Morgunblaðið - 25.06.2011, Page 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2011
Díana Rós A. Rivera
diana@mbl.is
Halldór Guðmundsson, verkefn-
isstjóri Sögueyjunnar, og Claudio Al-
brecht, aðalforstjóri Actavis, kynntu
umfangsmikinn starfssamning á
fundi með fulltrúum fjölmiðla í gær-
morgun. Samningurinn felur í sér
tugmilljóna stuðning Actavis við
Sögueyjuna sem heldur utan um
heiðursþátttöku Íslands á Bókasýn-
ingunni í Frankfurt í haust.
Samkvæmt tilkynningu gekk Ac-
tavis til liðs við Sögueyjuna fyrir ári
en hefur ákveðið að auka stuðning
sinn enn frekar á þessu ári og segir
að sá stuðningur muni koma sér afar
vel vegna góðra undirtekta sem Ís-
land hefur fengið sem heiðursgestur.
Auk þess tryggir samingurinn að
Sögueyjunni verði kleift að auglýsa
dagskrá sína með áberandi hætti á
sýningarsvæðinu í Frankfurt.
Krefst mikils undirbúnings
Að sögn Halldórs Guðmundssonar
liggur mikill undirbúningur að baki
verkefninu og hefur hann staðið í
þrjú ár. Hann segir mikilvægasta
þátt undirbúningsferlisins vera að
hafa samband við þýsk bókaforlög og
fá þau til að taka íslensk verk til út-
gáfu. Stærsta þýðingarverkefnið sé
ný þýðing á Íslendingasögunum og
það hafi sannarlega ekki veitt af
þriggja ára undirbúningi fyrir útgáfu
þeirra.
„Þetta er það sem við höfum verið
að gera, hafa samband við bóka-
forlögin, og undirtektir hafa farið
fram úr björtustu vonum. Það er ver-
ið að þýða og gefa út mjög mikið en
það þarf alltaf ákveðinn aðdraganda,
menn hrista þetta ekki fram úr erm-
inni“ segir Halldór.
Hann segir að í upphafi undirbún-
ingsins hafi verið vonast til að um 100
íslenskar bækur og bækur um Ísland
og íslenska menningu yrðu gefnar út
en bækur sem komi út á þýskum
bókamarkaði á þessu ári verði yfir
180 og það hefði enginn getað séð fyr-
ir.
Samkvæmt Halldóri felst kynn-
ingin á Íslandi sem heiðursgesti þó
ekki eingöngu í útgáfu bóka. „Við er-
um með svokallaða rammadagskrá í
kringum þetta. Það verða a. m. k. átta
listsýningar í söfnum í Frankfurt og
kannski víðar, það verða tónleikar og
svo eru upplestrar og bókakynningar
allt árið. Sýningin er mjög mikilvæg
en hún er eiginlega bara punkturinn
yfir i-ið,“ segir hann.
Samfellan hefur heillandi kraft
Halldór segir að vinnunni ljúki
ekki um leið og bókahátíðin er yf-
irstaðin. „Vegna þess að árangurinn
er þetta mikill verður að gæta að því
að þetta haldi áfram,“ segir hann og
bætir við að áhrif þýsks bókamark-
aðar á markaðinn í löndunum í kring
eigi eftir að koma í ljós og fari eftir
því hvernig bókunum er tekið. Ein-
hverra áhrifa gætir þó nú þegar og
hefur Amazon ákveðið að gefa út tíu
íslenskar bækur á ensku í Bandaríkj-
unum.
Spurður að því hvað það sé við ís-
lenskar bókmenntir sem heillar segir
Halldór að það hafi verið einhver
samhljómur í íslenskum og þýskum
bókmenntum um langt skeið. „Ég
held að það sem Þjóðverjar hafi mest
gaman af í íslenskum bókmenntum sé
frásagnargleðin og þessi ákveðna
samfella sem er í íslenskum bók-
menntum frá upphafi. Hún hefur
ákveðinn heillandi kraft,“ segir Hall-
dór.
Frásagnargleðin og
þessi ákveðna samfella
Morgunblaðið/Ernir
Samhljómur Halldór Guðmundsson, verkefnisstjóri Sögueyjunnar, og Clau-
dio Albrecht, aðalforstjóri Actavis, kynna stuðning Actavis við Sögueyjuna.
Ísland hefur fengið góðar undirtektir sem heiðursgestur
á Bókasýningunni í Frankfurt í haust
Íbók sinni Bankastræti núllhugsar Einar Már Guðmunds-son upphátt. Nokkrar bækureldri samtímahöfunda hafa
komið út að undanförnu sem eru í
svipuðum stíl einsog bækur Njarðar
P. Njarðvík,
Matthíasar Jo-
hannesen, Einars
Más Jónssonar og
fleiri. Þetta er þó-
nokkuð vinsælt á
þessum tímum
eftir hrun fjár-
málakerfisins í
heiminum, ekki
aðeins á Íslandi
heldur var ein
vinsælasta bókin í Frakklandi á síð-
asta ári Indignez-vous! eftir Stép-
hane Frédéric Hessel sem var í svip-
uðum stíl. En allir eru þessir höf-
undar á því að þetta hafi verið betra
þegar þeir voru ungir en síðan hafi
þetta farið á verri veg. Bók Einars
Más er í sama stíl og hinar hvað þetta
varðar.
Það er þekkt trikk úr gömlu bíó-
myndunum að þegar hetjan mætir á
svæðið þá klappar hún hundinum en
þegar skúrkurinn mætir á svæðið þá
sparkar hann í hundinn. Þá veit
áhorfandinn strax hver er góði mað-
urinn. Sú tilhneiging hefur skapast á
Íslandi að listamenn þurfi að byrja á
því að sparka í hundinn Hannes
Hólmstein Gissurarson til að hægt sé
að hlusta á þá. Einar Már gerir það
samviskusamlega áður en hann fer af
stað með skemmtilega orðræðu sína.
Bók hans er skemmtileg aflestrar,
þegar verst lætur verður þetta hálf-
gert röfl og blaður en þegar best læt-
ur er þetta leiftrandi skemmtilegt.
Hann er með ýmiskonar óvæntar
tengingar í texta sínum og skemmti-
legar frásagnir úr eigin lífi. Hann
lætur ýmsa fá það óþvegið, meira að
segja foringja sinn, fjármálaráðherr-
ann Steingrím J. Sigfússon, fyrir að
framkvæma allt það sem hann var á
móti þegar hann var í stjórnarand-
stöðu. Það er nefnilega hægt að segja
það um Einar Má að hann lætur eng-
an stýra sér. Hann fylgir ekki flokki
sínum blint. Á meðan flestir lista-
menn fylgdu flokkslínunum blint í
Icesave-málinu þá spyrnti hann við
fótunum, en biðst þó afsökunar á
framferði sínu með orðunum: „Vandi
stjórnmálamanna er ekki þeir sem
gagnrýna þá heldur jáhirðin í kring-
um þá, bitlingasnatarnir, metorða-
stritararnir og þeir sem halda að þeir
eigi alltaf að vera þægir og að gagn-
rýni lýsi óánægju.“ Það er áhugavert
þegar maður lítur til eldri höfunda
einsog Njarðar og Matthíasar að þá
vitna þeir eingöngu í ljóð; Einar Már
vitnar bæði í ljóð og lagatexta og það
kæmi manni ekki á óvart að enn
yngri höfundur myndi bara vitna í
lagatexta við gerð svipaðrar bókar til
samtíma síns.
Stundum miðlar hann vangavelt-
um úr daglega lífinu einsog um það
hvernig Bítlaplötur voru upplifaðar í
gamla daga sem heild, það var hlust-
að á þær frá upphafi til enda en í dag
eru það örfá lög sem ná í gegn af
plötum listamannanna. Stundum
miðlar hann vangaveltum um Mark
Flanagan frá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum (sem hann kallar land-
stjóra) eða fjallar um aðra stóralvar-
lega atburði úr samtímanum. Þannig
að hann fer víða. Sumt er áhugavert
en annað ekki.
Bankastræti Núll bbbnn
Eftir Einar Má Guðmundsson.
Mál og menning 2011
BÖRKUR
GUNNARSSON
BÆKUR
Morgunblaðið/Kristinn
Íbygginn Einar Már hugsar upphátt
um samtímann í nýjustu bók sinni.
Spjall um samtímann
Nú stendur yfir sýning Kristínar
Þorkelsdóttur, Ljósdægur, í
Fræðslumiðstöð Þingvalla. Kristín
sýnir 17 vatnslitamyndir sem allar
eru málaðar á Þingvöllum á ár-
unum 2006-2010 og er þetta 21.
einkasýning hennar á vatns-
litamyndum.
Vekur myndræna skynjun
Að sögn Kristínar byrjaði hún
myndlistarferil sinn á Þingvöllum
árið 1984 og segir einskæra til-
viljun hafi ráðið því að hún tæki
upp penslana í þjóðgarðinum. „Ég
var þarna á ferðinni með fjölskyld-
unni í veiðitúr og var búin að missa
veiðidelluna. Ég var með vatnsliti í
bílnum og settist bara á þúfu og
fór að veiða myndir í staðinn.“
Hún segir að Þingvellir séu í sín-
um augum ótrúlegur griðastaður
sem veki myndræna tjáningu og
nautn. „Þingvellir hafa alveg ótrú-
leg áhrif á mig. Form og litir nátt-
úrunnar er með eindæmum fjöl-
breytt, hér megum vera og við
eigum þennan stað öll,“ segir
Kristín.
Hún segist oft fara til Þingvalla
til að sækja sér myndkveikjur og
það allan ársins hring en mest
spennandi finnist henni haustið og
veturinn sem myndrænt viðfangs-
efni. Hún segist hafa ætlað sér að
setja upp Þingvallasýningu í Gall-
ery 13 sem hún rekur ásamt manni
sínum, en gripið tækifærið þegar
henni bauðst að sýna í Fræðslu-
miðstöðinni. „Það má segja að það
sé viss innsetning að sýna myndir
af Þingvöllum á Þingvöllum.“
Að vera í augnablikinu
og njóta
Kristín segist fyrst og fremst
reyna að fanga hughrif með mynd-
um sínum. „Ég nota náttúruna sem
kveikju að myndum. Ég fer frjáls-
lega með viðfangsefnið og er ekki
endilega að mála staðinn sem slík-
an heldur andrými hans,“ segir
hún.
Að eigin sögn finnst Kristínu
hún ná þessum hughrifum best
fram með vatnslitunum. „Vatnslit-
urinn er í eðli sínu þannig að hann
svarar „spontant“ og tekur þátt í
myndsköpuninni. Hann er við-
kvæmur fyrir hitastigi og það verð-
ur að þekkja eðli hans og skynja
gjafir hans sem þú getur líka kall-
að slys! Þetta er spurning um við-
horf.“
Hún segist fyrir löngu hætt að
leggja upp með ákveðnar vænt-
ingar og að það skipti sig höfuð-
máli að vera opin fyrir því sem
kann að gerast. „Þetta er spurning
um að vera í augnablikinu og njóta
þess,“ segir Kristín að lokum.
diana@mbl.is
Tilviljun Fyrir Kristínu Þorkelsdóttur eru Þingvellir griðastaður sem vekur
myndræna tjáningu og nautn.
Settist á þúfu og
fór að veiða myndir
Kristín Þorkelsdóttir sýnir vatns-
litamyndir frá Þingvöllum á Þingvöllum
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus
Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Tjarnarbíó
5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is
Ferðasaga Guðríðar / The saga of Gudridur
Lau 25/6 á íslensku kl. 16:00 Sun 26/6 kl. 20:00
sýnd á ensku / in english
Sýnd á ensku 26.júní / In english 26.june
Hetja / Hero
Lau 25/6 á íslensku kl. 20:00 Sun 26/6 kl. 16:00
sýnd á ensku / in english
Sýnd á ensku 19. og 26.júní / In english 19. and 26.june
Sirkus Íslands:Ö faktor
Fös 1/7 kl. 19:30
Lau 2/7 kl. 14:00
Lau 2/7 kl. 18:00
Sun 3/7 kl. 14:00
Sun 3/7 kl. 18:00