Morgunblaðið - 25.06.2011, Page 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2011
Bakgarðurinn kominn til útlanda
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Heimildarmynd Árna Sveinssonar
um heimilislega tónleika í bakgarð-
inum hjá Árna plúseinum var valin á
kvikmyndahátíðina í Karlovy Vary
sem hefst í næstu viku. Í Backyard
er fylgst með liðsmanni hljómsveit-
arinnar FM Belfast, Árna Rúnari
Hlöðverssyni, sem jafnan er nefndur
Árni plúseinn, og mikilli upp-
tökutörn sem hann stóð fyrir í bak-
garði við heimili sitt í miðbæ
Reykjavíkur, við Frakkastíg, á
Menningarnótt í hittifyrra. Þangað
mættu hljómsveitir einsog FM Bel-
fast, Retro Stefson, Hjaltalín, múm,
Borko, Sin fan bous og Reykjavík.
Við gerð myndarinnar lét Árni nafna
sinn plúseinn ekkert vita að hann
væri að gera mynd í fullri lengd,
ekki fyrr en hún var tilbúin.
Hún átti síðan eftir að sigra á
Skjaldborgarhátíðinni í fyrra og hef-
ur víða farið eftir það að sögn Árna
Sveinssonar. „Við fórum fyrst með
hana til Danmerkur og fengum verð-
laun þar á Copenhagen Docs, eftir
það er áhuginn búinn að vera mikill
út um allan heim. Hún er búin að
vera á festivali í Moskvu, í Austur-
ríki, í Bandaríkjunum og nokkrum
festivölum í Belgíu og Hollandi,“
segir Árni. „En þetta eru allt festivöl
sem eru svona tónlistartengd, en ef
við höfum farið á svona alvöru kvik-
myndafestivöl einsog í Seattle og
Karlovy Vary, þá erum við í ein-
hverjum sérstökum tónlistarflokki.
Annars erum við að skila af okkur
dvd-diski með myndinni til þýska
framleiðandans okkar, því hann ætl-
ar að gefa diskinn út fyrir bóka-
messuna í Frankfurt, hann ætlar sér
að reyna að notfæra sér þann fókus
sem verður á Ísland í kringum
hana.“
Hefur áður verið í Tékklandi
Aðspurður hvort hann búist við
einhverju öðru frá Karlovy Vary í
Tékklandi en að komast í góðan bjór
segist hann ekki hafa velt því fyrir
sér neitt sérstaklega. „Ég var
reyndar í Tékklandi heilt sumar fyr-
ir mjög löngu, þegar ég var tvítugur.
Ég talaði við vin minn sem þekkti
eiganda frægasta djassstaðarins í
Prag og hann var með eitthvert Ís-
landsblæti. Ég kom þar við og spurði
hvort hann væri með vinnu fyrir
mig. Þegar hann heyrði að ég væri
Íslendingur sagði hann mér að mæta
daginn eftir klukkan sjö og hann
myndi finna eitthvað fyrir mig. Þeg-
ar ég kom daginn eftir á staðinn var
hann í miðjum klíðum að reka yfir-
kokkinn og var snarbrjálaður út í
hann. Hann grýtti í hann pottum og
pönnum fyrir framan mig á meðan
hann öskraði skammir yfir hann fyr-
ir að hafa logið sig inn í starfið og
svo kynni hann ekki svo mikið sem
sjóða pasta. Ég var gerður að yf-
irkokki þarna á staðnum. Þetta var
árið 1996 og ekki enn búið að semja
almennilegan lagabókstaf í landinu
yfir þessi eiturlyf þannig að þau
flæddu um allt og þetta var frekar
villt sumar. Þá fór ég einmitt til Kar-
lovy Vary í fyrsta skiptið og ég
hlakka til. Það var yndislegur fíl-
ingur á síðustu hátíðinni sem ég var
á. Þetta er svo falleg borg og svo
gaman að vera þarna,“ segir Árni.
Heimildarmynd Árna Sveinssonar
hefur verið valin á Karlovy Vary
Morgunblaðið/RAX
Listamaðurinn Árni hefur áður
gert heimildarmyndirnar Í skóm
drekans og Með hangandi hendi.
Hallur Már
hallurmar@mbl.is
Á næstunni kemur út ný plata með
Helga Björnssyni og Reiðmönnum
vindanna. Þetta er þriðja platan í
röðinni en hinar tvær hafa verið
feikivinsælar. Nýja platan heitir Ég
vil fara út í sveit og Helgi segir að
hugmyndin á bak við verkefnið sé
sú að taka lög sem fólk þekkir og
hefur sungið. Flest hafa þau tilvís-
anir í hestaferðir á fjöllum eða önn-
ur ferðalög þar sem sveitin leikur
stórt hlutverk.
„Í grunninn eru þetta þó bara
gamlar og góðar íslenskar dægur-
perlur. Við erum að fást við lög eins
og Sprettur/Ég berst á fáki fráum,
Það er svo geggjað að geta hneggj-
að, Vetrarnótt, Angelía og Ég vil
fara upp í sveit. Það sem er eig-
inlega skemmtilegast í þessu er að
gefa þessum klassísku lögum nýtt
líf bæði fyrir yngri og eldri kyn-
slóðir. Sum hafa fallið í gleymsku
og önnur njóta góðs af því að
hljóma á nútímalegri hátt.
Reiðmennirnir eru þeir sömu og
á síðustu plötu, Einar Valur Schev-
ing spilar á trommur, Jakob Smári
Magnússon á bassa, Kjartan Valde-
marsson á hljómborð og Stefán
Már Magnússon spilar á gítar.
Þetta er því sami kjarninn en við
tókum upp á því núna að taka upp
strengi í nokkur lög og Matti fiðla
lék inn á af sinni alkunnu snilld.
Drengirnir í Buffinu rödduðu líka
inn á nokkur lög eins og síðast sem
gefur svolítið karlalegan og
skemmtilegan blæ og gerir hljóm-
inn íslenskari. En Reiðmenn vind-
anna snúast náttúrlega að töluverðu
leyti um nostalgíu fyrir gamla Ís-
landi.“
Nú virðist þið hafa hitt á
einhverja taug
hjá landanum,
gætirðu séð
fyrir þér
fleiri Reið-
mannaplötur?
„Maður á
aldrei að
segja aldrei
en satt best
að segja
held ég að
þetta sé bara
orðið gott
núna. Láta
þessar þrjár nægja í bili, þannig líð-
ur mér allavega í dag. Maður þarf
líka að snúa sér að öðrum verk-
efnum,“ segir Helgi. „Svo er nátt-
úrlega ekki til endalaust af þessum
lögum sem manni finnst passa al-
mennilega inn í konseptið.“
Verkefnið hefur að sjálfsögðu
undið mikið upp á sig og allar þess-
ar vinsældir hafa komið skemmti-
lega á óvart. Plöturnar hafa selst í
rúmlega tuttugu þúsund eintökum
sem er eitthvað sem engin átti von
á. Helgi er sjálfur mikill hestamað-
ur og verkefnið varð til þannig.
„Þetta spratt í sjálfu sér upp úr
voða litlu, maður var búinn að vera
að tala um þetta í hestaferðum
lengi, þ.e. að gera plötu með þess-
um lögum sem maður syngur sjálf-
ur í þessum ferðalögum. Svo var
þetta bara gert í hvelli fyrir lands-
mótið 2008.“ Mikil jákvæðni og
áreynslulaus andi hefur fylgt verk-
efninu allt frá fyrsta degi. Tilefni
þessarar útgáfu er Landsmót
hestamanna sem verður haldið í
Skagafirði í lok mánaðarins. Helgi
reiknar þó ekki með að koma fram
þar og segir aðra sjá um að koma
hestamönnunum í gírinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Reiðmaður Helgi hefur stundað hestamennsku í áratugi og hugmyndin að reiðmönnunum varð til í hestaferðum hans.
Reiðmenn vindanna snúa aftur
Endurunnar dægurperlur og sveitarómantík Sprettur/Ég berst á fáki
fráum og Vetrarnótt á meðal laganna Nostalgía fyrir gamla Íslandi
Íslenska elektróníska hljómsveitin
Apparat Organ Quartet hefur
landað samningi við umboðs-
skrifstofuna PROJEKTA. Hljóm-
sveitin mun gefa út aðra plötu sína,
Pólýfónía, á næstunni og er tón-
leikaferðalag á döfinni um Evrópu
á þessu ári í kjölfarið af því.
PROJEKTA er nýtt fyrirtæki í
eigu Johns Rogers, Vasilis Pana-
giotopoulus og Hildar Maral Ham-
íðsdóttur en Hildur hefur meðal
annars unnið með íslenska útgáfu-
fyrirtækinu Bedroom Community
og að viðburðum á borð við Iceland
Airwaves, Reykjavík Film Festival
og Jónsvöku festival.
Aðrar hljómsveitir sem hafa sam-
ið fyrir fyrirtækið eru FILM frá
Grikklandi, Rökkurró frá Íslandi
og Napoleon Illrd frá Englandi.
Morgunblaðið/Allan Sigurðsson
Góðir Apparat Organ með allt á hreinu.
Apparat Organ
Quartet með nýja
umboðsmenn
Menn rak í rogastans á fésinu þeg-
ar sú frétt barst að Paul Stanley
væri gestalistamaður SÍM í júní.
Ekki nóg með það, heldur hyggðist
hann bjóða listamönnum að kíkja í
SÍM húsið í kaffibolla og ræða um
myndlist. Kynt var undir þessu, á
gáskafullan hátt, að þessu mættu
aðdáendur KISS ekki missa af.
Sumir gripu brandarann strax á
meðan aðrir klóruðu sér í kolli en
hér er um að ræða alnafna söngv-
ara og gítarleikara KISS, breskan
myndlistarmann sem gerir út frá
London. En merkilegt nokk, þá hef-
ur nafni hans úr rokkinu reyndar
líka fengist við slíkt (sjá mynd).
Annar Nei, EKKI þessi Paul Stanley!
Paul Stanley
gestalistamaður
SÍM í júní???
Síðasta plata Reiðamannanna
kom út í fyrrasumar í tilefni af
Landsmóti hestamanna sem
halda átti á Vindheimamelum.
Eins og frægt er orðið var
mótinu þó frestað vegna hósta-
pestarinnar sem lagðist á hesta.
Platan Þú komst í hlaðið kom þó
út engu að síður, seldist gríð-
arvel og var ein söluhæsta plata
ársins.
Undirbúningur fyrir mót-
ið í ár stendur nú sem
hæst en það hefst á
morgun og stendur yf-
ir til 3. júlí. Búast má
við rúmlega tíu þús-
und gestum á Vind-
heimamela í tengslum
við mótið þar sem
rúmlega þúsund
hestar verða dæmdir
og um 550 knapar leiða
saman hesta sína.
Reynt aftur
LANDSMÓTIÐ