Morgunblaðið - 18.06.2011, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2011
Jónína og sambýlismaður
hennar, Jósep Þórhallsson,
eignuðust dóttur í nóvem-
ber síðastliðnum og heitir
hún Saga. Í sumar verður
Jónína í fæðingarorlofi og
gefst langþráð tækifæri til að vera
með dóttur sinni eftir törnina í
læknisfræðinni í vetur.
Hún segist hafa ákveðið að reyna
að klára námið fyrst hún var komin
svona langt og hafi það gengið vel
með smávegis hliðrun í náminu og
síðan dyggum stuðningi, ekki síst
foreldra hennar, þeirra Margrétar
Svavarsdóttur og Ingólfs Giss-
urarsonar. Hún þakkar þeim líka
áhuga á hlaupum og heilbrigðum
lífsstíl, sem þau hafi hvatt
systurnar þrjár til að
stunda. Tengdaforeldrarnir,
Þórhallur Jósepsson og
Herdís Ólafsdóttir, eiga
einnig miklar þakkir skildar
en þau hafa meðal annars verið
óþreytandi við pössun.
Kandídatsárið er framundan hjá
Jónínu og þann tíma vinnur hún á
Landspítalanum og á heilsugæsl-
unni í Efra-Breiðholti. Þegar emb-
ættisprófið verður komið í hús eftir
rúmt ár hyggur Jónína á framhalds-
nám, hugsanlega í krabbameins-
lækningum. Í fyrrasumar leysti hún
af sem læknir á heilsugæslustöðv-
unum á Hellu og Hvolsvelli.
Sumar með Sögu litlu
LANGÞRÁÐ FÆÐINGARORLOF FRAMUNDAN
minna inni á sjúkrahúsi. „Ég var
mjög veik á meðan ég var að jafna
mig á milli meðferða og þá vakti
fjölskylda mín yfir mér dag og
nótt. Í raun mátti aldrei skilja mig
eina eftir því ég var svo veik að ég
gat ekki hugsað um mig sjálf. Allir
komu og hjálpuðu mömmu og
pabba, þar á meðal systkini þeirra
og svo var hún Jónína amma mín
einstaklega dugleg að koma og
vera hjá mér.
Með ælubakka á fremsta bekk
„Ég gat ekkert borðað þar sem
munnurinn var allur eitt sár svo ég
horaðist niður og fékk að lokum
næringu í æð,“ segir Jónína. „Það
kom þó ekki annað til greina en að
fermast með krökkunum í bekkn-
um mínum um vorið, en við höfð-
um verið lengi saman og þau
studdu mig mjög vel eins og aðrir
vinir og fjölskylda.
Þegar kom að fermingunni var
tekið frá sæti fyrir mömmu og
pabba á fremsta bekk í kirkjunni
og þar sátu þau með ælubakkann
tilbúinn ef ég skyldi þurfa að kasta
upp. Til þess kom þó ekki, en í
veislunni sofnaði ég á sófa í veislu-
salnum. Mamma vinkonu minnar
hannaði fyrir mig fermingarkjólinn
og þrengdi hann eins mikið og hún
gat réttlætt, en hann var samt
mjög víður.
Æxlið hafði vaxið mjög hratt á
einum mánuði, en mér var sagt að
það gæti verið góðs viti því þá
myndi það hugsanlega ganga hratt
til baka. Það væri skárra en ef
æxlið læddist um og væri allt í
einu orðið útbreitt um allan líkam-
ann. Þetta gekk eftir og æxlið
hvarf hratt í meðferðinni.
Samt var ákveðið að ég færi líka
í geislameðferð daglega í 30 skipti
og í lok júní lauk meðferðinni. Þá
var þessu í raun lokið hjá mér eftir
hrikalega erfitt hálft ár og um
sumarið var ég útskrifuð úr
krabbameinsmeðferð. Ég var síðan
í eftirliti í u.þ.b. sex ár og fór
reglulega í myndatökur. Sem betur
fer hefur ekkert komið upp á síð-
an.
Við geislameðferðina skemmdist
hins vegar hluti af heiladinglinum
og ég þarf enn þann dag í dag að
sprauta mig daglega með vaxta-
hormóni. Nú hef ég formlega próf
upp á að mega gera það,“ segir
Jónína.
Spurði lækna um menntaskóla
Áhuginn á læknisfræðinni kvikn-
aði fyrst hjá Jónínu þegar hún var
tólf ára og lenti á sjúkrahúsi vegna
magakveisu. Þá fór hún fyrst að
velta því fyrir sér að hún gæti orð-
ið læknir þegar hún yrði stór.
„Ári seinna þegar ég veiktist og
var að berjast við krabbameinið
spurði ég hvern einasta unglækni
sem sinnti mér í hvaða mennta-
skóla hann hefði verið og hvaða
skóli væri nú bestur ef maður ætl-
aði í læknisfræði. Þeir bentu lang-
flestir á MR.
Ég fór þess vegna í MR og er
mjög sátt með það val. Þegar ég
kláraði stúdentinn gat ég ekki
hugsað mér annað starf en lækn-
isfræðina. Ég dreif mig því í inn-
tökuprófið og komst inn,“ segir
Jónína og það var ánægður sig-
urvegari sem tók við prófskír-
teinum sínum á sviði Laugardals-
hallar sex árum síðar.
Veikindi efldu áhuga á vísindunum
Barðist við erfitt krabbamein á fermingarárinu Lauk prófi í læknisfræði í vor Veltir fyrir sér
framhaldsnámi í krabbameinslækningum Segir sjúkdóma geta orðið hvata til náms á þessu sviði
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Mæðgur Eftir törn í háskólanum síðustu mánuði ætlar Jónína Ingólfsdóttir að eyða sumrinu með Sögu dóttur sinni.
Í haust tekur hún til við læknisstörf og síðan er framhaldsnám á dagskránni, hugsanlega í krabbameinslækningum.
VIÐTAL
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Læknisfræði hefur lengi átt hug
Jónínu Ingólfsdóttur og á sinn hátt
voru þessi vísindi stór hluti af lífi
hennar á fermingaraldri. Hún sigr-
aðist þá á erfiðu krabbameini, en
veikindi vöktu áhuga hennar á
fræðunum. Áhuginn efldist með ár-
unum og það var stolt ung móðir
sem fagnaði kandídatsprófi í lækn-
isfræði við útskrift frá Háskóla Ís-
lands síðastliðinn laugardag.
Jónína segist hafa „lúmskt gam-
an“ af krabbameinslækningum og
það geti vel verið að hún leggi
stund á þá grein læknisfræðinnar í
framhaldsnámi. Hún hafi til að
mynda unnið rannsóknarverkefni á
þriðja ári í læknisfræði um lungna-
krabbamein í konum þannig að
áhuginn sé til staðar. „Annars er
það merkilegt hversu margir sem
stunda nám í læknisfræði eða
hjúkrun hafa kynnst alvarlegum
sjúkdómum af eigin raun. Það er
eins og veikindi geti orðið hvati til
að læra meira á þessu sviði,“ segir
Jónína.
Varð bara veikari og veikari
Hún var nýorðin þrettán ára í
árslok 1998 þegar hún veiktist og
æxli fyllti þá nánast upp í nefkokið.
Fyrst var talið að um erfitt kvef
væri að ræða, en þrátt fyrir sýkla-
lyf og önnur meðul ágerðist sjúk-
dómurinn. „Síðan fóru að sjást eins
og kýli á hálsinum sem litu út eins
og risa-eitlastækkanir sem stækk-
uðu og stækkuðu þrátt fyrir sýkla-
lyfin,“ segir Jónína. „Ég varð bara
veikari og veikari og það var ekki
fyrr en í lok janúar að niðurstöður
komu úr sýnatöku sem sýndu að
stórt krabbameinsæxli var í nef-
kokinu og meinið hafði auk þess
stungið sér í eitla í hálsinum.“
Jónína fór í aðgerð þar sem
nokkrir eitlar í hálsinum voru
skornir í burtu og sýni tekin úr
þeim til að fá endanlega staðfest-
ingu á því hvers kyns æxlið væri.
Þá tók við stíf lyfjameðferð fram á
sumar þar sem lyfin voru gefin í
sex daga og síðan var reiknað með
tveggja vikna hvíld heima til að
jafna sig. Miklar aukaverkanir af
lyfjunum gerðu það hins vegar að
verkum að Jónína var meira og
Tómas Oddur Eiríksson hundaeigandi lætur ekki ósanngjörn boð og bönn
hafa áhrif á sig. Hann tók sér stöðu mótmælanda á þjóðhátíðardaginn og
lét á það reyna að hundsa hundabannið í hátíðarhöldunum í gær.
Að sögn Tómasar Odds var Freyju, hundi hans, vel tekið á Arnarhóli.
„Ég varð ekki fyrir neinu mótlæti, ég rölti fram hjá lögreglubíl og hún
taldi sig ekki þurfa að hafa nein afskipti af mér,“ segir Tómas Oddur kátur
með daginn, en hann og Freyja fóru upp á Arnarhól, þar sem krakkarnir
fengu að klappa Freyju. Að lokum sagðist Tómas hafa rekist á fleiri hunda-
eigendur í bænum sem virtust vera á sama máli og hann. janus@mbl.is
Morgunblaðið/Ernir
Mótmælti hundabanni
Á þjóðhátíðardaginn fagnaði Há-
skóli Íslands aldarafmæli en skólinn
var stofnaður á Alþingi þegar 100 ár
voru liðin frá fæðingu Jóns Sigurðs-
sonar. Hátíðarsamkoma til að minn-
ast stofnunar skólans var í Alþing-
ishúsinu í gær og var minnisvarði
um stofnun Háskóla Íslands og veru
hans í Alþingishúsinu á árunum
1911-1940 afhjúpaður. Þá var þing-
húsið opið almenningi þar sem gest-
um gafst tækifæri á að skoða sýn-
ingar á tveimur hæðum hússins,
annars vegar um sögu Háskóla Ís-
lands og hins vegar um Jón Sigurðs-
son í tilefni þess að 200 ár eru liðin
frá fæðingu hans.
Fjölbreytt afmælisdagskrá
Í fréttatilkynningu frá Háskóla
Íslands segir að á þeim 100 árum
sem skólinn hefur starfað hafi sam-
félagið og háskólinn tekið stakka-
skiptum. Fyrsta námsár skólans
voru nemendur 45 en nú eru þeir 14
þúsund. Árið 1911 hóf ein kona nám
en nú eru konur í meirihluta á öllum
námsstigum. Deildir skólans voru
fjórar talsins í fyrstu en nú eru þær
25 og er skólanum skipað í fimm
fræðasvið. Aldarafmælisdagskrá
skólans nær yfir allt árið og er hún
fjölbreytt. Meðal viðburða má nefna
fyrirlestra tveggja Nóbelsverð-
launahafa í líf- og læknavísindum,
útgáfu Vísindadagatalsins í sam-
starfi við Vísindavef Háskóla Ís-
lands, ferð Háskólalestarinnar um
landið og mánudagsbíó í samstarfi
við Háskólabíó en það á jafnframt
hálfrar aldar afmæli í ár. Áfram
mætti lengi telja en hápunktur dag-
skrárinnar verður afmælishátíð há-
skólans sem haldin verður í Hörpu í
október. kristel@mbl.is
Stofnaður fyrir 100 árum
Hátíðarsam-
koma í Alþing-
ishúsinu í gær
Morgunblaðið/Ernir
Afhjúpun Kristín Ingólfsdóttir rektor við minnisvarðann um Jón Sigurðs-
son sem afhjúpaður var í sölum Alþingis í gær, á 100 ára afmæli háskólans.