Morgunblaðið - 28.06.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Halldór Torfason, framkvæmda-
stjóri Malbikunarstöðvarinnar
Höfða hf., vísar því á bug að fyrir-
tækið stundi undirboð á malbiks-
markaði, líkt og fram kom í Morg-
unblaðinu í gær. Slíkar ásakanir séu
fráleitar séu niðurstöður opinberra
útboða í ár skoðaðar. Forsvarsmenn
Hlaðbæjar-Colas íhuga að kæra
Höfða til Samkeppniseftirlitsins fyr-
ir hin meintu undirboð.
Halldór segir í yfirlýsingu að frá-
leitt sé að halda þessu fram. Höfði sé
hlutafélag og lúti öllum lögum og
reglum markaðarins, hafi alltaf
greitt af lánum sínum og öll opinber
gjöld, auk þess að greiða arð í sam-
ræmi við afkomu hverju sinni. Mark-
aðurinn hafi dregist saman og hrá-
efni hækkað í verði og komi það
niður á öllum í greininni.
Staðan er 4 - 4
Hann tekur saman upplýsingar
um það sem hann kallar ellefu helstu
útboðin það sem af er árinu, en sam-
kvæmt þeim hefur Hlaðbær-Colas
tekið þátt í þeim öllum en Höfði í
átta. Af þeim átta verkefnum sem
bæði fyrirtækin buðu í fékk Colas
fjögur. Í þeim tilvikum var tilboð Co-
las á bilinu 85 til 97% af tilboðsupp-
hæð Höfða. Höfði hreppti sömuleiðis
fjögur verk og var hans tilboð þá um
það bil 93 til 99% af tilboði Colas.
„Helsti keppinautur Malbikunar-
stöðvarinnar Höfða hf. er í eigu
franska stórfyrirtækisins Colas, sem
er eitt stærsta verktakafyrirtæki í
Evrópu. Í frétt Morgunblaðsins er
því haldið fram að Malbikunarstöðin
Höfði hf. stundi markviss undirboð í
skjóli þess að vera í eigu opinbers að-
ila og að auki skuldlaust.
Hvort tveggja er rangt [...]. Tilvist
fyrirtækisins tryggir að hér ríkir
samkeppni á markaði,“ segir í yfir-
lýsingunni.
Fráleitt tal um undirboð
– Höfði veitir samkeppni
FRÉTTASKÝRING
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Samningafundir í kjaradeilu flug-
manna og Icelandair halda áfram á
hádegi í dag. Fundi var slitið klukk-
an tíu mínútur fyrir ellefu í gær-
kvöldi án niðurstöðu. Að sögn Kjart-
ans Jónssonar, formanns FÍA,
mjakaðist málið hægt áfram. Hann
kvaðst vona að niðurstaða kæmi
sem fyrst en sagðist þó hóflega
bjartsýnn á að svo yrði.
Flugi Icelandair til Kaupmanna-
hafnar sem fara átti í loftið klukkan
eitt í nótt var aflýst í gærkvöldi.
Sömuleiðis hefur einu síðdegisflugi
til Seattle verið aflýst.
Ráðherrar vilja ekki setja lög
Katrín Júlíusdóttir, ráðherra
ferðamála, dró úr því á sunnudag að
verið væri að hugleiða lagasetningu
á aðgerðir flugmanna. Orð hennar
um málið frá því á föstudag hefðu
verið oftúlkuð. Hún hefði enga slíka
yfirlýsingu gefið, aðeins svarað
beinni spurningu um möguleikann.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra hefur samgöngumálin á
sinni könnu og heyra því flugmál
undir hann.
„Málið er í farvegi samningavið-
ræðna og við vonum öll að þær við-
ræður leiði til ásættanlegrar niður-
stöðu fyrir deiluaðila. Það er mikil-
vægt að það gerist eins fljótt og
auðið er. Deilan hefur skaðleg áhrif
á ferðaþjónustuna og alla sem eru
háðir samgöngum til og frá land-
inu,“ segir Ögmundur.
Málefni vinnumarkaðarins heyra
undir velferðarráðherrann, Guð-
bjart Hannesson. Aðspurður segir
hann það ekkert hafa komið til tals í
ríkisstjórninni, né heldur inn á hans
borð, að undirbúa lög á aðgerðir
flugmanna. „Ég sé ekki að
lagasetning sé nein lausn í
augnablikinu,“ segir
Guðbjartur.
Inngrip á gráu svæði
Alþingi hefur áður sett
niður vinnudeilur með lög-
um, til dæmis þegar bund-
inn var endi á sex vikna
sjómannaverkfall árið 2001.
Alþýðusamband Íslands fór árið eft-
ir með það mál fyrir Hæstarétt, sem
taldi almennt að efnahagsleg áhrif
verkfalla og verkbanna gætu verið
svo alvarleg að ríkir almannahags-
munir réttlættu tímabundið bann
við þeim. Þá var það útflutningur
fiskafurða og hagsmunir fisk-
vinnslufólks. Nú eru það hagsmunir
ferðaþjónustunnar. Hæstiréttur
hnekkti ekki því mati Alþingis að
ríkir almannahagsmunir krefðust
tímabundins banns við verkfallinu.
Árið 2004 gagnrýndi Alþjóða-
vinnumálastofnunin, ILO, stjórn-
völd hins vegar harðlega fyrir þetta
og önnur inngrip í kjaradeilur og
sagði þau ólögmæt. Það var þá mat
lögfræðings ASÍ að stjórnvöld yrðu
eftirleiðis mun varfærnari við inn-
grip í vinnudeilur.
Verkfallsrétturinn er verndaður
bæði af Mannréttindasáttmála Evr-
ópu og samþykktum ILO sem Ís-
land hefur staðfest fyrir sitt leyti og
er því bundið af. Yfirvinnubann
flugmanna er löglega boðuð verk-
fallsaðgerð og nýtur því þeirrar
verndar.
Samkvæmt samtölum við lög-
fræðinga sem sérfróðir eru um
vinnurétt þarf starfsemi líka að vera
sérstaklega mikilvæg svo lagasetn-
ing gegn verkföllum sé talin réttlæt-
anleg, til dæmis á sviði öryggismála
eða bráðaþjónustu á sjúkrahúsum.
Efnahagslegt mikilvægi telur líka
en óvíst er hvort flugmenn fái þar
sama vægi og íslenskir sjómenn.
Ósamið og fundur
boðaður á hádegi
Ekkert rætt um lagasetningu á vinnustöðvanir í ríkisstjórn
Óvíst hvort inngrip í verkfallsaðgerðir yrði talið lögmætt
Morgunblaðið/Ernir
Nýlent Vélar Icelandair lenda stundum í Reykjavík þegar aðstæður eru
slæmar í Keflavík. Hér sést ein þeirra á brautarendanum við Hringbraut.
Kajakræðararnir Riaan Manser og
Dan Skinstad, sem róið hafa um-
hverfis landið, tóku land í fjörunni
vestan við Dyrhólaey undir kvöld í
gær. Kapparnir lentu í volki í lend-
ingunni, en náðu þó landi giftu-
samlega. Þeir lögðu upp í för sína
frá Húsavík 27. mars og hafa á leið
sinni þaðan lent í alls konar veðrum
og upplifað einstaka náttúru við
ströndina eins og undir einum
Reynisdranganna í gær.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Undir Reynisdröngum
Skannaðu kóðann
og lestu yfirlýs-
inguna í heild.
Audi Q7 4.2 FSI S-Line
Sérlega vel útbúinn bíll
Árgerð: 28.3.2008
Ekinn: 46.000 km
Ásett verð: 9.250.000 kr.
HEKLA
NOTAÐIR
BÍLAR
Fimmtíu og níu flugmenn Ice-
landair fengu í gær uppsagn-
arbréf og 37 öðrum var sagt upp
flugstjórastöðum, sem þýðir að
þeir verða aðstoðarflugmenn í
haust. Guðjón Arngrímsson,
upplýsingafulltrúi Icelandair,
segir þá aðeins hafa verið ráðna
yfir sumartímann. Þetta sé ár-
legt og helgist af sveiflunni í
kringum mesta ferðamannatím-
ann. Kjartan Jónsson, formaður
FÍA, segir þetta það sem flug-
menn þurfi að búa við. „Þetta er
erfitt þegar þetta gengur svona
í jafn mörg ár og raun ber vitni.“
Sátt hafi verið um það áður, að
flugmenn væru bara á sumrin í
tvö eða þrjú ár en nú detti út
menn yfir veturinn sem hafi
starfað hjá Icelandair
í allt að átta ár.
„Menn sjá
enga
framtíð í
þessu
svona,“
segir Kjartan.
hjorturjg@mbl.is
59 árlegar
uppsagnir
MISSA VINNU Á HAUSTIN
Karlmaður á sextugsaldri lést þeg-
ar íshröngl féll á hann fyrir utan ís-
helli í Kverkfjöllum á fjórða tím-
anum í gær. Maðurinn sem lést var
erlendur og var að skoða hellinn
með sex samlöndum sínum, en þá
sakaði ekki. Maðurinn var farar-
stjóri hópsins, samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu, en ekki er hægt
að greina frá nafni hans að svo
stöddu.
Björgunarsveitir frá Vopnafirði
fóru á staðinn og lögreglan á Egils-
stöðum, sem fer með rannsókn
málsins. Hún nýtur aðstoðar lög-
reglunnar á Eskifirði.
Beið bana í Kverkfjöllum