Morgunblaðið - 18.06.2011, Page 4
BAKSVIÐ
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Verði frumvarp sjávarútvegsráð-
herra um breytingar á stjórn fisk-
veiða að lögum mun það hafa mikil og
neikvæð áhrif á starfandi sjávarút-
vegsfyrirtæki í landinu. Þetta er með-
al niðurstaðna greinargerðar sem
sérfræðihópur á vegum sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra var falið að
gera til að meta hagræn áhrif fisk-
veiðistjórnunarfrumvarpanna. Hin
neikvæðu áhrif felast aðallega í
hækkun veiðigjalds og flutningi
afla frá núverandi handhöfum veiði-
heimilda í potta líkt og frumvarpið
gerir ráð fyrir.
Lögin munu, að mati sérfræðihóps-
ins, hafa mikil áhrif á efnahagslega
stöðu íslenskra sjávarútvegsfyrir-
tækja. Það muni leiða til lækkunar á
verðmæti aflaheimilda og þar með
muni raunveruleg eiginfjárstaða fyr-
irtækjanna veikjast. Samkvæmt var-
legu mati hópsins munu ákvæði frum-
varpsins leiða til rúmlega 50%
lækkunar á virði aflaheimilda. Íslensk
sjávarútvegsfyrirtæki eru sérstak-
lega viðkvæm fyrir slíkri lækkun
vegna mikillar skuldsetningar. Verði
frumvarpið að lögum verður því erf-
iðara fyrir fyrirtækin að halda áfram
rekstri.
Hópurinn skoðaði meðal annars
áhrif frumvarpanna á tuttugu af tutt-
ugu og fimm stærstu sjávarútvegs-
fyrirtækjum landsins í aflahlutdeild-
arkerfinu. Samkvæmt greinargerð
hópsins mun frumvarpið leiða til 9,8%
lækkunar EBITDA-hagnaðar á
fyrsta ári en 13,9% lækkunar á fimm-
tánda ári þegar áhrifin verða að fullu
komin fram. Lækkunin verður þó
töluvert meiri þegar gert er ráð fyrir
líklegri aukningu á þorskveiðum eða
um 20,5% á fimmtánda ári.
Í greinargerðinni segir að frum-
varpið muni leiða til aukningar veiði-
heimilda hjá sjávarútvegsfyrirtækj-
um í krókaaflamarkinu ef ekki sé gert
ráð fyrir auknum þorskkvóta á næstu
árum. Þau fyrirtæki eru þó sögð afar
viðkvæm fyrir hækkun á veiðigjaldi.
Slík hækkun mun því leiða til 8,6%
minnkunar framlegðar á fyrsta ári og
10,6% minnkunar að meðaltali á fimm-
tánda ári frá gildistöku laganna. Ef
gengið er út frá auknum þorskheim-
ildum á næstu árum minnka lögin
veiðiheimildir fyrirtækja í krókaafla-
markinu verulega og það hefur mikil
áhrif á framlegð. Í greinargerðinni
segir að EBITDA-hagnaður þessara
fyrirtækja muni minnka um 12,9% á
fyrsta ári og 22,8% á því fimmtánda.
Kostnaður á skattgreiðendur
Sérfræðihópurinn telur að frum-
varpið muni hafa mikil áhrif á lánveit-
endur sjávarútvegsfyrirtækja verði
það að lögum. Sérstaklega muni aukn-
ing veiðiheimilda í flokki 2 og bann við
veðsetningu bitna á lánveitendum. Sá
hluti skulda sem óraunhæft er að verði
greiddur vegna frumvarpsins mun því
lenda sem kostnaður á skattgreiðend-
um þar sem stærstu lánveitendur ís-
lenskra sjávarútvegsfyrirtækja eru
bankar í opinberri eigu.
Sérfræðihópinn skipuðu þeir Axel
Hall hagfræðingur, Daði Már Krist-
ófersson hagfræðingur, Gunnlaugur
Júlíusson hagfræðingur, Sveinn Agn-
arsson hagfræðingur og Ögmundur
Knútsson viðskiptafræðingur. Starfs-
maður hópsins var Stefán B. Gunn-
laugsson sjávarútvegsfræðingur.
Erfitt að halda áfram rekstri
Sérfræðingar segja fyrirhugaðar breytingar á fiskveiðistjórnun hafa afar neikvæð áhrif á sjávarút-
vegsfyrirtækin í landinu Þingmaður segir frumvörpin stórskaðleg og þau komi í veg fyrir alla nýliðun
Morgunblaðið/RAX
Fiskveiðar Samkvæmt varlegu mati sérfræðihóps sjávarútvegsráðherra munu ákvæði frumvarpsins leiða til rúm-
lega 50% lækkunar á virði aflaheimilda. Það muni hafa mikil og neikvæð áhrif á starfandi sjávarútvegsfyrirtæki.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2011
Landssamband íslenskra útvegsmanna hefur gagnrýnt
frumvörp sjávarútvegsráðherra harkalega og Adolf
Guðmundsson, formaður LÍÚ, segir greinargerðina
staðfesta að sú gagnrýni eigi rétt á sér. Frumvarpið,
verði það að lögum, hafi meðal annars áhrif á fjárhags-
stöðu fyrirtækjanna og svo muni bann við framsali afla-
hlutdeildar stöðva alla framþróun í atvinnugreininni.
Það muni sömuleiðis bitna verulega á nýliðun. „Þetta
staðfestir það sem við höfum haldið fram að við vinnu
frumvarpanna hefur verið kastað til höndum. Þessar
breytingar sem stjórnvöld hafa boðað í stærra frum-
varpinu hafa gríðarleg áhrif á sjávarútveginn til hins
verra.“ Adolf vonast til að þeir sem hafa komið að samningu frumvarpsins
taki greinargerðina til alvarlegrar athugunar og vandi til verka. „Ég von-
ast til að það frumvarp sem liggur fyrir í þinginu verði afturkallað og það
verði samið nýtt frumvarp. Það hefði verið betur ef fulltrúar atvinnugrein-
arinnar hefðu komið að þessu frá upphafi. Þá hefði þetta litið allt öðruvísi
út.“ hjaltigeir@mbl.is
Staðfestir alla gagnrýni á frumvörpin
Adolf
Guðmundsson
Ólína Þorvarðardóttir, varaformaður sjávarútvegs- og
landbúnaðarnefndar Alþingis, gerir ráð fyrir að litið verði
til niðurstaðna sérfræðihópsins. „Ég geri fastlega ráð fyr-
ir því að stjórnvöld stefni með opin augun að því að ganga
frá frumvarpinu. Búið er að senda það út til umsagnar og
nú þegar hagfræðigreinargerðin liggur fyrir geta aðilar
haft hliðsjón af henni við gerð umsagna.“ Ólína segist þó
sjálf eiga eftir að kynna sér efni skýrslunnar til hlítar.
Hún segir þó mikilvægt að greina hagfræðilegu rökin frá
þeim pólitísku. „Varðandi lengd nýtingarsamninganna þá
er það pólitísk skoðun en ekki hagfræðileg. Það er engin
önnur atvinnugrein sem býr við það rekstraröryggi að
geta gengið að 15 ára nýtingarsamningi um aðföng sín svo að ég gef lítið fyr-
ir hagfræðina í því.“ Ólína segir málið snúast um að hluti af velsæld fisk-
vinnslu og útgerðar skili sér í þjóðarbúið, að þjóðin njóti þannig góðs af eigin
auðlind. „Það er eitt af því sem stefnt er að með breytingunum, að fá hluta af
arðinum inn í þjóðarbúið. Af einhverjum er sá hluti tekinn og hann er auðvit-
að tekinn af gróðanum.“ hjaltigeir@mbl.is
Nýtingarsamningarnir ekki hagfræðilegir
Ólína
Þorvarðardóttir
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í
sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd, segir greinargerð-
ina vera dauðadóm fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar í sjáv-
arútvegsmálum og hún sýni hversu mikið feigðarflan
það var af hálfu ráðherra að leggja af stað með frum-
vörp um grundvallarbreytingar án þess að hafa fengið
athugun á því til hvers þau myndu leiða.
„Niðurstaða hagfræðinganna um að frumvörpin hafi
stórskaðleg áhrif á sjávarútvegsfyrirtækin, verði þau að
lögum, kemur mér ekkert á óvart. Þessar skerðingar á
framsali og ég tala nú ekki um þessa stórundarlegu hug-
mynd að banna veðsetningar mun stórskaða starfandi
sjávarútvegsfyrirtæki og gjörsamlega koma í veg fyrir alla eðlilega nýlið-
un í greininni.“ Einar segir skýrsluna gerða að frumkvæði ráðherra og
þess vegna beri að taka hana mjög alvarlega. Höfundarnir séu virtir fræði-
menn sem komi víða að og því verði seint haldið fram að um einsleitan hóp
manna sé að ræða. „Ég vil ráðleggja Jóni Bjarnasyni eitt og það er þetta:
Rífðu frumvörpin þín gömlu strax!“ hjaltigeir@mbl.is
Ráðleggur Jóni að rífa frumvörpin strax
Einar K.
Guðfinnsson
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Eva María Ingvadóttir fékk hæstu
einkunn á stúdentsprófi við Mennta-
skólann á Akureyri, er dux scholae,
með 9,69. Skólaslit voru í gær. Hún
fékk meðal annars verðlaun fyrir
framúrskarandi árangur í íslensku;
það er athyglisvert því báðir for-
eldrar hennar eru pólskir og fjöl-
skyldan talar alltaf pólsku heima.
„Okkur finnst þetta dálítið fyndið
en mér finnst það sýna að allt er
hægt og ætti að gefa öðrum von,“
sagði Eva María, spurð um íslensku-
verðlaunin. „Ég lít á mig bæði sem
Íslending og Pólverja og við tölum
alltaf pólsku heima. Mér finnst það
þægilegra og reyndar pínu skrýtið að
tala við pabba og mömmu á íslensku.
En við tölum auðvitað íslensku þegar
við erum innan um annað fólk.“
Foreldrar hennar, Dórothea
Dagný Tómasdóttir og Ingvi Vaclav
Alfreðsson, fluttu frá Póllandi fyrir
hálfum þriðja áratug og eru bæði ís-
lenskir ríkisborgarar. Eva Dagný er
fædd hér á landi.
Dórothea og Ingvi eru tónlistar-
kennarar og fást líka við þýðing-
arstörf. Þau hófu að læra íslensku
fljótlega eftir komuna. „Ég gat tjáð
mig á íslensku á fæðingardeildinni,“
sagði Dóroteha Dagný í gær og hló.
Eva María segist hafa verið hrædd
á leikskólanum sem hún sótti fyrst.
„Ég náði fyrr tökum á pólskunni af
því að ég var heima en á leikskól-
anum skildi ég hvorki krakkana né
fóstrurnar. Svo fór ég til dagmömmu
þar sem voru færri krakkar og það
gekk miklu betur.“
Næstu skref hyggst Eva María
taka í Háskólanum á Akureyri. „Ég
ætla í líftækni, í þriggja ára BS-nám.
Það er hægt að taka MS-nám en ég
hugsa til þriggja ára og sé svo til.“
Foreldrarnir, hálfbróðir Evu Mar-
íu og afi eru öll tónlistarkennarar en
hún var ákveðin í að feta ekki sömu
braut. „Ég var ákveðin að fara frekar
í bækurnar.“
Auk verðlauna fyrir íslensku fékk
Eva María verðlaun fyrir fram-
úrskarandi árangur í eðlisfræði,
efnafræði og þýsku, og loks fékk hún
raungreinaverðlaun frá Háskólanum
í Reykjavík. En hver er galdurinn á
bak við svo góðan árangur? „Mikil
vinna og ekkert djamm. Að leggja sig
allan í þetta,“ segir hún. „Ég vil sér-
staklega þakka kennurum mínum í
MA fyrir að standa við bakið á mér
og styðja mig. Það var hægt að leita
til þeirra með allt, ekki bara það sem
sneri að skólanum. Þetta er frábært
fólk. Ég er líka þakklát vinum mínum
sem sýndu því skilning að ég setti
alla mína orku í námið.“
Dúx MA fékk verðlaun fyrir afburðaárangur í íslensku en foreldrarnir fluttu frá Póllandi fyrir 25 árum
„Tölum alltaf
pólsku heima“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Dúx MA Eva María Ingvadóttir og foreldrar hennar, Dórothea Dagný Tóm-
asdóttir og Ingvi Vaclav Alfreðsson, sem fluttu frá Póllandi fyrir 25 árum.
9,8%
lækkun EBITDA fyrirtækja í afla-
hlutdeildarkerfinu á fyrsta ári
13,9%
lækkun þegar áhrif laganna
verða að fullu komin fram.
‹ MINNI HAGNAÐUR ›
»