Morgunblaðið - 18.06.2011, Síða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2011
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
Enn á ný hafa blossað upp öflug mótmæli á Sýr-
landi sem beinast gegn ríkisstjórn og forseta
landsins, Bashar al-Assad. Í gær greindu vest-
rænir fréttamiðlar frá því að í það minnsta átta
manns hefðu týnt lífi í mótmælunum er örygg-
issveitir reyndu að tvístra mannfjöldanum á göt-
um stærstu borga landsins með því að hefja skot-
hríð. Sýrlenskir miðlar hliðhollir forsetanum og
stjórn hans gerðu minna úr mótmælunum en
tóku fram að lögreglumenn hefðu særst í átökum
við æstan múginn. Sjónarvottar segja að tveir
menn hafi verið skotnir til bana fyrir að reyna að
rífa niður veggspjöld með myndum af forset-
anum.
Herinn hefur sett aukinn kraft í tilraunir til að
stöðva mótmælin sem hafa verið mikil undan-
farna mánuði. Evrópusambandið er að skoða
hvort beita eigi sýrlensk stjórnvöld enn frekari
viðskiptaþvingunum.
Fjölmiðlabann
Útlendir fjölmiðlar fá ekki að koma til Sýr-
lands til að fylgjast með mótmælunum sem hafa
kostað að minnsta kosti 1.100 mannslíf frá því
þau hófust í mars síðastliðnum.
Sjónarvottar segja í viðtali við BBC að örygg-
issveitirnar hafi látið til skarar skríða í fjölmenn-
ustu mótmælunum. „Þeir handtaka meira að
segja þá særðu og færa þá í járnum á hersjúkra-
hús,“ sagði íbúi í borginni Homs.
Sýrlensk stjórnvöld gera lítið úr mótmælunum,
segja þau knúin áfram af glæpahópum en ekki al-
mennum borgurum. Þá segja þau vestræna
fréttamiðla blása málið upp.
Assad forseti hefur ekki áður þurft að þola
uppreisn borgara sinna. Mótmælin byrjuðu í suð-
urhluta landsins út frá mikilli öldu mótmæla sem
skekið hefur mörg lönd í Asíu og Norður-Afríku
undanfarna mánuði. Þau hafa nú breiðst út um
allt Sýrland. Um 9 þúsund Sýrlendingar hafa flú-
ið land vegna óeirðanna. Um 10 þúsund til við-
bótar bíða við landmærin að Tyrklandi, en kom-
ast hvorki lönd né strönd.
Skotið á mótmælendurna
Að minnsta kosti átta hafa látist í enn einni öldu mótmæla á Sýrlandi Örygg-
issveitir hófu skothríð á nokkrum stöðum í landinu Lögreglumenn hafa særst
Reuters
Burt með Bashar Sýrlensk börn mótmæla í
flóttamannabúðum við landamæri Tyrklands.
Undanfarna daga hafa hinar konunglegu Ascot-
veðreiðar farið fram í Berkshire í Suður-
Englandi en lokadagurinn er í dag.
300 ár eru liðin síðan veðreiðarnar voru fyrst
haldnar en það var árið 1711 sem Anna drottn-
ing hélt fyrstu keppnina.
Hefð er fyrir skrautlegum höfuðbúnaði meðal
kvenpeningsins en hann er hluti strangra reglna
um klæðaburð gesta á veðreiðunum. Jafnan er
mikið í hann lagt og fær hann oftar en ekki tölu-
vert meiri umfjöllun í fjölmiðlum en úrslit sjálfr-
ar keppninnar.
Hringur eftir hring á Ascot-veðreiðunum
Reuters
Bílaframleiðendur hafa náð umtals-
verðum árangri í því að fækka þjófn-
uðum á bílum í Bretlandi. Í fyrra var
107 þúsund bílum stolið og var
meirihlutinn eldri en þriggja ára.
Árið 2008 var 143 þúsund bílum stol-
ið og sé rýnt enn frekar í baksýnis-
spegilinn má sjá að fyrir tuttugu ár-
um var um 600 þúsund bifreiðum
stolið árlega.
Tryggingafélögin segja að bif-
reiðaframleiðendur eigi stærstan
þátt í því að draga úr þjófnaði nýrra
bíla. Með ýmsum öryggisbúnaði, s.s.
þjófavarnarbjöllum, bættum læs-
ingum, sterkara gleri í rúðum og
staðsetningarbúnaði, hefur árang-
urinn ekki látið á sér standa. Að mati
tryggingarfélaganna er það nú undir
bílaeigendum komið að draga enn
frekar úr bílaþjófnuðum.
Í vikunni verðlaunuðu trygginga-
félögin Volkswagen-bílaframleið-
andann fyrir stífar öryggiskröfur í
framleiðslu sinni. Framleiðandi Audi
varð í öðru sæti og Volvo í því þriðja.
sunna@mbl.is
Færri bíl-
um stolið í
Bretlandi
Nýir bílar betur
varðir fyrir þjófum
Alexander Lúkasjenkó, forseti
Hvíta-Rússlands, sakar „þetta rusl
sem kallast internet“ um að bera
ábyrgð á efnahagsvanda landsins og
hótar að loka landamærum landsins
á sama tíma og landið sekkur enn
dýpra ofan í efnahagslægð.
Þetta kom fram í máli forsetans á
fundi með blaðamönnum í gær. Lúk-
asjenkó segir hins vegar að bati sé í
nánd þótt hægt fari. Hann hét því að
selja helstu eignir ríkisins til þess að
bæta í sjóði ríkiskassans sem er
tómur. Hann sakaði blaðamenn um
að bera mesta ábyrgð á því að skapa
skelfingu meðal almennings.
„Allt netinu
að kenna“
Nýtt á Íslandi
Brúnt pallaefni
Brúnt gagnvarið efni
Tilbúið til notkunar.
Ekki nauðsynlegt að mála strax.
Sömu gæði gagnvarnar og áður.
Betri grunnur fyrir dökka liti.
OMEGA gasgrill að verðmæti
25.600 kr. fylgir pallaefni
fyrir 100.000 kr. eða meira.
* Gildir ekki með tilboðum
Frábær kaupauki
með pallinum!*
Ráðgjöf
landslagsarkitek
ts
Allar tillögur eru gerðar í þrívídd og viðskipta-
vinurinn fær teikningarnar sendar á netfang
eða með pósti innan viku frá ráðgjöf.
Auðvelt að átta sig!
Pöntun á ráðgjöf:
Skráning á netfangið margret@byko.is
og í síma 515 4135 alla virka daga.Hver
viðskiptavinur fær hálftíma ráðgjöf sem
kostar kr. 5.900, sem nýtist sem inneign
þegar keypt er efni í garðinn hjá BYKO.
Björn Jóhannsson
landslagsarkitekt
veitir ráðgjöfina.