Morgunblaðið - 27.06.2011, Blaðsíða 8
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Blómgunin er mikið seinna á ferð-
inni en 2009. Það þarf að verða gott
sumar það sem eftir er til að ein-
hver árangur náist. Við vonumst þó
eftir hálfri uppskeru,“ segir Ólafur
Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri
undir Eyjafjöllum, um ræktun á
repju.
Kuldar og þurrkar í vor hafa haft
áhrif á tilraunaræktun á repju til
olíuframleiðslu. Vetrarrepjan sem
sáð var í júlí í fyrra kom vel upp um
haustið og tók víða ágætlega við sér
í vor. Í kuldakastinu drapst hins
vegar í mörgum ökrum. Var það þó
misjafnt eftir tegundum, sum af-
brigðin skila ekki nýtanlegri upp-
skeru en önnur þokkalegri. Repjan
hefur tekið ágætlega við sér síðustu
daga en á greinilega langt í land.
Sumir bændur plægðu upp léleg-
ustu repjuakrana í vor og sáðu í þá
sumarrepju og vonast eftir að hún
skili uppskeru í haust.
Bændur víða um Evrópu hafa
einnig lent í vandræðum með repj-
una í ár, eins og Jón Bernódusson,
verkefnisstjóri hjá Siglingastofnun,
bendir á. Kuldar í Þýskalandi og á
Norðurlöndunum hafa seinkað
vexti.
Verðum að halda áfram
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég
sái repju og get ekki lagt mat á ár-
angurinn. Ég ætla að reyna að
þreskja í haust og þurrka upp-
skeruna en það fer auðvitað eftir
því hvað mikið fæst hvort það borg-
ar sig,“ segir Haraldur Magnússon
í Belgsholti í Melasveit. „Ég er ekki
að stressa mig yfir þessu. Þetta er
tilraun til að athuga hvort repjan
lifir og til að læra,“ segir hann.
Annað afbrigðið sem Rúnar Atli
Gunnarsson í Böðvarsholti í Stað-
arsveit sáði í fyrra drapst í kulda-
kastinu í maí og er sá hluti rækt-
unarinnar nánast eins og ósáinn
akur. Hitt afbrigðið er að koma til
en repjan er greinilega gisnari en
gerist í góðum árum.
„Ég sagði þegar ég ákvað að
reyna þetta að ég myndi halda
áfram þótt þetta mistækist fyrsta
árið, til þess að reyna að sjá hvers
vegna. Annars væri þetta ekki til-
raun,“ segir Rúnar.
Bændur sá vetrarrepju á ný í
næsta mánuði og vonast til að fá
betri uppskeru á næsta ári. „Við
ætlum að halda ótrauð áfram. Við
erum að læra á þetta og vitum að
tíðarfarið hefur sín áhrif,“ segir
Ólafur á Þorvaldseyri.
Vonast eftir hálfri upp-
skeru af olíufræi í haust
Bændur halda áfram tilraunum með ræktun repju til olíuframleiðslu þótt vorið
hafi sett strik í reikninginn í ár Vetrarrepjan drapst í hluta akranna
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Ræktandi Útlit er fyrir ágætis uppskeru í Belgsholti í Melasveit þar sem best vex. Haraldur Magnússon, sem er að
sá repju í fyrsta sinn, vill hinsvegar ekkert fullyrða fyrr en uppskeran er komin í hús.
Mismunur Repju af tveimur afbrigðum var sáð sama daginn í þetta stykki í
Böðvarsholti. Plönturnar til vinstri eru að ná sér af stað en repjan á hægri
hluta akursins hefur drepist svo hann er eins og ósáinn yfir að líta.
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 2011
Páll Ingólfsson, framkvæmda-stjóri Fiskmarkaðar Íslands,
hefur miklar áhyggjur af áformum
stjórnvalda um breytingar á
fiskveiðikerfinu.
Samkvæmt minna kvótafrumvarp-inu sem búið er að samþykkja
sem lög og ákvæðum sem boðuð hafa
verið í stærra frumvarpinu verða
aflaheimildir í stórauknum mæli
bundnar fastar við byggðirnar. Með
því er stuðlað að því að fiskur fari út
af fiskmarkaði og verði ekki í boði í
frjálsri sölu. Hugmyndir stjórnvalda
verða til þess að ýta mönnum enn
meira út í bein viðskipti eins og var
hér áður og misjöfn reynsla var af.
Ég tel þessa stefnu stórt skref aftur á
bak og að í henni felist hætta á að
fiskmarkaðir í minni sjávarþorpum
leggist hreinlega af,“ segir Páll í
samtali við Fiskifréttir.
Páll bendir einnig á að leigumark-aðurinn hafi verið „nánast botn-
frosinn í eitt og hálft ár“ og að
„menn hafi ekki þorað að leigja frá
sér aflaheimildir af ótta við að verða
hegnt fyrir það seinna“.
Jón Þorgeir Einarsson, endurskoð-andi á Vestfjörðum sem þekkir
vel til í sjávarútvegi, bendir á í sam-
tali við Morgunblaðið um helgina að
breytingar sem boðaðar hafi verið í
stóra kvótafrumvarpinu komi sér illa
fyrir þá sem treyst hafi á leigumark-
aðinn. Hann segir að þeir geti þurft
að leggja bátunum því ljóst sé að
ekki verði mikið til skiptanna.
Er þetta virkilega sú framtíð-arsýn sem ríkisstjórnin vill
bjóða upp á, að fiskmarkaðir loki og
að bátum verði lagt? Er þetta það
sem á að hjálpa byggðunum?
Fiskmarkaðir
í hættu
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 26.6., kl. 18.00
Reykjavík 13 skýjað
Bolungarvík 8 skýjað
Akureyri 12 skýjað
Kirkjubæjarkl. 9 skúrir
Vestmannaeyjar 8 alskýjað
Nuuk 7 skúrir
Þórshöfn 11 léttskýjað
Ósló 17 skýjað
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 22 heiðskírt
Lúxemborg 26 heiðskírt
Brussel 23 léttskýjað
Dublin 22 léttskýjað
Glasgow 17 skýjað
London 27 léttskýjað
París 28 heiðskírt
Amsterdam 22 léttskýjað
Hamborg 21 léttskýjað
Berlín 21 skýjað
Vín 21 skýjað
Moskva 23 heiðskírt
Algarve 30 heiðskírt
Madríd 37 léttskýjað
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 26 léttskýjað
Aþena 22 léttskýjað
Winnipeg 21 skýjað
Montreal 22 skýjað
New York 25 léttskýjað
Chicago 23 léttskýjað
Orlando 29 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:59 24:03
ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:36
SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19
DJÚPIVOGUR 2:15 23:47