrún. Upplýsingar
í síma 553 3683 eða
895 5422.
Sparifé
Fyrir skömmu voru
þær raddir háværar í
fjölmiðlum að ekkert
hefði verið hróflað við
sparifjáreigendum
vegna þeirra þreng-
inga sem þjóðin stendur nú frammi
fyrir, ef frá eru taldir þeir sem áttu
sparifé sitt í hlutabréfum hinna
ýmsu bankastofnana. Þessar fullyrð-
ingar fá engan veginn staðist. Ekki
er fráleitt að ætla að stór hluti spari-
fjár í bönkum sé í eigu ellilífeyr-
isþega sem hafa með ráðdeild og
sparnaði um árabil verið að búa í
haginn til elliáranna. Við starfslok
fær stór hluti þeirra einungis óveru-
legar greiðslur úr lífeyrissjóðum.
Þeir forsjálu geta því nýtt sér fjár-
magnstekjur sínar sér til fram-
færslu, þannig að þeir þurfa ekki að
þiggja neitt frá Tryggingastofnun
ríkisins. Fróðlegt væri að vita
hversu margir ellilífeyrisþegar til-
heyra þeim flokki og
um hversu háar fjár-
hæðir er að ræða á
ársgrundvelli sem rík-
ið þá sparar vegna ráð-
deildar og fyrirhyggju
þeirra ellilífeyrisþega
sem hér um ræðir. Þá
er vert að geta þess að
fjölmargir eldri borg-
arar töpuðu veruleg-
um hluta sparifjár síns
vegna gylliboða pen-
ingasjóða bankanna,
sumir allt að 32,8%.
Nýlega var settur á
1,5% auðlegðarskattur
sem þeir greiða sem
eiga skuldlausar eignir
(fasteignir og/eða sparifé) umfram
75 milljónir króna. Þá má ekki
gleyma hinum síhækkandi fjár-
magnstekjuskatti sem var lengi 10%
af vaxtatekjum, fór svo í 15% en er
nú 18%. Af ofantöldu má ráða að
sparifjáreigendur hafa axlað sínar
byrðar ekki síður en aðrir þegnar
þessa lands. Á árum áður taldist
sparsemi, nýtni og nægjusemi til
dyggða en nú um stundir er stöðugt
verið að fjandskapast út í þá sem
vilja vera sjálfum sér nógir og eng-
um háðir.
Sparifjáreigandi.
Ást er…
… ó, ef aðeins!
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Handav./smíði/útskurður
kl. 9. Botsía kl. 9.30. Helgistund kl. 10.30.
Myndlist kl. 13.30. Opinn púttvöllur.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8-16.
Stólajóga kl. 10.15. Botsía kl. 10.45.
Eftirlaunadeild símamanna | Sum-
arferðin verður 13.-17. ágúst. Sprengi-
sandur, Mývatnssveit, gist á Stöng. –
Dettifoss, Hljóðaklettar, Ásbyrgi, Ak-
ureyri (2 n.). – Eyjafjarðarsveit. – Svarf-
aðardalur, Héðinsfjörður, Síld-
arminjasafnið á Siglufirði, Bakkaflöt
(gist). Upplýsingar gefur Ragnhildur í
síma 551-1137 eða 898-4437.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur sunnudagskvöld kl. 20. Klassík
leikur fyrir dansi. Fyrsta dagsferð sum-
arsins þri. 21. júní nk. um Reykjanes.
Vigdísarvellir, Selatangar, Selvogur o.fl.
Brottför kl. 9.30/10. Laus sæti, skrán-
ing s. 588-2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Ramma-
vefnaður kl. 9.05, hádegisverður kl.
11.40, einkasamkvæmi í kaffistofu kl. 14.
Á morgun verður þjóðhátíðardagskrá í
Gjábakka. Húsið verður opnað kl. 15,
Ragnar Bjarnason söngvari, Skapandi
sumarstörf sjá um skemmtiatriði, kaffi-
hlaðborð.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Handavinnuhorn kl. 13, vöfflukaffi frá kl.
14, 17. júní hátíð við minnisvarða Jóns
Sigurðssonar í garði við Strikið 2-12 kl.
15.30. Börn úr Sjálandsleikskóla koma í
skrúðgöngu, söngur og undirleikur.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Vatnsleikfimi kl. 7.15. Molasopi
og spjall í Króknum kl. 10.30. Skemmti-
ganga frá Mýrarhúsaskóla kl. 13.30.
Púttvöllurinn opinn við Skólabraut.
Félagsstarf Gerðubergi | Opið kl. 9-
16.30, kl. 10.30 samverustund og perlu-
saumur eftir hádegi. Félag heyrn-
arlausra kl. 11-15, umsj. Anna Jóna Lár-
usd. Brids hjá FEB kl. 13.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9.
Botsía kl. 10.30. Bingó kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Botsía kl. 10. Fé-
lagsvist kl. 13.30 kaffisala í hléi. Jóns-
messugrill fös. 24. júní, skráning og
nánari upplýsingar í afgreiðslu eða s.
535-2720.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50. Listasmiðja kl. 9. Félagsvist á
mánudögum. Bónus og bókabíll á
þriðjudögum. Hárgreiðslustofa. Fótaað-
gerðastofa.
Íþróttafélagið Glóð | Þjóðhátíðarkaffi í
Gjábakka 17. júní kl. 15.
Vesturgata 7 | Handavinna, glerskurður
(Tiffany’s), ganga kl. 9.15. Kertaskreyt-
ingar, kóræfing og leikfimi kl. 13.
Ólafur Stefánsson á Syðri-Reykjum orti að gefnu tilefni:
Sunnanáttin súldarvott
sendir yfir landið.
Er því bágt að þurrka þvott,
– þetta er meira standið.
Hjálmar Freysteinsson var ekki
seinn til svars:
Á Íslandi er alltaf hreint
úrhelli og gjóla.
Það er von að þorni seint
þvotturinn hjá Óla.
Jón Ingvar Jónsson sá aðra hlið á
rokinu:
Ég með frúnni sef í sátt,
sjaldan beiskju kenni
þó að nöpur norðanátt
núna sé í henni.
Enn stóðst Hjálmar ekki
mátið:
Við megum eiga von á því
að valdið geti tjóni
hve sviptivindasamt er í
sænginni hjá Jóni.
Þá Friðrik Steingrímsson:
Ef hún nuddar nára og hupp
nokkra hefur von um,
að hún magna muni upp
moldviðri í honum.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af súldarvotti og
sænginni hjá Jóni
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is