Morgunblaðið - 18.06.2011, Page 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2011
✝ Ásgeir Ax-elsson frá
Litla-Felli á
Skagaströnd var
fæddur 7. maí
1942. Hann lést
miðvikudaginn 8.
júní.
Ásgeir fæddist í
Höfðahólum á
Skagaströnd og
ólst þar upp til
1955 er hann flutti
að Litla-Felli með foreldrum
sínum. Foreldrar hans voru
Axel Ásgeirsson, f. 21. janúar
1906, d. 21. september 1965,
og Sveinbjörg Ósk Björns-
dóttir, f. 11. mars 1919, d. 12.
júlí 2001. Ásgeir átti 3 systk-
ini, Hörð R. Ragnars, sam-
mæðra, f. 1938, Óskar Pál Ax-
elsson f. 1943 og Guðríði Ósk
Axelsdóttur f. 1952. Eftirlif-
andi eiginkona Ásgeirs er Sig-
í sambúð með Erlu Jónsdóttur
og eiga þau 2 börn. 7) Gunnar
Þröstur f. 1972, hann á eina
dóttur. 8) Anna Guðrún f.
1973, eiginmaður hennar var
Jens Óli Kristjánsson en hann
lést í mars síðastliðnum. Sam-
an áttu þau 2 börn. 9) Ása Ósk
f. 1974, hún er í sambúð með
Jóhanni G. Sigurjónssyni. Ása
á 4 börn úr fyrra hjónabandi.
10) Hafdís Hrund f. 1975, hún
er í sambúð með Stefáni
Sveinssyni og eiga þau 2 börn.
11) Þóra Dögg f. 1977, hún er í
sambúð með Birgi Þór Inga-
syni og eiga þau 2 dætur. 12)
Ásta Ýr f. 1978, hún er í sam-
búð með Gunnari Tryggva Óm-
arssyni og eiga þau tvö börn.
Ásgeir var mikið nátt-
úrubarn og unni dýrum. Hann
var bóndi að Litla-Felli til
dauðadags, auk þess sem hann
starfaði við Sölufélag A- Hún-
vetninga í tæp 50 ár og einnig
um árabil við löndun hjá Skag-
strendingi.
Ásgeir verður jarðsunginn
frá Hólaneskirkju í dag, laug-
ardaginn 18. júní 2011, og
hefst athöfnin kl. 14.
rún Guðmunds-
dóttir, f. 16.
desember 1947.
Saman eignuðust
þau 12 börn en
þau eru: 1) Axel
Gígjar f. 1964,
hann er kvæntur
Bryndísi Þ. Heið-
arsdóttur og eiga
þau þrjú börn. 2)
Hrönn f. 1965, hún
er gift Sigurjóni
Ragnarssyni og eiga þau 4
börn. 3) Einar Þór f. 1966,
hann er í sambúð með Moniku
Jónasdóttur og eiga þau tvo
syni en fyrir átti Einar eina
dóttur. 4) Ólafur Sveinn f.
1967, hann er í sambúð með
Elvu Þórisdóttur og eiga þau 4
börn. 5) Sigríður Ólína f. 1969,
hún er í sambúð með Ágústi Ó.
Ómarssyni og eiga þau 4 börn.
6) Jóhann Ingi f. 1970, hann er
Elsku pabbi minn, guð minn
góður hvað það er erfitt að
kveðja þig núna, þín verður sárt
saknað þú varst góður pabbi og
afi, börnin mín eiga margar
minningar úr sveitinni hjá afa
og ömmu á Felli, stundir sem
þau og ég verðum endalaust
þakklát fyrir það var alltaf svo
gott að koma heim þú tókst allt-
af á móti okkur á hlaðinu í
vinnugallanum með bros á vör
og þegar maður spurði hvað
segir þú, stóð ekki á svari ég
segi pass og glottir, þú gant-
aðist með barnabörnunum.
Einu sinni þegar við vorum
hjá ykkur varst þú að leika við
Kristofer og Óðin og þið þrír
hlupuð fram og til baka á gang-
inum margar, margar ferðir og
það endaði með því að litlu
gaurarnir gáfust upp en þú
varst til í meira.
Þú varst alltaf á ferð og flugi
úti að vinna verkin þín, skreppa
til Óskars bróður þíns, eða í
kaupstaðarferð, og svo öll árin
sem þú keyrðir á milli Skaga-
strandar og Blönduóss til vinnu
hjá sölufélaginu.
Þú varst svo duglegur að
koma við hjá henni elsku Gunnu
ömmu á Sæbóli. Ég gleymi því
aldrei þegar að þú varst að lesa
okkur pistilinn um það sem er
ógeðslegt það er eitthvað sem er
ógeðslegt, en ekki segja ógeðs-
lega flott eða gott. Er það
ósjaldan sem ég nota þetta sjálf.
Takk, pabbi minn, fyrir allt
sem þú kenndir mér og mínum.
Ég kveð með sorg í hjarta og er
viss um að mamma þín, Jenni
minn og Gunna amma taka vel á
móti þér. Ég lofa að passa
mömmu vel fyrir þig, ég bið guð
að styrkja mömmu í hennar
miklu sorg.
Takk fyrir allt, elsku pabbi.
Þín dóttir,
Anna Guðrún.
Elsku pabbi, ég kveð þig nú
og minnist þín með gleði í
hjarta. Þú varst svo stór hluti af
mínu lífi og ég á þér svo margt
að þakka.
Margar minningar koma upp
í hugann. En þó stendur upp úr
fyrsta alvöruballið mitt. Ég var
búin að spyrja mömmu hvort ég
mætti fara á ball en hún sagði
nei. Þá datt mér það snjallræði í
hug að fara og spyrja pabba.
Auðvitað sagði hann strax já. Á
sama tíma bað vinkona mín for-
eldra sína um leyfi til þess að
gista hjá mér. Hún fékk leyfi til
þess en um kvöldið þurfti
mamma hennar að tala við hana
og hringdi heim til mín. Þá svar-
aði pabbi í símann og sagði: Nei,
þær eru farnar á ball! Eins og
ekkert væri sjálfsagðara. Og
auðvitað skemmtum við okkur
konunglega. En það voru ekki
allir jafn hressir með þetta
uppátæki. En svona var hann
pabbi bara. Hann sagði alltaf já.
Ég kveð þig, pabbi minn, með
fallegasta ljóðinu sem ég fann.
Englar Guðs þér yfir vaki og
verndi pabba minn
vegir okkar skiljast núna, við
sjáumst ekki um sinn.
En minning þín hún lifir í
hjörtum hér
því hamingjuna áttum við með
þér.
Þökkum kærleika og elsku,
þökkum virðingu og trú
þökkum allt sem af þér gafstu,
okkar ástir áttir þú.
Því viðmót þitt svo glaðlegt var
og góðleg var þín lund
og gaman var að koma á þinn
fund.
Með englum Guðs nú leikur þú
og lítur okkar til
nú laus úr viðjum þjáninga, að
fara það ég skil.
Og þegar geislar sólar um
gluggann skína inn
þá gleður okkar minning þín,
elsku pabbi minn.
Vertu góðum Guði falinn er hverf-
ur þú á braut
gleði og gæfa okkur fylgdi með
þig sem förunaut.
Og ferðirnar sem förum við um
landið út og inn
er fjársjóðurinn okkar pabbi
minn.
(Guðrún Sigurbjörnsdóttir.)
Þín dóttir,
Ása Ósk.
Föðurminning.
Englar Guðs þér yfir vaki og
verndi pabba minn
vegir okkar skiljast núna, við
sjáumst ekki um sinn.
En minning þín hún lifir í
hjörtum hér
því hamingjuna áttum við með
þér.
Þökkum kærleika og elsku,
þökkum virðingu og trú
þökkum allt sem af þér gafstu,
okkar ástir áttir þú.
Því viðmót þitt svo glaðlegt var
og góðleg var þín lund
og gaman var að koma á þinn
fund.
Með englum Guðs nú leikur þú
og lítur okkar til
nú laus úr viðjum þjáninga, að
fara það ég skil.
Og þegar geislar sólar um
gluggann skína inn
þá gleður okkar minning þín,
elsku pabbi minn.
Vertu góðum Guði falinn er hverf-
ur þú á braut
gleði og gæfa okkur fylgdi með
þig sem förunaut.
Og ferðirnar sem förum við um
landið út og inn
er fjarsjóðurinn okkar pabbi
minn.
(Guðrún Sigurbjörnsdóttir.)
Elsku pabbi minn. Ég kveð
þig með miklum söknuði og
þökk fyrir allt sem þú varst
mér. Þín minning er ljós sem lif-
ir og lýsir um ókomna tíð, megi
Guð varðveita þig og styrkja
okkur hin.
Þinn sonur,
Ólafur Sveinn Ásgeirsson.
Elsku pabbi minn.
Ég trúi því varla að það sé
komið að leiðarlokum hjá þér og
að ég þurfi að kveðja þig í
hinsta sinn. Mig langar að
kveðja þig með nokkrum fátæk-
legum orðum.
Ég þakka þér alla þá ástúð,
hlýju og hugulsemi sem þú
sýndir mér og fjölskyldu minn
alla tíð. Ég var yngsta barnið
þitt af stórum hóp og þó að ég
væri orðin fullorðin og sjálf orð-
in móðir var ég samt alltaf litla
barnið þitt. Hversu miklar sem
annir þínar voru gafstu þér allt-
af tíma til að sinna barnabörn-
unum Óðni og Anítu sem tóku
fagnandi á móti þér í hvert sinn
er þú komst í heimsókn. Og
varla leið sá dagur að ég heyrði
ekki í þér eða hitti þig.
Oft fór ég í göngutúr með
börnin í vagninum og hitti þig á
holtinu við fjárhúsin þegar þú
varst að sinna kindunum. Þegar
þú komst í heimsókn varstu æv-
inlega að gefa Óðni eitthvað í
baukinn sinn og svo vildir þú að
Aníta fengi örugglega nóg að
borða því hún var svo matlyst-
ug.
Oft var asinn á þér mikill og
margt að gera, enda gustaði um
húsið þegar þú komst inn, samt
gafstu þér alltaf tíma fyrir okk-
ur en svo var sami hvellurinn út
og hurðin skall á hæla þér.
Þú gerðir aldrei neinar kröfur
eða óskir sjálfum þér til handa
en varst alltaf boðinn og búinn
að liðsinna og leysa úr vanda-
málum annarra og taldir aldrei
eftir þér sporin í annarra þágu.
En ef þú baðst um smáviðvik
var eins og þú værir að fara
fram á stórgreiða og hafðir allt-
af áhyggjur af því að vera að
íþyngja öðrum.
Þú gladdist þegar öðrum
vegnaði vel og fylgdist grannt
með stóra hópnum þínum, börn-
um og barnabörnum og varst
stoltur af þínum stóra hóp.
Elsku pabbi, ég vona og veit
að nú hafið þið Gunna amma
hitt hvort annað og eruð trúleg-
ast farin að spjalla saman og
gera að gamni ykkar eins og þið
voruð vön.
Við áttum hér saman svo indæla
stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna
fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson.)
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Elsku besti pabbi minn, það
er sárt og erfitt að kveðja þig en
eftir sitja góðar minningar að
ylja sér við. Elska þig.
Þín dóttir,
Ásta Ýr Ásgeirsdóttir
Við sitjum hér með brostið
hjarta og skrifum kveðjuorð til
elsku Geira afa sem er látinn
langt fyrir aldur fram. Geiri afi
var alltaf hress og léttur í
lundu, alltaf tók hann á móti
manni úti á hlaði í vinnugall-
anum og yfirleitt blótandi yfir
vél sem ekki virkaði eða veðr-
inu.
Ein minning okkar er bát-
urinn uppi við hesthús, þegar
maður kom fór maður í druslu-
fötin og spurði afa hvort við
mættum fara upp í bát að leika
og alltaf var það sjálfsagður
hlutur. Þegar leikurinn í bátn-
um var búinn var svo farið með
afa niður á holt á dráttarvélinni
eða fjórhjólinu. Það er margt
sem kemur upp í hugann, en
þetta verða okkar síðustu orð.
Hvíl í friði, afi.
Barnið bíður við glugga:
„Hvar er afi minn?“
Barnið bíður við glugga,
biður um afa sinn.
Afi minn er allur,
aldurinn sigraði hann.
Afi minn er allur,
maðurinn sem ég ann.
Afi og amma áttu mig,
mín fyrstu lífsins ár.
Ef fleiri hefði ég fengið,
mín tilvist væri ögn skár.
Mín fyrstu spor og fyrstu orð,
lærðust í návist þinni.
Öll þín viska og vitur orð
situr fast í mínu minni.
Afi, hlý og hjartnæm sál,
hændist nokk að konum.
Glettinn, glaður og kveikti bál,
ef sá gállinn var á honum.
Oft ég græt og bæn ég bið,
til blessunar börnum mínum.
Eitt er víst og að góðum sið,
ég var ávallt í bænum þínum.
Afi góði, guði er hjá,
glitrar tár á vanga mömmu.
Á himni nýja stjörnu má sjá,
við hlið stjörnunnar hennar
ömmu.
Barnið bíður við glugga:
„Hvar er afi minn?“
Barnið bíður við glugga,
biður um afa sinn.
Megi Guð blessa minningu
hans.
Þín barnabörn,
Sigrún Jenný og
Ernst Guðni.
Elsku besti afi minn.
Núna ert þú horfinn frá okk-
ur og mér er svo illt í hjartanu
og tóm inni í mér, ég sakna þín
svo mikið. Minningarnar sem ég
á um þig eru svo margar, afi
minn, og þær ætla ég að geyma
vel svo ég gleymi þér aldrei. Ég
er svo þakklát fyrir að hafa átt
heima svona stutt frá þér og
ömmu og að hafa getað farið í
sveitina til ykkar þegar mig
langaði.
Það eru svo margar góðar
stundir sem við höfum átt sam-
an og þú varst alltaf svo góður
og skemmtilegur afi. Þú hafðir
alltaf allan heimsins tíma fyrir
okkur krakkana þína og það var
svo gaman að fá að brasa með
þér og pabba í kinda- og hest-
astússi, heyskap og svoleiðis.
Þú varst alltaf að passa upp á
alla í kringum þig, passa að dýr-
unum þínum liði vel og að okkur
litlu barnabörnunum þínum liði
vel. Þú komst oft heim til okkar
bara svona rétt til þess að vita
hvernig við hefðum það og svo
varstu farinn aftur áður en við
vorum búin að átta okkur á að
þú værir kominn. Ég veit líka að
þú munt halda áfram að fylgjast
með okkur og passa upp á okk-
ur og það er sko mikil vinna, því
að við erum svo mörg. En þú
verður nú ekki í vandræðum
með það.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
(Pétur Þórarinsson.)
Hafðu þökk fyrir allt, elsku
besti afi minn, það er gæfa mín
að hafa átt afa eins og þig. Þú
munt ávallt eiga stað í hjarta
mínu,
Þín afastelpa,
Harpa Hlín Ólafsdóttir.
Nú ert þú farinn til Guðs,
elsku afi minn.
Ég er svo leiður og sorg-
mæddur, ég sakna þín svo sárt.
Ég vissi ekki að þú myndir
deyja þegar ég væri bara sex
ára, ég átti eftir að gera svo
margt með þér. Það skemmti-
legasta sem ég gerði var að fá
að vinna með þér og pabba og
að fara með þér í dráttavélinni
að kíkja á hrossin og gefa þeim.
Þú hafðir líka alltaf tíma til að
hjálpa mér þegar ég réði ekki
alveg sjálfur við verkin sem ég
vildi gera uppi á Felli.
Ef ég var eitthvað leiður þeg-
ar pabbi var nýfarinn á sjóinn
þá gat ég alltaf hringt í þig og
þú komst og sóttir mig. Við átt-
um líka eitt leyndarmál saman
ég og þú sem mamma mátti
ekki vita en hún veit það samt
alveg núna, þú kenndir mér
nefnilega að drekka kaffi og síð-
ustu daga er ég sko búinn að
drekka marga kaffibolla. En við
erum samt búin að semja um að
ég drekki það bara spari þar til
ég verð stór.
Takk fyrir allt, afi minn, ég
mun sakna þess að sjá þig ekki
en ég veit að nú verður þú engill
sem passar mig. Þú veist að þú
getur treyst því að ég verð dug-
legur að hjálpa pabba og ömmu
að gera það sem þarf að gera.
Ég bið Guð að passa þig um alla
eilífð.
Þinn vinur og afastrákur,
Almar Atli Ólafsson.
Elsku hjartans afi minn, ég
kveð þig í dag með trega, tárum
og söknuði í hjarta en um leið er
ég svo ótrúlega þakklát fyrir all-
ar minningarnar sem ég á um
þig. Ég er þér þakklát fyrir all-
ar stundirnar sem við höfum átt
saman og þegar ég rifja þær
upp get ég ekki varist brosi.
Ég man svo vel þegar ég
hætti fyrr á leikskólanum síð-
asta vorið mitt þar því mér
fannst miklu skemmtilegra að fá
að fara til þín á morgnana og
eyða deginum með þér í bú-
störfum. Saman áttum við leyni-
stað í dráttarvélinni þar sem við
geymdum nammið okkar og
þetta vor lærði ég 6 ára gömul
lög Álftagerðisbræðra utan að
sem við hlustuðum á í dráttavél-
inni þinni. Í hádeginu var svo al-
gjört uppáhald að fara inn og fá
„afagraut“ en það hef ég alltaf
kallað makkarónugraut.
Eitt sumarið fyrir nokkrum
árum var heyskapurinn búinn
frekar snemma hjá þér og þá
komuð þið amma með okkur
fjölskyldunni í útilegu. Það var
svo gaman hjá okkur öllum,
veðrið var fábært og þú naust
þess virkilega að fá frí og
Ásgeir Guðni
Axelsson
HINSTA KVEÐJA
Nú er okkar tími liðinn um sinn,
ég sakna þín afi minn.
Við höfðum alltaf gaman,
en seinna verðum við saman.
Oft við bekknum sváfum í,
og hvíldum lúin bein.
En í útigallann aftur fórum,
til að sinna þeim.
Þinn
Jens Kristofer.
Elsku hjartans amma mín.
Núna ertu farin frá okkur hérna
á jörðinni. Ég man hvað það var
alltaf gaman að koma í heimsókn
til þín og spjalla við þig og spila.
Það var gott hvað þú áttir
heima nálægt mér hérna í Kópa-
voginum. Ég gat alltaf labbað til
þín eða hjólað og komið á pallinn
á sumrin, í sólina og við spjöll-
uðum oft saman.
Áslaug
Sigurðardóttir
✝ Áslaug Sigurð-ardóttir fædd-
ist 25. desember
1923 í Syðri-
Gegnishólum í Flóa
í Árn. Hún lést 7.
júní 2011.
Áslaug var jarð-
sungin frá Kópa-
vogskirkju mið-
vikudaginn 15. júní
2011.
Sumarið 2004
man ég mjög vel eft-
ir því að þú lentir í
hræðilegu slysi og
ég man enn hvað
mér leið ömurlega
þegar þú lentir í því.
Ég fékk alveg sting
fyrir hjartað og allt,
aðeins 8 ára gamall.
Mér fannst þetta
sumar rosalega
gaman að kíkja í
heimsókn til þín á Rauðakross-
heimilið á Rauðarárstíg, þar sem
þá var Fosshótel. Svo eigum við
milljón aðrar minningar sem ég
væri í heilt ár að telja upp. Það
var alltaf gott að koma til þín og
maður var alltaf velkominn. Þín
verður sárt saknað, elsku amma
mín, og hvíldu í friði. Minning þín
mun alltaf lifa.
Arnar Örn.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL BIRGIR SÍMONARSON,
Borgarheiði 10 H,
Hveragerði,
lést mánudaginn 13. júní.
Axel Pálsson, Ingveldur Birgisdóttir,
Símon Pálsson, Lilja Guðmundsdóttir,
Guðmundur Pálsson,
Sigurbjörg Pálsdóttir, Jóhann Þorsteinsson,
Herbert Pálsson, Jóhanna Vilhjálmsdóttir,
afa- og langafabörn.