Morgunblaðið - 18.06.2011, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2011
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
AUSTFAR - Fjarðargötu 8 ·710 Seyðisfirði · Sími: 472 1111
NORRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN - Stangarhyl 1 · 110 Reykjavik · Sími: 570 8600
FÚSAÁBREKKU
HÓPFERÐMEÐ
07.-13.SEPTEMBER
VEGNA FORFALLA
ERU NOKKUR SÆTI
LAUS Í RÚTUNNI
FÆREYJARFO
VERÐ KR. 115.600
á mann í 4m klefa án glugga í Norrænu, gisting
á Hótel Færeyjum í 2m herbergi og hálft fæði í
Færeyjum frá kvöldverði á fimmtudagskvöldi
til morgunverðar á mánudegi. Íslensk farar-
stjórn og akstur samkvæmt leiðarlýsingu.
FÆREYJARFO
VERÐ KR. 129.800
á mann í 2m klefa án glugga í Norrænu, gisting
á Hótel Færeyjum í 2m herbergi og hálft fæði í
Færeyjum frá kvöldverði á fimmtudagskvöldi
til morgunverðar á mánudegi. Íslensk farar-
stjórn og akstur samkvæmt leiðarlýsingu.
Sveinn bílstjóriFúsi á Brekku
FERÐALÝSING
Einstakt tækifæri til að upplifa og kynnast Færeyjum og frændum okkar og
vinum, Færeyingum. Undir leiðsögn þaulkunnugra manna verður ferðin
ógleymanleg. Þessi ferð hentar öllum sem vilja ferðast á fyrirhafnarlítinn hátt
undir öruggri fararstjórn, en einnig gefst nægur frjáls tími í Þórshöfn fyrir þá sem
vilja skoða sig betur um eða versla.
WWW.SMYRIL-LINE.ISÓGLEYMANLEG FERÐ - LJÚFAR MINNINGAR
FÆREYJAR
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Íslendingar eru alltaf aðskreppa til Kaupmannahafnarog þá er gott að hafa bók einsog þessa við höndina, þegar
fólk gengur um borgina. Það er svo
gaman að skoða
gömlu Kaup-
mannahöfn, mið-
borgina, og
tengja við sögu
okkar Íslendinga,
þetta var jú okkar
höfuðborg í marg-
ar aldir. Við þessa
tengingu fær fólk
allt aðra sýn og
tilfinningu fyrir
borginni,“ segir Sigrún Gísladóttir
sem nýlega gaf út á eigin vegum
ferðahandbók um kóngsins Kaup-
mannahöfn.
„Maður er alltaf að sjá eitthvað
nýtt í Kaupmannahöfn, hún er svo
skemmtileg blanda af mjög gömlum
húsum sem er vel við haldið og nýj-
um og fallegum byggingum. Það er
óendanlega mikið að skoða. Og svo er
mannlífið einstaklega skemmtilegt í
þessari borg, Danir eru svo slakir.
Ég hef búið bæði í Svíþjóð og Dan-
mörku og mér finnst mikill munur á
Dönum og Svíum. Danir eru léttari
og kærulausari, þeir eru meira eins
og Miðjarðarhafsþjóðir. Þeir kunna
svo vel að njóta augnabliksins.“
Leiðsögumaður í
aðventuferðum
Sigrún var búsett í Kaupmanna-
höfn í fimm ár, frá 2002 til 2008, og
segist enn vera með annan fótinn
þar. „Útgáfa þessarar ferðahand-
bókar á rætur sínar að rekja til þess
að ferðaskrifstofa í Kaupmannahöfn
sem er rekin af Íslendingi vantaði
leiðsögumann fyrir íslenska ferða-
menn yfir vetrartímann. Guðlaugur
Arason hafði sinnt starfinu fram að
því en var ekki lengur búsettur þar
svo ég tók að mér þetta nýja hlut-
verk, að vera með leiðsögn fyrir Ís-
lendinga í svokölluðum aðventuferð-
um. Ég sökkti mér í að lesa mér til
um borgina og mér fannst þetta mjög
gaman. Ég hitti svo margt skemmti-
legt fólk. Ég hef séð um leiðsögn í
þessum aðventuferðum alveg síðan
þá, þó að ég sé miklu meira hér
heima á Íslandi núna.“
Höfðar til margra
Síðan kom að því að Sigrúnu
langaði til að kynna þessa fallegu
borg fyrir vinum sínum í Rotary-
klúbb Garðabæjar. „Ég tók mikið af
myndum og útbjó fyrirlestur. Og upp
frá því byrjaði ég að safna í sarpinn
og fljótlega átti ég gott safn mynda af
borginni. Ég var alltaf með á bakvið
eyrað að þetta væri gott efni í bók og
að kannski myndi ég gefa út eina
slíka síðar. Þegar ég er að leiðsegja
fólki í tveggja tíma göngu um borg-
ina, þá meðtekur fólk ekki nema brot
af því sem kemur fram. Þess vegna
vissi ég að svona bók væri kærkomin
fyrir marga. Ég lét loks verða af
þessu og bókin kom út nú á vordög-
um. Ég var afskaplega ánægð með
útkomuna enda var ég heppin með
hönnuð, hún Anna Björnsdóttir gerði
bókina alveg eins og ég vildi hafa
hana. Það er mikið af myndum, létt
yfir henni og hún er auðveld aflestr-
ar. Og í henni eru kort af miðbænum.
Dásamlega Kóngsins
Kaupmannahöfn
Hún segir óendanlega margt að skoða í Kaupmannahöfn, bæði gamalt og nýtt, og
gaman að tengja við sögu Íslendinga. Sigrún Gísladóttir hefur leitt hundruð ís-
lenskra ferðamanna um miðborgina og gaf út á vordögum ferðahandbók á ís-
lensku fyrir þá sem vilja fræðast og upplifa þessa gömlu höfuðborg okkar.
Gamalt og heillandi Margar áhugaverðar kirkjur eru í Kaupmannahöfn,
þar á meðal Skt. Pálskirkja og hermannahúsin sem vert er að skoða.
Hvít Fræg teikning eftir Örlyg Sigurðsson á Hviids Vinstue, af Jónasi Hall-
grímssyni, Jóhanni Sigurjónssyni, Árna Pálssyni og Sverri Kristjánssyni.
Á þessum síðustu og verstu kreppu-
tímum leitar fólk mikið eftir ódýrum
leiðum til að komast í ferðalög. Ein
þeirra leiða er að spara sér kostnað
við gistingu með því að taka til dæm-
is að sér að gæta húss á meðan eig-
endurnir eru í burtu. Sumir vilja ekki
að hús þeirra standi auð á meðan
þeir eru ekki heima og stundum á
fólk líka gæludýr sem það vill að ein-
hver sé hjá og passi á meðan fjöl-
skyldan flýgur út í heim. Fyrir þá sem
vilja leita hinna ýmsu leiða í gisting-
armöguleikum er vefsíðan mindmy-
home.com, alveg kjörin. Þar eru alls-
konar linkar inn á allskonar
gistimöguleika úti um allan heim. T.d
má finna á Rent4Days, ódýra styttri
tíma leigu, allt frá 30 evrum nóttin.
Fyrir þá sem langar að vinna í ein-
hverju ákveðnu landi eru einnig gagn-
legar síður inni á mindmyhome.com,
með aragrúa atvinnulauglýsinga.
Vefsíðan www.mindmyhome.com
Morgunblaðið/Ómar
Krútt Fólk getur tekið að sér að gæta hunda á meðan eigendur eru í burtu.
Húsapassari og hundapassari
„Ef það fæst ekki í Kaupfélaginu þá
þarftu það ekki.“ Þannig hljómar yfir-
skrift sumarsýningar Minjasafns
Austurlands sem opnuð var í Slátur-
húsinu á Egilsstöðum í gær. Þar eru
100 ára sögu Kaupfélags Héraðsbúa
gerð skil. Verslunin á Egilsstöðum,
útgerð á Reyðarfirði, fólksflutningar,
Söluskálinn, Naglabúðin og Kjörbíll-
inn koma þar m.a. við sögu. Kaup-
félagið hafði mikil áhrif á lífshlaup
margra Austfirðinga. Sýningin er sett
upp í samstarfi við Menntaskólann á
Egilsstöðum en nemendur í áfang-
anum Saga Austurlands, unnu hluta
af efni sýningarinnar.
Endilega …
… skoðið sögu Kaupfélagsins
Kaupfélag Þau hafa mörg mótað líf.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna. Sigrún
Gísladóttir
Nú þegar sumarið virðist loks vera að stimpla sig inn
með öllum sínum yndisleik, er ekki úr
vegi að rifja upp gamla góða rokk-
söngleikinn Grease frá árinu 1978
og æfa einhverja danstakta.
Bresta helst í einhvern sönginn
úr þessum vinsælasta rokk-
söngleik allra tíma. Nánast
hvert mannsbarn eldra en
tvævetur þekkir þau Sandy og
Danny sem urðu einmitt svo yf-
ir sig ástfangin í sumarfríinu
sínu. Sumrin eru jú tími ástar-
innar og ævintýranna. John Travolta
og Olivia Newton-John eru ógleym-
anleg í hlutverkum sínum í myndinni
um krakkana í Rydell-skólanum um
miðja síðustu öld (1950), þegar
brilljantín og kaggar voru aðalmálið.
Töffaraskapurinn lak af drengjunum
og ekki voru þær síður svalar bleiku
stelpurnar með Rizzo í fararbroddi, skrækj-
andi yfir sætu strákunum. Hvernig væri að
smala saman bestu vinunum, skella
Grease-ræmunni í tækið og syngja með
um þessar sumarnætur? Og dansa líka
villt og galið, nóg er af atriðum sem eru
yfirfull af frábærri stemningu þess tíma
sem myndin gerist á.
Sígildir söngvar, dansar og stuð
Sjóðheitar
sumarnætur