Morgunblaðið - 18.06.2011, Page 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2011
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Það er búið að opna fallegu bókabúðina á
Flateyri og verður hún opin alla daga vik-
unnar í sumar. Búðin hefur verið starfrækt í
yfir hundrað ár í þorpinu þótt ekki hafi alltaf
verið seldar þar bækur. Minjasjóður Önund-
arfjarðar keypti húsið árið 2003 og rekur það
sem minjasafn og bókabúð í dag. Allt er
mjög fornt á staðnum og eru bækurnar til
dæmis ekki seldar í stykkjatali, heldur á
kílóverði. Hvert kíló fer á 1.000 krónur og
eru bækurnar vigtaðar með gömlu búðarvigt-
inni sem hefur verið notuð þarna í meira en
hálfa öld. Blaðamaður Morgunblaðsins kom
við þarna í vetur og getur ábyrgst að þarna
eru góðar bækur til sölu, úrvalið afbragð.
Ýmislegt annað en bækur er líka til sölu,
eins og minjagripir, sælgæti í kramarhúsum
og álnavara. Þá verða einnig til sölu sultur
og seyði frá Dalbæ á Snæfjallaströnd, fjalla-
grös, jurtate og ýmislegt annað smálegt.
Besta starf í heimi
Sunna Dís Másdóttir rekur búðina og
sagði aðspurð að það hefði verið fyrir al-
gjöra tilviljun að hún fór í reksturinn. „Ég
fylgdi kærasta mínum hingað síðasta sumar
og hafði hugsað mér að liggja hér í sólbaði
allan tímann. En þá sárvantaði einhvern í
vinnu í bókabúðinni og ég féll í yfirlið af
hamingju. Þetta er mögulega besta starf í
heimi. Sitja yfir bókum allan daginn, hlusta
á gufuna og sýna gestum staðinn,“ segir
Sunna. Aðspurð hverju hún myndi svara
markaðsfræðingi sem spyrði hana hvernig
reksturinn gengi, hvort hann væri í debet,
kredit eða hver framlegðin væri, svarar
hún því til að þetta sé nú ekkert rosalega
mikill rekstur. „Ég aðhyllist líka óhefð-
bundna markaðsfræði, mér finnst bara
gaman að selja góðu fólki góðar bækur,“
segir Sunna.
Flott bókabúð á Flateyri
Búðarkona Sunna Dís rekur bókabúð á Flateyri þarsem textinn er seldur í kílóavís.
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
F
jórar finnskar hljómsveitir
halda tónleika á skemmti-
staðnum Bakkusi í kvöld.
Hljómsveitirnar Es, Islaja,
Jarse og Lau Nau koma þar
fram en þær tengjast allar plötufyrirtæk-
inu Fonal Records í Tampere í Finnlandi.
Sami Sänpäkkilä er stofnandi og eigandi
Fonal Records en einnig listamaðurinn á
bakvið hljómsveitina Es. En af hverju
ákváðu sveitirnar að spila á Íslandi?
„Tónleikarnir eru liður í tónleikaferð fé-
lagsins um Norðurlöndin og Ísland er eitt
af þeim. Ísland er líka eitt af þeim löndum
sem mig hefur alltaf langað að heimsækja
og hvað er betra en að heimsækja Reykja-
vík? Þetta er því spennandi ferð því við
erum öll að koma hingað í fyrsta skipti,“
segir Sami.
Es er raftónlist sem er uppfull af alls-
kyns skringilegheitum. Hvernig myndi
Sami lýsa henni sjálfur? „Þegar ég er
spurður þessarar spurningar svara ég yf-
irleitt að tónlistin mín sé nokkurskonar
tilraunakennd poppmúsík. Tónlistin er
taktföst, hefur melódíur og samhljóma en
á tilraunakenndan hátt. Það er ekki notast
við hefðbundinn lagastrúktúr en tónlistin
reynir að skapa hugarástand eða tilfinn-
ingu“.
– Hafið þið einhverjar væntingar til ís-
lenskra áhorfenda?
„Nei, alls ekki. Ég vona bara að einhver
komi á tónleikana,“ segir Sami og hlær.
Samrýndir vinir
– Ég hef heyrt að það sé ákveðinn sam-
hljómur með hljómsveitum frá Fonal, af
hverju er það?
„Við erum öll mjög góðir vinir og við
höfum áhrif hvert á annað og veitum
hvert öðru innblástur. Það er því alveg
eðlilegt að það sé samhljómur og ákveðinn
svipur með tónlistinni okkar“.
Hljómsveitirnar eru allar sólóverkefni
tónlistarmannanna. Á bakvið sveitina Is-
laja er tónlistarkonan Merja Kokkonen,
en síðasta plata hennar, Keraaminen Pää,
hefur fengið góðar undirtektir víða um
heim. Jarse hefur að geyma Jari Suom-
inen. Hann hefur getið sér gott orð með
sveitum á borð við Shogun Kunitoki og
Kiila. Tónlist Jarse er ekki frábrugðin
tónlist samstarfsmanna hans hjá Fonal.
Loks er það Lau Nau og Laura nokkur
Naukkarinen sem leikur þar þjóðlagaskot-
ið skrýtipopp. Hún notast við allskyns ólík
hljóðfæri og umhverfishljóð úr öllum átt-
um.
Fonal er framsækið fyrirtæki
Fonal Records býður upp á margt mjög
gott efni sem er að gerast í finnskri tón-
listarsenu. Listamenn hjá fyrirtækinu hafa
fengið mikla athygli á alþjóðavettvangi.
Þetta eru listamenn á borð við Islaja, Paa-
vuhaarju, TV-resistori, Es og Kemialliset
Ystävät.
Finnskt fjör á Bakkusi í kvöld
Fjórar finnskar hljómsveitir spila í kvöld á Bakkusi Þjóðlagaskotin raftónlist með
umhverfishljóðum Hafa hlakkað til að koma til Íslands í langan tíma
Náttúrubarn Sami Sänpäkkilä semur tónlist undir nafninu Es. Hann er meðal þeirra sem munu troða upp á Bakkus í kvöld. Hljómsveitirnar bera
ákveðinn samhljóm með sér en þær spila nokkurskonar raftónlist og notast við fleiri skrýtin hljóð til að krydda upp á tónlistina. Það verður gaman
að sjá hvað hljómsveitinar bjóða upp á í kvöld.
Fögur Islaja unir sér í allskonar list. Hissa Jarse spilar einnig í kvöld. Lau Nau Notast við sérstök hljóð í sinni tónlist.