Morgunblaðið - 18.06.2011, Page 40
40 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2011
Sudoku
Frumstig
3 2 9 4 7
1 5 7 8
4 1
5 1 7 4 8
2 8
4 3 8
5 9 3
7 9
9 6 8
4 7 1 2
8 4 1 5
8 9 5 4
5 6 2 9
1
1 2
4
5 8
5 4 2 8
1 4 7 9
9 5
9 2
2 5 6
4 6
2 7 4
8 9 6
2 8
1 4 3 5 8 9 6 7 2
6 5 8 1 7 2 4 9 3
2 7 9 4 6 3 1 8 5
5 8 6 3 9 1 7 2 4
9 1 4 7 2 6 5 3 8
7 3 2 8 4 5 9 1 6
8 6 1 9 3 4 2 5 7
4 9 7 2 5 8 3 6 1
3 2 5 6 1 7 8 4 9
3 2 5 7 4 1 8 6 9
8 9 7 3 6 2 5 4 1
4 6 1 9 5 8 3 2 7
9 3 2 5 7 4 6 1 8
1 8 4 2 9 6 7 3 5
5 7 6 8 1 3 2 9 4
2 1 8 4 3 5 9 7 6
7 4 3 6 8 9 1 5 2
6 5 9 1 2 7 4 8 3
9 7 6 5 1 2 8 3 4
1 5 2 4 3 8 6 9 7
3 8 4 9 7 6 5 2 1
6 3 9 8 5 1 7 4 2
5 2 7 6 4 9 3 1 8
4 1 8 7 2 3 9 5 6
2 6 5 1 9 7 4 8 3
8 9 3 2 6 4 1 7 5
7 4 1 3 8 5 2 6 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 18. júní, 169. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: Enginn er þinn líki,
Drottinn! Mikill ert þú og mikið er
nafn þitt sakir máttar þíns.
(Jeramía 10, 6.)
Líkt og aðrir landsmenn fylgdistVíkverji af aðdáun með hjón-
unum sem hlupu hringinn í kringum
landið til styrktar krabbameins-
sjúkum börnum. Yfirskrift hlaups-
ins: Meðan fæturnir bera mig, átti
svo sannarlega vel við. Nær yfirbug-
uð af þreytu en taumlausri ánægju
komu þau í mark eftir 1.350 kíló-
metra langt hlaup á tveimur vikum
og mátti eðlilega sjá tár á hvarmi
þegar fjöldi fólks tók á móti þeim við
Valsheimilið í Reykjavík. Sannar-
lega mikil gleðistund, enda mikið af-
rek að baki þar sem hlaupið var við
allar þær aðstæður sem íslensk
veðrátta hefur upp á að bjóða.
x x x
Sama dag fór fram önnur og hljóð-látari athöfn ekki langt frá, á
Bessastöðum, þar sem forseti Ís-
lands veitti ellefu einstaklingum
fálkaorðuna. Vafalítið átti allt það
ágæta fólk heiðurinn skilinn en Vík-
verji hugsaði til þess að ef einhverjir
Íslendingar nútímans ættu sannar-
lega skilið að fá fálkaorðuna þá væru
það hlaupahjónin, þau Signý Gunn-
arsdóttir og Sveinn Benedikt Rögn-
valdsson, foreldrar stráksins
Krumma, sem barðist hetjulega við
krabbamein, og Guðmundur Guðna-
son og Alma María Rögnvaldsdóttir.
Mætti fimmta fálkaorðan einnig fara
á háls Krumma. Það er vegna
hvunndagshetja af þessu tagi sem
Víkverji er stoltur af því að vera Ís-
lendingur. Sterk bein þarf til að
ganga í gegnum erfiða krabbameins-
meðferð, jafnt fyrir sjúklinginn sem
aðstandendur, og að rísa upp úr því
með jafn eftirminnilegum hætti og
hlaupararnir gerðu er aðdáunarvert
og til eftirbreytni.
x x x
Ennþá er hægt að leggja söfn-uninni lið, en í gær höfðu nærri
13 milljónir króna safnast, og hvetur
Víkverji alla til að fara inn á vefsíð-
una mfbm.is og leggja sitt af mörk-
um. Þó að hlaupið sé afstaðið er
hægt að hlaupa í anda með þessum
hetjum og styrkja gott málefni. En
orðurnar skal forseti vor alvarlega
íhuga. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 kalsi, 4 mæla, 7
klúra, 8 skjóllaus, 9 gutl, 11
svelgurinn, 13 at, 14 þver-
spýtunnar, 15 ávöl hæð, 17
aða, 20 ambátt, 22 afkom-
enda, 23 gól, 24 korns, 25
líkamsæfing.
Lóðrétt | 1 blökkumaður, 2
reyna, 3 einkenni, 4 háð, 5
missa marks, 6 hinn, 10 dýr-
in, 12 nytsemi, 13 þrír eins,
15 hæfa, 16 sveitirnar, 18 sí-
valningur, 19 nemum, 20
skordýr, 21 ferskt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fjöruborð, 8 rofið, 9 ansar, 10 jór, 11 totta, 13 glata, 15
stafs, 18 ógnar, 21 nes, 22 klaga, 23 öngul, 24 flækingur.
Lóðrétt: 2 jafnt, 3 ryðja, 4 bjarg, 5 rústa, 6 brot, 7 brúa, 12 tif,
14 lag, 15 sekk, 16 aðall, 17 snakk, 18 ósönn, 19 neglu, 20 rell.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Umræða á villigötum.
Norður
♠D1065
♥G75
♦10874
♣ÁK
Vestur Austur
♠K73 ♠G92
♥64 ♥K2
♦KDG6 ♦Á52
♣G1042 ♣98753
Suður
♠Á84
♥ÁD10983
♦93
♣D6
Suður spilar 4♥.
Vestur tekur tvo fyrstu slagina á
tígulhjónin, spilar ♦6 í þriðja slag og
sagnhafi trompar ás austurs. Suður
spilar nú eldsnöggt smáum spaða að
blindum og vestur fer á taugum, hik-
ar of lengi og neyðist því til að drepa
á kónginn. Svíningin í trompi heppn-
ast og sagnhafi vinnur sitt spil.
„Þú verður dúkka fumlaust,“ segir
austur ávítandi í eftirmálanum, sem
er auðvitað rétt athugað eins og spil-
ið er vaxið, en „hvað ef suður á ásinn
annan í spaða,“ svarar vestur, alls
ekki tilbúinn að taka á sig fulla sök í
hittingsstöðu.
Jú, vissulega gat suður verið með
♠Áx. En ef vörnin fær bara einn
slag á spaða þarf annan á tromp.
Vestur hefði því átt að spila hjarta í
þriðja slag til að kanna stöðuna í
þeim lit!
18. júní 1000
Kristniboðarnir Gissur hvíti
Teitsson og Hjalti Skeggjason
tóku land á Heimaey. Þar
skipuðu þeir upp viði í kirkju
sem Ólafur konungur
Tryggvason hafði boðað að
reist skyldi þar sem þeir
kæmu fyrst að landi.
18. júní 2000
Grafarvogskirkja í Reykjavík
var vígð. Kirkjan var næst-
stærsta kirkja landsins og
þjónaði fjölmennustu sókn-
inni. Ríkisstjórnin gaf kirkj-
unni glerlistaverk eftir Leif
Breiðfjörð, en það er jafn-
framt altaristafla, tileinkuð
æskunni í landinu.
18. júní 2000
Fjölveiðiskipið Guðrún Gísla-
dóttir frá Keflavík strandaði
við Lofoten í Norður-Noregi.
Tuttugu manna áhöfn bjarg-
aðist. Skipið sökk daginn eftir,
þegar reynt var að draga það
á flot. Þetta var eitt stærsta
skip íslenska flotans og hafði
komið til landsins haustið áð-
ur.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
„Mér líður bara vel með áfangann, þetta er spurn-
ing um hugarfar, hver aldur er jafngóður hvort
sem það er að verða þrítugur, fertugur eða fimm-
tugur“ segir Óskar Þór Halldórsson fram-
kvæmdastjóri knattspyrnudeildar KA og reyndur
blaða- og fréttamaður. „Líðandi vika er búin að
vera mjög þéttskipuð en ég er að halda upp á þrjá-
tíu ára stúdentsafmæli frá Menntaskólanum á Ak-
ureyri og svo er elsti sonur minn að útskrifast
hinn 17. júní úr Menntaskólanum á Akureyri líka,“
segir Óskar.
„Framkvæmdastjórastarfið er mikið og líflegt
þar sem maður hefur mikil samskipti við ógrynni af fólki frá morgni
til kvölds sem er ekki ólíkt blaðamennskustarfinu.
Óskar hefur unnið sem blaðamaður og á ljósvakamiðlum bæði á
Stöð 2 og RÚVum árabil. „Það var mjög þroskandi tími. Það var al-
gjör tilviljum á sínum tíma eins og margt er í lífinu, ég ætlaði alls ekki
að fara í blaðamennsku. Ég er landfræðingur að mennt og ætlaði mér
að vinna við það. Mér bauðst starf á dagblaðinu Tímanum og ég ákvað
að slá til en ætlaði að vera mesta lagi ár. Maður veit víst aldrei hvað
morgundagurinn ber í skauti sér.“ mep@mbl.is
Óskar Þór Halldórsson 50 ára í dag
„Mjög þroskandi tími“
Hlutavelta
Þær Guðbjörg
og Kristín
héldu tombólu
við verslun
Samkaupa í
Hrísalundi og
söfnuðu með
því 868 krónum
sem þær
styrktu Rauða
krossinn með.
Flóðogfjara
18. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.58 0,3 8.00 3,6 14.03 0,4 20.22 4,0 2.56 24.03
Ísafjörður 4.05 0,3 9.52 1,9 16.02 0,4 22.10 2,3 1.34 25.34
Siglufjörður 6.16 0,1 12.39 1,2 18.21 0,3 1.17 25.17
Djúpivogur 4.54 2,0 11.06 0,4 17.30 2,3 23.46 0,6 2.10 23.47
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Sumir dagar eru góðir og aðrir dagar
eru ennþá betri. Vertu skilningsrík/ur og
hlustaðu vandlega á sjónarmið annarra. Ef þú
getur unnt öðrum velgengni gengur þér vel.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Góður endir getur orðið þótt saga sé
einungis hálfnuð. Leystu úr þínum málum og
gakktu svo glaðbeitt/ur áfram í lífinu.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Sjáendur hafa sagt að augu okkar
beri til hugans það sem hugurinn hefur sagt
þeim að sjá. Samræður þínar við vini þína og
kunningja verða líflegar og uppörvandi.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Reyndu að gefa þér tíma til einveru í
dag. Endurfundir ættingja veita þér tækifæri
til þess að rifja upp æskuminningar.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Láttu það ekki koma þér úr jafnvægi
þótt hlutirnir gangi ekki fyrir sig akkúrat eins
og þú hafðir hugsað þér.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Ef þú átt ekki vegabréf skaltu fá þér
það. Barn eða nemandi blómstrar undir
handleiðslu þinni, hvatningu og athygli.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Athyglin beinist að þér í dag, sama hvað
þú tekur þér fyrir hendur. Stefndu að því að
komast í gott ferðalag.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú kemur einstaklega vel fyrir í
dag. Ekki gera ráð fyrir því að þú vitir hvað
einhver annar vill. Gefðu þér góðan tíma til
þess að meta aðstæður.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Hlustaðu á þær raddir sem vilja
leiðbeina þér og gefa góð ráð því þær eru
hoknar af reynslu. Spurðu sjálfa/n þig að því
hvort þú sért vísvitandi að loka á umhverfi
þitt.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Beittu færni þinni til þess að
skipuleggja þig. Sýndu samt ekki óþolinmæði
heldur gefðu öðrum tíma til að átta sig.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Varast skaltu stóryrtar yfirlýsingar
og skuldbindingar sem kunna að koma þér í
koll. Mundu að endurgjalda greiða í sömu
mynt.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er sama hversu mælsk/ur þú ert
um þessar mundir, gerðir þínar segja meira
en mörg orð. Líttu á tilboð sem tækifæri til
að læra eitthvað mikilvægt.
Stjörnuspá
Á morgun, 19.
júní, er Gunnar
Tryggvason frá
Arnarbæli á
Fellsströnd sjö-
tugur. Hann tek-
ur á móti gestum
á heimili sonar
síns, Höfðagötu 7
í Stykkishólmi, á afmælisdaginn frá
kl. 16 og fram eftir kvöldi.
70 ára
1. c4 e5 2. g3 Rf6 3. Bg2 Rc6 4. Rc3 Bc5
5. Rf3 0-0 6. d3 h6 7. 0-0 He8 8. a3 a6 9.
b4 Bf8 10. e4 b5 11. Bb2 Hb8 12. cxb5
axb5 13. Hc1 g6 14. Db3 Bg7 15. Hfd1
Hb6 16. Rd5 Rxd5 17. exd5 Rd4 18.
Rxd4 exd4 19. Dc2 c6 20. d6 He6 21.
Dc5 Ha6 22. He1 Dg5 23. Bh3 Dxc5 24.
bxc5 f5 25. g4 fxg4 26. Bxg4 Hxe1+ 27.
Hxe1 Kf8 28. He7 Ha7
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Kaupmanna-
höfn í Danmörku. Óvæntur sigurvegari
mótsins, Daninn Andreas Skytte Hag-
en (2.346), hafði hvítt gegn sænska
stórmeistaranum Jonny Hector
(2.585). 29. Be6! Bh8 30. Bc1! g5 31.
Hf7+ Ke8 32. Hh7 Be5 33. Bb3 b4 34.
a4 Bf6 35. Hxh6 Bg7 36. Hg6 og svart-
ur gafst upp. Andreas Hagen fékk 7
vinninga af 9 mögulegum á mótinu og
náði í senn áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli og stórmeistaraáfanga.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik