Morgunblaðið - 18.06.2011, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.06.2011, Blaðsíða 5
HVAÐ GERA FYRIRTÆKI MEÐ SJÁLFSTÆÐA POSA? Þjónustuaðilar örgjörvaposa eiga tilbúnar lausnir, hvort sem hentar betur að setja upp tvo samtengda posa eða einn posa sem snúa má í báðar áttir. PINNIÐ Á MINNIÐ Með verkefninu Pinnið á minnið er notkun greiðslukorta með örgjörva innleidd á Íslandi. Íslensk fyrirtæki, korthafar, útgefendur greiðslu- korta og færsluhirðar uppfylla þannig öryggiskröfur alþjóðlegu kortafyrirtækjanna sem innleiddar eru um allan heim. Greiðsluveitan ehf., dótturfyrirtæki Seðlabanka Íslands, sér um framkvæmd verkefnisins ásamt færsluhirðunum Borgun, Valitor og Teller (samstarfsaðila Korta- þjónustunnar). Verkefnið Pinnið á minnið er unnið með heimild Samkeppniseftirlitsins samanber ákvörðun 18/2010. FYRIRTÆKI SEM TAKA VIÐ KORTAGREIÐSLUM ÞURFA AÐ SETJA UPP POSA SEM SNÝR AÐ VIÐSKIPTAVINUM HVAÐ GERA FYRIRTÆKI MEÐ AFGREIÐSLUKERFI? Þjónustuaðilar afgreiðslukerfa eiga tilbúnar tengingar á milli kassa og örgjörvaposa. Korthafar setja sjálfir kortið í posann og staðfesta viðskiptin með pinni í stað undirskriftar. Starfsfólk þarf ekki lengur að bera saman undirskrift á korti og kvittun. KR www.pinnid.is Um heim allan innleiða alþjóðlegu kortafyrirtækin kröfur um öryggi í kortaviðskiptum, til að sporna við fjársvikum skipulagðra glæpasamtaka. Nú er komið að íslenskum fyrirtækjum að uppfylla þessar kröfur. FARÐU Á WWW.PINNID.IS, FINNDU ÞJÓNUSTUAÐILA OG BYRJAÐU STRAX AÐ UNDIRBÚA FYRIRTÆKIÐ ÞITT FYRIR ÖRUGGARI KORTAVIÐSKIPTI.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.