Morgunblaðið - 25.06.2011, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2011
Björn Björnsson
Sauðárkrókur | Á þeim tuttugu
árum sem Háskólinn á Hólum hef-
ur annast kynbætur og ræktun ís-
lenskra bleikjustofna hefur náðst
mjög góður árangur. Hefur árang-
urinn verið slíkur að samsvarar
3,5% aukningu vaxtarhraða á ári.
Auk þess hefur tekist að draga úr
ótímabærum kynþroska bleikj-
unnar sem rýrir gæði hennar sem
matfisks og var áður vandamál í
eldinu.
Þetta kemur m.a. fram á nýrri
heimasíðu Bleikjukynbótastöðv-
arinnar á Hólum sem Jón Bjarna-
son, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra, opnaði formlega á
dögunum.
Skúli Skúlason, rektor Háskól-
ans á Hólum, sagði við athöfnina
að þetta væri mjög ánægjulegur
áfangi sem hér hefði náðst, enda
hefði vandvirkni, þrautseigja og
atorka einkennt þetta kynbóta-
verkefni frá fyrsta degi og aldrei
hvikað frá þeirri ætlun að besti
mögulegi árangur mætti nást.
Þakkaði Skúli þeim Jóni Bjarna-
syni, þáverandi rektor skólans, og
Einari Svavarssyni, umsjónar-
manni bleikjueldisins, fyrir fram-
sýni og metnað í þeim áformun að
ná sem bestum árangri, en þess
má geta að Einar er úr fyrsta ár-
gangi fiskeldisfræðinga sem út-
skrifuðust frá skólanum.
Frábær árangur náðst
Jón Bjarnason sagði að fyrir 20
árum hefði verið staðfestur samn-
ingur um að á Hólum skyldi vera
miðstöð bleikjueldis á Íslandi. Þá
þegar hefði verið tekið til við að
leita að stofnum sem mögulega
gæfu sem bestan árangur í rækt-
un, og nú væri sú leit og sú rækt-
un farin að skila frábærum ár-
angri. Sagði Jón að næsta skref
væri að setja í gang verkefni sem
gera mundi kleift að votta uppruna
bleikjunnar og gera framleiðsluna
rekjanlega.
Helgi Thorarensen, deildarstjóri
fiskeldisdeildar, sagði að að-
alstofnar til eldisins væru tveir,
þ.e. bleikjur úr Ölvesvatni á
Skaga, sem eru með ljósan roðlit,
og svo bleikjur úr Grenlæk í Land-
broti, sem eru dökkar á roðið.
Einar Svavarsson sagði allt starf
stöðvarinnar miða að aukinni hag-
kvæmni í bleikjueldinu, sem virtist
eiga sér góða framtíðarmöguleika,
enda væri markaðsleg staða Ís-
lendinga sterk og mun betri hvað
varðar bleikjuna en aðrar fiskteg-
undir. Þá sagði Einar að sífellt
væri leitað leiða til að gera fóðr-
unina ódýrari og skilvirkari, en
uppistaða fiskifóðurs væri fiskimjöl
og því væri nú einnig leitað leiða
til að auka afurðir úr jurtaríkinu
til eldisins og virtist það gefa
nokkuð góða raun.
Vaxtarhraði bleikjunnar
hefur tvöfaldast
Hólar miðstöð bleikjueldis í 20 ár Sjávarútvegsráð-
herra opnaði nýjan vef Bleikjukynbótastöðvarinnar
Hólar Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, opnaði heima-
síðu Bleikjukynbótastöðvarinnar á Hólum í Hjaltadal í vikunni.
Kynbætur á bleikju
» Hinn góði árangur af kyn-
bótum og ræktunarstarfi er sá
að framleiðslan nemur nú 470
lítrum af hrognum.
» Hrognin duga til framleiðslu
á um fimm milljónum fiska hjá
hinum ýmsu eldisstöðvum víða
um land.
» Stöðvarnar framleiða nú ár-
lega um 3.500 tonn, að verð-
mæti 2,5 til 3 milljarða.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is
Skutlurnar, eini kvenbifhjólaklúbb-
ur landsins, lögðu af stað á mótor-
hjólum sínum í gær í hringferð um
landið. Í hópnum eru um 40 konur
en í hringferðina að þessu sinni
tóku þær maka sína með og hóp-
urinn því allstór.
Margar Skutlur aka um á Harley
Davidson-hjólum en annars eru
hjólin af ýmsum tegundum og gerð-
um. Lagt var af stað frá Shell við
Vesturlandsveg í blíðviðri í gær-
morgun. Klúbburinn var stofnaður
árið 2005 og hefur meðlimum fjölg-
að jafnt og þétt. Stofnfélagar voru
14 en félagsmenn eru orðnir hátt í
30 talsins. Nálgast má upplýsingar
um klúbbinn á www.skutlur.is.
Morgunblaðið/Ernir
Skutlast í hringferð
um landið á hjólunum
Sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra gaf í gær út reglu-
gerð um auknar strandveiðar í
samræmi við nýsamþykkt lög um
breytingar á lögum um stjórn fisk-
veiða, sem birtust í Stjórnartíð-
indum í gær.
Aukningin kemur þegar til
framkvæmda þannig að heimildir
nú í júnímánuði aukast um 633
tonn af óslægðum þorski og 200
tonn af óslægðum ufsa.
Samkvæmt auglýsingu ráðu-
neytisins, sem tekur gildi 28. júní,
fellur úr gildi fyrri auglýsing um
stöðvun strandveiða á svæði A, frá
Eyja- og Miklaholtshreppi til
Súðavíkurhrepps. Alþingi sam-
þykkti að heimila aukningu
strandveiða um allt að 1.900 tonn
af óslægðum þorski og 600 af
óslægðum ufsa. Aukningin skiptist
þannig að 33,3% koma til aukn-
ingar á svæði A, 23,7% á svæði B,
25,5% á svæði C og 17,5% á svæði
D. bjb@mbl.is
Morgunblaðið/Heiddi
Kvótinn í strand-
veiðunum aukinn
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Léttar yfirhafnir
Vattjakkar, flísjakkar,
kápur og úlpur
St. 36-52
Hvít kakípils
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Opið laugardag 10 - 15
Eddufelli 2, sími 557 1730
Lokað laugardag
www.rita.is
Stærðir S-XXL
Verð 13.500 kr.
Sendu
m í
póstkrö
fu
www.gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
Verum smart og hugsum um umhverfið
Umhverfisvænu & fjölnota töskurnar frá Envirosax
færðu hjá okkur Dísir Boutique
www.disir.is
Við erum líka á Facebook
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið sýnishorn á www.laxdal.is (la DolceVita)
SUMARÚTSALA HAFIN
20%-50% AFSLÁTTUR
ÚTSL