Morgunblaðið - 27.06.2011, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 7. J Ú N Í 2 0 1 1
Stofnað 1913 148. tölublað 99. árgangur
FJÖLDI ÁLFA OG
HULDUFÓLKS BÝR
Í HELLISGERÐI
GLÆSILEGT
OG FJÖRUGT
PÆJUMÓT
LEIKA SÉR MEÐ
BÓKARFORMIÐ
800 STÚLKUR ÍÞRÓTTIR ÚTÚRDÚR Á HVERFISGÖTU 25HULIÐSHEIMUR AFHJÚPAÐUR 10
Gefa út listaverkabækur
með „tvisti“
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Eigendur Bruggsmiðjunnar á Árskógsströnd
standa í stórræðum þessa dagana og eru að
stækka brugghúsið um 200 fermetra með nýrri
viðbyggingu þar sem koma á fyrir fleiri tönkum
til bjórgerðar. Stækkar húsnæðið með þessu um
40%. Um 40 milljóna króna fjárfestingu er að
ræða og mun framleiðslugetan á bjórnum Kalda
og fleiri tegundum fara úr 380 þúsund í 550 þús-
und lítra á ári. Stefnt er að því að taka bygg-
inguna í notkun í næsta mánuði en hún hefur
verið reist af verktökum úr heimabyggð. „Það
er allt á fleygiferð. Við urðum að stækka við
okkur til að anna eftirspurn hjá ÁTVR og veit-
ingastöðunum,“ segir Agnes Sigurðardóttir,
stofnandi og aðaleigandi Bruggsmiðjunnar
ásamt eiginmanni sínum, Ólafi Þresti Ólafssyni.
Þau hófu starfsemina á Árskógsströnd árið 2006
og voru þá með tvo starfsmenn til viðbótar. Nú
starfa sjö manns hjá fyrirtækinu.
Agnes segir viðtökur á Kalda og öðrum bjór-
tegundum verksmiðjunnar hafa farið langt fram
úr björtustu vonum þeirra. Eru fimm tegundir
nú framleiddar allt árið um kring, auk árs-
tíðabundinna tegunda eins og fyrir jólin, þorr-
ann og páskana. Hafa fleiri tegundir verið að
bætast í hópinn, m.a. Stinningskaldi, sem unn-
inn er úr hvönn í Hrísey, í samstarfi við fyrir-
tækið Saga Medica.
62 vörunúmer frá átta aðilum
Brugghúsum og íslenskum bjórtegundum
hefur verið að fjölga hér á landi. Nú er ÁTVR
með innlendan bjór í sölu frá átta aðilum, sá nýj-
asti kemur frá bænum Útvík í Skagafirði, Gæð-
ingur. Alls eru 62 vörunúmer skráð í hillum
ÁTVR með innlendum bjór. »16
Stækka vegna aukinnar bjórsölu
Bruggsmiðjan á Árskógsströnd bætir við sig 200 fermetra viðbyggingu
Brugghúsum fjölgar hér á landi Íslenskur bjór með 75% hlutdeild
Stækkun Ólafur Þröstur og Agnes Sig-
urðardóttir í nýrri viðbyggingu sinni.
Margt var um manninn á Landsmóti hestamanna sem hófst á Vind-
heimamelum í Skagafirði í gær. Veðrið lék við gesti og kveðst mótstjóri
bjartsýnn á að vel muni til takast í ár. Búist er við fjölda fólks enda um ein-
staka skemmtun að ræða þar sem knapar og gæðingar bregða á leik. »4
Landsmótið hafið og margir í brekkunni
Ljósmynd/Hilda Karen Garðarsdóttir
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Forsvarsmenn Hlaðbæjar-Colas, þjónustufyrir-
tækis á sviði malbikunar, íhuga nú að kæra fram-
ferði Malbikunarstöðvarinnar Höfða til Samkeppn-
iseftirlitsins. 99% hlutafjár malbikunar-
stöðvarinnar er í eigu Reykjavíkurborgar, en
fyrirtækið var stofnað árið 1996. Sigþór Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Hlaðbæjar-Colas, segir að mal-
biksmarkaðurinn hafi skroppið saman frá árinu
2008 um sem nemur á bilinu 75-80%. „Við höfum
skoðað að ræða við Samkeppniseftirlitið, en það fyr-
irtæki sem gengur einna harðast fram í undirboð-
um á þessum markaði er hlutafélag í eigu Reykja-
víkurborgar, mjög öflugt og sterkt hlutafélag með
engar skuldir. Hlaðbær-Colas er stórt félag og því
kveinkum við okkur síðast, en þeir eru að ganga frá
smærri fyrirtækjum á þessum markaði,“ segir Sig-
þór í samtali við Morgunblaðið. Hann nefnir dæmi
um að Malbikunarstöðin Höfði bjóði verð í útboð-
um, sem er allt að 20% undir næstlægsta boði.
„Þegar við sendum okkar tilboð inn þessa dagana
erum við yfirleitt að miða við að koma út á núllinu.
En hins vegar erum við með opinbert fyrirtæki á
markaðnum sem beitir sér af mikilli hörku gegn
allri samkeppni.“ Hlaðbær-Colas er í eigu erlendra
aðila. „Þeir skilja hreinlega ekki hvernig kaupin
gerast á eyrinni á þessum markaði hér heima.“
Hagnaður Malbikunarstöðvarinnar Höfða var
tæplega 75 milljónir króna á síðasta ári.
Borgin enn í tjörunni
Framkvæmdastjóri Hlaðbæjar-Colas gagnrýnir framgang malbikunarfyrirtæk-
is í eigu Reykjavíkurborgar Smærri fyrirtæki leggja upp laupana eitt af öðru
MMarkaður skroppinn saman »2
Sáttafundi
milli Icelandair
og Félags ís-
lenskra atvinnu-
flugmanna var
slitið á laugar-
dag án þess að
boðaður væri nýr
fundur. Í því fel-
ast skýr skilaboð
um að mikið beri
á milli. Einhverjar þreifingar voru í
gær á milli manna en enginn fund-
ur var ákveðinn. Yfirvinnubann
flugmanna hefur þegar valdið því
að um tíu flug hafa fallið niður.
Mikil reiði er á meðal fólks í ferða-
mannaþjónustunni yfir aðgerðum
flugmanna. „Við höfum meiri
áhyggjur af þessu en eldgosum,“
segir Bergþór Karlsson hjá Bíla-
leigu Akureyrar. „Svo eru þeir að
tala um atvinnuöryggi sitt en ógna
atvinnuöryggi okkar í ferða-
mannabransanum um allt land,“
segir Bergþór. »4
Mikil reiði innan
ferðaþjónustunnar
Ferðamenn á BSÍ
„Það er óneitanlega þungt hljóð í
fornleifafræðingum,“ segir Elín
Ósk Hreiðarsdóttir, formaður Fé-
lags íslenskra fornleifafræðinga,
um verkefnastöðuna í sumar og
þróunina á fjárveitingum til þeirra.
Frá árinu 2008 hafa framlögin
dregist saman um 80% og nema í ár
um 27 milljónum króna. Þar af
koma 18 milljónir úr Fornleifasjóði.
Sextán aðilar fengu styrki úr sjóðn-
um í ár en 45 umsóknir bárust.
Fornleifavernd ríkisins er búin að
veita 18 leyfi til rannsókna í sumar
en á síðasta sumri voru gefin út um
30 leyfi. Ýmis verkefni fornleifa-
fræðinga tengd framkvæmdum
hafa minnkað eftir hrunið. »6
Framlög dregist
saman um 80%
Rannsóknir Frá Skriðuklaustri.