Morgunblaðið - 25.06.2011, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2011
Fjármálaráðherra hefur nú upp-lýst að engin áform séu um að
lækka verð á eldsneyti almennt með
því að draga úr himinháum sköttum
ríkisins, sem farið hafa hækkandi
með hækk-
andi heims-
markaðs-
verði.
Hannheldur hins vegar opnum
möguleikanum á að fara út í sértæk-
ar aðgerðir og lækka eldsneytis-
kostnað sumra. Þetta hefur sennilega
þann kost í huga ráðherrans að vera
flókið í framkvæmd og nýtast al-
menningi lítið eða ekki.
Helsta röksemdin sem ráðherrannteflir nú fram fyrir því að
lækka ekki álögur á eldsneyti er að
hann telur engar horfur á að heims-
markaðsverðið muni lækka á næst-
unni.
Aðrir hefðu þvert á móti taliðþetta röksemd með því að lækka
álögurnar, en í þeim heimi sem rík-
isstjórnin lifir í er afleitt að sjá fram á
skattalækkun sem gæti orðið til langs
tíma og jafnvel varanleg.
En auðvitað er þetta bara tylli-ástæða til að komast hjá því að
lækka skattana.
Og ráðleggingar fjármálaráð-herra til almennings eru kostu-
legar: Þið skuluð bara kaupa ykkur
nýjan umhverfisvænan bíl og spara
þannig bensínkostnað.
Oft eru góð ráð dýr, en nú vitamenn í það minnsta fyrir hvað
forskeytið ráð- í orðinu ráðherra
stendur.
Góðráðherra væri þó enn réttarastarfsheiti í tilviki Steingríms.
Ráðleggingar
góðráðherrans
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 24.6., kl. 18.00
Reykjavík 14 skýjað
Bolungarvík 11 skýjað
Akureyri 9 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 11 skýjað
Vestmannaeyjar 11 skýjað
Nuuk 3 skýjað
Þórshöfn 8 alskýjað
Ósló 12 skúrir
Kaupmannahöfn 16 léttskýjað
Stokkhólmur 17 léttskýjað
Helsinki 17 heiðskírt
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 17 léttskýjað
Dublin 11 skúrir
Glasgow 15 léttskýjað
London 17 léttskýjað
París 21 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 17 léttskýjað
Berlín 13 skýjað
Vín 21 léttskýjað
Moskva 23 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 25 léttskýjað
Aþena 30 heiðskírt
Winnipeg 23 skýjað
Montreal 17 skúrir
New York 18 þoka
Chicago 18 alskýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
25. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:57 24:04
ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:36
SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19
DJÚPIVOGUR 2:12 23:48
Hópi veiðimanna sem fóru til veiða á
Arnarvatnsheiði um seinustu helgi
brá heldur betur í brún er þeir
gengu fram á hátt í 100 illa flakaða
fiska í vatnsborðinu á Arnarvatni
litla.
Höfðu þeir sem báru ábyrgð á
þessum sóðaskap greinilega skorið
besta bitann úr fiskunum og síðan
hent afganginum í vatnið.
Frá þessu er greint í veftímaritinu
Flugufréttir á vefslóðinni flugan.is.
Var veiðivörður kallaður til og
kom hann ásamt formanni Veiði-
félags Arnarvatnsheiðar og var þeim
stórlega misboðið.
„Á tanga við norðanvert Arnar-
vatn litla blasti við ömurleg sjón.
Veiðimenn sem voru þarna á undan
okkur höfðu hent hátt í 100 dauðum
silungum út í vatnið eftir að hafa
flakað þá, eða öllu heldur skorið úr
þeim bestu bitana, því þessir menn
hefðu ekki fengið háa einkunn fyrir
nýtingu í frystihúsum landsins,“
segir í frásögn Flugufrétta.
Fram kemur að þeir Snorri Jó-
hannesson veiðivörður og Guð-
mundur Kristinsson, formaður
Veiðifélags Arnarvatnsheiðar, skoð-
uðu ummerkin og var þeim aug-
ljóslega brugðið.
„Ekki var um annað að ræða en að
sækja stóra svarta ruslapoka, vaða
út í vatnið og hreinsa upp óþverr-
ann. Fylltu dauðu fiskarnir nærri
því tvo slíka poka.“
Algert einsdæmi
Snorri sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að þetta hafi verið ljót
aðkoma að sjá dauðu fiskana í vatn-
inu. „Sem betur fer er þetta algert
einsdæmi. Menn eru almennt betur
upplýstir um umgengni á svona
stöðum,“ segir Snorri.
Hann bendir á að mikil sjúkdóma-
hætta fylgi því þegar fiskarnir rotni
í vatninu og hringrásinni er lokað
fyrir bandorminn í fiskinum.
Snorra og Guðmundi tókst að
hreinsa ófögnuðinn úr vatninu. „Ég
er búinn að hafa uppi þeim sem
þarna átti í hlut og messa yfir hon-
um,“ segir Snorri. Hann segir engin
viðurlög vera við þessu athæfi. Ekk-
ert stoði að kæra fyrir svona nokkuð
því þær nái aldrei í gegn. „Við reyn-
um bara að leysa málin með öðrum
hætti,“ segir hann.
„Svona á ekki að ganga um yndis-
lega íslenska náttúru sem okkur hef-
ur verið falin til varðveislu. Beina-
garða og innvols úr veiddum fiskum
eiga menn að hafa með sér heim og
setja í ruslið,“ segir í frásögn veiði-
mannanna í Flugufréttum af um-
hverfissóðaskapnum á Arnarvatns-
heiði. Mjög góð veiði hefur verið í
vötnunum á Arnarvatnsheiði að
undanförnu að sögn Snorra veiði-
varðar. omfr@mbl.is
Hreinsað Snorri H. Jóhannesson veiðivörður á Arnarvatnsheiði tekur dauðu fiskana upp úr vatninu sem umhverfis-
sóðar skildu eftir sig. „Sem betur fer er þetta algert einsdæmi,“ segir Snorri. Eiríksjökull blasir við í bakgrunni.
Ljósmynd/Flugur.is
Umhverfissóðar á ferð
Hátt í 100 dauðir fiskar voru skildir eftir í Arnarvatni litla
Einsdæmi, segir Snorri H. Jóhannesson veiðivörður
Dauðu fiskarnir tíndir upp Guð-
mundur Kristinsson, til vinstri, með
Snorra Jóhannesson sér við hlið.
1.081 tillaga að
nafni á hæsta
fossi Íslands, sem
myndaðist nýver-
ið í Morsárjökli,
höfðu borist inn
á mbl.is í gær.
Ætla mætti að
um sé að ræða
500-600 mismun-
andi nöfn. Hug-
myndasam-
keppnin stendur fram til nk.
fimmtudags.
Ritstjórn Morgunblaðsins mun
fara yfir tillögurnar og velja þær
sem hún telur koma til greina sem
nafn á fossinn. Veitt verð þrenn
vegleg bókaverðlaun fyrir þær til-
lögur sem þykja skara fram úr.
Niðurstaðan verður tilkynnt í
Morgunblaðinu og á mbl.is laug-
ardaginn 2. júlí. Tillögurnar verða
síðan sendar örnefnanefnd sem til-
lögur að nafni á nýja fossinn.
Yfir 1.000 tillögur
borist að nafni á
hæsta foss landsins
Háir Fossar við
Morsárjökul.
Framkvæmdir geta hafist í haust
við uppbyggingu stúdentagarða í
Vatnsmýrinni og skapað um 300
ársverk. Ríkisstjórnin samþykkti í
gær fjárheimildir fyrir Íbúðalána-
sjóð sem tryggja fjármögnun fram-
kvæmdanna. Heildarkostnaður er
áætlaður um fjórir milljarðar króna
og mun Íbúðalánasjóður veita lán
fyrir 90% kostnaðarins.
Félagsstofnun stúdenta hefur
síðustu ár undirbúið þessar fram-
kvæmdir. Áformað er að reisa
byggingu með 280 íbúðum fyrir um
320 námsmenn en að jafnaði eru um
350-550 manns á biðlista eftir leigu-
íbúðum.
Lánað til nýrra
stúdentagarða
Vatnsmýri Teikning af svæðinu.