Morgunblaðið - 28.06.2011, Síða 3

Morgunblaðið - 28.06.2011, Síða 3
Hringir þetta einhverjum bjöllum? Spennandi húsnæði til sölu eða leigu Húsnæðið hýsti áður samskiptamiðstöð Bandaríkjahers. Það var byggt árið 1997 og er tæplega 1.700 m2. Húsið er ákaflega rammbyggt, hefur eins metra þykka steypuveggi og stálhurðir sem hannaðar eru til að standast loftárásir. Lóðin er afgirt og slökkvistöð í næsta nágrenni. Húsið hentar því vel sem geymsla fyrir mikilvæg verðmæti, hvort sem þau eru stafræn eða áþreifanleg. Skotheld bygging Húsnæði með 100 íbúðum er til sölu eða leigu. Húsið er 3.359 m2 á þremur hæðum. Það var byggt árið 1976 og er í mjög góðu ástandi. Baðherbergi og eldhús er í öllum íbúðum og húsnæðið gæti því hentað vel undir stúdentagarða, lýðheilsuskóla, ráðstefnur o.fl. Húsið er staðsett í heilsu- þorpinu á Ásbrú. Lýðháskóli Atlantic Studios er 4.730 m2 kvikmyndaver í flugskýli sem þjónaði áður Bandaríkjaher. Kvikmyndaverið er hið stærsta á Íslandi, með 2.700 m2 aðalsviði (e. soundstage) þar sem lofthæð er 9 metrar. Einnig er þjónustuaðstaða með búningsherbergjum, skrifstofum og kaffistofu. Kvikmyndin Reykjavík Whale Watching Massacre var meðal annars tekin upp í verinu. Atlantic Studios Kirkjubyggingin á Ásbrú er nú til sölu eða leigu. Kapella ljóssins þjónaði áður varnarliðinu og var síðar nýtt sem skólabygging Keilis. Kirkjubyggingin er 981 m2 og var byggð árið 1985. Töluverðar breytingar voru gerðar á húsnæðinu árið 2007 og var rafmagn m.a. endurnýjað. Húsnæðið getur hentað undir margvíslega starfsemi, s.s. skrifstofur, veitingastað, gallerí, samkomuhús o.fl. Hið sögufræga Andrews-leikhús er til sölu eða leigu. Húsið var áður kvikmyndasýningar- salur Nató, en byggingin var endurnýjuð árið 2010. Salurinn tekur 499 í sæti og sviðið er 100 m2. Myndvarpi, tjald og gott hljóðkerfi er til staðar fyrir fyrirlestra. Húsnæðið hentar undir leik- eða kvikmyndasýningar, tónleika eða ráðstefnur. Andrews-leikhúsið Sími 425 2100 | fyrirspurnir@kadeco.is Þetta er einungis sýnishorn af þeim eignum sem eru til sölu eða leigu á svæðinu. Nánari upplýsingar um eignir á www.asbru.is/fasteignir. Ásbrú er spennandi svæði þar sem fyrrum herstöð er umbreytt í samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnulífs. Á Ásbrú er stór háskólagarður, spennandi nám í boði hjá Keili, kvikmyndaver, heilsuþorp í fararbroddi heilsuferðamennsku, tækniþorp þar sem alþjóðlegt gagnaver er að rísa og fjöldi áhugaverðra sprotafyrirtækja. Mikil uppbygging er á svæðinu og má þar nú meðal annars finna leikskóla, grunnskóla, verslun og veitingastað. P IP A R \T B W A -S ÍA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.