Morgunblaðið - 18.06.2011, Síða 34
34 MINNINGAR
Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2011
AÐVENTKIRKJAN:
Aðventkirkjan í Reykjavík | Samkoma í
dag, laugardag, kl. 11 hefst með biblíu-
fræðslu. Einnig er boðið upp á biblíufræðslu
á ensku. Guðsþjónusta kl. 12. Þóra S. Jóns-
dóttir prédikar.
Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum | Sam-
koma í dag, laugardag, kl. 11. Boðið upp á
biblíufræðslu. Guðþjónusta kl. 12. Bein út-
sending frá kirkju aðventista í Reykjavík.
Þóra Jónsdóttir prédikar þar.
Aðventsöfnuðurinn á Suðurnesjum |
Samkoma í dag, laugardag, kl. 11 í Reykja-
nesbæ hefst með biblíufræðslu. Guðsþjón-
usta kl. 12. Manfred Lemke prédikar.
Aðventsöfnuðurinn í Árnesi | Samkoma á
Selfossi í dag, laugardag, kl. 10, hefst með
biblíufræðslu. Guðsþjónusta kl. 11. Elías
Theódórsson prédikar.
Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Sam-
koma í Loftsalnum í dag, laugardag, hefst
með fjölskyldusamkomu kl. 11. Björgvin
Snorrason prédikar. Biblíufræðsla kl. 11.50.
Boðið upp á biblíufræðslu á ensku.
BOÐUNARKIRKJAN | Samkoma í dag,
laugardag, kl. 11.
Samfélag Aðventista á Akureyri | Sam-
koma í Gamla Lundi í dag, laugardag, hefst
kl. 11 með biblíufræðslu. Guðsþjónusta kl.
12.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11,
dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Kjartan Sigurjónsson er org-
anisti. Kirkjukórinn leiðir almennan safnað-
arsöng. Kirkjukaffi á eftir.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Sigurður
Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt Ásdísi Pétursdóttur Blöndal
djákna. Forsöngvari Pétur Húni Björnsson,
organisti er Magnús Ragnarsson. Upplýs-
ingar um sumarferð safnaðarins 3. júlí nk.
eru í síma 588-8870 og á slóðinni www.as-
kirkja.is.
BESSASTAÐASÓKN | Sameiginleg kvöld-
messa Garðasóknar og Bessastaðasóknar í
Garðakirkju kl. 20. Organisti Jóhann Bald-
vinsson og prestur Hans Guðberg Alfreðs-
son. Rúta fer frá Vídalínskirkju kl. 19.30, frá
Jónshúsi kl. 19.35 og frá Hleinum kl. 19.40
og til baka að lokinni athöfn.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Sameiginleg göngu-
messa þjóðkirkjusafnaðanna í Breiðholti í
Fella- og Hólakirkju kl. 20. Safnast saman
við Breiðholtskirkju kl. 19 og gengið þaðan
að Fella- og Hólakirkju. Að messu lokinni er
bílferð frá Fella- og Hólakirkju að Beiðholts-
kirkju. Ekki er messað í Breiðholtskirkju
þennan dag.
BÚSTAÐAKIRKJA | Kvennamessa kl. 11.
Glæðurnar, kór Kvenfélags Bústaðasóknar,
syngja undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur
organista, prestur er sr. Guðný Hallgríms-
dóttir. Messuþjónar aðstoða. Kaffi á eftir.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
Guðni Már Harðarson. Organisti er Zbigniew
Zuchowicz.
EMMANÚELS Baptistakirkjan – Emm-
anuels Baptist Church | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli fyrir börn (Mass & Sunday-
school) nk. sunnudag kl. 12-13.30 í stærð-
fræðistofu 202 í Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ. Veitingar á eftir. Prestur sr. Ro-
bert Andrew Hansen. Guðsþjónusta á ensku
og íslensku (in English & Icelandic). Ath.
skráning á Biblíunámskeið enn opin. Þurfi
að sækja hringið í s. 847-0081.
FELLA- og Hólakirkja | Kirkjurnar í Breið-
holti standa fyrir göngumessum í hverfinu
sem eiga það allar sameiginlegt að byrja og
enda við kirkju. Síðasta ganga sumarsins
verður 19. júní. Þá verður lagt af stað frá
Breiðholtskirkju kl. 19 og gengið til kvöld-
messu í Fella- og Hólakirkju sem hefst kl.
20. Hressing að messu lokinni.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingarmessa
kl. 14. Prestur er séra Bryndís Valbjarn-
ardóttir. Kór Fríkirkjunnar í Reykjavík mun
leiða tónlistina ásamt Aðalheiði Þorsteins-
dóttur orgelleikara.
GARÐAKIRKJA | Sameiginleg kvöldmessa
Garðasóknar og Bessastaðasóknar í Garða-
kirkju kl. 20. Organisti Jóhann Baldvinsson
og prestur Hans Guðberg Alfreðsson. Rúta
fer frá Vídalínskirkju kl. 19.30, frá Jónshúsi
kl. 19.35 og frá Hleinum kl. 19.40 og til
baka að lokinni athöfn
GRAFARVOGSKIRKJA | Útvarpsguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Guðrún Karlsdóttir, sr. Sig-
rún Óskarsdóttir og sr. Kristín Þórunn Tóm-
asdóttir prédika og þjóna fyrir altari ásamt
messuþjónum. Kammerkór Grafarvogskirkju
syngur. Organisti er Hákon Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10 og
bænastund kl. 10.15. Messa kl. 11. Altaris-
ganga. Samskot til Umhyggju, félags lang-
veikra barna. Messuhópur. Kirkjukór Grens-
áskirkju syngur, organisti er Árni Arinbjarnar-
son. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson.
Molasopi eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Þrenningarhá-
tíð. Helgistund kl. 11. Prestur sr. Þórhildur
Ólafs.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
María Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er
Björn Steinar Sólbergsson. Sögustund fyrir
börnin. Alþjóðlegt orgelsumar kl. 17. Björn
Steinar Sólbergsson leikur.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Organisti
er Douglas A. Brotchie. Prestur sr. Tómas
Sveinsson.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11.
Samstarf Þjóðkirkjusafnaðanna í Kópavogi.
Sr. Gunnar Sigurjónsson þjónar. Organisti er
Jón Ólafur Sigurðsson. Sjá einnig á
www.hjallakirkja.is.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma kl. 20. Umsjón: Salvation Riders.
HÓLADÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Gunnar Jóhannesson messar, organisti er
Jóhann Bjarnason. Tónleikar kl. 14. Alex-
andra Chernyshova sópran og Katie Buckley
hörpuleikari.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl.
20 með lofgjörð og fyrirbænum. Friðrik
Schram predikar. Kaffi eftir samkomuna.
www.kristskirkjan.is
KAÞÓLSKA kirkjan:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og
laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl. 11
og 19. Virka daga er messa kl. 18.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema föstu-
daga).
Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl.
8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30
og á ensku kl. 18. Virka daga er messa kl.
18.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk | Messa
kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laugardaga
er messa á ensku kl. 18.30.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka
daga kl. 18.30.
Ísafjörður | Messa kl. 11.
Flateyri | Messa laugardag kl. 18.
Bolungarvík | Messa kl. 16.
Suðureyri | Messa kl. 19.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Gamaldags messa
og kruðerí kl. 19.15. Fjallað verður um sögu
kirkjunnar. Jóhann Smári Sævarsson óperu-
söngvari syngur. Arnór Vilbergsson er við
hljóðfærið. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14,
athugið breyttan tíma. Sr. Guðni Már Harð-
arson prédikar og þjónar fyrir altari. Org-
anisti er Lenka Mátéová.
KVENNAKIRKJAN | Kvenréttindamessa við
Þvottalaugarnar í Laugardal kl. 20 í tilefni af
19. júní. Messan er haldin í samvinnu við
Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélaga-
samband Íslands. Sr. Auður Eir Vilhjálms-
dóttir prédikar, Ásdís Þórðardóttir leikur á
trompet og Björg Þórhallsdóttir syngur ein-
söng. Kór Kvennakirkjunnar leiðir söng við
undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Kaffi í
Café Flóru í Grasagarðinum á eftir.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.
Þrenningarhátíð. Efni messunnar tekur einn-
ig mið af lýðveldisdegi og kvennafrídegi. Dr.
Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor og
fulltrúi á stjórnlagaþingi, prédikar. Graduale
Nobili syngur undir stjórn Jóns Stefánsson-
ar. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Kaffi-
sopi. Síðasta guðsþjónustan í Langholts-
kirkju fyrir sumarleyfi.
LAUGARNESKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20.
Erla Björk Jónsdóttir guðfræðingur annast
stundina. Örn Arnarsson gítarleikari spilar
og kór Laugarneskirkju syngur.
LÁGAFELLSKIRKJA | Bænar- og kyrrðar-
stund með altarisgöngu kl. 20. Tólistarflutn-
ing annast Jón Guðmundsson á þverflautu
og Arnhildur Valgarðsdóttir á orgel. Prestur
sr. Ragnheiður Jónsdóttir.
MÖÐRUDALSKIRKJA | Messa kl. 14.
Fermd verða Vilborg Björgvinsdóttir, Selási
14, Egilsstöðum og systkinin Tinna Hrönn
og Halldór Bjarki Guðmundsbörn, Koltröð
11, Egilsstöðum. Sr. Lára G. Oddsdóttir pré-
dikar og þjónar fyri altari, organisti er Krist-
ján Gissurarson.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr Kór
Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti
Bjarni Jónatansson. Sr. Sigurður Árni Þórð-
arson prédikar og þjónar fyrir altari. Sam-
félag og kaffi á Torginu eftir messu.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17 í
safnaðarheimili Grensáskirkju. Ræðumaður
Haraldur Jóhannsson.
SELJAKIRKJA | Gönguguðsþjónustur safn-
aðanna í Breiðholti. Að þessu sinni verður
gengið frá Breiðholtskirkju kl. 19 til guðs-
þjónustu í Fella- og Hólakirkju sem hefst kl.
20.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgistund kl.
11, sr. Sigurður Grétar Helgason. Sálma-
söngur, ritningarlestur og altarisganga.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Helgi-
stund á sumarkvöldi kl. 20. Kór Víðistaða-
sóknar syngur undir stjórn Arngerðar Maríu
Árnadóttur. Prestur sr. Bragi J. Ingibergsson.
ORÐ DAGSINS:
Kristur og Nikódemus.
(Jóh. 3)
Hrafnseyri
✝ Sigurjón HólmSigurðsson
(Hólmi) fæddist á
Skeiði í Fljótum,
Skagafirði 19.
ágúst 1917. Hann
lést á sjúkradeild
Hornbrekku í
Ólafsfirði 5. júní
2011. Hann var
sonur hjónanna
Sigurðar Gunn-
laugs Jóhann-
essonar frá Lóni í Ólafsfirði
og Þórunnar Jónsdóttur frá
Kálfsá í sömu sveit. Þau
bjuggu lengst af á Vermund-
arstöðum í Ólafsfirði. Systkini
Sigurjóns voru: Jón, f. 1912,
látinn; Elínborg, f. 1913, látin;
Sigurbjörg, f. 1915, látin;
Sumarrós, f. 1918, látin; Lís-
bet, f. 1920, látin; Sólveig, f.
1924, og Hannes, f. 1925, lát-
inn.
Á bernskuárum Sigurjóns
var farskóli í heimasveit hans
þar sem hann lauk hefð-
bundnu fullnaðarprófi barna.
Seinna lærði hann og fékk
staðbundin lögregluþjónsrétt-
indi í Ólafsfirði en einnig fór
Hólmi að rækta blett sem
hann tók frá úr landi Ver-
mundarstaða er hann seldi bú-
jörðina sína. Hann kom sér
upp sumarhúsi og ræktaði
skóg þar sem áður voru melar
og mýrarsund, bar mold og
áburð í holur svo þar gætu
þrifist blóm. Einnig stíflaði
hann skurð svo endur og aðrir
sundfuglar hefðu góðan poll
til að synda á en fuglar voru
hans sérstaka áhugamál. Fyrir
gróðursetningu og ræktun í
sumarlandinu fékk hann við-
urkenningu Ólafsfjarðarbæjar.
Sigurjón var handlaginn og
smíðaði ýmsa góða gripi, s.s.
kistla og klukkur. Hann
þekkti flestar jurtir og tíndi
grös og bjó til úr þeim heilsu-
drykki. Hreystin og eljusemin
virtust óþrjótandi fram á síð-
asta árið sem hann lifði, þá að
verða 94 ára gamall.
Fósturbörn Sigurjóns og
Huldu eru: Skjöldur Gunn-
arsson, f. 1946. Kristín Emma
Cordova, f. 1964, Hún var áð-
ur gift Gunnari Gunnarssyni
og á með honum tvær dætur.
Maki hennar er Sigursveinn
Jónsson. Rebekka Cordova, f.
1965. Maður hennar er Jakob
Ásmundsson. Þau eiga þrjú
börn og eitt barnabarn.
Útför Sigurjóns var gerð
frá Ólafsfjarðarkirkju 11. júní
2011.
hann í Iðnskóla
Ólafsfjarðar og
lauk þaðan bak-
aranámi.
Á gamlársdag
1954 eftir sjö ára
sambúð kvæntist
Sigurjón eftirlif-
andi eiginkonu
sinni, Huld Krist-
jánsdóttur úr
Ólafsfirði. Fyrstu
árin bjuggu þau í
Aðalgötu 11 í Ólafsfirði. Hug-
ur Sigurjóns var þó alltaf í
sveitinni og vorið 1954 hóf
hann búskap með konu sinni á
Vermundarstöðum í Ólafsfirði.
Fyrsta árið bjuggu þau þar
ásamt foreldrum Sigurjóns
sem fluttu þegar Sigurjón
keypti af þeim jörðina. Hjónin
bjuggu á Vermundarstöðum í
27 ár eða þar til þau brugðu
búi og áttu þau síðan heima í
Bylgjubyggð 27 í Ólafsfirði.
Eftir að búskap lauk vann
hann í salthúsi Sigvalda Þor-
leifssonar til 75 ára aldurs.
Þótt bóndinn færi úr sveitinni
fór sveitin ekki úr bóndanum.
Rúmlega hálfáttræður fór
Elsku pabbi, nú ert þú horf-
inn frá okkur og söknuðurinn er
sár en minningarnar sem við
eigum um þig eru margar og
dýrmætar og hafa reynst okkur
ómetanlegt veganesti út í lífið.
Þú hefur verið okkur fyrirmynd
með vilja þínum og dugnaði, ör-
læti, höfðinglegri gjafmildi og
fórnfúsri ást.
Við vorum ekki gamlar þegar
þú tókst okkur til þín í fóstur og
frá fyrstu stundu reyndist þú
litlu systrunum umhyggjusamur
og kærleiksríkur faðir enda liðu
ekki margar vikur þar til við
kölluðum þig pabba. Við fundum
ætíð hjá þér athvarf og öryggi
sem var okkur mikils virði.
Þú varst alla tíð nátengdur
náttúrunni og kenndir okkur
fljótt að það ætti að bera virð-
ingu fyrir lífríkinu öllu í sínum
margbreytileika. Snemma tókstu
okkur með í léttari verk sem
þurfti að vinna á bænum og leið-
beindir okkur af mikilli þolin-
mæði sem ekki veitti af því ekki
vorum við háar í loftinu. Það var
mikil gjöf að fá að alast upp í
þessu umhverfi sveitarinnar og
við alúðina sem þú sýndir okkur.
Okkur systrunum eru minn-
isstæðar stundir að vetrarlagi
þegar þú tókst okkur með þér að
ná í kindur sem reka átti heim í
hús. Við trítluðum á eftir þér í
snjónum og börðumst við að
halda í við þig enda stórstígur
og fórst hratt yfir. Það er sem
við heyrum þig segja ef við
drógumst aftur úr: „Komið þið
stelpur og takið í höndina á
mér“ og þá var gott að fá að
lauma köldum lófunum í stóru
hlýju hendurnar þínar. Þú
gekkst alltaf á undan okkur ef
fönnin var mikil svo við gætum
gengið í sporunum. Ef við gátum
ekki meira þá tókstu okkur í
fangið eða á bakið og barst okk-
ur heim.
Hvíl í friði elsku pabbi og
hafðu þakkir fyrir allt sem þú
hefur verið okkur. Þín er og
verður mikið saknað á meðan við
munum og lifum.
Dætur þínar,
Kristín Emma Cordova
og Rebekka Cordova.
Bóndinn á Vermundarstöðum
í Ólafsfirði, hann Hólmi, var há-
vaxinn, karlmannlegur, nokkuð
stórskorinn og beinaber en hlýr
og glettinn í viðmóti. Hann
brosti á sinn kankvísa hátt þeg-
ar hann heilsaði og sagði vel-
komin heillin. Ásamt Huldu sinni
og Skildi tók hann á móti okkur
kaupstaðarbörnunum á sumrin
og sá okkur fyrir ýmsum smá-
verkum þannig að okkur þóttu
þau mikilvæg hvert og eitt.
Hólmi var barnavinur. Ef við
vorum dauf í dálkinn lék hann
kúnstir fyrir okkur, t.d. að
hreyfa eyrun og blaka þeim, en
sama hvað við reyndum gátum
við aldrei leikið það eftir. Hann
vakti með okkur spurningar um
líf dýranna, veðurfar og sprettu
og gat líka verið stríðinn þegar
sá gállinn var á honum. Hólmi
var veðurglöggur maður. Hann
bankaði létt á barómetið, gekk
út á tröppur og leit út dalinn og
til himins og þurfti varla frekari
veðurspá. Hann kunni á veðrið
og hagaði verkum eftir því.
Hólmi var sívinnandi, eins og
Hulda, og þau voru afar sam-
hent. Ef ekki var unnið í hey-
skap smíðaði hann, gerði við og
skar jafnvel upp mó. Iðjusemin
hafði áhrif á okkur krakkana. Ef
rigndi þá prjónuðum við neðan
við sem kallað var. Þá nýttum
við stroffið á slitnum leistum og
prjónuðum neðan við það nýja
leista. Hann brýndi ljáina á
hverfisteininum á hlaðinu, dytt-
aði að útihúsunum, byggði súr-
heysturninn, smíðaði og steypti,
allt gat Hólmi. Og í seinni tíð
eftir að þau Hulda fluttu niður í
bæ bjó hann til ýmsa smíðishluti
í bílskúrnum. Allt lék í hönd-
unum á honum. Hann var í senn
bóndi, dýravinur, mannvinur,
veðurfræðingur, smiður, múrari,
og svo ótal margt annað.
Á síðari árum var Hólmi ým-
ist framfrá eða niðurfrá, eins og
hann orðaði það, þ.e. í bústaðn-
um þeirra Huldu í sveitinni eða
niðri á Ólafsfirði. Eitt það síð-
asta sem hann sagði við mig
þegar ég kvaddi hann um daginn
var: „Þið komið frameftir í sum-
ar, er það ekki?“ Hugurinn
hvarflaði til fyrri daga í bú-
skapnum, var hjá fénu sem var
lengst uppi á dal og hann lýsti
nákvæmlega slóðum yfir fjalla-
skörð sem hægt var að komast
úr dalnum hans ofan við Ver-
mundarstaði, t.d. niður að Lundi
í Fljótum. Allt hafði hann geng-
ið.
Fyrir nokkrum árum gekk ég
með Hólma eftir görðunum fyrir
neðan Reykjarétt og hann benti
á ýmsar tóftir og var þess full-
viss að þar væru minjar um
forna búsetu. Hann þekkti hvern
hól og hverja þúfu og stikaði um
landið sem hann var í fullkomn-
um samhljómi við og nánast
hluti af.
Við systkinin erum þakklát
fyrir að hafa fengið að vera börn
í sveit á Vermundarstöðum,
hvert á sínum tíma. Það var
þroskandi að fá að kynnast bú-
skaparháttum á sjötta og sjö-
unda áratug síðustu aldar þar
sem Gráni gamli var í fyrstu
dráttarklárinn en seinna kom
traktor. Ýmsar minningar skjóta
upp kollinum: Mjólkurbrúsar á
palli, suðupottur í kjallaranum,
bæjarlækurinn og allt berjaland-
ið, allt var svart af berjum. Og
kýrnar hver á sínum bás:
Huppa, Skjalda, Rauðka og allar
hinar. En fyrst og fremst er ég
þó þakklát fyrir gæsku og visku
Hólma og Huldu sem hafa verið
mér mikilsvert veganesti í lífinu.
Anna Sjöfn Sigurðardóttir.
Sigurjón Hólm
Sigurðsson