Morgunblaðið - 18.06.2011, Qupperneq 9
Á ÞINGVÖLLUM
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Það eru mikil forréttindi að vera af
þeirri kynslóð að hafa upplifað stofn-
un lýðveldisins og hafa verið á Þing-
völlum á merkisdegi fyrir 67 árum,“
segir Birgir Björnsson úr Hafnar-
firði. Hann var einn fjölmargra sem
staddir voru á Þingvöllum í gærmorg-
un. Að frumkvæði Þórs Jakobssonar
veðurfræðings var lýðveldisbörn-
unum boðið þangað sérstaklega, unga
fólkinu sem var á Þingvöllum 17. júní
1944. Birgir kom austur ásamt systk-
inum sínum þremur, þeim Jóni Boða,
Guðlaugu Berglindi og Braga, en þau
voru öll á Þingvöllum þennan merk-
isdag ásamt tveimur systkinum öðr-
um sem nú eru látin.
Kórstjórinn og Draumalandið
Hver á sínar minningar tengdar
lýðveldisstofnunni. Egill Friðleifsson,
tónlistarkennari í Hafnarfirði, man
rigninguna og hvar hann varð viðskila
og týndist. „Þá kom til mín ung kona,
nokkru eldri en ég, og sagðist ekki
sleppa af mér takinu fyrr en við hefð-
um fundið foreldra mína sem og
tókst. Mikið vildi ég hitta þessa konu
og þakka henni fyrir,“ segir Egill sem
í áratugi var stjórnandi kórs Öldu-
túnsskóla í Hafnarfirði. Á þeim vett-
vangi voru ættjarðarlögin í dýru gildi
höfð, til að mynda Lands míns föður
og Hver á sér fegra föðurland – sem
bæði voru samin sérstaklega fyrir
lýðveldisstofnunina árið 1944.
„Væri ég hins vegar í kór myndi ég
útsetja upp á nýtt og flytja Drauma-
land Sigfúsar Einarssonar.“
Sem fyrr segir var samkoma lýð-
veldisbarnanna á Þingvöllum í gær
haldin að frumkvæði Þórs Jak-
obssonar veðurfræðings. Hann var
tæpra átta ára á Þingvöllum á lýð-
veldishátíðinni 1944 og segist þrátt
fyrir ungan aldur vel hafa skynjað
mikilvægi atburðarins fyrir land og
þjóð.
Rigningin var forsjón
„Þegar við fjölskyldan fórum aust-
ur var bíll með númerið R-1944 á und-
an okkur. Þetta situr í minninu. Frá
Þingvöllum man ég vel að það sló
þögn á mannhafið þegar forseti
þingsins las yfirlýsingu þess efnis að
stjórnarskrá lýðveldisins hefði tekið
gildi. Örfá orð sem höfðu gildi,“ segir
veðurfræðingurinn sem telur rign-
inguna, sem setti svo sterkan svip á
lýðveldisstofnuna 1944, ekki hafa ver-
ið tilviljun. Þar hafi forsjónin ráðið og
viljað minna Íslendinga á þá miklu
auðlegð sem í hreinu og tæru vatni
felist.
Rigning var áminning almættis
Lýðveldisbörnin komu saman á Þingvöllum á 67 ára afmæli lýðveldsins í gær
Segjast vera forréttindafólk og unna fallegum íslenskum ættjarðarlögum
Lýðveldisbörn Systkinin frá Sjónarhóli í Hafnarfirði voru austur á Þingvöllum 17. júní 1944 og komu þangað aftur
í gær, réttum 67 árum síðar. Þau eru, frá vinstri talið, Jón Boði, Birgir, Guðlaug Berglind og Bragi Björnsson.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þingvellir Þór Jakobsson veðurfræðingur og Ægir Friðleifsson kórstjóri.
Ættjarðarlög Karlakór Kjalnesinga söng undir klettavegg Almannagjár.
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2011
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið: mán.-fös. kl. 11-18 | lau. 10-16
17% afsláttur
af öllum vörum
í dag
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
20% afsláttur
af öllum kjólum
og skokkum
Sumarogsól
stuttermabolir
Sendum í
póstkröfu
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Opið laugardag 10 - 16
Eddufelli 2, sími 557 1730
Lokað laugardag
www.rita.is
fleiri gerðir
www.gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið
fleiri vö
rur á
www.la
xdal.is
SUMARDRESS
FERÐAFATNAÐUR
VESTI – BOLIR - GALLABUXUR
– HVÍTAR, BLÁR, SVARTAR,
KVART OG SÍÐAR
„Við vildum gera eitthvað öðru-
vísi og völdum því að halda
brúðkaupið á Þingvöllum. Dag-
urinn var heldur engin tilviljun,
bæði er þjóðhátíð og svo eigum
við átta ára sambandsafmæli
einmitt í dag,“ sögðu Hildi-
gunnur Jónsdóttir og Ásgeir
Gíslason. Þau búa í Kaup-
mannahöfn en eins og Íslend-
inga er háttur kom ekki annað
til greina en láta gefa sig sam-
an á landinu bláa og á þess
helgasta stað. Fögnuðu vinir og
fjölskylda með þeim á Hakinu
við Almannagjá eftir hjónavígsl-
una.
Og svona er gangurinn, hver
kynslóð á sínar minningar um
Þingvelli. Sumir minnast merk-
isdaga í sögu þjóðar en minning
lýðveldisbarnanna Ásgeirs og
Hildigunnar verður brúðkaupið.
Þingvallabrúðkaup á þjóðhátíð
NÝJA LÝÐVELDISKYNSLÓÐIN
„Það var svo mikið talað um
lýðveldisstofnunina á mínu
æskuheimili að ég þykist muna
þetta,“ segir lýðveldisbarnið
Halldór Blöndal, fyrrv. forseti
Alþingis. Hann var á Þingvöllum
við lýðveldisstofnuna 1944 – þá
fimm ára – og man eftir sér og
Benedikt bróður sínum í „regn-
kápu með virðulegan sjóhatt,“
segir Halldór. Stofnun lýðveldis
hafi verið langþráð markmið
síns fólks. Sjálfstæðisbaráttan
hafi verið því allt og nefnir hann
þar afa sinn, Benedikt Sveins-
son.
Þykist muna
þetta allt
MEÐ SJÓHATT Í KÁPU