Morgunblaðið - 28.06.2011, Blaðsíða 5
Við skorum á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að standa af heilindum að umsókn
Íslands um aðild að Evrópusambandinu sem meirihluti landsmanna styður. Til þess
að þjóðinmeginjótafjölmargrakosta fullrar aðildar þarf að ná samningi sem tryggir
framtíðarhagsmuni Íslendinga sem fullvalda og sjálfstæðrar þjóðar. Efnahagslegur
stöðugleiki, lægri vextir, afnám verðtryggingar, lægra matvælaverð og þátttaka í
ákvörðunum um eigin örlög er meðal grundvallarkosta aðildar.
Við viljum að aðildarsamningur tryggi meðal annars eftirfarandi:
• Íslendingar fái aðgang að öllum stofnunum ESB og verði fullgildir
þátttakendur við allar ákvarðanir
• Íslendingar geti tekið upp evru sem allra fyrst
• Neytendur fái notið lægra verðs matvæla með afnámi tolla
• Neytendur hafi frelsi til að kaupa vörur og þjónustu án hindrana
eða aukagjalda frá öllum ríkjum ESB, t.d. með netverslun
• Efnahagslegur ávinningur Íslendinga af auðlindum hafsins
verði áfram tryggður
• Verndunarsjónarmiða verði gætt þannig að náttúruauðlindir
Íslands nýtist framtíðarkynslóðum Íslendinga
• Íslendingar haldi fullum yfirráðum yfir orkuauðlindum sínum
• Markviss stuðningur við dreifðar byggðir verði tryggður
• Íslendingar hafi frelsi til að styðja landbúnað
• Íslenska verði eitt af opinberum tungumálum ESB
• Íslandverði ávallt herlausþjóðog Íslendingarþurfialdrei að gegnaherskyldu
Já Ísland er sameiginlegur vettvangur einstaklinga og félagasamtaka sem eru hlynnt aðild Íslands að ESB enda
verði framtíðarhagsmunir þjóðarinnar tryggðir. Auglýsingin er greidd með frjálsum framlögum og vinnuframlagi
sjálfboðaliða. Já Ísland - Skipholti 50a, 105 Reykjavík | sími 517 8874 | jaisland@jaisland.is
Samninganefnd Íslands gengur nú
til eiginlegra samningaviðræðna
um aðild Íslands að Evrópusam-
bandinu í samræmi við ákvörðun
Alþingis. Við óskum henni alls hins
besta í erfiðu verkefni og hvetjum
alla landsmenn til þess að standa
þétt að baki henni og veita henni
stuðning og aðhald til þess að hún
nái sem bestum árangri.
Það er sameiginlegur
hagur okkar allra.
ÁSKORUN
STÖNDUM SAMAN
Jaisland | www.jaisland.is