Morgunblaðið - 25.06.2011, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2011
Arion banki í samstarfi við Gekon ehf. býður
til morgunfundar þriðjudaginn 28. júní n.k.
Tilefni fundarins er annars vegar útgáfa skýrslu um
greiningu og samstarfsmótun íslenska jarðvarmaklasans
og hins vegar stofnun formlegs samstarfsvettvangs
klasans.
Efni skýrslunnar byggist m.a. á kortlagningu klasans
sem kynnt var á ráðstefnunni Iceland Geothermal 2010
þann 1. nóvember sl.
Dagskrá fundar:
• Arion banki og íslenski jarðvarmaklasinn.
Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Arion banka.
• Íslenski jarðvarmaklasinn: Vegferð og vegvísir
Hákon Gunnarsson og Þóra Margrét Þorgeirsdóttir,
Gekon.
• Hvaða væntingar hafa stofnaðilar til samstarfs-
samnings og hins íslenska jarðvarmaklasa?
Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits.
• Dr. Michael Porter, prófessor við Harvard
Business School.
Á fundinum munu fyrirtæki og hagsmunaaðilar
staðfesta stofnun formlegs samstarfs innan
íslenska jarðvarmaklasans.
Fundurinn verður haldinn í Arion banka, Borgartúni 19,
frá kl. 8:30 – 10:00, boðið verður upp á morgunverð
frá kl. 8:00.
Takmarkað sætaframboð.
Skráning á arionbanki.is eða gekon.is
Virðisauki í jarðvarma
- Dr. Michael Porter heiðursgestur
á morgunfundi.
Morgunfundur
Samningaviðræður milli demókrata
og repúblikana á Bandaríkjaþingi
um hækkun skuldaþaks alrík-
isstjórnarinnar eru runnar út í sand-
inn. Repúblikanar slitu viðræðunum
vegna krafna ríkisstjórnar Barack
Obama um að meiri áhersla verði
lögð á að hækka skatta en nið-
urskurð í tilraunum stjórnvalda við
að koma böndum á ríkisfjármálin.
Bandaríkjaþing verður að sam-
þykkja að hækka skuldaþak stjórn-
valda, sem er nú 14,3 þúsund millj-
arðar Bandaríkjadala, fyrir 2. ágúst.
Ef það tekst ekki blasir við að
Bandaríkjastjórn mun ekki geta
greitt af skuldum sínum og ljóst er
að það myndi valda meiriháttar
skjálftavirkni á fjármálamörkuðum.
Talið er að hækka verði skulda-
þakið um 2 þúsund milljarða fyrir
næstu tvö ár. Repúblikanar vilja að
það verði skorið jafn mikið niður á
móti en demókratar vilja leggja
meiri áherslu skattahækkanir.
ornarnar@mbl.is
Viðræðum slitið
Engin sátt í sjónmáli um hækkun
skuldaþaks Bandaríkjastjórnar
Reuters
Skuldaklukkan tifar Ef Bandaríkjaþing samþykkir ekki hækkun skulda-
þaksins fyrir 2. ágúst blasir greiðslufall við bandaríska ríkinu.
Íslandsbanki hefur gert þriggja
ára samstarfssamning við Menn-
ingarhúsið Hof á Akureyri. Menn-
ingarhúsið hefur verið starfrækt í
tæpt ár og hafa vel á annað
hundrað þúsund manns heimsótt
það á þeim tíma. „Þá hefur hin
góða aðstaða í Hofi gert það að
verkum að framboð hefur stórauk-
ist á menningarviðburðum á Norð-
urlandi sem hefur haft jákvæð
áhrif á menningarlíf Norðlendinga
og samfélagið í heild, svo sem
verslun, þjónustu og aðra atvinnu-
uppbyggingu.
Íslandsbanki er stoltur bakhjarl
Menningarhússins Hofs og vonar
að starfsemin þar haldi áfram að
vaxa og dafna,“ segir í tilkynn-
ingu frá bankanum.
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir,
framkvæmdastjóri Hofs, segir í til-
kynningunni að aðstandendur
Hofs séu stoltir af því að fá Ís-
landsbanka sem einn af bak-
hjörlum. „Það skiptir okkur miklu
máli að vera í góðu samstarfi við
fyrirtæki og þjónustuaðila, ekki
síður en listamenn og gesti sem
heimsækja Hof. Það að fyrirtæki
sjái sér hag í að tengjast Hofi fel-
ur í sér ákveðna viðurkenningu á
mikilvægi starfseminnar og gildi
hennar í atvinnuuppbyggingu.“
Íslandsbanki
styrkir Hof
Samstarfssamningur
til þriggja ára
Hof Karl Frímannsson, Birna Ein-
arsdóttir og Ingi Björnsson undir-
rita samstarfssamninginn.
Alls var 77 kaupsamningum þinglýst
á höfuðborgarsvæðinu 17. júní til og
með 23. júní og var heildarveltan
2.521 milljón króna. Sömu viku í
fyrra var 52 kaupsamningum þing-
lýst og var heildarveltan 1.182 millj-
ónir króna. Þetta kemur fram á vef
Þjóðskrár Íslands.
Á sama tíma var þremur kaup-
samningum þinglýst á Suðurnesjum.
Þar af var einn samningur um eignir
í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli.
Heildarveltan var 47 milljónir króna
og meðalupphæð á samning 15,7
milljónir króna.
Á sama tíma var sjö kaupsamn-
ingum þinglýst á Akureyri. Þar af
voru fjórir samningar um eignir í
fjölbýli og þrír samningar um sér-
býli. Heildarveltan var 190 milljónir
króna og meðalupphæð á samning
27,2 milljónir króna.
Þá var fimm kaupsamningum
þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af
voru þrír samningar um sérbýli og
tveir samningar um annars konar
eignir en íbúðarhúsnæði. Heild-
arveltan var 86 milljónir króna og
meðalupphæð á samning 17,2 millj-
ónir króna.
Samning-
um fjölgar
milli ára
Íbúðir 77 samningum var þinglýst.