Morgunblaðið - 18.06.2011, Síða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2011
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus
Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Tjarnarbíó
5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is
Ferðasaga Guðríðar / The saga of Gudridur
Sun 19/6 á íslensku kl. 20:00
Fös 24/6 á íslensku kl. 20:00
Lau 25/6 á íslensku kl. 16:00
Sun 26/6 kl. 20:00
sýnd á ensku / in english
Sýnd á ensku 26.júní / In english 26.june
Hetja / Hero
Sun 19/6 kl. 16:00
sýnd á ensku / in english
Fös 24/6 á íslensku kl. 18:00
Lau 25/6 á íslensku kl. 20:00
Sun 26/6 kl. 16:00
sýnd á ensku / in english
Sýnd á ensku 19. og 26.júní / In english 19. and 26.june
Sirkus Íslands:Ö faktor
Fös 1/7 kl. 19:30
Lau 2/7 kl. 14:00
Lau 2/7 kl. 18:00
Sun 3/7 kl. 14:00
Sun 3/7 kl. 18:00
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Húsmóðirin (Nýja sviðið)
Mið 22/6 kl. 20:00 aukasýn Fim 23/6 kl. 20:00 aukasýn
Sýningum lýkur í júní. Ósóttar pantanir seldar daglega
Húsmóðirin - HHHH E.B. Fbl
Díana Rós A. Rivera
diana @mbl.is
Nú stendur yfir í Nútímalist á Skóla-
vörðustíg sýning listakonunnar Sol-
veigar Pálsdóttur. Sýningin, sem
hún kallar Hring, stendur í viku. Í
kynningu segir að umfjöllunarefni
sýningarinnar sé tengsl mannsins
við náttúruna, bæði innra með hon-
um og allt í kringum hann.
Solveig notast við teikningu, silki-
prent og efnivið sem hún hefur fund-
ið og segir hugmyndina að baki sýn-
ingunni hafa kviknað þegar hún
vann að útskrifarverkefni sínu í
Listaháskólanum þar sem hún
skilkiprentaði á viðarfleti og heill-
aðist af aðferðinni. „Ég fór að hugsa
um hvernig hægt væri að gera boð-
skapinn tvöfaldan, ekki bara í mynd-
efninu sjálfu heldur í miðlinum og
undirlaginu sem verið er að nota,“
segir Solveig.
Hugmyndina um náttúruna segir
hún því felast bæði í viðfangsefni
teikninganna sem og undirlaginu
sem hún velur og hún nýti hluti sem
venjulega sé fargað. „Þetta eru
vangaveltur um hvernig við nýtum
og neytum og hvort við búum enn í
tengslum við náttúruna í kringum
okkur og í okkur sjálfum.“
Grasrótargallerí
Að lokinni útskrift af myndlist-
arbraut Listaháskólans árið 2009
stofnaði Solveig ásamt Þorgerði
Ólafsdóttur Gallerí Crymo sem stóð
fyrir 86 sýningum á því eina og hálfa
ári sem það var starfrækt auk tón-
leika og ljóðaupplesturs. Síðar í
sumar gefur Crymogea út bók um
starfsemina. „Það var alltaf hug-
mynd að gefa út bók til þess að skrá-
setja um leið þessa grasrót, þessa
jaðarlist,“ segir Solveig. „Svo verður
skemmtileg vígsla að sýna á Skóla-
vörðustígnum, þetta er í fyrsta
skipti sem ég sýni í öðru galleríi en
Gallerí Crymo síðan ég útskrifaðist.“
Boðskapurinn bæði í
myndefninu og miðlinum
Sýning Solveigar Pálsdóttur stendur yfir í Nútímalist
Vígsla Ein myndanna á sýningu Solveigar Pálsdóttur í Nútímalist á Skóla-
vörðurstíg - „vangaveltur um hvernig við nýtum og neytum“
Tvennir tónleikar
verða í Selinu á
Stokkalæk um
helgina. Á laug-
ardag leikur Ást-
ríður Alda Sig-
urðardóttir
píanóleikari tón-
list eftir Frédéric
Chopin og á
sunnudag halda
þær Selma Guð-
mundsdóttir píanóleikari og Sigrún
Eðvaldsdóttir fiðluleikari tónleika.
Á laugardag kl. 16:00 hyggst Ást-
ríður Alda Sigurðardóttir leika þrjár
ballöður og sónötu nr. 2 í b-moll eftir
Frédéric Chopin.
Ástríður Alda lauk einleikaraprófi
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík
1999 og stundaði síðan framhalds-
nám í Bandaríkjunum og Þýska-
landi. Hún er meðlimur í kamm-
erhópnum Elektra Ensamble og
tangósveitinni Fimm í tangó.
Á sunnudag kl. 16:00 leika þær
Selma Guðmundsdóttir og Sigrún
Eðvaldsdóttir m.a. verk eftir Pag-
anini, Schubert, Brahms, Kreisler,
Sarasate og Atla Heimi Sveinsson.
Þær Sigrún og Selma eiga 25 ára
samstarfsafmæli á árinu og fara í
júní í tónleikaferð til Kína með þá
efnisskrá sem leikin verður í Selinu.
Sigrún lauk einleikaraprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík 1984
undir handleiðslu Guðnýjar Guð-
mundsdóttur og stundaði síðan
framhaldsnám í Philadelphiu. Sig-
rún hefur gegnt stöðu 1. konsert-
meistara Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands frá 1998 og oft komið fram
sem einleikari með hljómsveitinni.
Selma Guðmundsdóttir lauk einleik-
araprófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík og lagði stund á fram-
haldsnám í Salzburg og Hannover.
Selma hefur haldið fjölda einleiks-
tónleika hér heima og erlendis, leik-
ið einleik með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands og Sinfóníuhljómsveitinni í
Þrándheimi og komið fram í útvarpi
og sjónvarpi. Hún hefur gefið út
nokkra geisladiska. Selma er píanó-
kennari við Tónlistarskólann í
Reykjavík og meðleikari við
Listaháskóla Íslands.
Tvennir tónleikar í
selinu á Stokkalæk
Ástríður Alda, Sigrún og Selma
Kínafarar Selma Guðmundsdóttir
og Sigrún Eðvaldsdóttir.
Hið virta forlag Wiley ogsynir (John Wiley andSons ltd) hefur gefið útfræðiritið Financial
Risk Forcasting sem á íslensku má
nefna Spáð um fjármálaáhættu.
Höfundur er dr. Jón Daníelsson, ís-
lenskur hagfræðingur sem um
nokkurra ára skeið hefur kennt við
London School of Economics. Áður
en hann hóf störf við þann skóla
gegndi hann stöðu dósents við hag-
fræðideild Háskóla Íslands.
London School of Economics er
sem alkunna er ein fremsta fræða-
stofnun heims á sviði hagvísinda og
hefur verið það lengi. Skólinn er
jafnframt hvað víðfeðmastur í þeim
skilningi að við hann fara fram
rannsóknir og kennsla á heims-
mælikvarða í nánast öllum greinum
og undirgreinum hagfræðinnar.
Fáir ef nokkrir hagfræðiskólar í
heiminum eru eins alhliða að þessu
leyti.
London School of Economics er
meðal annars í fremstu röð í fræði-
legum og hagnýtum fjármálafræð-
um. Nýtur hann þess að vera í jaðri
City of London sem er sennilega
stærsta fjármálamiðstöð í heimi.
Staða Jóns er einmitt við fjár-
máladeild London School of Econo-
mics. Hann er því mjög vel kunn-
ugur hinum praktísku lögmálum
fjármálalífsins ekki síður en hinum
fræðilegu. Rannsóknarsvið Jóns
eru einkum fjármálaleg áhætta,
fjármálalegur stöðugleiki, lausa-
fjárvandi og fjármálakreppur. Allt
eru þetta þau svið fjármála þar sem
íslensku fjármálakerfi varð í meira
lagi hált á svellinu og íslensk fjár-
málayfirvöld gerðu reginskyssur og
eru enn að gera.
Bók Jóns, Spáð um fjár-
málaáhættu, er ekki rituð fyrir al-
menning og jafnvel ekki upplýsta
stjórnendur fyrirtækja og stofn-
ana. Bókin er rituð fyrir fræði-
menn, framhaldsnemendur í fjár-
málafræðum og sérhæfða
starfsmenn á fjármálasviði í fyr-
irtækjum og opinberum stofnunum.
Fyrir þetta fólk er þessi bók hins
vegar mikill fengur. Hún er bæði
fræðilega sterk og sérlega hagnýt.
Í höfuðatriðum snýst bókin um þær
aðferðir sem þróaðar hafa verið til
að meta, spá fyrir um og stjórna
áhættu í fjármálum og hvernig
þeim aðferðum megi beita í raun. Í
bókinni er farið kerfisbundið yfir
allar helstu aðferðirnar í þessu
skyni og ekki síst þær sem nýjastar
eru og fullkomnastar. Öllum að-
ferðum fylgja viðeigandi for-
ritalínur bæði í forritasöfnunum
„Matlab“ og „R“. Þannig er hægur
vandi fyrir lesendur að virkja þær
aðferðir sem lýst er og beita á
raunveruleg gögn, t.d. þau gögn
sem þeir eru að vinna með í störf-
um sínum og rannsóknum. Allt er
þetta efni sett fram af mikilli þekk-
ingu og djúpum skilningi fræði-
manns sem hefur lifað og hrærst í
þessum heimi í áratugi. Lesandinn
getur því reitt sig á að með þessari
bók er hann að fá það sem best er
og fremst í þessum fræðum á þess-
um tíma.
Enginn vafi er á því að Jón er sá
íslenskur hagfræðingur núlifandi
sem mesta og dýpsta þekkingu hef-
ur á fjármálalegri áhættu, stöð-
ugleika og kreppum. Því hlýtur það
að vera nokkurt umhugsunarefni
að íslensk stjórnvöld hafa ekki kos-
ið að leita hans ráðgjafar og reynd-
ar hafnað þeim ráðum sem hann
hefur sett fram opinberlega. Þess í
stað hafa stjórnvöld kosið að binda
traust sitt við dygga jámenn sína
og leikmenn í fjármála- og gjald-
eyrismálum. Því miður virðast
ráðamenn efnahagsmála í dag
fylgja þeirri aðferð að ákveða
stefnuna í svokallaðri „samræðu-
pólitík“ innan eigin flokka þar sem
málamiðlunin er um hvaða kreddur
og fordómar eigi helst að ráða ferð-
inni. Inn í þetta samhengi kemur
sérfræði aðeins að nafninu til og þá
frá mönnum sem unnt er að treysta
til að bergmála sömu kreddur og
fordóma.
Mikill fengur
Financial Risk Forcasting bbbbm
Eftir Jón Daníelsson. John Wiley and
Sons ltd. gefur út 2011.
RAGNAR
ÁRNASON
BÆKUR
Morgunblaðið/Kristinn
Þekking Bók Jóns Daníelssonar, Spáð um fjármálaáhættu, sem John Wiley
and Sons gefur út, er bæði fræðilega sterk og sérlega hagnýt.
Ástríður Alda
Sigurðardóttir
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn